Morgunblaðið - 17.09.1991, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
Þýsk kvikmyndahátíð;
Hárnákvæmt jafnvægi
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Jafnvægi („Balance"). Sýnd í
Regnboganum á þýskri kvik-
myndahátíð. Leikstjórn, handrit,
kvikmyndataka, klipping og
hljóð: Wolfgang og Cristoph Lau-
enstein. Teiknimynd. 8. mín. V-
Þýskaland. 1989.
Hin stutta teiknimynd Jafnvægi
r eftir tvíburabræðurna Wolfgang og
Cristoph Lauenstein hreppti óskar-
inn sem besta stutt-teiknimyndin
árið 1990 og er sannarlega vel að
þeim verðlaunum komin.
Sagt er að bræðurnir hafi gert
myndina á tveimur árum í kjallaran-
um heima hjá foreldrum sínum. Hún
er ótrúlega frumleg, skopleg og
skemmtileg, hugmyndin íðilsnjöll
og úrvinnslan hin ánægjulegasta
úttekt á afleiðingum þess að hár-
fínt, lífsnauðsynlegt jafnvægi rask-
ast, í þetta sinn sökum græðgi.
Teiknimyndin, sem er svart/hvít,
er einfaldleikinn uppmálaður. Leik-
myndin er tólftommu þykkur fer-
hyrndur fleki sem svífur í einhvers-
konar tómi en uppi á honum hafast
við nokkrar númeraðar fígúrur, all-
ar eins, mjóslegnar í síðum þykkum
frökkum. Engin sjáanleg hreyfíng
er á flekanum nema hann rís og
hnígur eftir því hvernig þungi safn-
ast á hann. Fígúrurnar eiga í stöð-
ugri hættu að renna framaf. Það
eina sem heldur þeim á flekanum
og á lífi þar með er samkomulag
um að halda flekanum láréttum.
Ef einn hreyfir sig verða allir að
hreyfa sig svo jafnvægið raskist
ekki. Lífið á flekanum þrífst aðeins
í fullkomnu jafnvægi.
Vandræðin hefjast þegar fígúr-
urnar einn daginn veiða neðan úr
tóminu kassa mjög dularfullann.
Hann raskar hinu hárnákvæma
jafnvægi en það sem verra er, fígúr-
urnar taka að berjast um hann þar
til aðeins ein er éftir andspænis
kassanum og stendur þannig til ei-
lífðar því hreyfi hún sig er úti um
hana.
Hér er einkar snorturlega að
verki staðið, hugmyndin jafn ein-
föld og skýr og útlitið sjálft. Boð-
skapurinn um nauðsyn á jafnvægi
á völtu skákborði heimsins þar sem
samvinna og samlyndi er undirstað-
an kemst til skila á einkar áhrifa-
ríkan, myndrænan hátt.
Síðasta gönguförin
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Síðasta gönguför Wallers („Wall-
ers letzter gang“). Sýnd í Regn-
boganum á þýskri kvikmynda-
hátíð. Leikstjóri, handritshöf-
undur og framleiðandi: Christian
Wagner. Aðalhlutverk: Rol 111-
ing, Sibylle Canonica. 100. mín.
V-Þýskaland. 1988.
Opnunarmyndin á kærkóminni
þýskri kvikmyndahátíð, sem hófst
í Regnboganum um síðustu helgi,
var Síðasta gönguför Wallers eða
„Wallers letzter gang“ frá 1988
eftir einn af gestum hátíðarinnar,
Christian Wagner. Myndin er hans
höfundarverk því hann er allt í senn
leikstjóri, handritshöfundur og
framleiðandi, en hún var útnefnd
til Felixins, nýju evrópsku kvik-
myndaverðlaunanna og að auki
hlaut hún m.a. verðlaun þýskra
^*KVÍkmyndagagnrýnenda árið 1989.
Síðasta gönguför Wallers er at-
hyglisverð mynd frá einum af arf-
tökum þýsku nýbylgjunnar. Hún
segir frá lífshlaupi titilpersónunnar
Wallers í afturhvarfi síðasta daginn
hans í vinnunni sem eftirlitsmaður
með járnbrautarteinum við litla
sveitasamfélagið sem hann býr í.
Starfið sem hann gegnir er úrelt
orðið eins og hann sjálfur, tíma-
skekkja, en hann þtjóskast við.
Gamall maður sem gengur með
skúfiykil eftir teinunum, slær í
járnið, herðir skrúfu og gengur
afram. A leiðinni sér hann líf sitt
ganga hjá frá æsku til fullorðinsára
áður en hann sjálfur hverfur inní
þokumistur, eða móðuna miklu bók-
staflega, og saga hans er öll.
Líf hans er varla hægt að kalla
mjög viðburðaríkt eða dramatískt
frekar en starfið sem hann innir
af hendi. Hin lágstemmda, hægláta
frásögn í leikstjórn Wagners tónar
það enn frekar niður. Minningar
hans eru næstum alfarið sneyddar
tilfinningasemi en við sjáum hvern-
ig þær hafa mótað hinn gamla
Waller. Hann er fámáll og einrænn
og dapurleg persóna, sem heldur
sig útaf fyrir sig, er vinafár og ein-
manalegur. Okkur birtast svip-
myndir úr lífi hans; strákur í skóla,
lærlingur við járnbrautirnar, kallað-
ur í stríðið. Eftir stríðið verður hann
ástfanginn af dóttur verksmiðju-
stjórans. Þegar hún deyr af barns-
förum vinnur hann yfirráðaréttinn
yfir barninu þeirra af föður hennar.
En hann getur ekki gleymt stúlk-
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Árni Grant á Jeppsteer stingur hér spyrnugrind Jónasar Karls Harðarsonar af í opna flokknum og
tryggir sér meistaratitilinn í þessum flokki. Árni ók aðeins á afturdrifinu, fjarlægði drifbúnaðinn að
framan og náði þannig góðum aksturstíma.
Islandsmót í sandspyrnu:
Þriú íslandsmet slegin
„SANDSPYRNA er stríð við startljósin, sá sem er sneggstur á ljósun-
um og hefur bíl með gott grip vinnur. Það er mikil spenna tengd
þessu, brautin er stutt og það má ekkert bregðast ef þú ætlar að
vinna,“ sagði Sigurjón Haraldsson sem tryggði sér íslandsmeistaratit-
ilinn í sandspyrnu sérútbúinna bíla á sunnudaginn. Þá fór fram loka-
keppni Islandsmótsins á vegum Kvartmíluklúbbsins og Bílabúðar
Benna á bökkum Olfusár, skammt frá Eyrarbakka.
Siguijón vann sitt annað mót í
röð og setti íslandsmet á brautinni,
sem þó var öldótt og erfið yfirferð-
ar þó bein væri. Ford Pinto Sigur-
jóns fór brautina á 3.975 sekúnd-
um, sem er met í flokki sérútbúinna
bíla, en keppt var í sjö flokkum.
„Þetta var spennandi keppni, ég
vann Stefán Björnsson í úrslitum
eins og síðast, við höfum svipaða
bíla að getu, en hann skortir reynsl-
una á ljósin, enn sem komið er. Það
voru mikil læti í keppninni, bílarnir
létu illa í öldóttri brautinni, en það
kom sér vel að aka á nýjum sérsmíð-
uðum skóflum með einskonar ausu-
munstri,“ sagði Siguijón, sem er
gamalreyndur kvartmflukappi.
Jeppamenn létu að sér kveða í
keppninni, Árni Grant hirti titilinn
í opna flokknum með því að sigra
Jónas Karl Harðarson í úrslitum,
en hann lagði einnig Árna Kópsson
að velli í auglýstu einvígi, en þeir
óku ekki í sama flokki. Munaði
miklu að Árni Grant hafði betra
grip, léttari keppnistæki og ók að-
eins í afturdrifinu. Hann sýndi ótrú-
lega grimmd í keppninni og var vel
að titlinum kominn, ók best á 4.065
sekúndum.
Vilhjálmur Ragnarsson varð
meistari í flokki sérútbúinna jeppa,
vann Árna Kópsson í úrslitum en
Ámi setti hinsvegar íslandsmet á
tímanum 4.349 sekúndur. Guðbjörn
unni sinni, minningarnar um hana
sækja fast á hann síðasta daginn
við teinana.
„Waller" er lítil og mannleg, ljóð-
ræn mynd. Hún er í lit nema minn-
ingarnar eru filmaðar í svart/hvítu,
yfirbragðið þungt og dapurlegt, hin
hæga frásögn óvægin og gerir kröf-
ur til áhorfandans. Fjallað er um
ellina eins og nú tíðkast nokkuð í
bíómyndum af einlægni og virðingu
og raunsæi, söknuðinn eftir liðnum
tímum og uppgjör við fortíðina.
Mynd sem talar til manns á sinn
yfírlætislausa hátt.
Úr opnunarmynd þýsku kvik-
myndahátíðarinnar, Síðasta
gönguför Wallers.
OFNHITASTILLIR
Á INNRENNSU EDA ÚTSENNSU OFNS
DANFOSS ofnhitastillar em tvenns konar og ætlaðir til notkunar við mismunandi skilyrði:
DANFOSS RA 2000 er ætlaður á innrennsli ofna en DANFOSS FJVR á útrennsli þeirra.
Meginregla framleiðandans er að nota skuli RA 2000: Hann nemur herbergishita og heldur þeim
kjörhita, sem valinn er, á hagkvæman hátt.
Þar sem hitasveiflur em miklar, t.d. í forstofum eða bílageymslum, hentar FJVR hins vegar betur:
Hann stjórnar hitastigi á útrennslisvatni frá ofninum óháð herbergishita.
Veldu réttan ofnhitastilli.
Veldu DANFOSS! Það borgar sig.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RÁÐGJÖF
Til frambúöar
þakrennur
Litir:
Hvítt, svart,
rautt, brúnt
Sænsk
gæða
framleiðsla
Galvanhúðað stál gefur styrkinn og litað
plasthúðað yfirborð ver gegn ryði og tæringu.
Fagmenn okkar veita ráðleggingar. Hagstætt verð.
Sölu- og þjónustuaðilar:
Blikksmlðjan Funi sf„ Smiðjuvegi 28, Kóp. S. 91-78733
Blikksmiðjan Vík hf., Smiðjuvegi 18c, Kóp. S. 91-71580
Blikksmiðja Einars sf„ Smiðjuvegi 4b, Kóp. S. 91-71100
Blikksmiðjan (jöfðl, Eldshöfða 9, Rvk. S.686212
Borgarblikksmiðjan hf„ Álafossvegi 23, Mosfellsb. S. 91-668070
Stjörnublikk hf., Smiðjuvegi 1, Kóp, S. 91-641144
Blikkás hf., Skeljabrekku 4, Kóp. S. 91-44040
Blikksmiðja Erlendar, Hnífsdalsvegi 27, isaf. S. 94-4488
Blikkrás hf„ Hjalteyrargötu 6, Akureyri. S. 96-27770
Blikk og bíiar, Túngötu 7, Fáskrúösfiröi. S. 97-51108
Blikk hf„ Gagnheiði 23, Selfossi. S. 98-22040
Biikksmiðja Agústs Guðjónssonar, Vesturbraut 14, Keflav. S. 92-12430.
Blikksmiðjan Eintœkni, Bygggörðum 4, Seltjarnesi. S. 91-611665.
SVOR BYGGINGAREFNI,
Dalvegi 20, Kópavogi, sími 91-641255, fax 641266.
pósthólf 435, 202 Kópv.
a