Morgunblaðið - 28.09.1991, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991
Tortímendur takast á
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Tortímandinn 2: Dómsdagur
(„Terminator 2: The Judge-
ment Day“). Sýnd í Stjörnubíói.
Leikstjóri og framleiöandi: Ja-
mes Cameron. Handrit: Camer-
on og William Wisher. Aðalhlut-
verk: Arnold Schwarzenegger,
Linda Hamilton, Edward Furl-
ong, Robert Patrik og Joe Mor-
ton. Carolco. 1991.
Margt hefur breyst frá því Am-
old Schwarzenegger lék titilhlut-
verkið í vísindaskáldskaparmynd-
inni Tortímandinn frá 1984. Hún
gerði stjörnu úr Arnold, sem lék
morðóðan róbót er sendur var úr
framtíðinni til vorra daga að
myrða saklausa, unga konu.
Myndin var gerð fyrir sáralítinn
pening á Hollywoodmælikvarðan-
um en hafði geysimikil áhrif sem
tækniþriller, það var sprengi-
kraftur í frásögninni sem vakti
athygli á áður óþekktum leik-
stjóra, James Cameron.
Þegar framhaldsmyndin, Tor-
tímandinn2:Dómsdagur(„Termin-
ator 2: Judgement Day“) er nú
frumsýnd er Cameron orðinn
fremstur hasarmyndaleikstjóra í
Hollywood eftir myndir eins og
Aliens og Hyldýpið og hann lend-
ir reyndar sér á blaði með Tor-
tímandanum 2, sem kallast ein-
faldlega T2. Arnold er fyrir löngu
orðinn skærasta stjarnan á himni
hasarmyndanna. Peningaflóðið er
ótakmarkað; myndin er gerð fyrir
100 milljón dollara (menn eru
ekki sammála um nákvæma tölu
en þessi er iðulega nefnd), sem
þýðir að hún er dýrasta mynd sem
gerð hefur verið í áratugi og
tæknibrellurnar í henni eru betri
og undirfurðulegri en það sem
maður hefur séð á hvíta tjaldinuí
mörg ár.
T2 hefði ekki mátt vera krónu
ódýrari. Það er a.m.k. tilfinningin
sem maður fær þegar maður horf-
ir á hana. Ekkert hefur verið til
sparað svo hasarinn mætti verða
sem mestur og bestur. Hvaða
merkingu sem menn vilja leggja
í heimsendafrásögn myndarinnar,
sem jafnvel hefur verið skoðuð
með tilvísanir i Biblíuna, þá er
T2 fyrst og fremst dúndurgóð og
frábærlega vel framleidd hasar-
mynd og sú besta sinnar tegundar
í langan tíma. Tæknibrellumeist-
ararnir hjá Industrial Light and
Magic hafa skapað ótrúlega veru
sem er hinn nýi tortímandi, mun
fullkomnara módel en gamli Arn-
old, óvættur úr fljótandi málmi
sem breytt getur sér í hvern sem
er og nánast hvað sem er á auga-
bragði og er með öllu ódrepandi
að því er virðist. Jafnvel þótt hann
tvístrist í frumeindir sínar raðar
hann sér saman aftur. Maður
getur ekki ímyndað sér hvernig
þeir fara að þessu breilukallarnir
en útkoman er töfrum líkust.
Vélmennið og tæknin á bak við
það er að sönnu senuþjófurinn.
Sagan hefur einnig tekið
margskonar breytingum frá fyrri
myndinni og mesta breytingin
hefur orðið á torímandanum sjálf-
um, sem Amold leikur með glans.
í stað tilfmningalauss manndráps-
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó:
Uppí hjá Madonnu - „In Bed
With Madonna“
Heimildarmynd um Blind Amb-
ition hljómleikaferð söngkon-
unnar. Leikstjóri Alek Keshisi-
hian. Bandarísk. Propaganda
1991.
Mér er minnisstætt viðtal við
unga söngkonu sem ég rakst á
snemma á síðasta áratug. Minnis-
stætt sökum kokhreysti og hroka
stúlkunnar sem sagðist hiklaust
nota öll meðöl til að komast á
toppinn. Þetta var engin önnur
en Madonna og meðölin hafa
gengið undir ýmsum nöfnum; fra-
vélmennis fyrri myndarinnar er
komið vinalegra, blíðlegra vél-
menni úr framtíðinni. Nú er það
bandamaður móðurinnar, leikin
af Lindu Hamilton, sem það átti
að myrða hér áður fyrr. Þegar
T2 hefst áratug eftir að fyrri sög-
unni lauk hefur tölvunetið er
stjórnar framtíðarríkinu anno
2029, sem er rústir einar eftir
kjarnorkustyrjöld, sent nýtt og
háþróaðra vélmenni (T-1000, leik-
ið af Robert Patrik) aftur í tímann
til að myrða væntanlegan foringja
uppreisnaraflanna sem nú er orð-
inn tíu ára. Móðir hans er á geð-
sjúkrahúsi þar sem hún talar sí-
fellt um heimsenda, eyðingu jarð-
arinnar í kjarnorkubáli innan
þriggja ára; hún fær martraðir
þar sem hún verður vitni að þessu
og ferst sjálf. Arnold hefur uppi
á syninum og þeim tekst að vera
skrefí á undan nýja tortímandan-
um, bjarga móðurinni og reyna
að fá heimsendanum afstýrt.
Cameron hefur sagt að myndin
sé um frið og víst er að það kveð-
ur við talsvert mildari tón í sög-
unni en áður. Partur af því er
magirni, hæfíleikar, frekja, Penn,
ófyrirleitni, Beatty, fagmennska,
kynfæraskak, svo mætti lengi
telja.
Nú erum við að leggja í síðasta
áratug aldarinnar og stjama Mad-
onnu sem söngkonu er aðeins tek-
in að dala (allar tilraunir að búa
til úr henni kvikmyndadís hafa
mistekist hrapallega), en heimild-
armyndin Uppí hjá Madonnu, er
engu að síður einstakt framlag
til gerðar slíkra mynda. Hún
skiptist í tvennt; vafninga í kring-
um söngkonuna á hljómleikaferð
um hnöttinn og eru í svart/hvítu
og flutning hennar á umræddum
hljómleikum, í litum og dúndrandi
Dolbý.
í stuttu máli sagt er hnýsnin í
einkalíf konunnar álíka lítið
Ótrúlegar tæknibrellur; úr T2.
umbreyting Arnolds en drengur-
inn, leikinn af Edward Furlong,
tekur af honum það loforð að
hann myrði engan í öllum þeim
látum sem framundan eru. Afleið-
ingin er sú að aldrei hafa fleiri
hnéskeljar splundrast en í T2.
Arnold verður líka föðurímynd
drengsins og vemdari og það
myndast sérstakt samband á milli
þeirra. Móðirin kemur aftur út
spennandi og framkoma hennar á
sviðinu er fagmannleg. Það er
seigdrepandi og ómerkilegt mynd-
efni að horfa á Madonnu hringja
í pabba, éta slátur, eða einhvern
ljárann, og hringja í pabba, Ma-
donnu segja fímmaurabrandara
og hlusta og horfa á jáliðið hlæja
og flissa líkt og það hafi ekki
hætishót af skopskyni, horfa á
Madonnu þamba Evian og sjúga
Perrierflösku, hlusta á enda-
lausann groddakjaftinn á henni
sem ber, betur en flest annað,
vott um innrætið, hlusta á Mad-
onnu fara með hræsnisfullar bæn-
ir sí og æ þar sem ekki er verið
að hafa fyrir því að biðja fyrir
batnandi heimi fullum vesældar
heldur raddstyrk fraukunnar. Svo
mætti lengi telja.
eins og manndrápsvélmenni með
bilaðan kubb í kollinum. Hún hef-
ur þjálfað sig eins og hryðjuverka-
maður til að vernda framtíðarfor-
ingjann og eirir engum til að ná
settum markmiðum.
Leikstjórn Camerons gengur
öll út á að halda uppi hraða í frá-
sögninni. Eins og fyrri myndin er
T2 eltingarleikur frá upphafí til
enda og Cameron tryggir að ekki
slakni á. Hvert hasaratriðið tekur
við af öðru, öflugra og áhrifarík-
ara þar til kemur að hápunktinum
í stáliðjuveri. Cameron sviðsetur
og myndar eltingarleikina af meiri
krafti og dugnaði en kollegar
hans, tímasetningar og klippingar
eru hárnákvæmar og hann nær
hámarksáhrifum í hvert sinn.
Saman við tæknibrellurnar sem
skapa óvættinn eru áhrifín oft
mögnuð. Dæmi þegar þetta tvennt
smellur saman er þegar óvættur-
inn í líki mótorhjólalöggu keyrir
útum fímmtu hæð á glerbygg-
ingu, hendir sér á fljúgandi þyrlu
sem sveimar fyrir utan, brýtur
gat á gler flugstjórarklefans og
smýgur inn sem fljótandi málmur
áður en það tekur aftur á sig
mannlegt útlit við hlið flugstjór-
ans. Þarna er Cameron í essinu
sínu.
Og þú gapir.
Það er jafn ánægjulegt að fylgj-
ast með listamanninum og loddar-
anum Madonnu á sviðinu. Þar á
hún heima. Með aðstoð frábærra
dansara, sviðsetningar, ljósa- og
hljóðmeistara, hljómlistamanna
og dansasmiða ríkir hún yfír
sviðsljósinu, hún hefur náð settu
marki það verður ekki af henni
skafíð. Hvort fólk potar sér áfram
með því að þrífa í klofíð á sér
skaka sér er spursmál um smekk
hvers og eins og sjálfsagt hneyksl-
ar Donnan ófáa. Það er ekki bæði
sleppt og haldið.
Uppí hjá Madonnu er ótrúlega
sterk mynd. Hún er löng, hátt í
tveir tímar en hinn snjalli Keshis-
hian heldur manni föngnum við
efnið: hjómið, hégómann og Ma-
donnu.
HJÓM OG HÆFILEIKAR
Furðuleg ummæli
flug’málastj óra
- segir í athugasemd frá Vesturflugi hf.
__________Brids_____________
Umsjón: Amór Ragnarsson
Bridsfélag Rcykjavíkur
Sævar og Karl halda góðri forystu
í barómeterkeppninni sem nú hefir
staðið í tvö kvöld.
Efstu pör:
Sævar Þorbjömsson - Karl Sigurhjartarson 250
RagnarMagnússon-PállValdimareson 180
SigfúsÁmason-JonHjaltason 150
Jónas P. Erlingsson - Guðmundur Sveinsson • 144
Gylfi Baldureson - Sigurður B. Þorsteinsson 137
Svavar Björnsson - Sveinn R. Eiiíksson 133
Páll Hjaltason — Oddur Hjaltason 131
Bemódus Kristinsson - Georg Sverrisson 128
Hæsta skor síðasta spilakvölds:
Jónas P. Erlingsson - Guðm. Sveinsson 144
Bernódus Kristinsson - Georg Svenisson 137
SævarÞorbjömsson - Karj Sigurhjartai’son 131
Hörður Amjwrsson-JónÁsbjörnsson 94
BjömTheódórsson-GerorgOlafsson 89
Gísli Steingrimsson - Sigurður Steingrimsson 83
SveinnÞorvaldsson-BjamiJónsson 81
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 23. september hófst
minningarmót um Kristmund Þor-
steinsson og Þórarin Andrewsson.
Spiia varð í þremur riðlum vegna'mik-
illar þátttöku en alls mættu 38 pör
til leiks.
Úrslit í A-riðli:
Ingvarlngvarsson - Kristján Hauksson 201
Bjöm Amarson - Guðlaugur Ellertsson 196
AronÞorfmnsson-Jonlngþóreson 191
JensSigurðsson-JónSigurðsson 189
Úrslit í B-riðli:
Valdimar Sveinsson - Þorsteinn Berg 184
Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 176
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 175
Sigriður Eyjólfsdóttir - Gísli ísleifsson 168
Úrslit í C-riðli:
Gyðriður Þorsteinsdóttir - Bergþór Jóhannssonl73
Julíana Sigurðardóttir - Kristján Bjömsson 172
Sigrún Arnórsdóttir - Bjöm Höskuldsson 170
Anna Hreinsdóttir - Steinþómnn Kristjánsd. 166
Bryndís Eysteinsdóttir - Átli Hjartarson 166
Næsta mánudag verður minningar-
mótinu fram haldið.
Bridsdeild Rangæinga
Sl. miðvikudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur.
Efstu pör:
Jens Jensson—Jón St. Ingólfsson 137
Ásmundur Guðmundsson - Sigurður Jónsson 124
Karl Nikulásson - Loftur Pétursson 123
Næsta miðvikudag hefst 5 kvölda
tvímenningur. Spilað er í Ármúla 40,
2. hæð, og hefst kl. 19.30. Skráning
hjá Lofti í s. 36120 og á spilastað.
Frá Skagfirðingum
Sl. þriðjudag hófst þriggja kvölda
barómeter-tvímenningskeppni. Eftir
fyrsta kvöldið, er staða efstu para
þessi:
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeiisson 216
Helgi Hennansson - Kjartan Jóhannsson 196
ÖmScheving-SigurðurÁmundason 193
Bemódus Kristinsson - Þröstur Ingimarsson 189
Láms Hermannsson - Óskar Karlsson 185
Sigurður ívamson - Jóhannes Guðmannsson 182
Spilamennsku verður fram haldið
næsta þriðjudag.
Bridsfélag Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur. Spilað var í 10
para riðli og varð röð efstu para þessi:
Baldur Bjartmarsson - Rúnar Hauksson 132
Óskar Siguiðsson - Pétur Sigurðsson 124
Ingi Agnarsson - Haraldur Þ. Gunnlaugsson 118
Næsta þriðjudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. Allir vel-
komnir. Spilað er í Gerðubergi kl.
19.30.
Bridsfélag byrjenda
Síðastliðinn þriðjudag var spila-
kvöld hjá félaginu í Sigtúni 9. Þátt-
taka var ágæt og var spilað á 14 borð-
um. Spilaður var Mitchel-tvímenning-
ur og urðu úrslit þessi:
Norður/suður:
Tómas Sigurðsson - Sigurður Óli Kolbeinsson 219
GuðmundurÞórðarson 7 Guðný Hálfdánard. 213
Helga Haraldsdóttir - Ófeigur Freysson 200
Pétur Guðmundsson - Héðinn Pétursson 197
Björn Sigurðsson - Hekla Smith 192
Austur/vestur:
Siguijón Guðröðarson - Bjami Guðmundsson 238
Pálmi Gunnarsson - Álfheiður Gísladóttir 230
Hjördís Sigutjónsd. - Maria Guðnadóttir 221
Bergþór Albertsson - Kristín Ingvarsdóttir 211
AronÞorfinnsson-Jónlngþórsson 192
Næsta spilakvöld verður í Sigtúni
9, þriðjudaginn 8. október nk. og verð-
ur bytjað að spila kl. 19.30. Fólk er
beðið um að mæta tímanlega og alls
ekki seinna en 19.15.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Vesturflugi hf.:
„Vegna athugasemdar Péturs
Einarsson flugmálastjóra t blaði
yðar 21. þ.m. vill Vesturflug hf.
koma eftirfarandi á framfæri:
Flugmálastjóri segir atvinnu-
flugnám hérlendis í afar frumlegum
farvegi og ,eru það nánast furðuleg-
ar upplýsingar manns, sem starfað
hefur að flugmálastjórn síðan 1980
og verið flugmálastjóri í nær ára-
tug.
Samkvæmt fyrirmælabók Al-
þjóða flugmálastofnunarinnar hafa
grundvallaratriði flugþjálfunar og
kennsluaðferða verið nær óbreytt
um margra ára skeið.
Flugmálastjóri virðist vilja
hækka laun kennara í bóklegri flug-
kennslu, en lækka jafnframt náms-
kostnað og er sú niðurstaða óskilj-
anleg. Eflaust er menntamálaráðu-
neytið hæfastur aðili til að skipu-
leggja kennslumál í landinu.
Atvinnuflugmenn þurfa að
standast ýmiskonar próf til að hljóta
réttindi erlendis og á sama hátt
gilda erlend réttindi ekki á íslandi.
I Danmörku eru norsk og sænsk
réttindi flugmanna eingöngu viður-
kennd vegna samstarfs innan SAS.
Pétur Einarsson segir flugnám í
molum án þess að greina þá stað-
hæfíngu nánar, enda mun ná-
kvæmni í frásögn ekki venjubundin
hjá honum.
Þegar árið 1979 reyndi Pétur f.h.
Flugtaks hf. að komast yfir Flug-
skóla Helga Jónssonar, en sam-
vinnu var hafnað og síðan hefur
hann lagt starfsemi Helga í einelti.
Var flugskóli hans nýverið talinn
óhæfur, en allt um það send útboðs-
gögn varðandi rekstur á einokunar-
grundvelli. Athyglisvert er að Flug-
skóli Akureyrar var skilinn útund-
an.
Ogreidd tilkynning til hlutafélag-
askrár, sem á vantaði undirskriftir,
barst 31. mars 1981, en samkvæmt
henni var Pétur Einarsson ekki
lengur talinn meðal hluthafa Flug-
taks hf.
Flugmálastjóri synjaði tvívegis
að taka við greiðslu skuldabréfs
Sverris Þóroddssonar úr hendi
Leiguflugs hf., en seldi það síðan
Flugtaki hf. Einkennilegt er ef fyr-
irtækið hefur keypt fullu verði bréf
í vanskilum, sem ekkert útlit var
fyrir að yrði greitt.
Samkvæmt umskráningu 31.
janúar sl. keypti flugmálastjóri bif-
reiðina LD 496 á Akureyri af Höldi
hf., en hafði haft hana til afnota
um alllangt skeið, svo athygli vakti.
Sem betur fer hlýtur nú að mega
telja að komið hafí verið í veg fyrir
að Pétri Einarssyni takist að einoka
flugkennslu í landinu, en hann hóf
að keppa að því marki fyrir tólf
árum síðan, enda liggur fyrir grein-
argerð hans um það efni.“