Morgunblaðið - 17.09.1991, Side 37
ieei íiaaMa'Fiag .vi HiíaAQöuaiM qiqAíISMuoh^m d<,
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991 37
Morgunblaðið/Þorkell
Frá vinstri: Lelle Kullgren, Karin Korpelainen, Anders Hag-
berg, Anders Jormin, Kristian Blak og Tore Brunborg.
LEYNITONLEIKAR
YGGDRASILS
að magna upp bassann þannig
að hver nóta hafði fagran og
háan hljóm. Tore Brunborg, sem
margir telja einn efnilegasta te-
nórsaxafónleikara Norðurlanda,
lék sólóa þar sem sparlega var
farið með efnið en tilfinningin
var rík. Blúsaðir sólókaflar eru
hans ær og kýr en hugmyndimar
ná lengra og út fýrir formið og
eru ávallt ögrandi.
Tónlist Yggdrasils er meira í
ætt við tónaljóð byggð á fjöl-
breytilegu hljómfalli - fremur en
að þama sé á ferðinni hreinrækt-
aður jass eða blús. Dæmi um
þetta má heyra á skífunni De
Fire Tárner frá 1985.
Yggdrasill, veraldartréð, hef-
ur starfað í tíu ár, og gerir nú
víðreist um Norðurlöndin af því
tilefni. Þeir bera með sér menn-
ingarstrauma sem liggja í láginni
hér á landi og eru því öllum
aufúsugestir.
VIÐ DAUÐANS DYR
Jass
Guðjón Guðmundsson
Skandinavíusveitin Yggdrasill
lék í síðustu viku á tónleikum í
Púlsinum að fáum viðstöddum.
Eitthvað hefur farið forgörðum
í kynningu að þessu sinni. Þetta
er ekki í fysta sinn sem sveitin
leikur hér á Jandi. Fyrir þremur
eða fjórum árum lék Yggdrasill
í Norræna húsinu en tónleikarnir
í Púlsinum í síðustu viku vora
áheyrilegri, tónlist sveitarinnar
hefur fjarlægst of avant-gardísk-
ar og sérviskulegar tilhneigingar
höfuðpaursins, Kristians Blak,
og byggir nú meira á þjóðlegum
rytmum Sama og Indíána.
Af öðram ólöstuðum var And-
ers Jormin bassaleikari potturinn
og pannan í sveitinni. Hann er
gífurlega teknískur og svalur við
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Að leiðarlokum („Dying
Young“). Sýnd í Bíóborginni.
Leikstjóri: Joel Schumacher.
Framleiðendur: Sally Field og
Kevin McCormick. Aðalhlut-
verk: Julia Roberts, Campbell
Scott, Vincent D’Onofrio, David
Selby og Colleen Dewhurst.
Myndin Að leiðarlokum, nýi
rómansinn með Julia Roberts, hef-
ur verið kölluð „Eove Story“ tíunda
áratugarins enda eiga þær það
sameiginlegt að fjalla báðar um
ástina við dauðans dyr. „Love
Story“ olli meiriháttar æði en
gengi „Leiðarloka" varð ekki
jafngott og spáð hafði verið í
Bandaríkjunum í sumar. Efnivið-
urinn of þungur fyrir veraleika-
flóttann sem sumarmyndimar eiga
venju samkvæmt að veita. Hver
vill sökkva sér í eymdina þegar
hægt er að sjá Schwartzenegger
í 100 milljóna dollara brellumynd?
Að leiðarlokum er góð bíómynd
og tekur á viðkvæmum efniviðnum
á næsta væmnislausan, blátt
áfram, raunsæjan hátt undir leik-
stjórn hins ágæta Joels Schumac-
hers. Hún segir frá dauðvona
sjúklingi (Champbell Scott) sem
þjáist af hvítblæði. Hann ræður
til sín myndarlega konu en lítt
menntaða í hjúkranarfræðum (Ro-
berts), er á að hjálpa honum í
gegnum erfiða lyfjameðferð. Faðir
hans er milljónamæringur og hann
býr hjá honum í stórri villu með
þjón á hverjum fingri en tíu ára
barátta við sjúkdóminn hefur gert
hann vinafáan, einmana og lokað-
an. Hún er af allt öðru sauðahúsi,
fátæk og spræk, og lífskraftur
hennar smitar út frá sér svo Ey-
jólfur hressist um stund, þykist
læknaður og fer með henni út á
land á fáfarinn stað í vafasamri
tilraun til að lifa með henni eðli-
legu lífi.
Myndin er einkar vel leikin,
ekki aðeins af nýju súperstjöm-
unni Juliu Roberts heldur og ekki
síður af Campbell Scott, syni leik-
aranna George C. Scott og Colleen
Dewhurst, sem nú er nýlátin. Hún
kemur reyndar fram í „Leiðarlok-
um“ því það reyndist vera síðasta
myndin sem hún lék í. Scott sýnir
á einkar áhrifamikinn hátt líf
sjúklingsins, sem í fyrstu berst við
heiftúðug eftirköst lyfjameðferð-
arinnar langþreyttur og niðurbrot-
inn en fær með tímanum aukinn
þrótt og lífsvilja og jafnframt á
ný óttann við vonina. Þarna fer
sannarlega efni í stórleikara og
jafnvel föðurbetrung, þótt auðvit-
að sé of snemmt um það að spá.
Hlutverk Juliu Roberts er ekki eins
safaríkt en hún gerir því góð skil.
Leikstjórinn Schumacher hefur
sérhæft sig í gerð mynda um ungt
fólk og lífsreynslusögur þess í
myndum eins og „St. Elmo’s Fire“
og „Flatliners“ og hérna sýnir
hann sem fyrr að hann hefur býsna
góð tök á leikuram sínum. Schum-
acher er einnig leikinn í að skapa
melodramanu rétt umhverfi hvort
sem er í gerilsneyddri íbúð Camp-
bells í villunni eða vinalega húsinu
við sjóinn þar sem ástarsagan nær
flugi. Allt er það gert af leikni og
tilfinningu fyrir efninu.
TJöfóar til
XJLfólks í öllum
starfsgreinum!
Nafn: Sigurður Baldursson
Starf: Framkvæmdastjóri
Aldur: 31
Heimili: Birkimelur lOa, Reykjavík
Bifreið: VW Golf 1991
Ahugamál: Iþróttir, kvikmyndir og klassískur jazz
Mitt álit: „Ég hafði áður greitt í marga lífeyrissjóði.
Eftir talsverða skoðun komst ég að þeirri niðurstöðu að
lífeyrir minn er best geymdur í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Þaðan mun ég fá endurgreiddan lífeyri í samræmi við
iðgjöld og fjármunirnir eru mín séreign sem erfast og geta
þannig nýst sem líftrygging.“
<£>
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI 7,101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700 • RÁÐHÚSTORGI 3. 600 AKUREYRI S. (96) 11100