Morgunblaðið - 17.09.1991, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
41 '
Sigurjón Haraldsson á Ford Pinto umvafinn öryggisbúnaði hefur
unnið mörg sandspyrnumót og vann tvo flokka á sunnudaginn, flokk
sérsmíðaðra fólksbíla og Allt-flokkinn, þar sem helstu keppnistækin
spyrna við hvort annað í lokin.
Snöggur á ljósunum. Siguijón vinnur oft á snerpunni, þegar græna
ljósið birtist í rásmarkinu og skilur hér andstæðing eftir í inarkinu.
Óskarsson vann flokk óbreyttra
jeppa og varð meistari en Kristján
Finnbogason sló met á 5.322 sek-
úndum. Jón Björn Björnsson á
Suzuki vann mótorhjólaflokkinn og
innsiglaði meistaratitilinn, sömu-
leiðis Gunnlaugur Emilsson á
Plymouth Duster sem vann flokk
útbúinna fólksbíla og varð meist-
ari. Með því að ná öðru sæti í fólks-
bílaflokki á eftir Tryggva Óla Þor-
finnssyni á Concord, varð Ingimar
Baldvinsson á Ponitac meistari í
þeim flokki. Um fjörutíu keppendur
tóku þátt í sandspyrnunni og er
búist við stórum hluta þeirra í síð-
asta kvartmílumót ársins, sem verð-
ur í lok september.
Bæjarsjóður Eskifjarðar:
Umhverfísráðuneyt-
ið kanni sorpeyðslu
BÆJARSTJÓRN Eskifjarðar hefur samþykkt ályktun þar sem skor-
að er á umhverfisráðuneytið að það láti nú þegar fara fram athug-
un á mögulegum valkostum sveitarfélaga við sorpeyðslu. Þess verði
gætt að framkvæmd valkostanna sem fram verða settir sé innan
þeirra kostnaðarmarka sem fjárhagsleg geta minni sveitarfélaga
ræður við. Athugun þessari verði hraðað sem mest, með það fyrir
augum að sveitarfélög geti tekið afstöðu til mögulegra lausna á
þessu vandamáli við gerð næstu fjárhagsáætlunar.
í greinargerð með ályktuninni
segir: „Eins og öllum er ljóst þá
eru sorpeyðingarmál sveitarfélaga
um allt land í miklum ólestri. Leit-
að hefur verið að úrbótum en sú
leit hefur skilað litlum árangri til
þessa. Þær úrbætur sem menn
hafa séð fyrir sér, t.d. hér á Mið-
Austurlandi, hafa reynst það dýrar
og erfiðar í framkvæmd að málinu
hefur hvað eftir annað verið slegið
á frest, þrátt fyrir að það þoli enga
bið. Með þetta í huga og nauðsyn
þess að koma þessum málum í við-
unandi horf, skorar bæjarstjórn
Eskifjarðar á umhverfisráðuneytið
að það taki forystu í að finna lausn
á þessu mikla vandamáli.
Ástæða þess að bæjarstjórnin
telur eðlilegt að umhverfisráðu-
neytið hafi hér forystu er hversu
almennt þetta vandamál er hjá
sveitarfélögunum í landinu. Bæjar-
stjórn Eskifjarðar telur því eðlilegt
að umverfisráðuneytið taki þessa
undirbúningsvinnu á sig, en hvert
sveitarfélag standi ekki í kostn-
aðarsamri og handahófskenndri
vinnu við að leita að lausn sem
ríkisvaldið þarf síðan að sam-
þykkja. Lausn á þessu vandamáli
verður að finnast sem fyrst og
kostnaðurinn við hana verður einn-
ig að vera viðráðanlegur fjárhags-
getu sveitarfélaganna. Ef slík
lausn finnst ekki þá ríkir áfram
það ófremdarástand sem er í þessu
máli í dag.“
Blöndunartækin frá damixa
tryggja rétt vatnsmagn og
hitastig með einu handtaki.
Veljið aðeins það besta
- veljið damixa blöndunartæki
fyrir eldhúsið og baðherbergið.
damixa
III
Fæstíhelstu
byggingarvöruverslunum
umlandallt.
Ef þér er annt um línumar og krónurnar
—geturðu glaðst yfir Hvers dags ís á hverjum degi.
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA