Morgunblaðið - 06.10.1991, Blaðsíða 23
leor ar-iaöTxo hooaciukviur fljUDOSAQI/IYM OHUAJHKUOflOM
ss
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
Heildverslun
BORGARSPÍTALINN
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500, fax 686270
Óskum að ráða deildarstjóra heildsöludeild-
ar hjá stóru deildaskiptu innflutnings- og
þjónustufyrirtæki í Reykjavík. Fyrirtækið er
traust, framsækið og markaðsleiðandi.
Starfssvið: Erlend innkaup, flutningar,
birgðastýring og samningagerð. Dagleg
stjórnun sölumanna, þátttaka í stefnumörk-
un og þróun deildarinnar. Skipulagning og
stjórnun markaðssetningar, vörukynninga og
auglýsinga.
Við leitum að manni með reynslu af sjálf-
stæðum og skipulögðum vinnubrögðum.
Reynsla af stjórnunarstörfum og erlendum
viðskiptum æskileg. Þekking og reynsla af
störfum við heildsöludreifingu og tengsl við
smásöluverslunina æskileg. Góð enskukunn-
átta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar:
„Heildverslun 519“, fyrir 12. október nk.
TOYOTA
Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogur.
Óskum að ráða starfsmann fyrir Toyota -
P. Samúelsson hf. í Kópavogi. Starfsum-
hverfi er varahlutaverslun fyrirtækisins. Fyrir-
tækið býður áhugavert framtíðarstarf og
góða vinnuaðstöðu.
Við leitum að manni sem er tilbúinn að veita
góða þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins.
Góð framkoma og þjónustulund ásamt
sveigjanleika er skilyrði. Áhugi og þekking á
bílum er æskilegur.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „1010“.
^ Aðgerðastjóri
Staða aðgerðastjóra, á skurðdeild E-5, er
hér með auglýst laus til umsóknar. Um er
að ræða nýja stöðu hjúkrunarfræðings, sem
ákveðin hefur verið til reynslu, til eins árs í
senn.
Aðgerðastjóri ber ábyrgð á skipulagi og
stjórnun á aðgerðadagskrá á skurðgangi.
Hjúkrun á skurðdeild Borgarspítalans mótast
af hlutverki spítalans sem slysa- og bráð-
aspítala, með áhugaverð og krefjandi verk-
efni. Aðgerðastjóri vinnur eingöngu dag-
vinnu, alla virka daga.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 1991.
Upplýsingar um stöðuna, veitir Gyða Hall-
dórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri
skurðdeildar, í síma 696357.
Deildarhjúkrunar-
fræðingur
Staða deildarhjúkrunarfræðings, við skurð-
deild E-5, er auglýst laus til umaóknar. Stað-
an veitist til 7 mánaða. Unnið er sjálfstætt
að verkefnum, í samráði við deildarstjóra og
hjúkrunarframkvæmdastjóra.
Upplýsingar um stöðurnar og verkefnin, sem
henni fylgja, veitir Gyða Halldórsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri skurðdeildar, í.síma
696357.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á
skurðlækninga- og lyflækningadeildum.
Einnig eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga
og sjúkraliða á endurhæfinga- og taugadeild.
Til greina kemur ýmis konar vaktafyrirkomu-
lag.
Nánari upplýsingar gefa Gunnhildur Valdi-
marsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
síma 696364 og Margrét Björnsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmadastjóri, í síma 696354.
Aðstoðardeildar-
stjórar
Lausar eru tvær stöður aðstoðardeildar-
stjóra á Grensásdeild. Æskilegt er að við-
komandi aðilar hafi reynslu/þekkingu í endur-
hæfingarhjúkrun og stjórnun.
Nánari upplýsingar gefur Gunnhildur Valdi-
marsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
síma 696364.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar til starfa á svæfingadeild.
Starfið felst m.a. í ummönnun sjúklinga eftir
háls-, nef- og eyrnaaðgerðir og að sækja þá
sem fara í skurðaðgerð. Unnið er á dagvinnu-
tfma alla virka daga.
Upplýsingar veitir Gyða Halldórsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 696357.
Félagsráðgjafi
Laus er 75% staða félagsráðgjafa á félags-
ráðgjafasviði öldrunarþjónustudeildar í
Síðumúla 39. Til greina kemur ráðning í 50%
starf.
Starfið er fólgið í ráðgjöf og aðstoð við aldr-
aða, mati á húsnæðis- og þjónustuþörf og
meðferð umsókna um húsnæði og fjárhags-
aðstoð.
Nánari upplýsingar veita yfirmaður öldrunar-
þjónustudeildar, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir,
og forstöðumaður félagsráðgjafasviðs, Ásta
Þórðardóttir.
Umsóknarfrestur er til 18. október nk.
M eðf erða rf u I It r ú i
Meðferðarfulltrúi óskast í 50% starf á
Áfangastaðinn Amtmannsstíg 5A. Menntun
á sviði uppeldis-, félags- eða sálfræði æski-
leg. Reynsla í vinnu með áfengis- og vímu-
efnaneytendur er einnig æskileg.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
Áfangastaðarins í símum 26945 og 686956.
Umsóknarfrestur er til 15. október nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnun-
ar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um-
sóknareyðublöðum, sem þar fást.
Gjaldkeri
Tryggingafélag í borginni vill ráða gjaldkera
til starfa fljótlega. Góð undirstöðumenntun
eða starfsreynsla er áskilin ásamt snyrti-
mennsku og góðri framkomu.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 12. okt. nk.
Guðnt TÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN I N CARLJ ÓN LISTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22
Ritari
Ritari óskast í ca 60% starf á skrifstofu sem
hefur víðtæk samskipti við marga aðila inn-
anlands og erlendis.
Kunnátta í bréfaskriftum og símsvörun á
ensku og einu Norðurlandamáli, auk góðrar
íslenskukunnáttu er nauðsynleg.
Við leitum að starfskrafti með góða þjón-
ustu- lund og hefur áhuga á að starfa að
spennandi verkefnum.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. í
síðasta lagi 10. okt. nk.
merktar: „Ritari - 7921“.
in''.'...............'.. 1 'iiii .....
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 813666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 813666
Ráðningarþjónusta
Reksfrarráðgjöf
Skoðanakannanir