Morgunblaðið - 25.09.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.09.1991, Qupperneq 1
56 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 217. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins George Bush Bandaríkjaforseti á fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra; Hemaðarlegt mik- ilvægi Islands hef- ur síst minnkað New York. Frá Karli Blöndal fréttaritara Morgunblaðsins. „I grundvallaratriðum sannreyndi ég að nýju að samband íslands og Bandaríkjanna stendur mjög styrkum fótum, sem er mjög mikil- vægt fyrir Bandaríkjamenn, sérstaklega í hernaðarsamskiptum, og við teljum það mjög mikilvægt fyrir heimsfriðinn," sagði George Bush Bandarílqaforseti þegar fréttaritari Morgunblaðsins spurði hann um fund hans með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í gærmorgun. Davíð og Bush ræddust við í hálftíma og fjölluðu um framtíð Atlantshafs- bandaiagsins (NATO), hvalveiðimálið og ýmis önnur mál. Davíð sagði að viðræðurnar hefðu verið ánægjulegar, enda engir ásteytingarstein- ar í samskiptum Islendinga og Bandaríkjamanna. „ViðTæddum þátt íslands í heild- armyndinni, það að íslendingar eru mikils metnir aðilar að Atlantshafs- bandalaginu," sagði Bush eftir að hann hafði hitt Davíð í svítu sinni á Waldorf Astoria-hótelinu. Forsætis- ráðherrann og ég ræddum um fram- tíð Atlantshafsbandalagsins. Við- ræður okkar voru mjög víðtækar. Við ræddum einnig tvíhliða sam- skipti, þar á meðal líttillega um hval- veiðimálið. Þetta var mjög góður fundur.“ Davíð Oddsson sagði að samskipti Islendinga og Bandaríkjamanna hefðu verið rædd á fundi hans með Bandaríkjaforseta og þau sterku og góðu tengsl, sem verið hafa á milli landanna, undirstrikuð. „Ég lagði áherslu á það að sú ríkisstjórn, sem nú situr, liti svo á að gott og traust samband við Bandaríkin ásamt virkri þátttöku í NATO væru hornsteinar í utanríkisstefnu okkar, auk þess sem við vildum auðvitað vera öflugir í ijölskyldu Evrópu.“ Eins og fram kom hjá Bush ræddu þeir Davíð stöðu íslands í NATO og stöðu varnarsáttmálans við Banda- ríkin. „Þar kom fram hjá forsetanum og reyndar líka hjá hans öryggisráð- gjafa, [Brent] Scowcroft, að þeir teldu báðir að hernaðarlegt mikil- vægi íslands hefði síst minnkað og reyndar mætti færa fyrir því fjöl- mörg rök, sem þeir voru báðir fylgj- andi, að gildi Keflavíkurstöðvarinn- ar, varnarsamstarfsins milli íslands og Bandaríkjanna og öryggistrygg- ingar NATO gagnvart þessum samn- ingi hefði aukist og myndi aukast á næstu árum,“ sagðí Davíð. Hann kvaðst hafa verið sammála Bush og Scowroft um að þar kæmi til að tryggja yrði leiðina milli Bandaríkj- anna og Evrópu, auk þess sem gríð- arlegur styrkur Sovétmanna á norð- urslóðum hefði síst minnkað og jafn- vel aukist. Forsætisráðherra greindi Banda- ríkjaforseta frá afstöðu Islendinga til hvalveiðimála. „Ég skýrði honum frá því að það væru hugmyndir uppi meðal íslenskra stjómvalda að segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu. Ákvörðun hefði ekki verið tekin og jafnvel þótt.sú ákvörðun yrði tekin fylgdi henni ekki að hvalveiðar yrðu hafnar á nýjan leik. Forsetinn hafði áhyggjur af því að við myndum segja okkur úr hvalveiðiráðinu. Hann taldi eðlilegra að reyna að vinna málum brautargengi innan þess en þó kom fram ríkur skilningur forsetans á okkar hagsmunum varðandi hval- veiðarnar og nýtingu sjávarfangs og þótti mér vænt um það,“ sagði Davíð. Forsætisráðherra kvað Bush hins- vegar ekki hafa sagt berum orðum að hann væri hlynntur því að hval- veiðar hæfust á ný ef vísindalegar niðurstöður gæfu tilefni til. Davíð kvaðst einfaldlega hafa viljað tryggja að Bush vissi hver afstaða íslendinga væri til hvalveiðiráðsins. Reuter Davíð Oddsson forsætisráðherra og George Bush Bandaríkjaforseti ræðast við meðan ljósmyndarar taka af þeim myndir. George Bush um töku eftirlitsnefndar SÞ í Bagdad; Saddam færi betur að misreikna sig ekki aftur New York, Washington, Baghdad. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti varaði Saddam Hussein íraksforseta við í gær og sagði að hann kynni að kalla þjáningar yfir írösku þjóð- ina ef störf eftirlitsmanna Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í landinu yrðu hindruð frekar. Hópur eftirlitsmanna var tekinn til fanga við stjórn- stöð Iraska kjarnorkuráðsins í Bagdad í gærmorgun, öðru sinni á sólarhring. Forseti öryggisráðs SÞ gaf Irökum frest til klukkan 21 í gærkvöldi að íslenskum tíma til að sleppa mönnunum og leyfa þyrlum SÞ að fljúga óhindrað í Irak ellegar taka afleiðingunum. Sagði hann ekki hverjar þær yrðu en sagðist þó ekki geta útilokað að ráðið gripi til valdbeitingar til að framfylgja ákvæðum samkomulags um vopna- hlé í Persaflóastríðinu. David Kay, formaður eftirlits- nefndar SÞ, náði sambandi við fjöl- miðla af lóð byggingarinnar með aðstoð bílsíma, og sagði að hópurinn hefði verið rekinn með hervaldi út úr byggingu kjarnorkuráðsins og fyrirskipað að afhenda ljósmynda- filmur, myndbönd og ljósrit af gögnum sem hún hefði komist yfir ' byggingunni. Því_ hefði nefndin neitað og svöruðu írakar með því að slá hring um hópinn á lóð húss- ins þar sem hann var í haldi síðast þegar fréttist. „Það fer ekki á_ milli mála af skjölunum hver áform íraka eru. Við fundum til dæmis nokkra kassa á vörubílspalli inni í húsinu sem voru rækilega merktir með fyrirmælum um að þeir skildu fjar- lægðir áður en eftirlitsnefndin kæmi,“ sagði Kay. Tarig Aziz, aðstoðarforsætisráð- herra Iraks, sagði að skjölin sem Gamsakhurdia lýsir yfir neyðarástandi í Tbilisi Tbilisi, Dushanbe. Reuter. ZVIAD Gamsakhurdia, forseti Georgíu, lýsti í gær yfir neyðar- ástandi í Tbilisi, höfuðborg lýðveldisins. Andstæðingar hans kröfð- ust þess hins vegar að boðað yrði til neyðarfundar á þingi lýðveld- isins til að koma í veg fyrir að stríð brytist út. Mikil spenna var einnig í Dushanbe, höfuðborg Mið-Asíulýðveldisins Tadzhikistan, þar sem þúsundir manna efndu til mótmæla og virtu þannig neyðar- lög sljórnvalda að vettugi. Tengiz Sigga, einn af forystu- mönnum stjórnarandstæðinga í Georgíu, sagði að sjónvarpa þyrfti þingfundinum til að hægt yrði að afhjúpa einræðistilburði Gamsa- khurdia frammi fyrir alþjóð. Krafan um neyðarfund á þing- inu bendir til þess að stjórnarand- staðan telji sig nú nokkuð örugga um að geta vikið Gamsakhurdia frá. Tit þess þurfa tveir þriðju hlut- ar þingsins að leggjast gegn for- setanum. Þingmenn stjórnarand- stöðunnar hafa stofnað nýja stjómmálahreyfingu, Lýðræðis- samtökin, og margir af fyrrum stuðningsmönnum Gamsakhurdia hafa gengið til liðs við hana. „For- setinn ætti að tryggja einingu og öryggi þjóðarinnar," sagði Sigua, sem var áður einn af nánustu sam- starfsmönnum forsetans. „Þess í stað kallar hann til sín fólk, jafn- vel frá dreifbýlinu, til að heyja borgarastríð. Stjórnarandstaðan telur að með því að efna til þing- fundar verði hægt að stilla til frið- ar.“ Þúsundir manna komu s'aman í miðborg Tbilisi til að krefjast þess að /orsetinn segði af sér. Áður en Gamsakhurdia var kjör- inn forseti með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða í almennum kosn- ingum í maí hafði hann haldið uppi andófi gegn kommúnista- stjóminni í Sovétríkjunum og margir Georgíumenn líta á hann sem sjálfstæðishetju. Lýðræðissinnar og múslimar hafa myndað með sér bandalag í Tadzhikistan og efndu til mótmæla í miðborg Dushanbe í gær. Þeir hrópuðu vígorð gegn kommúnist- um og sögðu þá hafa gert „gagn- byltingu" á þingi lýðveldisins á mánudag, er það samþykkti að afnema bann við starfsemi komm- únistaflokksins. eftirlitsnefndin hefði komist yfir væru einkamál starfsmanna kjarn- orkuráðsins. „Því er þetta hrein njósnastarfsemi af hálfu hennar, nefndin er á mála hjá CIA [banda- rísku leyniþjónustunni] og við höf- um upplýsingar um að Kay sé á launum hjá henni. Nefndinni er fijálst að fara ferða sinna þegar hún hefur skilað skjölunum," sagði Aziz sem var utanríkisráðherra Ir- aka þegar þeir gerðu innrás í Kúv- eit í fyrrasumar. Hann var fluttur til í embætti eftir lyktir Persaflóa- stríðsins. Sænskur kjarnorkufræðingur hjá SÞ, Johan Molander, sagði í viðtali við sænska sjónvarpið í gærkvöldi, að írakar hefðu í mesta lagi verið 1-2 árum frá því að smíða kjarnork- usprengju. Hefði það komið í ljós í gögnum sem eftirlitsnefndin hefði fundið í írak. „Áður höfðu menn ekkert til að festa hendur á um kjarnorkuáætlanir íraka, einungis ágiskanir. Nú höfum við hins vegar skotheldar upplýsingar um starf- semi og tækni sem þeir réðu yfir til úraníumhreinsunar,“ sagði Mo- lander. Hann sagði vandamál við eftirlitsstörfm ekki koma á óvart, þau staðfestu einungis árangur sem orðið hefði af störfum nefndarinn- ar. „Við höfum ljóstrað upp um áætlanir og starfsemi sem engin leyniþjónusta í veröldinni vissi neitt um fyrir Persaflóastríðið," bætti hann við. Bandaríkjamenn hafa sent tvö Patriot-loftvarnaherfylki áleiðis til Saudi-Arabíu frá Vestur-Þýska- landi, að sögn CBS-sjónvarpsins og verða þau komin í viðbragðsstöðu þar í landi eftir tvo daga. Þá bíða 60 herflugvélar merkis um að halda til Persaflóasvæðisins frá Banda- ríkjunum, að sögn CBS.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.