Morgunblaðið - 28.09.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991
Heimsbikarmótið í skák:
Jafntefli hjá Jó-
hanni og Nikolic
JÓHANN Hjartarson og Nikolic sömdu jafntefli eftir 52 leiki í fjórðu
umferð á Heimsbikarmóti Flugleiða í skák sem tefld var í gær.
Skák Karpovs og Beljavskíjs fór í bið og var staðan jafnteflisleg.
Önnur úrslit urðu þau að ívant-
sjúk vann Chandler og náði þar
með öðru sæti ásamt Salov, Seiraw-
an, Ljubojevic, Salov og Portisch,
en þeir eru allir með 2,5 vinning.
Seirawan vann Timman, Portisch
vann Gulkov, jafntefli varð í skák-
um Ehlvests og Andersons, Speel-
mans og Ljubojevic og Salovs og
Khalifmans. Skák Beljavskíjs og
Karpovs fór í bið og var Beljavskíj
peði yfir en staðan þótti jafnteflis-
leg.
Vestmannaeyjar:
Féllu af vinnupalli
V cstmannaeyj u m.
SLYS varð í íþróttamiðstöðinni í Eyjum á fimmtudagskvöld er sex
metra hár vinnupallur, sem tveir menn voru uppá, féll á hliðina.
Annar mannanna slasaðist talsvert og var fluttur með sjúkraflugi til
Reykjavíkur en hinn slapp með mar, skurði og skrámur og fékk að
fara af sjúkrahúsinu í Eyjum í gær.
Mennimir voru að skipta um
perur í loftljósum íþróttahússins og
verið var að færa vinnupallinn milli
ljósa er hann valt á hliðina og féll
á gólfið. Mennimir tveir féllu niður
með pallinum og slasaðist annar
þeirra talsvert. Var hann fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur á
fímmtudagskvöldið þar sem rann-
sókn leiddi í ljós að hann er hælbrot-
inn á báðum fótum og bein í hné
er brotið.
Sala á Skipaútgerð ríkisins:
Ánægður með áhuga
stórkaupmannanna
„ÉG ER mjög ánægður ef Félag íslenskra stórkaupmanna vill
leggja sitt af mörkunum til þess að greiða fyrir-flutningum til og
frá landinu og taka þátt í að lækka vöruverð úti á landi með því
að beina fjármágni til strandsiglinga," sagði Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra. En fyrirtæki innan Félags íslenskra stórkaup-
manna hafa ritað ráðherra bréf og óskað eftir tækifæri til að
kanna möguleika á að kaupa Skipaútgerð ríkisins.
„Ef Félag íslenskra stórkaup-
manna vill taka yfir rekstur fyrir-
tækisins þá hef ég lýst því yfír
að Skipaútgerð ríkisins er föl,“
sagði Halldór. „Það verður haft
samband við Samskip, Eimskipa-
félag íslands og aðra þá aðila sem
sýna áhuga á að koma inn í þann
rekstur." Að sögn Halldórs hefur
Björgúlfur Jóhannsson endurskoð-
andi haft samband við Eimskipafé-
lag íslands og Samskip vegna
endurskoðunar og endurmats sem
nú fer fram. Á næstu dögum mun
með formlegum hætti verða óskað
eftir viðræðum við þessa aðila og
aðra þegar úttekt á rekstrinum
liggur fyrir.
„Ég taldi ekki tímabært að taka
slíkar viðræður upp fyrr, en á hinn
bóginn taldi ég óhjákvæmilegt að
taka strax af skarið og hætta sigl-
ingum til Færeyja enda eru þær
reknar með tapi og að fækka um
eitt skip sem er óhjákvæmilegt
vegna mikils halla á rekstri," sagði
ráðherra.
(UHUN-f g
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Bílaviðskiptin fóru fram á hafnarkantinum og dollararnir gengu manna á milli.
Rússneskir rækjutogarar á Bíldudal: -
Rússamir keyptu upp tyg-gi-
gúmmíbirg'ðir bæjarins
BUdudal.
ÞRÍR rússneskir rækjutogarar frá Múrmansk hafa komið til Bíldu-
dals með stuttu millibili til að landa frystri rækju í Rækjuver hf.
Skipveijar togaranna notuðu tímann vel og keyptu ýmislegt af
heimamönnum, þó sérstaklega notaða bíla.
Vel á annan tug bíla fór um refaskinn og tóbak.
borð í togarana. Rússamir heim-
sóttu verslun staðarins og keyptu
upp lagerinn af tyggigúmmíi, eða
um 70 kassa. Þeir keyptu líka
mikið af plastbleium og léttbjór.
En til að fjármagna þessi kaup
seldu þeir hoimamönnum ýmsan
góðan vaming, m.a. tröllakrabba,
Bílana keyptu þeir á misjöfnu
verði enda voru sumir bílarnir
ansi hrörlegir. Skipverjar keyptu
einnig mikið af gömlum hjólbörð-
um og sumir höfðu vöruskipti,
tvær vodka fyrir einn hjólbarða
með felgu, ekki slæm skipti það.
Heimamenn voru misjafnlega
ánægðir með heimsókn togar-
anna. Heyrst hefur að karlarnir í
vélsmiðjunni séu mikið fegnir að
losna við togarana, því margir
heimamenn komu með druslurnar
sínar í smiðjuna til að láta tjasla
þeim saman fyrir söluna. En góði
punkturinn við þetta allt saman
er að nú er kauptúnið öllu feg-
urra, því bílhræin eru á bak og
burt.
R. Schmidt
í
I
(
í
I
(
Einar Oddur Kristjánsson formaður VSÍ:
Kauphækkanir
I
I
eru 1
alls ekki í sjónmáli
Gengisfelling er eitrað peð og tími hennar er liðinn
Akureyri. Frá Agnesi Bragadóttur, blaðamanni Morgunbladsins.
EINAR Oddur Kristjánsson, stöðva í gær, að kauphækkanir
formaður VSÍ, sagði í ræðu á væru alls ekki í sjónmáli svo
aðalfundi Samtaka fiskvinnslu- langt sem augað eygði. „Þetta
eigum við að segja af fullri ein-
urð og hreinskilni við viðsemj-
endur okkar,“ sagði Einar Odd-
Höfuðborgarsvæðið:
Þijú hundruð hjúkrunar-
rými vantar fyrir aldraða
- segir Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra
LENGSTI biðlisti eftir sjúkraþjónustu á landinu er vegna aldr-
aðra, en hátt í 300 hjúkrunarrými vantar einungis á höfuðborgar-
svæðinu. Þetta kom fram í ræðu Sighvats Björgvinssonar heil-
brigðisráðherra í gær á spástefnu um stöðu aldraðra árið 2000.
„Við eigum að efla vistunar- og þjónustumat aldraðra til að geta
betur samræmt framkvæmdir um vistun aldraða við raunverulega
þörf. Við verðum að undirbúa fólk betur undir elliárin með
fræðslu og námskeiðum. Við verðum að leggja meiri áherslu á
byggingu dvalar- og hjúkrunarheimiia fyrir aldraða en við höfum
gert og gefa öldruðu fólki meiri forgang í heilbrigðisþjónustu
en það hefur haft, því það er staðreynd að í heilbrigðismálum
og framkvæmdum á því sviði hefur aldraða fólkið verið látið sitja
á hakanum," sagði ráðherrann ennfremur.
Sighvatur Björgvinsson lagði aldraðra væri í þjóðfélaginu. Áður
áherslu á að viðhorfsbreyting til fyrr hefðu ve_rið tc;knar ákvarðan:
ir fyrir þennan hóp, m.a. hvernig
þeir ættu að búa í ellinni. Nú vildu
aldraðir sjálfír vera meira þátttak-
endur í ákvarðanatökunni. „Aldr-
að fólk á ekki að vera „statistar"
á leiksviði þjóðlífsins. Auk þess
að gefa kost á sveigjanlegum elli-
lífeyrisaldri eigum við í auknum
mæli að sækjast eftir því að aldr-
aðir taki þátt í þeim viðfangsefn-
um sem við þurfum að fjalla um.
Líka eftir að þeir hafa talið sig
ljúka ævistarfinu,“ sagði hann.
í fyrirspurn til ráðherra varð-
andi tvísköttun lífeyrisgreiðslna
. kpm „fram _að .v^rið _er að ep(þy-_
skoða þau lög. Ekki sagðist ráð-
herra geta tjáð sig um það mál
að öðru leyti en því, að „ef stuðn-
ingur er við þær hugmýndir sem
þar hafa komið fram þá myndi
svona spurning ekki koma fram
á næsta ári“.
í máli Guðna Baldurssonar við-
skiptafræðings á Hagstofunni
kom fram að öldruðum hefur
fjölgað hiutfallslega meira í þjóð-
félaginu á undanfömum árum en
öðrum aldurshópum. Mest mun
þó fjölgunin verða eftir aldamótin
þegar fólk sem nú er á aldrinum
40-60 ára verður komið á eftirla-
unaaidur.
ur.
„Ég vil trúa því að með því að
standa vörð um stöðugleikann,
með því að leggja okkur alla fram
um að fá Alþýðusambandið til
þess að fara þá sömu leið, þá erum
við þó að reyna að skapa þann
möguleika sem við má pijóna
lífsvonina," sagði formaður VSÍ.
Hann sagði að þannig næðist verð-
bólgustig niður fyrir verðbólgustig
OECD-landanna, eða niður fyrir
4-4,5%. Hann sagði að VSÍ gerði
sér mætavel grein fyrir því að það
gæti aldrei farið lengra en sjávar-
útvegurinn treysti sér til.
Einar Oddur sagði að VSÍ ætl-
aði að gera allt sem í þess valdi
stæði til þess að brýna það fyrir
mönnum að gengisfelling væri
„eitrað peð“. „Gengisfelling er
ófær leið. Tími gengisfellinganna
er liðinn,“ sagði formaður VSÍ.
„Spumingin er ekki hvernig við .
getum bætt kjör fólks, heldur
hvemig við getum lágmarkað það
tjón sem framundan er. Hvernig ,
getum við brugðist við þannig að
fólk og fyrirtæki geti komist í
gegnum þá kreppu sem við erum i
í. Svo langt sem við sjáum er ekki '
útlit fyrir bata í efnahagsmálum,"
sagði Einar Oddur Kristjánsson.
Sjá nánar á miðopnu.