Morgunblaðið - 28.09.1991, Blaðsíða 10
íióiIgí/nbIaðíð lAuóAteóÁó'óá'
ió
Skráning 1 Heims-
kórinn stendur yfir
TEKIÐ verður a moti nyjum felögum í Heimskorinn a kynmngar-
fundi sem haldinn verður í Félagsheimili lögreglumanna, Brautar-
holti 30 efstu hæð, sunnudaginn 29. september kl. 20.30. Kórfélagar
frá Islandi munu taka þátt í tónleikum með Luciano Pavarotti í Stokk-
hólmi 11. apríl 1992.
Á tónleikunum verður flutt verk-
ið Requiem eftir Guiseppi Verdi.
Kórstjóri verður Vladimir Fedoseev
en einsöngvarar ásamt Pavarotti
eru Carol Vaness, Shirley Verrett
og Robert Scandiuzzi. Norska út-
varpshljómsveitin mun leika undir.
Stjórnandi Heimskórsins á ís-
landi er Úlrik Ólason núverandi
kórstjóri Söngsveitarinnar Fílharm-
óníu. Undirleikari er Vilhelmína
Ólafsdóttir píanókennari. Æfingar
munu hefjast laugardaginn 5. októ-
ber kl. 9 fyrir hádegi.
Allt söngfólk, áhuga- og atvinnu-
fólk, er velkomið í kórinn. Nánari
upplýsingar um hann má fá hjá
framkvæmdastjóra Heimskórsins á
íslandi Hafdísi Magnúsdóttur.
2ja herb. íbúð við Hlemm
Til sölu björt og góð 2ja herb. 50 fm íbúð við Hlemm.
Möguleiki að taka seljanlegan bíl uppí hluta af kaup-
verði. Upplýsingar í síma 91-623974.
120fm íbúðirtil sölu
Á veðursælum stað í Grafarvogi eru til sölu vel skipu-
lagðar íbúðir. Góðar suðursvalir. Fallegt útsýni. Þvotta-
hús á hæðinni og vandaðar íslenskar innréttingar.
Bílskúr fylgir. íbúðirnar henta m.a. vel fyrir eldra fólk.
Örn Isebarn, húsasmíðameistari,
sími31104.
1
Gullfallegt húsnæði
Aðalhæðin í þessu fallega
húsi er til sölu. íbúðin er
nýleg, 100 fm, hátt til lofts
og vítt til veggja. Svefn-
herbergi og svalir mót
suðri. Laus ‘ eftir sam-
komulagi. Gott verð. Góðir
greiðsluskilmálar. íbúðin
er til sýnis í dag og á
morgun kl. 14.00-18.00
og kl. 18.00-20.00 næstu
kvöld Sjón er sögu ríkari.
Upplýsingar í símum
12031 og 26347.
9197A LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
C \ I W\JmL I 0 / V KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggilturfasteignasali
Til sölu á fasteignamarkaðinn eru að koma m.a. eigna:
Við Furugrund - laus strax
2ja herb. íb. á 1. hæð um 60 fm vel umgengin. Vestursv. Geymsla í
kj. Ágæt nýendurbætt sameign. Gott verð.
Fyrir smið eða laghentan
efri hæð 3ja herb. ekki stór íb. í tvíbhúsi í gamla bænum. Þarfn. endur-
bóta. Allt sér. Verð aðeins kr. 3,5 millj.
Ný úrvalsíbúð með bílskúr
v/Sporhamra á 1. hæð 118,3 fm. íbhæf, ekki fullg. Sérþvhús. Vest-
ursv. Sér lóð. Góður fullg. bílsk. Húsnlán kr. 5,0 millj.
Lftið hús með góðu láni
parhús - steinhús í Skerjaf. m/tveimur 5 herb. íb. á tveimur hæðum.
Ræktuð eignarlóð. Húsnlán kr. 3,0 millj. Eignaskipti mögul.
Stór og góð - frábært útsýni
I 3ja hæða fjölbhúsi v/Arahóla: 2ja herb. íb. á 1. hæð 65,3 fm. Nýl.
parket. Sérþvhús. Geymslu- og föndurherb. í kj. Góð saméign. Fráb.
útsýni. Laus strax.
Nýlegt einbhús - hagkvæm skipti
Norðanmegin á Nesinu steinhús tvær hæðir m/5 herb. íb. um 135 fm.
Góður bílsk. 31,5 fm. Ræktuð lóð. Útsýni. Laust strax.
Ný og glæsileg einstaklingsíbúð
v/Vindás á 4. hæð tæpir 40 fm nettó. Parket. Gott svefnherb. Sólsval-
ir. Húsnlán til 40 ára kr. 1,8 millj. Laus strax.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
Sérstaklega óskast 4ra-5 herb. íb. m/bílsk. og 3ja-4ra herb. íb. á
1. eða 2. hæð miðsvæðis f borginni.
Opiðídag kl. 10.00-16.00.
Margs konar eignaskipti.
Almenna fasteignasalan sf. ________________________________
var stofnuð 12. júlí 1944. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ALMENNA
FASTEIGHASALAH
Ölfuskórinn og Sinfóníuhljómsveit íslands.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands í Þorlákshöfn
Þorlákshöfn.
ÞRIÐJUDAGINN 14. september
sl. fengu íbúar Þorlákshafnar
góða gesti í heimsókn. Þann dag
kom Sinfóníuhljómsveit Islands og
hélt tónleika í nýlegu og glæsilegu
íþróttahúsi staðarins. Er það í
fyrsta skipti sem hljómsveitin
heldur þar tónleika. Stjórnandi
hljómsveitarinnar var Guðmundur
Oli Guðmundsson en einleikari í
tveimur verkum var Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari sem
reyndar var á æskuslóðum sínum
í Þorlákshöfn. Tónleikar þessir
voru hluti af svokallaðri M-hátíð
á Suðurlandi.
Efnisskrá þessara tónleika sveit-
arinnar var bæði fjölbreytt og vönd-
uð. Voru leikin verk eftir Mozart,
Liszt og Mendelssohn auk tveggja
íslenskra sönglaga sem voru Suður-
land eftir Einar Sigurðsson við ljóð
sr. Heimis Steinssonar og Ámesþing
eftir Sigurð Ágústsson við ljóð Eiríks
Einarssonar. I þessum tveimur síð-
astnefndu verkum söng Ölfuskórinn
með hljómsveitnni en þann kór
mynda kirkjukórar Hveragerðis og
Þorlákshafnar. Höfðu kórarnir æft
undir stjórn Arnar Falkners og Ro-
bert Darling.
Af undirtektum tónleikagesta
mátti ráða, að þeir kunnu vel að
meta frammistöðu flytjenda. Hljóm-
sveitin lék prýðis vel undir stjórn
hins unga stjórnanda og Ölfuskórinn
stóð einnig vel fyrir sínu. Það er og
ánægjuleg tilbreytni hjá Sinfóníu-
hljómsveitinni að kalla heimafólk til
liðs við sig. Þá má ekki gleyma hlut
einleikaras Jónasar Ingimundarsonar
sem að vanda lék einleiksverkin af
innlifun og fágun hins einlæga lista-
manns. Það jók á gildi tónleikanna
að Jónas flutti skýringar um verkin
og gat um höfunda þeirra.
Það er mikill fengur að heimsókn-
um sem þessum. Bæði er að heima-
fólk fær tækifæri til að hlusta á lif-
andi tónlist og kynnast þar með bet-
ur hinum auðuga heimi sígildrar tón-
listar. Hitt hlýtur og að vera Sin-
fóníuhljómsveitinni mikils virði að
auka með þessum hætti áheyrenda-
hóp sinn úti á landsbyggðinni. íbúar
Þorlákshafnar þakka framlag þessa
listafólks og vona að þessi fyrsta
heimsókn Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands til staðarins marki upphaf að
frekari heimsóknum hingað í fram-
tíðinni. Hafi hljómsveitin bestu þakk-
ir fyrir komuna.
Sr. Svavar Stefánsson
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 608. þáttur
„Skreytt hefur verið á
skemmri leið en frá Jerúsalem
og hingað, þegar logið er á milli
búrs og baðstofu,“ sagði efa-
gjörn og hnittin kerling. Mikla
orku og hugkvæmni hafa menn
lagt í að meta hvað sé „réttur
texti“. Hvernig hafa t.d. vísur
varðveist um aldir? Hafa ekki
skrifarar gert skekkjur? Hafa
menn ekki sífellt verið að „leið-
rétta“ og yrkja upp? Hver veit
fyrir víst hvernig Egill Skalla-
Grímsson orti? Og þarf ekki svo
langt aftur í tímann. Mörg vísan
gengst í geymdinni á skemmri
leið „en frá Jerúsalem og hing-
að“, og skáldin sjálf breyta
„texta“ sínum.
Ég lærði í hrifningu ýmis af
fyrstu ljóðum Hannesar Péturs-
sonar. Síðan breytti hann þar
sumu. Hvernig „er“ ljóðið? Hvað
er „réttur texti“? Hvað er „rétt-
ur texti“ ljóða Jónasar Hall-
grímssonar, sá sem er að finna
í misvel skráðum syrpum hans
sjálfs, í fyrstu prentuðu útgáf-
unni, sem þeir Konráð og Brynj-
ólfur sáu um, eða í nýjustu
prentuninni? Já, hvað er sann-
leikur? er haft eftir Pflatusi.
Einhvern tíma birti ég hér í
þættinum vísu eftir Jóhannes
úr Kötlum (Jónasson), að höfðu
samráði við yrkisefni. Hver átti
betur að kunna? Visan var svo:
Ef mitt rénar andlegt slen,
óðar spen ég fólkið kven;
mína ben þá mildar pen
Magdalena Thoroddsen.
Ég hafði áður lært „mýkir“ í
stað mildar, en auðvitað lét ég
yrkisefni ráða. Til hennar er
vísan kveðin og var þegar num-
in. En glöggur og minnugur
maður í Reykjavík hélt því fram,
að í vísunni „ætti“ að vera mýk-
ir. Það væri líka „betri texti“.
En Magdalena Thoroddsen hlýt-
ur að vita hvernig Jóhannes úr
Kötlum orti til hennar. Auðvitað
getur alla misminnt, en þegar
skáldið er látið, hvernig er hægt
að komast nær „frumtextanum“
en spyrja yrkisefni?
Ég hef verið að líta á mismun-
andi gerðir af snilldarverki sr.
Gunnars Pálssonar (1714—
1791) um Einar Sæmundsson,
sjá 603. þátt. Þessi vísa hefur
varðveist í breytilegum gerðum,
þó að litlu skeiki, og ég vel þessa
gerð:
Fer Einar för sína,
framm keipa gamm hleypir
hjá skipum á opið,
ákafur bláhafið.
Vel stýrir val ára,
vað sætir aðgætinn,
úrtöku árvakur
á fiskinn þrágiskar.
Þetta er dróttkvæður háttur,
það rímafbrigði hans sem Snorri
kallar alhendu (aðalhendu)
hina minni, sex atkvæði í hverri
braglínu náttúrlega, og í hinum
ójöfnu bæði skothending og að-
alhending, en tvær aðalhending-
ar í hinum jöfnu. Geysilegur
vandi.
(Einar lætur gamminn geisa
á sjóferð sinni í ákefð út á hafið
blátt. Hann stýrir bátnum vel
og hyggur að færinu með gát,
sérlega árla uppi og löngum
fiskisæll.) Bágt verður þetta í
endursögn.
Jóhannes G(uðjón) Jónasson
(1862—1928) kvað um prest
sem þótti auðsæll og átti bæði
ákafa fylgismenn og ramma
andstæðinga:
Mikið er hve margir lof ann,
menn sem aldrei hafa séð’ann,
skrýddan kápu Krists að ofan,
klæddan skollabuxum neðan.
I Sunnanfara 1896 segir frá
því, er þeir sátu saman úti í
Kaupmannahöfn Þorsteinn Erl-
ingsson o g Jón Þorkelsson
(Forni). Þorsteinn kvað:
Þar sem enginn þekkir mann,
þar er gott að vera.
Jón botnaði:
Því að allan andskotann
er þar hægt að gera.
Sjómaður nokkur raulaði oft
fyrir munni sér þessa vísu, en
hafði hana á þessa leið:
Þar sem enginn maður þekkir annan mann,
þar er gott að vera,
því að allan andskotann
er þar hægt að gera, ef enginn sér mann.
Hvað er „réttur texti“?
★
Örn Snorrason (Aquila) sá
ágæti kennari, hafði eins og
fleiri mætur á Heilræðavísum
Hallgríms Péturssonar, Ungum
er það allra best, o.s.frv. Þar
er börnum m.a. tekinn vari fyrir
því að fara með „háð og spott“.
Eftir að kennari og börn höfðu
í hæfilegan tíma virt fyrir sér
vísur þessar og gaumgæft siða-
boðskap þeirra, bað Örn börnin
að læra vísurnar utanað og
skrifa þær upp fyrir sig í tíma
daginn eftir. Var vel við því vik-
ist, og komst flest rétt til skila,
en þó þetta með:
Hafðu hvorki hár né sport,
hugsa um ræðu mína.
Elskaðu guð, og hafðu það gott,
viljirðu gott barn heita.
Ekki var trútt um að Erni
þætti ekki gæta lífsgæðavið-
horfs 20. aldar í þessu.
★
Hlymrekur handan kvað:
Henni Þorbimu Rósu af Rindilætt
var til Reykjadalssveitar í skyndi lætt.
Svo klúkti hún þama,
kjökrið atarna,
til karla þó sporgjörn og tindilfætt.
Einn af andstæðingum prests,
ekki að sama skapi næmur, sem
hann var ákaflyndur, hreifst
mjög af vísunni, en gekk illa að
læra. Eftir tvö ár kom hann þó
sigri hrósandi til kunningja síns
og sagðist nú loksins lært hafa
þennan erfiða texta: Lát heyra,
sagði kunninginn og fékk þetta:
Mikið er hve margir lof ann
að ofan,
menn sem aldrei hafa séð’ann
að neðan.
Hvað er „réttur texti“?