Morgunblaðið - 17.09.1991, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
„J/t/e hrxxtt óhstu eJginlega? "
Með
morgunkaffinu
Því miður gct ég ekki hjálp-
að. Hef ekki meira vit á
bílum en kötturinn ...
HÖGNI HKEKKVÍSI
Ást er...
fyrsti kossinn.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
® 1991 Los AngelesTimesSyndicate
Nýaldarhyggjan sé vorboði
ance merkir reyndar endurfæðing
ef rétt er þýtt. Ég ætla ekki að
fylla dálka Velvakanda með lofi
um menn sem báru af öðrum, en
einum get ég ekki gengið framhjá.
Kapelluna hans litlu heimsóttum
við í Assisi. Heilagur Frans kallast
sá og er sagt að enginn hafí fetað
trúlegar í spor frelsarans en hann.
Reyndar komum við líka í kirkju
heilags Antóníusar í Padúa en
hann var í miklu uppáhaldi hjá
séra Friðrik Friðrikssyni, stofn-
anda KFUM á íslandi. Að mínu
viti var séra Friðrik helgur maður.
Hann hafði djúp áhrif á mig og
hefur enn. Þar fór djúphugull
maður og umburðarlyndur í besta
máta. Ég hygg að umburðarlyndi
sé svo samofið sannri kristni að
ekki verði á milli skilið og ég held
að nýaldarhyggjan sé vorboði,
heilbrigt andsvar fólks við mengun
hugarfars og umhverfis hér á jörð
sem að vísu ekki er enn fullmót-
að, en stefnir samt í áttina til lang-
þráðrar aldar miskunnsemi, friðar
og vonar.
Úlfur Ragnarsson
gerast áskrifendur að rituðu máli.
Það getur orðið dýrt spaug að
standa ekki í skilum. Svo bar til
fyrir ári að ég vann með stúlku,
sem keypt hafði orðabók. Bókin
kostaði 3.000 krónur. Stúlkan
borgaði út 1.500 krónur á sínum
tíma, en greiðsla á eftirstöðvum
dróst, sem getur verið skiljanlegt.
Það er lítið eftir af mánaðarkaup-
inu, þegar búið er að hirða af því
öll lögboðin gjöld. Sjálf fékk ég til
dæmis útborgaðar 10 þúsund krón-
ur fyrir þrældóm hjá viðbótarat-
vinnurekanda í sumarleyfismánuð-
inum. Hefði líka verið tekið í
skyldusparnað og barnsmeðlag
stæði útborgun á núlli. En það er
önnur saga. Jæja. Einn góðan veð-
urdag fær unglingsstúlkan bréf frá
lögfræðingi þar sem henni er hótað
gjaldþroti þegar í stað greiði hún
ekki 32 þúsund krónur. Og eigna-
laus stúlkan sem var ekki í nokkr-
um vafa um að hún stæði uppi
með gjaldþrotastimpilinn um aldur
og ævi út af einni orðabók flýtti
sér að skrifa ávísun fram í tímann
og bað fyrir hana. Enn ...
Ég er ansi hrædd um að það
þurfi að sortera fleira en innihald-
ið í öskutunnum borgarinnar.
Guðrún Jacobsen
Þ»essir hringdu ..,
Tapaði veski
Harpa hafði samband við Velvak-
anda og sagði að á síðast liðinn
þriðjudag hefði hún tapað veski
sínu með öllu sem nöfnum tjáði
að nefna, skilríkjum, kortum,
peningum o.s.frv. Hún telur að
hún hafi glatað veskinu á íra-
bakkaplani eða í Amarbakka-
hringnum í Breiðholti. Skilvís
finnandi fær fundarlaun kæri
hann sig um. Harpa er í síma
77839.
Kettlingur fannst
Linda hringdi til okkar. Hún var
með villuráfandi kettling í fórum
sínum. Svartur með hvíta bringu,
um það bil 4 til 6 mánaða gamall
og „góðu vanur“. Kisi er ómerkt-
ur og fannst á Seltjamamesi að-
fararnótt 7. september. Sá svarti
er með símadömu og bráða-
birgðaheimasíma 611430.
Onnur flökkukisa
Hringt var til okkar úr síma
675485. Þar barði upp á á sunnu-
daginn köttur, nánar tiltekið
læða. Um það bil 5 mánaða, hvít
á bringu og maga, en að öðru
leyti svört og brúnbröndótt. Þetta
var í Frostafold í Grafarvogi og
geta verður þess, að læðan er
með rauða sjálflýsandi ól með
svörtum hjörtum. Kötturinn ber
sig eins og heimilisdýr.
Úr týndist
Guðlaug Ólafsdóttir hringdi og
sagðist hafa týnt úri sínu, litlu
kvengullúri af Pierpont-gerð.
Guðlaug var í nokkrum vafa hvar
hún hefði týnt úrinu, en taldi lík-
legt að það hefði annað hvort
verið á Hlemmi eða í Grafarvogi.
Þetta átti sér stað síðustu helgi.
Guðlaug er í síma 671090, ef ein-
hver hefur fundið gripinn og vill
koma honum á réttan úlnlið.
Við hjónin komum heim úr ít-
alíuferð með Ingólfí Guðbrands-
syni í gær, 5. september, þar sem
við höfðum ferðast á milli höfuð-
setra ítalskrar menningar á liðnum
öldum. Ferðin stóð í hálfan mánuð
og tókst með þvílíkum ágætum
Harkaleg-
innheimta
Það eru vinsamleg tilmæli til
borgarfógetaembættisins, að það
sýni þá tillitsemi, að eigandi hús-
næðis sé látinn vita bréflega, ef
eignin er komin á nauðungarupp-
boð. Gamlar og þreyttar sálir, sem
í óvitaskap hafa léð ættingja eða
„vini“ veð í eigninni, eiga ekki að
frétta það á skotspónum úti í bæ
hjá þeim sem eru áskrifendur að
Lögbirtingablaðinu, að skjólið
þeirra sé komið undir hamarinn!
Þá vil ég vekja athygli á öðru.
Og það er viðvörun til þeirra sem
að hugurinn hefur efnivið til úr-
vinnslu lengi eftir og trúlega ævi-
langt hjá mér og öðrum sem þátt
tóku í förinni.
I flugvélinni voru okkur borin
íslensk dagblöð og tókum við
Morgunblaðið til yfirlestrar. Þar
var svo sem ekkert sérstakt að sjá
nema þessi venjulega heimilisiðja
okkar norður á Fróni að karpa um
alla skapaða hluti af mismunandi
miklu viti. Óvenjulega feitletruð
fyrirsögn piýddi dálk Velvakanda
sem tengdi saman tvö hugtök sem
að mínu viti eru náskyld. Kristin
trú og nýöld stóð þarna skýrum
stöfum. Ahugi minn var vakinn.
Ég hafði veitt því sérstaka at-
hygli suður á Ítalíu að fallin menn-
ing fomaldar bókstaflega endur-
fæddist fyrir áhrif mikilmenna
sem sóttu kraftinn til kristinnar
kirkju og trúarinnar á frelsarann.
Leonardo da Vinci, Giotto,
Michelangelo og Rafael eru ef til
vill kunnustu nöfnin, en þeir voru
miklu fleiri sem unnu frábær
menningarafrek á tíma endur-
reisnarinnar svonefndu. Renaiss-
Víkverji skrifar
Athyglisverð frétt var sögð í
fréttatíma Ríkisútvarpsins í
fyrrakvöld. Þar var frá því sagt,
að u.þ.b. 30 manns hefðu innritað
sig í öldungadeildarnám á Hólma-
vík. Ef rétt var skilið átti námið
að fara fram í tengslum við Mennta-
skólann á ísafirði, eins konar
fjarnám. Hins vegar var uppiýst,
að mikil óvissa væri um það, hvort
af þessu námi yrði vegna þess, að
menntamálaráðuneytið hefði neitað
um fjárveitingu á þeirri forsendu,
að hún væri ekki fyrir hendi. Engu
að síður væri unnið að framgangi
málsins og upplýst, að kostnaðurinn
við þetta nám væri um 150 þúsund
krónur nettó fram að áramótum.
Eins og fréttin var sögð var ekki
hægt að skilja hana á annan veg
en þann, að þetta væri heildarkostn-
aður, þ.e. um 5000 krónur á hvern
nemanda. Ef það er rétt vaknar sú
spurning, hvers vegna væntanlegir
nemendur við öldungadeildina láta
þennan kostnað þvælast fyrir sér.
Af hverju borga þeir ekki einfald-
lega 5000 krónur í skólagjöld fram
að áramótum. Þá þurfa hvorki þeir
né forráðamenn þessa náms að eiga
nokkuð undir menntamálaráðu-
neytinu í Reykjavík eða fjárveit-
ingavaldinu.
Ef hins vegar átt hefur að skilja
fréttina á þann veg, að kostnaður
væri 150 þúsund krónur á hvern
nemanda fram að áramótum vand-
ast málið en þá er kostnaðurinn líka
ótrúlega mikill og fer að nálgast
þann kostnað á nemanda yfir vetur-
inn, sem varð til þess, að Reykjanes-
skóla við Djúp var lokað.
xxx
Nú stendur yfir í Listasafni ís-
lands skemmtileg sýning á
myndum eftir Mugg. Sýningin
mætti að vísu vera yfirgripsmeiri
en engu að síður er ánægjulegt að
skoða myndir þessa vinsæla lista-
manns, sem dó langt fyrir aldur
fram. Þá er ekki síður forvitnilegt
að sjá í sýningarkassa frumgerð
sögunnar um Dimmalimmm.
Hins vegar vekur það undrun
sýningargesta, að ekki skuli kostur
á annarri sýningarskrá en bók, sem
kostar 900 krónur. Hvað veldur?
Hvað sem því líður er full ástæða
til að hvetja fólk til þess að sjá
þessa sýningu og kynna sér um
leið ævi Muggs. Fyrir nokkrum
árum kom út bók á vegum Lista-
safns ASÍ og Sverris Kristinssonar
um Mugg, sem Björn Th. Björnsson
skrifaði. Þeir, sem vilja kynna sér
æskuumhverfi hans og uppruna frá
öðru sjónarhorni eiga þess kost í
nýrri bók eftir Ásgeir Jakobsson
um Bíldudalskónginn, Pétur J.
Thorsteinsson, föður Muggs.
xxx
T-vjónusta banka og sparisjóða við
Jtr viðskiptavini hefur á márgan
hátt stórbatnað á undanförnum
árum. Eitt dæmi um það er Ná-
man, námsmannaþjónusta Lands-
banka íslands. Þar hefur viðskipt-
um námsmanna við bankann verið
beint í einn ákveðinn farveg, sem
auðveldar mjög viðskipti þeirra eða
umboðsmanna þeirra við bankann
og alla þjónustu við þá. Reynsla
Víkveija af þessari þjónustu er í
einu orði sagt frábær.
Þess skal getið, að Búnaðarbank-
inn mun vera með sérstaka þjón-
ustu við námsnenn og fyrir skömmu
birtust auglýsingar frá sparisjóðun-
um um slíka þjónustu.