Morgunblaðið - 28.09.1991, Side 39
UÍOC 5nPMrJTa:;!'' HS WTOÍOflíOUM (TIQAJHMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBBR 1991
fclk í
fréttum
SKEMMTANIR
Bob Hope fis-
léttur enn
Bob gamli Hope, sem er 88 ára gamall um
þessar mundir lætur enn til sín taka endrum
og sinnum er honum þykir tilefnið verðskulda
það að hann dusti af sér rykið. Þannig var það
á dögunum, er hann var beðinn að koma fram
í „The London Palladium“þar sem fram fór í]ár-
öflun til handa leikhúss sem er í byggingu í
Elthamhverfinu í London. Það vita það kannski
ekki allir, en Bob Hope fæddist í því hverfi um
árið og leikhúsið sem um ræðir heitir í höfuðið
á honum, „the Bob Hope Theater“. Á meðfylgj-
andi mynd tekur Bob nokkur lauflétt spor með
breska skemmtikraftinum Maddy Cryer sem kom
einnig fram á umræddri fjáröflunarskemmtun.
TENNIS
Seles sætir árásum
frá Chris Evert
að vakti gífurlega athygli á síð-
asta Wimbledonmóti í tennis,
er Monica Seles, hin tékkneska
tennisdrottning hætti við keppni á
síðustu stundu. Slúðrið hófst og
ekki dró úr því þegar menn báru
kennsl á Seles á meðal áhorfenda
með svarta hárkollu. Eftir keppnina,
þar sem Steffi Graf sigraði í kvenna-
flokki og endurheimti fyrsta sætið
á gæðalistanum úr höndum Seles,
lét Seles hafa það eftir sér að hún
hefði hlotið torkennileg fótmeiðsl
og ekki átt annarra kosta völ en
að hætta við keppni. Nýlega sagði
hún að væri á batavegi og hún
færi senn á fulla ferð á ný.
Gamla brýnið Chris Evert réðist
hins vegar harkalega á Seles í við-
tali við New York Times nýverið.
Þar sagði hún að Seles væri athygl-
issjuk og það hefði ekkert amað
annað að henni við þetta tækifæri.
Hún væri útlendingurinn í hópnum
og hefði séð að Jennifer Caprialdi
fékk alla athyglina. Svar hennar
hefði verið að hætta við þátttöku á
síðustu stundu og láta síðan viljandi
góma sig á
svæðinu
með
hárkolluna!
Seles seg-
ir að þetta
sé regin-
firra og
Evert hafi
alltaf verið
tilbúin að
reka rýting
í bak sitt.
„Það snert-
ir mig ekkert hvað geðvondar og
bitrar kerlingar segja um mig. Mér
gæti ekki dottið asnalegri ástæða í
hug fyrir því að hætta við þátttöku
á móti en að fá aukna athygli. Eg
hef ævinlega fengið meiri athygli
heldur en ég kæri mig um. Illt
umtal er hins vegar hluti af lífi
íþróttamannsins, Evert ætti sjálf að
vita það, eftir þá meðferð sem hún
fékk er hún stóð í skilnaðarþrasinu
við fyrrum mann sinn John Lloyd,“
sagði Monica Seles.
Jósteinn t.v. og Björn.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
L.A.KAFFI
Blásið til uppskeru-
hátíðar veiðimanna
Tveir veitingamenn hér í bæ,
Jósteinn Kristjánsson og
Bjöm Friðþjófsson í L.A.Kaffi hafa
blásið til uppskeruhátíðar veiði-
manna nú í vertíðarlok. Er slíkt
nýlunda. Þeir hafa sent ijölmörg-
um stangaveiðimönnum bréf þar
sem þeir boða samkunduna sem
er raunar i kvöld. Jósteinn sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hann
væri lítill veiðimaður, en félagi sinn
Björn væri með bakteríuna og á
honum hefðu dunið fyrirspurnir í
sumar um hvort eigi væri sniðugt
að efna til slíkrar samkundu sem
haldin verður í kvöld.
„Það var mikið spurt og okkur
þótti þetta vera hið besta mál.
Menn eru að veiða út um allar jarð-
ir og sjá kunnuglegum andlitum
bregða fyrir af og til. Menn þekkj-
ast, en þekkjast þó ekki. Spurning-
arnar voru jafnan á þá leið að
gaman væri ef þessir menn gætu
komið saman að hausti og aukið
kynnin, því félagsskapurinn er einn
af mikilvægustu þáttunum í veiði-
skap. Það er veiðin sjálf. Útiveran
og svo síðast en ekki síst félags-
skapurinn,“ sagði Jósteinn.
Þeir félagar hafa tekið saman
fjórréttaðan matseðil og auk þess
sem aðgöngumiðar eru happdrætt-
ismiðar í sömu andránni, verða
veitt verðlaun fyrir stærsta laxinn
sem veiddist í sumar á fluguna
„Veiðivon“. Það er náttúrulega
verslunin Veiðivon sem gefur bik-
arinn, en flugan heitir eftir búðinni
og var hnýtt í tilefni af opnun
hennar um árið. Jósteinn sagði í
athugun að bjóða upp á fleiri
skemmtiatriði með borðhaldinu, en
það lægi ekki enn ljóst fyrir enn.
Ljóst er þó, að Guðmundur G.
Þórarinsson fyrrum alþingismaður
verður veislustjóri.
L.A.Kaffi er í bland matsölustað-
ur og skemmtistaður. Þar geta
allt að 90 manns borðað í einu og
um helgar er lifandi tónlist og
ball fram á morgna, Staðurinn er
tvískiptur, rólegri matsalur og sal-
ur með dansgólfi og hljómsveitar-
palli. Þar er jafnan meiri gnýr eins
og vera ber. Þeir félagar Björn og
Jósteinn sögðust fullir eftirvænt-
ingar með kvöldið. Veiðimenn
væru skemmtilegir náungar og ef
vel tækist til væru þeir staðráðnir
í að halda svona uppskeruhátíð á
ári hverju.
ásamt Bíbí og Lóló i 5 stjömu
KABARETT Á SÖGU
I' KVÖLD
Sýningin sem fyllti Súlnasalinn öll laugardagskvöld
seinni hluta vetrar sýnd fram til nóvemberloka.
Þrírétta veislukvöldveröur
(val á réttum)
OPINN DANSLEIKUR
FRÁ KL. 23.30 TIL 3.
Hljómsveitin Einsdæmi leikur
Skemmtun og dansleikur:
Verö kr. 4.600
Tilboðsverð á gistingu.
Sími 91-29900
Grænt númer: 996099
OPINN DANSLEIKUR
FRÁ KL. 23.30 TIL 3.
leikur