Morgunblaðið - 01.10.1991, Blaðsíða 26
-26
IU»tóRGtjV}BLkÐIÐ ÞRÍÖJlÍDÁ'öuk Í: OKTÓBER 1991
Bifreiðaeigendur!
Endurskoðun bifreiða
um land allt
Eftirtalin verkstæði innan
Bílgreinasambandsins hafa heimild til
að endurskoða bifreiðar:
Skoðunarstöðin hf.
- Lúkasverkstæðið,
Síðumúla 3-5, Reykjavík.
Bílgrip hf., Ármúla 36, Reykjavík.
Stilling hf., Skeifunni 11, Reykjavík.
Bílaumboðið hf., Krókhálsi 1,
Reykjavík.
SEMOCO HF., Skeifunni 17,
Reykjavík.
Globus hf., Lágmúla 5, Reykjavík.
Ræsir hf., Skúlagötu 59, Reykjavík.
Bílson sf., Ármúla 15, Reykjavík.
Bifreiðaverkstæðið Bjarmi, Funa-
höfða 1, Reykjavík.
BræðurnirOrmsson,
Lágmúla 9, Reykjavík.
Bílaskoðun og stilling sf.,
Hátúni 2A, Reykjavík.
P. Samúelsson hf.,
Nýbýlavegi 8, Kópavogi.
Knastás hf.,
Skemmuvegi 4, Kópavogi.
Friðrik Ólafsson, viðgerðarverkst.,
Smiðjuvegi 14c, Kóp.
Bifreiðaverkstæði Egils Arnar,
Smiðjuvegi 4, Kópavogi.
Virkinn hf., Flatahrauni 23, Hafnar-
firði.
Bifreiðaverkst. Sigurbjörns Árna-
sonar, Flugmýri 2,
Mosfellsbæ.
Bílaspítalinn, Kaplahrauni 9, Hafn-
arfirði.
Brautinhf., Dalbraut 15,
Akranesi.
Bifreiðaverkst. Guðjóns og Ólafs,
Kalmansvöllum 3,
Akranesi.
B.T.B., Brákarey, Borgarnesi.
Vélabær, Bæ, Bæjarsveit, Borgar-
firði.
Bifreiðaverkst. Ragnars,
Borgarnesi.
Tak hf., Búðardal.
Vélsmiðja Bolungarvíkur,
Bolungarvík.
Bifreiðaverkstæðið Nonni, Bol-
ungarvík.
Klöpp hf., Borðeyri.
Bílaþjónustan Blönduósi.
Bifreiðaverkstæðið
Pardussf., Hofsósi.
Bifreiðaverkst. KS,
Freyjugötu 9, Sauðárkróki.
Bifreiða- og vélaverkst., Sleitu-
stöðum, Skagafirði.
Bifreiðaverkst. Ragnars
Guðmundss., Ránargötu 14,
Siglufirði.
Múlatindur sf., Ólafsfirði.
Bifreiðaverkst. Baugsbrot sf.,
Frostagötulb, Akureyri.
Bifreiðaverkst. Gunnars
Jóhannssonar, Óseyri 6,
Akureyri.
Bifreiðarverkst. Sigurðar Valdi-
marssonar, Óseyri 5a, Akureyri.
Bifreiðaverkst. Skálafell sf.,
Draupnisgötu 4, Akureyri.
Þórshamar hf., T ryggvabraut, Ak-
ureyri.
B.S.A, Laufásgötu 9, Akureyri.
Bflaverkst. Bláfell,
Draupnisgötu 7, Akureyri.
Höldur sf., Draupnisgötu 1, Akur-
eyri.
Vélsmiðjan Akureyri, Gránufélags-
götu 47, Akureyri.
Bifreiðaverkstæði Dalvikur, Dalvík.
B.K. bflaverkstæði, Húsavík.
Vélaverkstæði Hauks
Óskarssonar, Kópaskeri.
Vélar og raf, Þórshöfn.
Síldarvinnslan hf.,
Neskaupstað.
Bfla- og búvélaverkstæðið
Ljósaland, Fáskrúðsfirði.
Bfley, Búðareyri 33,
Reyðarfirði.
Vélaverkstæði Sigursteins
Melsted, Breiðdalsvík.
Bílaverkst. Gunnars
Valdimarssonar,
Kirkjubæjarklaustri.
Vélsmiðja Hornafjarðar, Höfn.
Bflverk, Víkurbraut 4, Höfn.
Bifreiðaverkst. Jóhanns
Garðarssonar, Austurmörk 22,
Hveragerði.
Kaupfélag Árnesinga, bifr.sm.,
Austurvegi 3,
Selfossi.
Vélaverkst. Sigurðar
Jónssonar, Flúðum.
Bfl X, Hveragerði.
Kaupfélag Rangæinga,
Rauðalæk.
Bifreiðaverkst. Muggs,
Vestmannaeyjum.
BÍLGREINASAMBANDIÐ, Húsiverslunar,
KRINGLUIUIMI 7, REYKJAVÍK 103, SÍMI681550.
Krefjast þjóðar-
atkvæðagreiðslu
um framtíð
Tékkóslóvakíu
íbúar Prag-borgar rita nafn sitt
á undirskriftarlista þar sem
krafist er þjóðaratkvæðagreiðslu
um framtíð Tékkóslóvakíu á
Wenceslas-torgi i gær. Rúmlega
300.000 manns hafa skrifað
undir listann frá því í síðustu
viku.
Reuter
Zaire:
Mobutu samþykkir að
mynduð verði þjóðstjóm
Kinshasa, Brussel, París. Reuter.
MOBUTU Sese Seko, forseti Afríkuríkisins Zaire, samþykkti á
sunnudag að þekktasti stjórnarandstæðingur landsins, Etienne
Tshisekedi, yrði forsætisráðherra og mynduð yrði þjóðstjórn.
Daginn áður rak Mobutu yfirmann hersins vegna óeirða og rána
sem hermenn hafa einkum staðið fyrir og kostað hafa 117 manns
lífið auk þess sem 150 hafa særst. Mobutu hefur verið einvaldur
í 26 ár og er sakaður um að hafa komið gífurlegum fjárhæðum
fyrir í erlendum bönkum en efnahagur landsins er í rúst. Deilur
eru uppi í frönsku stjórninni um það hvort hætta eigi stuðningi
við Mobutu.
Mobutu hefur ekki fyrr á valda-
ferli sínum sæst á að láta völd af
hendi. Samkomulag náðist um
þjóðstjórnina eftir níu klukku-
stunda viðræður og verður tilnefn-
ingin fyrst lögð fyrir málamynda-
þing Zaire en þar næst fyrir 3.000
manna samkundu sem hefur haft
það verkefni að íjalla um lýðræðis-
umbætur. Margir fulltrúa þar vilja
að Mobutu segir strax af sér.
Þúsundir útlendinga hafa þegar
flúið landið með hjálp belgískra
og franskra hermanna sem sendir
voru á vettvang með samþykki
stjórnvalda til að tryggja öryggi
fólksins. Útgöngubanni hefur ver-
ið aflétt í höfuðborginni, Kinshasa,
en miklar skemmdir hafa orðið í
borginni. Erfiðlega gengur að
koma á lögum og reglu. Heimildar-
menn í hernum skýrðu frá því að
liðsmenn varðsveita forsetans
hefðu í gær ruðst inn í hús í blóra
við fyrirskipanir Mobutus og kraf-
ist peninga eða annarra verð-
mæta. Að sögn lækna týndu marg-
ir hermenn og óbreyttir borgarar
lífi í óeirðunum í síðustu viku er
þeir reyndu að. stela ísskápum og
öðrum raftækjum. Þeir hafi dáið
af raflosti er þeir slitu í sundur
kapla.
Heimildarmenn segja að sumir
ráðherrar í frönsku stjórninni séu
afar óánægðir með þá stefnu
Francois Mitterrands forseta að
halda áfram að styðja Mobutu sem
þykir meðal spilltari ráðamanna í
Afríku. „Við erum eina ríkið sem
enn styður hann ef til vill að Suð-
ur-Afríku undanskilinni. Banda-
ríkjamenn slepptu af honum hend-
inni jafnskjótt og borgarastríðinu
í Angóla lauk,“ sagði ónafngreind-
ur heimildarmaður í stjórninni.
Fyrir rúmu ári hvatti Mitterrand
til aukins lýðræðis í Afríku og
sakaði Hassan Marokkókonungur
þá forsetann um að hafa komið á
framfæri „krabbameini lýðræðis-
ins“ í álfunni. Bernard Kouchner,
ráðherra mannréttindamála í
Frakklandi, sagði í síðustu viku
að Mobutu væri ekkert annað en
„gangandi bankareikningur með
hlébarðahúfu“ og honum bæri að
skila þjóð sinni fé því sem hann
hefði svikið út úr henni.
------» ♦ ♦----
Miðausturlönd:
Þjóðarráð
Palestínu
styður frið-
arráðstefnu
New York, Algeirsborg, Jerúsalem. Reut-
er.
JAMES Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fagnaði um helg-
ina ákvörðun Þjóðarráðs Palest-
ínu uin að lýsa yfir stuðningi við
ráðstefnu um frið I Miðaustur-
löndum en sagði að ekki væri enn
tímabært að boða til hennar
formlega.
Þjóðarráð Palestínu, útlagaþing
Palestínumanna, lýsti á laugardag
yfir stuðningi við tilraunir Yassers
Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka
Palestínumanna (PLO), til að ryðja
úr vegi hindrunum fyrir friðarráð-
stefnu. Ráðið fagnaði tilraunum
Bandaríkjamanna og Sovétmanna
til að hafa milligöngu um slíka ráð-
stefnu og sagði að Palestínumenn
myndu beita sér fyrir því að af
henni yrði. Hins vegar gaf ráðið
engin loforð um að Palestínumenn
tækju þátt í henni.
Baker sagði að ákvörðun ráðsins
væri ánægjuefni en bætti við að enn
væri ýmislegt ógert til að tryggja
að ráðstefnan færi fram. Hearst-
fréttastofan bandaríska skýrði frá
því að George Bush Bandaríkjafor-
seti og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor-
seti gerðu ráð fyrir því að ráðstefn-
an yrði sett í Haag f lok október
eða í byijun nóvember.
Náinn samstarfsmaður Yitzhaks
Shamirs, forsætisráðherra ísraels,
sagði að yfirlýsing Þjóðarráðs Pal-
estínu virtist skref í rétta átt en
ísraelsk stjórnvöld þyrftu að kanna
hana nánar áður en þau gætu svar-
að henni formlega.
Reuter
Japanskeisari heimsækir
Malasíu
Azlan Shah, konungur Malasíu (t.h.), ræðir við Akíhító Japanskeis-
ara undir sólhlíf við móttökuhátíð í miðborg Kuala Lumpur í gær.
Akíhító er í ijögurra daga opinberri heimsókn í Malasíu. Áður kom
hann til Tælands og hann hyggst einnig heimsækja Indónesíu. Þetta
er í fyrsta sinn sem Japanskeisari fer í slíka ferð og markmið hennar
er að græða sárin eftir innrás Japana í nágrannaríkin fyrir hálfri öld.