Morgunblaðið - 28.09.1991, Qupperneq 48
<
V^terkurog ■ A iir ^
VJ hagkvæmur auglýsingamiðill! /tgÍ
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Eldur í sófa
í risíbúð
ELDUR kom upp í sófa í timb-
urhúsi í Karfavogi seint í gær-
kvöldi. Slökkvilið var kvatt á
staðinn og gekk greiðlega að
slökkva eldinn.
Eidurinn kom upp í risi hússins
sem er timburhús. íbúi í risíbúð-
inni, eldri maður, var kominn út
úr húsinu þegar slökkvilið kom á
vettvang. Tveir reykkafarar fóru
inn í íbúðina og slökktu eldinn með
vatni. Talið er að kviknað hafí út
frá sígarrettu.
íbúðin var reyktæmd og hlutust
ekki miklar skemmdir af eldinum.
Fjórii’ staðnir að ólög-
legum rækjuveiðum:
Tveir féllust
á sátt en tveir
tóku sér frest
SKIPSTJÓRARNIR á rækjubát-
unum Víði Trausta EA 517 og
Sæbjörgu ÓF 4, sem varðskip
, stóð að ólöglegum rækjuveiðum
innan viðmiðunarlínu á Axarfirði
á fimmtudag, luku málum sínum
með dómsátt hjá héraðsdómara
á Dalvík i gær með því að fallast
á að greiða 150 þúsund króna
sekt og sæta upptökku á afla.
Skipstjórarnir á Stefáni Rögn-
valdi EA 345 og Otri EA 162, sem
einnig voru staðnir að ólöglegum
veiðum á sama svæði, tóku sér frest
til að taka afstöðu til sáttarinnar,
en að sögn Ásgeirs Péturs Ásgeirs-
sonar héraðsdómara töldu þeir sig
hafa verið réttu megin línunnar.
Fallist skipstjórarnir ekki á sáttina
geta þeir búist við að ríkissaksókn-
ari gefi út ákæru á hendur þeim.
Að sögn Ásgeirs Péturs Ásgeirs-
sonar héraðsdómara, voru bátamir
skammt innan við viðmiðunarlínu,
allt niður í 0,3 sjómílur, þegar þeir
voru staðnir að veiðunum. Við lög-
reglurannsókn á staðarákvörðun
kom fram að á Sæbjörgu ÓF 4
höfðu vitlausir punktar verið stimpl-
aðir inn í staðarákvörðunartæki, af
vangá að talið er.
Flugbrautin máluð
Morgunblaðið/ólafur Bragason
Að undanförnu hafa starfsmenn Flugmálastjórnar í Vestmannaeyjum
unnið við að mála yfirborðsmerkingar á flugvöllinn þar. Eyjamenn
áætla að ljúka verkinu á 11 dögum og nota til þess 3.800 lítra af
þynntri málningu. Fremst á myndinni sést eitt strik í miðlínu brautar-
innar, en það er 30 fermetrar að stærð. Tölustafirnir, sem tákna segul-
stefnu flugbrautarinnar, eru 18 metra háir, eða sem svarar hæð 10
meðalmanna. Alls er flöturinn, sem mála þarf, tæplega 4 þúsund fer-
metrar.
Búnaðarbanki og sparisjóðir
lækka vexti um mánaðamót
BUNAÐARBANKI Islands lækkar
útlánsvexti sína 1. október, um
1,25-1,75 prósentustig og innláns-
vexti á sérkjarareikningum um 3
prósentustig. Jón Adolf Guðjóns-
son, bankastjóri, á von á frekari
víixtiilækkunum í síðasta lagi um
mánaðamótin október/nóvember.
Sparisjóðir hafa líka ákveðið að
lækka vexti; bankaráðsfundur
Landsbanka Islands ákvað í gær
að vextir bankans yrðu fyrst um
sinn óbreyttir og segir Brynjólfur
Helgason, aðstoðarbankastjóri, að
það megi að hluta rekja til þess
að vextir af ríkisvíxlum lækkuðu
ekki eins og vextir bankavíxla svo
það þurfti að hækka þá aftur.
Davíð Oddsson forsætisráðherra um ræðu Bandaríkjaforseta:
*
Akvarðanir sem fela í sér
stórkostlegar breytingar
„ÞETTA eru mjög róttækar ákvarðanir sem Bandaríkjaforseti stend-
,ur fyrir og fela í sér stórkostlega breytingu, ekki síst varðandi
uppbyggingu kjarnorkuvopnabúnaðar beggja aðila, því ekki er að
efa að Sovétmenn hljóta að bregðast við eftir ákvarðanir af þessu
tagi,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra er Morgunblaðið leit-
aði viðbragða hans við ræðu George Bush Bandaríkjaforseta í nótt.
Honum og öðrum forystumönnum ríkja Atlantshafsbandalagsins var
kynnt efni ræðunnar bréflega laust cftir hádegi í gær.
Forsætisráðherra sagði þetta eitt á höfunum sagði Davíð ákvarðanir
stærsta skref sem stigið hefði ver-
ið til afvopnunar og næði ekki síst
til þeirra vopna sem talin hafi ver-
ið hættulegasta ógnun við stöðug-
leika og frið. „Engu að síður er
skýrt tekið fram af hálfu Banda-
ríkjaforseta að Atlantshafsbanda-
lagið og Bandaríkin sérstaklega
muni áfram tryggja öryggi banda-
lagsríkjanna með langdrægum
vopnabúnaði og flugvélum stað-
settum í Evrópu, sem borið geta
kjarnorkuvopn."
Um það sem snýr að vígbúnaði
Bandaríkjaforseta í samræmi við
stefnu Atlantshafsbandalagsins.
„Það kom fram á fundi sem ég
átti með Bandaríkjaforseta fyrir
skömmu að sú stefna er ofan á í
NATO að aðgerðir gagnvart flotan-
um eigi sér stað einhliða en ekki
með samningum við Sovétríkin."
Forsætisráðherra sagði þetta
byggjast á þeim grundvailarmun
sem sé á Atlantshafsbandalaginu
annars vegar og Sovétríkjunum
hins vegar. „NATO er bandalag
sjóvelda og háð siglingaleiðum en
Sovétríkin eru landveldi og flutn-
ingaleiðir þeirra eru á landi. Þessi
grundvallarmunur hefur leitt til
þeirrar stefnu NATO-ríkjanna að
Sovétmenn eigi enga kröfu á
bandalagið um samninga um af-
vopnun á höfunum heldur sé það
bandalagsins sjálfs að meta hvenær
og með hvaða hætti sé óhætt að
fækka ! sjóheijum.
Það er þetta sem er að gerast
núna. Bandaríkin taka einhliða
ákvörðun uni ákveðna fækkun á
sviði kjarnavopna. Ég fagna þess-
um ákvörðunum mjög og tel þær
afskaplega mikilvægar og merki-
legar. í rauninni er um að ræða
gjörbreytingu á stöðunni frá því
sem var og þetta byggist ekki síst
á raunsæju mati á þeim breyttu
aðstæðum sem orðið hafa í okkar
heimshluta að undanförnu," sagði
Davíð Oddsson.
Svör fengust ekki í íslandsbanka
hvort vextir yrðu lækkaðir um
mánaðamót.
„Við erum enn sem fyrr að reyna
að gæta þess að það sé samræmi á
milli verðtryggðra og óverðtryggðra
lána, þannig að kjörin verði sem
líkust þegar við lítum á árið í heild,"
sagði Jón Adolf við Morgunblaðið. í
sambandi við háa raunávöxtun við-
skiptavíxla sagði hann að þegar verð-
bólgan væri jafn lág og nú væri
auðvitað hægt að finna dæmi um
háa raunávöxtun. Hins vegar yrði
að skoða hlutina í stærra samhengi
og horfa á vaxtastig til lengri tíma.
Brynjólfur Helgason sagði að
þetta kæmi oft upp þegar verðbólgan
væri á niðurleið. Þá tefðust vaxta-
breytingar alltaf eitthvað á sama
hátt og vextir vildu sitja eftir í auk-
inni verðbólgu. Hins vegar yrðu
vaxtamál á döfinni á næstunni og
grundvöllur væri að myndast til að
lækka vexti á óverðtryggðum kjör-
um. Þetta hefði verið rætt á banka-
ráðsfundi í gær og niðurstaðan orðið
sú að ekki lægju nægilegar upplýs-
ingar fyrir til að breyta vöxtum.
Fljótlega yrði fundur aftur og þá
gæti vaxtabreyting komið til fram-
kvæmda 11. október. Þeir hefðu í
huga að lækka vexti á óverðtryggð-
um liðum, en biðu átekta meðal ann-
ars með tilliti til þeirra hræringa sem
hefðu verið að undanfömu.
Aðspurður sagðist hann vera að
vísa til samspils á vöxtum af
bankavíxlum og ríkisvíxlum, en
Landsbanki reið á vaðið og lækkaði
vexti á bankavíxlum um 4 prósentu-
stig 11. september. Þeir þurftu hins
vegar að hækka vextina aftur upp
fyrir vexti á ríkisvíxlum nú í vikunni
eftir að þeir höfðu aðeins lækkað um
1,5 prósentustig. Brynjólfur sagði
að það væri óhætt að segja að þetta
mál hefði hægt á vaxtalækkunum
bankans. Til dæmis þyrfti að skoða
vexti á bankavíxlum sem væru inn-
lánsvextir í raun í samhengi við háa
raunávöxtun á viðskiptavíxlum. Líka
yrði að skoða vaxtaþróun til lengri
tíma. Það þýddi ekki að elta toppa
og botna í verðbólguþróun.
Benedikt Geirsson, aðstoðarspari-
sjóðsstjóri í Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis, sagði ljóst að vextir
sparisjóðanna myndu lækka um
mánaðamótin en vildi ekki segja um
hve mikla lækkun yrði að ræða.
Aðspurður um háa raunávöxtun á
viðskiptavíxlum sagði hann að allt
önnur mynd kæmi upp ef vextimir
væru skoðaðir yfir lengri tíma til
dæmis samkvæmt þeirri forskrift
sem tekin var upp við gerð síðustu
kjarasamninga, en þá er miðað við
hækkun lánskjaravísitölu tvo mánuði
aftur í tímann, og spá fyrir einn
mánuð. Það væri ekki hægt að skoða
vextina einungis í einum tímapunkti.
Þá mætti einnig benda á ávöxtun-
arkröfu ríkisvíxla, en ríkið væri
tryggasti skuldarinn í landinu, og
viðskiptavíxla og spyrja hvað væri
eðlilegt vaxtastig þarna á milli.
Frá og með 1. október verður
verð Morgunblaðsins sem hér
segir:
Mánaðaráskrift kr. 1.200,
verð í lausasölu kr. 110 ein-
takið. Grunnverð dálksenti-
metra auglýsinga verður kr.
765.