Morgunblaðið - 27.09.1991, Side 1
64 SIÐUR B/C/D
219. tbl. 79. árg.
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Svíþjóð:
Hægriflokkurinn
fær níu ráðuneyti
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
Stjórnarmyndunarviðræðurn-
ar í Svíþjóð héldu áfram í gær
og nú er ljóst að Hægriflokkur
Carls Bildts fær níu ráðuneyti
af tuttugu ef samkoniulag næst
um nýja stjórn borgaralegu
Afleiðing yfirbókana:
SAS verður
að borga
leiguflugið
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
SAS-flugfélagið hefur hætt
við að skjóta til hæstaréttar
skaðabótamáli sem félagið
tapaði í undirrétti. Þar var
SAS dæmt til að borga leigu-
flugvél sem kaupsýslumaður
tók sér far með þegar SAS-
vél sem liann hafði keypt miða
með reyndist full vegna yfir-
bókana.
Danskur kaupsýslumaður
hafði keypt sér farmiða með
SAS frá Álaborg til Kaup-
mannahafnar en þegar hann
mætti til flugs var ekkert sæti
lengur laust þó svo að hann
hefði fullgildan miða. Þar sem
hann varð að komast til Kaup-
mannahafnar leigði hann sér
flugvél þangað og lét senda SAS
reikninginn, 5.390 danskar
krónur, eða 49.600 ÍSK. Situr
félagið því uppi með reikninginn
fyrir leiguflugvélinni sem hefur
nær þrefaldast vegna þriggja
ára dráttaivaxta og sakarkostn-
aðar.
flokkanna fjögurra. Þjóðarflokk-
urinn og Miðflokkurinn fá fjögur
ráðuneyti hvor og kristilegir
deinókratar þijú.
Vitað er að eftirfarandi menn
verða ráðherrar í stjórninni auk
Bildts ef af stjórn flokkanna verð-
ur: Bengt Westerberg, Olof Johans-
son, Alf Svensson, Anders Björck,
Gunnar Björck, Ann Wibble, Mats
Odell, Lars Tobisson og Jan-Erik
Wikström. Hins vegar er enn óljóst
hvaða ráðuneyti koma í hlut þeirra.
Helsti ásteytingarsteinninn í við-
ræðunum er skilyrði sem Miðflokk-
urinn hefur sett varðandi kjarn-
orkuver, Eyrarsundsbrúna og önnur
umhverfismál, auk fj'ölskyldu- og
skattamála. Olof Johansson, for-
maður Miðflokksins, segir að
tryggja verði flokknum áhrif í þess-
um málaflokkum, annars geti hann
ekki fallist á aðild að stjórn Carls
Bildts.
Reuter
Þúsundir kolanámamanna og borgarbúa sátu um þinghúsið í Búkarest í gær vopnaðar bareflum.
Harðir bardagar geisuðu á milli mannfjöldans og öryggissveita við sjónvarpsbygginguna í borginni
langt fram á nótt. Fjórir menn hafa fallið í átökum við lögregluna undanfarna daga og um 300 særst.
Rúmenía:
Námamenn ráðast inn
í þinghúsið í Búkarest
Búkarest. Reuter.
ÞÚSUNDIR vígmóðra kolanáma-
manna þröngvuðu stjórn Petre
Romans, forsætisráðherra Rúm-
eníu, til að segja af sér í gær
eftir að mannskæðar óeirðir
höfðu brotist út í Búkarest. Eftir
að Roman tilkynnti afsögn sína
kröfðust námamennirnir þess að
Króatía:
Friðvænlegar horfir eft-
ir brottflutning hermanna
Zagreb, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
FRIÐVÆNLEGAR horfði í Króatíu í gær er her Júgóslavíu ákvað að
flytja hersveitir sínar frá mesta átakasvæðinu í lýðveldinu. Hann féllst
einnig á brottflutning nokkurra sveita frá nágrannalýðveldinu Bosníu-
Herzegovínu. Ráðstefnan um frið í Júgóslavíu hófst á ný í Haag í gær
og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) setti bann við sölu á vopnum
til landsins.
Hersveitir fóru frá bænum
Vinkovci í Krótaíu en þar höfðu þær
átt í hörðum bardögum við króatíska
þjóðvarðliða undanfarnar vikur. Þá
bjó herinn sig undir að flytja á brott
hermenn frá fjallahéraðinu Mostar
í Bosníu-Herzegóvínu eftir að varað
hafði verið við því að vera þeirra
þar kynni að koma af stað átökum
milli Serba, Króata og múslima, sem
eru í meirihluta í héraðinu. Stjórn-
völd í lýðveldinu féllust á að leysa
upp sveitir þjóðvarðliða í héraðinu
gegn því að hermennirnir færu það-
an.
Til bardaga kom við og við í aust-
urhluta Króatíu en talið er að brott-
flutningur hermanna frá Vinkovci
og samkomulagið í Bosníu-Herzego-
vínu treysti mjög vopnahléssamning-
inn, sem gerður var um helgina.
Brottflutningurinn er liður i sam-
komulagi sem náðist á fundi varnar-
málaráðherra Júgóslavíu, Veljkos
Kadijevics, með forsetum Króatíu
og Serbíu í gærmorgun.
Oryggisráð SÞ hvatti til þess að
deilurnar í Júgóslavíu yrðu leystar
með friðsamlegum hætti en minntist
ekki á möguleikann á því að friðar-
gæslusveitir á vegum SÞ yrðu
sendar til landsins.
Sjá viðtal við varnarmálaráð-
herra Slóveníu á bls. 20.
Reuter
Júgóslavneskur hermaður hvílir
lúin bein og les blað skammt frá
bænum Vukovar í austurhluta
Króatíu í gær.
forseti landsins, Ion Ilieseu, segði
einnig af sér og réðust inn í þing-
húsið í borginni. Þúsundir manna
sátu um bygginguna og köstuðu
gijóti á hana meðan námamenn
eyðilögðu húsgögn í þingsölun-
um og köstuðu þeim út. Hópar
manna umkringdu einnig sjón-
varpsbyggingu í borginni og
vörpuðu bensínsprengjum á
hana. Roman lét svo um mælt í
gærkvöldi að „kommúnistabylt-
ing að neðan“ væri í uppsiglingu.
I sjónvarpstilkynningu frá ríkis-
stjórninni í.gærkvöldi sagði að
hersveitir varnarmálaráðuneyt-
isins yrðu sendar víðsvegar um
landið til verja hernaðarlega
mikilvæga staði ef þörf krefur.
Margir borgarbúar gengu til liðs
við námamennina og hrópuð voru
vígoi'ð gegn Ion Iliescu, sem var
áður einn af leiðtogum kommún-
ista. „Við viljum ekki bolsévika fyr-
ir forseta,“ hrópaði fólkið.
Hersveitir, vopnaðar vélbyssum,
héldu vörð um stjórnarráðið í mið-
borg Búkarest. Litlir hópar reyndu
að ráðast inn í bygginguna en án
árangurs.
Oryggissveitum tókst hins vegar
ekki að hafa hemil á fólkinu annars
staðar í borginni og talið er að það
hafi verið ein af ástæðum þess að
stjórnin sagði af sér. Hún fer þó
með völdin þar til ný stjórn verður
mynduð. Iliescu kvaðst hafa hafið
viðræður um myndun þjóðstjórnar.
Leiðtogi námamannanna, Miron
Cosma, reyndi að telja þá á að halda
heimleiðis en margir þeirra sögðu
að fyrst þyrfti að steypa Iliescu af
stóli. Eldmóður fólksins minnti
mjög á lýðræðisbyltinguna um jólin
1989, er Nicolae Ceausescu var tek-
inn af lífi og Endurreisnarráð Iliesc-
us og Romans tók við völdunum.
Iliescu forseti beitti námamönnum
til að beija á stjómarandstæðing-
um, sem efndu til mótmæla í júní
í fyrra, og þýskur fjármálamaður í
Búkarest sagði að það virtist nú
vera að koma honum í koil. „Iliescu
getur ekki kveðið niður drauginn
sem hann vakti upp í fyrra. Hann
hefur sjálfur afsiðað fólkið, “ sagði
hann.
Um 52.000 námamenn í kola-
námum Jiu-dals hafa verið í verk-
falli frá því á þriðjudag til að krefj-
ast verðstöðvunar og launahækk-
ana. Samtök námamanna ákváðu
síðan í gær að efna til verkfalls í
öllum námum landsins.
Vestrænir stjórnarerindrekar í
Búkarest sögðu að óeirðirnar væru
að hluta til stjórninni að kenna þar
sem hún hefði látið hjá líða að út-
skýra nægilega fyrir almenningi
hversu erfiðir tímar færu í hönd á
meðan verið væri að koma á fijáls-
um markaðsbúskap eftir fjögurra
áratuga miðstýringu. Verðlag hefur
verið gefið frjálst og það hefur leitt
til 130% verðbólgu, auk þess sem
framleiðslan hefur minnkað um
17%. Ekki er talið að efnahagurinn
rétti úr kútnum fyrr en árið 1993.