Morgunblaðið - 28.09.1991, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991
31
„Bláu drengirnir"
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 223
Á dögunum var ég að blaða í
lítilli snoturri danskri bók um
blómlauka og rak þá augun í fyrir-
sögn sem mér fannst meira en lít-
ið forvitnileg. „De blá drenge“
stóð þar skýrum stöfum og grein-
arhöfundur getur þess að þetta
skemmtilega nafn hafi hún tekið
úr orðabók yfir dönsk plöntunöfn
(Johan Lange) og í henni talið
alþýðlegt samheiti yfir fjöldann
allan af bláum vorblómum. Hér á
eftir verður sagt ofurlítið frá fjór-
um af þessum „bláu drengjum“.
Við notkun fýrirsagnarinnar er að
vísu einn galli, sem sé sá að í
skrám yfir íslensk plöntuheiti eru
„bláu drengirnir" kvenkenndir og
bara „lilju“- eða „stjörnu“-nöfn.
Bið ég lesendur að horfa fram hjá
þessum annmarka og vonandi
slepp ég við áminningu frá Jafn-
réttisráði.
Ýmsa góða kosti eiga þeir bláu
sameiginlega, t.d. koma þeir upp
snemma vors og lífga upp 'um-
hverfíð meðan tré eru varla farin
að laufgast. Þeir eru afar harð-
gerðir, þurftarlitlir og lítið þarf
fyrir þeim að hafa, gera sig án-
ægða með venjulega garðmold,
vel framræsta þó, og sólelskir eru
þeir í meira lagi. Gróðursetningar-
dýptin er 5-7 sm. Þeir eru iiljuætt-
ar og flestir eiga til stórra ættk-
vísla að telja og meira eða minna
skyldir. Ræktunarafbrigði og af-
brigði fleiri en unnt er að koma
tölu á. Þegar þeir era lagðir í
mold er gott að hafa þá nokkra
saman í holu t.d.,10 stk. Með árun-
um mynda þeir sjtórar breiður og
njóta sín víða í garðinum, ekki
síst undir tijám. Hæð þeirra er
svipuð, um það bil 10-15 sm.
Stjörnulilja — Scilla. Blöðin
nokkuð mörg saman í hvirfingu,
blómleggir blaðlausir. Blómin eilít-
ið dijúpandi, fallega blá og fara
vel með páskaliljum og jafnvel
hjartarfífli (Doronicum). Hér á
landi munu algengust í ræktun
tegundin Scilla siberica — Síberíu-
lilja, afbrigðið „Spring Beauty“
þykir sérlega fallegt. „Alba“ ber
hvít blóm.
Snæstjarna.
Önnur og stórvaxnari tegund
af Scillu er S. campanulata með
breytilegum litum þó algengust í
bleiku, bláu og hvítu.
Snæstjarna — Chionodoxa er
meðal fegurri smálauka sem hér
eru ræktaðir og tegundin C.lucilac
algengust. Blómin eru stjörnulaga
upprétt, skærblá með hvítri miðju.
Til eru afbt'igði með hvítum og
einnig rósbleikum blómum.
Perlulilja — Muskari ber nafn
með rentu því blómin era perlum
likust þar sem þau sitja á stönglin-
Vorstjörnulilja.
um í þéttum sterkbláum klösum.
Blaðhvirfingarnir fagurgrænar
standa langt fram eftir sumri.
Tegundin Muskari armeniacum og
ýmis afbrigði hennar eru algen-
gust í rætkun hér. Afbrigði af
tegundinni M. botryoides er með
hvítum blómum.
Voistjörnur — Puschkinia. Til
þeirrar ættkvíslar teljast aðeins
fáara tegundir. P.schilloides —
vorstjörnulilja er þeirra þekktust
hér, aðallega afbrigðið „Liba-
notic“. Blómin eru fölblá, næstum
hvít, og liturinn gengur ekki sér-
lega í augun. Þau eru heldur
bústnari en hjá „hinum drengjun-
■um“, nokkur saman á stöngli, sér-
lega fallega löguð, smækkuð
mynd af hyasintum.
Bókin sem um var getið í byijun
pistilsins heitir: Blomstrende lög
og knolde og er skreytt glæsileg-
um myndum af hverskyns lauk-
og hnýðisjurtum, gefin út af De
danske haveselskaper, Rol-
ighedsvej 26, 1958 Köbenhavn V.
ÁB.
■ MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi ályktun: „Fundur
í Fulltrúaráði Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar haldinn þann
23. september 1991 varar við þeim
hugmyndum, sem fram hafa komið
að undanförnu um skólagjald og
gjaldtöku fyrir heilbrigðisþjónustu.
Fundurinn hvetur allt launafólk í
landinu til að standa vörð um vel-
ferðarkerfið og beita samtakamætti
sínum gegn þeim öflum sem vilja á
einhvem hátt skerða það. Mjög stór
hluti launafólks í landinu hefur
undanfarin ár búið við versnandi
kjör og augljóst er að aðgerðir af
þessu tagi kæmu verst við láglauna-
fólk. Fundurinn hvetur til ráðdeildar
í opinberum rekstri en bendir jafn-
framt á að ijölmargar aðrar leiðir
séu færar til tekjuöflunar ríkisins
fremur en að skattleggja þá, sem
minna mega sín.“
■ EFTIRFARANDI ályktun
vegna komandi kjarasamninga var
gerð á fundi Sambands ungra
jafnaðarmanna 21. sept. sl.:
„Framkvæmdastjórn SUJ krefst
þess að í komandi kjarasamningum
verði staðið við gefín fyrirheit um
aukinn kaupmátt til handa launþeg-
um. Með hinni árangursríku þjóðar-
sátt þar sem náðist að koma á jafn-
vægi í efnahagslífí þjóðarinnar, var
lagður grunnur að öflugra atvinnu-
lífí sem skila átti auknum kaup-
mætti í næstu samningum. SUJ
varar alvarlega við afleiðingum þess
ef atvinnurekendur og stjórnvöld
ætla að launa fórnir launafólks með
kjaraskerðingu og dulbúnum
skattahækkunum. SUJ gerir þá
skýlausu kröfu til stjómvalda að
þau skapi það hagstæða efnahags-
umhverfí sem færi launafólki aukn-
ar ráðstöfunartekjur og búi þegnum
landsins mannúðlegt velferðarkerfi.
Með nýlegum raunvaxtahækkunum
og daglegum fréttum um fyrirhug-
uð áform ríkisstjórnar Davíðs Odds-
sonar um niðurskurð á velferðar-
kerfi almennings án þess að tekið
sé á forréttindum fjármagnseig-
enda, er ríkisstjórnin komin á villi-
götur. Ef taumlaus fijálshyggja og
frelsi fjármagnseigenda fær að
vaða uppi átölulaust leiðir það til
hróplegs ójöfnuðar og óréttlætis í
þjóðfélaginu en slíkt má aldrei ger-
ast meðan ríkisstjórn með aðild
Alþýðuflokksins er við völd. SUJ
minnir ráðherra Alþýðuflokksins á
samþykktir flokksþinga og kosn-
ingastefnuskrá flokksins fyrir síð-
ustu kosningar og lýsir fullri ábyrgð
á hendur þeim ef ekki verður farið
eftir þessum ályktunum, sem æðstu
stofnanir flokksins hafa samþykkt."
Framhald af Dagbókarsíðu
DAGBÓK
FRÉTTIR_________________
KAFFI/kökusala. Starfs-
mannafél. Álafoss í Mosfellsbæ
verður með kaffíhlaðborð í Þrúð-
vangi gl. Álafoss á morgun,
sunnudag, kl. 14.30-17.30.
KÓPAVOGUR. Kvenfél.
Freyja. Félagsvist verður spiluð
á morgun, sunnudag, á Digra-
nesvegi 12, kl. 15.
FÉLAGSSTARF aldraðra
Kópavogi. Kór FAK er tekinn
til starfa á ný. Mæting á mánu-
daginn kl. 16.30.
KVENFÉL. Hreyfils. Nk.
þriðjudagskvöld kl. 20 verður
fundur í Hreyfílshúsinu. Fönd-
ursýning.
FÉL. eldri borgara. Dansnám-
skeið byrjenda kl. 14 og lengra
komna kl. 15.30. Kennari er
Sigvaldi.
MIIMNIIMGARSPJÖLD
LÍKNARSJÓÐUR Dóm-
kirkjunnar. Minningarspjöld
sjóðsins eru til sölu hjá kirkju-
verði Dómkirkjunnar, í Geysi
og í Bókabúð VBK við Vest-
urgötu.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
Þriðjudaginn 1. október 1991
fara fram nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum f dómsal
embættisins, Hafnarstræti 1, ísafirði, og hefjast þau kl. 14.00:
Aðalstræti 13, isafirði, þingl. eign Hálfdánar Daöa Hinrikssonar, eft-
ir kröfu Bæjarsjóðs (safjarðar. Annað og síðara.
Bakkavegi 1, isafirði, þingl. eign Elínborgar Helgadóttur og Guðmund-
ar Þ. Kristjánssonar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands.
Brekkugötu 10, Þingeyri, þingl. eign Ólafs Gunnarssonar, eftir kröfum
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga og Gúmmíbátaþjónustunnar hf. Annað og
sfðara.
Brimnesvegi 20, Flateyri, talin eign Þorleifs Yngvarssonar, eftir kröfu
veðdeildar Landsbanka islands.
Drafnargötu 11, Flateyri, þingl. eign Kristjönu Kristjánsdóttur og
Guðmundar Ö. Njálssonar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands.
Fjarðargötu 14, efri hæð, Þingeyri, þingl. eign Bjarna M. Júlíusson-
ar, en talin eign Viktors Pálssonar, eftir kröfu veðdeildar Lands-
banka islands.
Grundarstíg 11, Flateyri, þingl. eign Helgu Matthíasdóttur og Gunn-
halls Gunnhallssonar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands.
Hafraholti 44, isafirði, þingl. eign Agnars Ebeneserssonar, eftir kröf-
um innheimtumanns ríkissjóðs, Lífeyrissjóös Vestfirðinga, Lands-
banka íslands og veödeildar Landsbanka íslands. Annað og síðara.
Hjallavegi 23, Suðureyri, þingl. eign Þóris Axelssonar, eftir kröfum
Straums hf., Hitaveitu Akraness og Borgarness, veðdeildar Lands-
banka íslands, Traðarbakka sf., Hótels isafjarðar og Sjóvá-
Almennra. Annað og sfðara.
Minkabú i landi Kirkjubóls, ísafiröi, þingl. eign Guðmundar Helgason-
ar, eftir kröfu Landsbanka islands. Annað og sfðara.
Mjallargötu 6a, nerðri hæð, Isafiröi, þingl. eign Þóris Guömundar
Hinrikssonar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands.
Nesvegi 2, Súðavik, þingl. eign Jónbjörns Björnssonar, eftir kröfum
veðdeildar Landsbanka Islands og íslandsbanka.
Stórholti 7, 1. hæð b, isafirði, þingl. eign Kjartans Ólafssonar, eftir
kröfum Lífeyrissjóös Vestfirðinga, Ragnhildar Guðmundsdóttur,
Landsbanka islands, isafirði og Jóns Ingólfssonar hdl. Annað og
síðara.
Strandgötu 19a, ísafirði, þingl. eign Selmu Magnúsdóttur, eftir kröfu
veðdeildar Landsbanka íslands.
Suðurgötu 11, frystiklefa, isafirði, þingl. eign Niðursuðuverksmiðj-
unnar hf., eftir kröfum Valdimars hf., Hafnarbakka hf., Byggöastofn-
unar og Efnaverksmiðjunnar Sjafnar.
Sunnuholti 3, isafirði, þingl. eign Sævars Gestssonar, eftir kröfu
Verðbréfamarkaðs FFÍ.
Sætúni 1, Suðureyri, þingl. eign Guðmundar Svavarssonar, eftir kröf-
um Sambands íslenskra samvinnufélaga, Einars Ólafssonar og Vá-
tryggingafélags islands.
Túngötu 17, neðri hæð og kjallara, isafirði, þingl. eign Guðmundar
K. Guðfinnssonar o.fl., eftir kröfu Bæjarsjóðs isafjarðar. Annað og
síðara.
Öldugötu 1, Flateyri, þingl. eign Kristjáns Hálfdánarsonar, eftir kröf-
um veðdeildar Landsbanka (slands og Tryggingamiöstöðvarinnar hf.
Bæjarfógetinn á isafiröi.
Sýslumaöurínn i Isafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer fram í
skrifstofu embættisins,
Aðalstræti 12, Bolungarvík, mið-
vikudaginn 2. október nk. kl. 15.00:
Holtabrún 14, 1. h.h., Bolungarvík, þingl. eigandi Stjóm verkamanna-
bústaða, talinn eigandi Gunnar Sigurðsson.
Uppboðsbeiðandi er veödeild Landsbanka íslands.
Hafnargötu 46, Bolungarvik, þingl. eigandi Stefán Sigmundsson.
Uppboðsbeiðendur eru Arnar Geir Hinriksson hdl. og Magnús H.
Magnússon hdl.
Traðarlandi 10, Bolungarvík, þingl. eigandi Guðni Kr. Sævarsson.
Uppboðsbeiðandi er veðdeild Landsbanka Ísfands.
Skólastig 19, e.h., Bolungarvík, þingl. eigandi Einar Guðfinnsson hf.
Uppboðsbeiðandi er veðdeild Landsbanka íslands.
Ljósalandi 6, Bolungarvík, þingl. eigendur Guðný Kristjánsdóttir og
Sigurður Ringsted.
Uppboðsbeiðandi er Ólafur Gústafsson hrl. Annað og siðara.
Stigahlíð 2,3. h. t.h., Bolungarvík, þingl. eigandi Haraldur Úlfarsson.
Uppboðsbeiðandi er veðdeild Landsbanka íslands. Annað og síðara.
Móholti 4, Bolungarvík, þingl. eigandi Stjórn verkamannabústaða,
talinn eigandi Hjálmar Gunnarsson.
Uppboðsbeiðandi erveðdeild Landsbanka islands. Annað og síðara.
Traðarlandi 13, Bolungarvík, þingl. eigandi Arngrímur Kristinsson.
Uppboðsbeiðandi er veðdeild Landsbanka islands. Annað og siðara.
Hafnargötu 79, e.h. í norðurenda, Bolungarvík, þingl. eigandi Bjarni
Sigurðsson, talinn eigandi Birgir Bjarnason.
Uppboðsbeiðandi er Ólafur Gústafsson hrl. Annað og síðara.
Holtabrún 21, Bolungarvík, þingl. eigandi Finnbogi Bernódusson.
Uppboðsbeiðandi er Eggert Ólafsson hdl. Annað og síðara.
Skólastigur 7, Bolungarvík, þingl. eigandi Sveinn Bernódusson.
Uppboðsbeiðandi er Eggert Ólafsson hdl. Annað og síðara.
Miðstræti 6, Bolungarvík, þingl. eigandi Bjarni Aðalsteinsson.
Uppboðsbeiðendur eru Benedikt E. Guðbjartsson hdl., Magnús H.
Magnússon hdl., Gjaldheimtan í Bolungarvík og veðdeild Lands-
banka íslands. Annað og síðara.
Stigahlíð 4, 3. h. t.v., Bolungarvík, þingl. eigandi Skúli Arnarsson.
Uppboðsbeiðandi er veðdeild Landsbanka islands. Annað og síðara.
Traðarlandi 12, Bolungarvík, þingl. eigandi Bjarni Benediktsson.
Uppboðsbeiðandi er veðdeild Landsbanka fslands. Annað og síðara.
Þjóðólfsvegi 16, Bolungarvik, þingl. eigandi ishúsfélag Bolungarvikur hf.
Uppboösbeiðandi er Sigríður Thorlacius hdl. Annað og síðara.
Bæjarfógetinn i Bolungarvik.