Morgunblaðið - 08.10.1991, Page 47

Morgunblaðið - 08.10.1991, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1991 47 i i I 4 4 4 I t « Fyrsti sigur Jóhanns Skák Margeir Pétursson JÓHANN Hjartarson lagði Englendinginn Jonathan Speel- man mjðg örugglega að velli í aðeins 27 leikjum í tólftu um- ferð Heimsbikarmóts Flugleiða í gærkvöldi. Þetta var fyrsti sigur Jóhanns á mótinu. Staða manna í efstu sætum breyttist lítið, því Karpov gerði jafntefli við Nikolic og sömuleiðis þeir Ljubojevic og Ivantsjúk. Seirawan varð fyrir því áfalli að tapa sinni fyrstu skák fyrir Khalifman. Eftir aðeins rúm- lega klukkustundar tafl- mennsku urðu Bandaríkja- manninum á slæm mistök sem þýddu það að Rússinn vann tvö peð með einfaldri fléttu. Speelman þekkti byrjunina í skákinni við Jóhann ekki nægilega vel og strax upp úr byrjuninni fékk hann óteflandi stöðu. Jóhann vann á mjög sannfærandi hátt úr stöðuyfirburðunum og gaf Eng- lendingnum enga möguleika á gagnfærum. í umferðinni áður hafði Speelman einmitt bjargað gjörtapaðri stöðu gegn Chandler. Það mátti heyra á sunnudags- kvöldið að það fékk mikið á Ljubojevic að hafa látið vinninginn sér úr greipum ganga gegn Jó- hanni. Taflmennska hans gegn ívantsjúk í gærkvöldi var ekki sérlega sannfærandi, hann lék drottningu sinni oft í byrjuninni, en samt sem áður féllst ívantsjúk á jafnteflisboð hans eftir 17 leiki. Predrag Nikolic tefldi byijunina hvasst með svörtu gegn Karpov og gaf heimsmeistaranum fyrr- verandi aldrei færi á að sigla lygn- an sjó. Skák þeirra var nokkurn veginn í jafnvægi allan tímann. Andersson tefldi sömu rólegheita- byijunina gegn Gúlko og hann gerði gegn Karpov og lenti enn á ný í erfiðri vörn, nú með peði undir í endatafli. Þegar skákin fór í bið virtist þó sem Andersson væri að bjarga sér í jafntefli. Jan Timman náði að sýna sitt rétta andlit á sunnudaginn, en í gær var röðin komin að Beljavskí að kveða sér hljóðs óg hann lagði Hollendinginn að velli í glæsilegri sóknarskák. Salov komst ekkert áfram gegn Ehlvest og niðurstað- an varð jafntefli í aðeins 18 leikj- um. Staða Portisch og Ghandlers varð snemma flókin, eins og oft áður varð Chandler fyrir skakka- föllum í tímahraki, hann missti mikilvægt frípeð og þegar skákin fór í bið átti Ungveijinn peði meira og góða vinningsmöguleika. Rétt eins og í helgarumferðun- um sá grófur afleikur dagsins ljós fyrir kvöldmat: Svart: Yasser Seirawan Hvítt: Alexander Khalifman 18. - a4?? 19. a3 - Rd5 20. Bxc5+! — bxc5 21. Hxc5 Þar sem riddararnir á c6 og d5 standa báðir í uppnámi og geta ekki valdað hvor annan hlýt- ur annar hvor þeirra að falla. Það er ekki ýkja erfitt að sjá þetta, en slíkar einfaldar fléttur hafa löngum valdið Seirawan þungum búsiljum. 21. - Rd4 22. Hxd5 - Hxd5 23. Bxd5 - Hb8 24. e3 - Re2+ 25. Kfl - Hxb2 26. Be4 - Rc3 27. Bxh7 og með tvö peð yfir í endatafli veittist Khalifman auð- velt að innbyrða vinninginn. Staðan eftir tólf umferðir: 1-2. Karpov og ívantsjúk 8 v. 3—4. Ljubojevic og Nikolic 6 v. og biðskák 5—6. Khalifman og Ehlvest 6v. 7. Seirawan 6 v. og biðskák 8. Speelman 6 v. 9. Beljavskí 5 v. og 2 biðskákir 10. Chandler 5 v. og biðskák 11. Salov 5 v. 12. Jóhann 4 og biðskák 13. Portiseh 4 v. og 2 biðskákir 14—15. Timman og Andersson 4 v. og biðskák 16. Gúlko 3 v. og biðskák Frídagur á skákmótinu í dag Biðskákirnar sex verða tefidar í dag kl. 17.10, en að öðru leyti eiga keppendur frí. Þrettánda umferðin verður síðan tefld á morgun, miðvikudag, sú fjórtánda á fimmtudaginn og sú fimmtánda og síðasta á laugardaginn. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Jonathan Speelman Nimzoindversk vörn I. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 - Bb4 4. Dc2 - 0-0 5. a3 - Bxc3+ 6. Dxc3 - b6 7. Bg5 - c5 8. dxc5 — bxc5 9. e3 — Bb7 10. f3 - h6 í skákinni Helgi Ólafssön- Smyslov, New York Open 1989, fékk svartur óteflandi stöðu eftir 10. - d6 11. 0-0-0 - De7 12. Bxf6! - gxf6 13. Re2 - Rd7 14. Rf4 og Helgi vann örugglega í 41. leik. Eftir þá skák og fleiri í svipuðum dúr hefur það almennt verið viðurkennd staðreynd að svartur verði að geta drepið til baka með drottningu á f6. Tólfti leikur Speelmans sýnir þó að hann hefur ekki þekkt þessar skákir. 11. Bh4 - Rc6 12.0-0-0!- Hc8? 13. Bxf6 - gxf6 14. Kbl! Líklega ennþá nákvæmara en 14. Re2 - d5 15. Rf4 - d4 með einhveijum möguleikum á mót- spili. Speelman reynir samt að losa um sig með d7-d5 en tapar peði án fullnægjandi bóta. 14. — d5?! 15. cxd5 — exd5 16. Dxc5 - Re5 17. Dd4 - Dc7 18. Rh3 - Dc2+ 19. Kal - Rc6 20. Dg4+ - Dg6 21. Dd7! - Ra5 22. Bd3 - Rb3+ 23. Kbl - Hcl+ 24. Ka2 Jóhann hefur ekki látið sóknartil- raunir andstæðingsins raska ró sinni. Þrír menn svarts standa nú einfaldlega í uppnámi án þess að valda nokkurri hættu og hann tapar meira liði. 24. - Hxdl 25. Hxdl - Rc5 26. Dxb7! — Rxd3 27. Db5 og Speel- man gafst upp, því eftir 27. — Re5 28. Dxd5 er hann tveimur peðum undir, auk þess sem hvítur hefur yfirburðastöðu. Afleikir og tímahrak um helgina Góð aðsókn var að tveimur æsispennandi umferðum á Heimsbikarmóti Flugleiða um helgina. Sigursælastur var Vasílí Ivantsjúk sem vann bæði Khalifman og Gúlko, en auk þess vöktu skákir Jóhanns Hjartarsonar verðskuldaða at- hygli. Gegn bæði Chandler og Ljubojevic virtist hann vera með vonlausar stöður, en náði samt að bjarga þeim báðum. Anatóli Karpov mátti einnig vel við sinn hlut una, fyrst vann hann Ulf Andersson auðveld- lega á laugardaginn og síðan fékk hann frídag með svörtu gegn Seirawan, er Bandaríkja- maðurinn lét sér nægja að end- urtaka gamla skák Kortsnojs og Karpovs frá heimsmeistara- einvíginu 1978. Karpov er að því leyti gjörólíkur þeim Kasparov og Ivantsjúk, að hann er ávallt ánægður með jafn- tefli gegn stórmeistara á svart og á það jafnvel til að endurtaka gamlar skákir til að næla sér í aukafrídag. Seirawan sagðist reyndar ekki hafa munað eftir þessari einvígisskák, en jafnteflið kom honum reyndar vel, því hann á betri biðskák við Beljavskí úr tíundu umferðinni. Annars var taflmennska sumra keppendanna um helgina afskap- lega gloppótt og grófir afleikir voru nokkuð algengir. Þegar upp var staðið eftir þennan darraðar- dans var niðurstaðan sú að þeir Karpov og ívantsjúk munu beijast um efgta sætið á mótinu, en fjöl- margir keppendur eiga hins vegar möguleika á þeim næstu. Döpur taflmennska Andersson í tíundu umferðinni á laugar- daginn hélt þrautaganga stiga- hæsta skákmanns Norðurlanda áfram. Andersson hefur átt erfiða daga hér í Reykjavík, rólegur skákstíll hans hefur verið alveg bitlaus og það er ekki hægt að segja að hann hafi nokkru sinni fengið upp betri stöðu á mótinu, hvað þá vinningslíkur. Hann hefur nú tapað þremur skákum og í mörgum skákum hefur hann ekki uppskorið jafntefli fyrr en eftir langa og stranga vörn. A laugardaginn átti Svíinn einn sinn versta dag á löngum atvinnu- mannsferli, er hann tapaði fyrir jafnaldra sínum, Anatólí Karpov, í aðeins 24 leikjum. Þeir Karpov og Andersson hafa marga hildi háð um dagana, en aðeins einu sinni hefur Svíanum tekist að sigra, það var á stórmótinu í Mílanó árið 1975. Síðan þá hafa þeir áttst við í mörgum tugum skáka og nú virðist svo komið að Andersson hafí gefist upp á að reyna að vinna Karpov með hvítu og með svörtu sættir hann sig yfirleitt strax við óvirka vörn. Þetta virðist skila honum jafntefli í u.þ.b. annarri hvorri skák á svart og þýðir það að niðurstaða úr skákum hans og Karpovs er u.þ.b. 62,5% gegn 37,5% heimsmeistar- anum fyrrverandi í vil þegar til langs tíma er litið. Ef Svíinn reynir ekki að herða upp hugann og tefla hvassar gegn Karpov í framtíðinni, fer að verða algjör óþarfi að láta þá tefla. Svart: Ulf Andersson 23. Hd6! Eftir vel heppnaða byijun er Karpov smám saman að herða tökin og nú verða Andersson á herfileg mistök: 23. - Rc8? 24. Hxc6! Nú tapar svartur mikilvægu peði bótalaust og Andersson gafst upp. Flestir stórmeistarar gefast ekki upp fyrr en þeir tapa manni eða eru orðnir a.m.k. tveimur peð- um undir og það er eins gott að Jóhann er ekki eins hógvær og Andersson. Svíinn hefði líklega verið tilbúinn til að gefa stöðurnar sem hann hafði gegn þeim Chandler og Ljubojevic um helg- ina. Sannast það sem gamall meistari sagði, að það vinnur eng- inn skák á því að gefa hana. Speelman fékk einnig auðveld- an vinning í tíundu umferðinni. Hann kom Ehlvest á óvart strax í þriðja leik, og eftir 1. d4 — Rf6 2. c4 — g6 3. Bg5!? (Til að hindra uppáhaldsbyijun Eistans, Griinfeldsvörnina, sem kemur upp eftir 3. Rc3 - d5) 3. - Re4 4. Bf4 — c5 hafði Eistinn notað tæplega klukkustund, enda koltapaði hann skákinni. Khalifman tefldi mjög hvasst með hvítu gegn ívantsjúk, sem tók að venju hraustlega á móti og vann eftir miklar sviptingar í tímahraki. Þótt ekki fengist úrslit í hinum skákunum fimm á laugar- daginn voru þær sumar æsifengn- ar. Byijun Jóhanns gegn Chandl- ers virtist vel heppnuð og Eng- lendingurinn varð að láta peð af hendi rakna. Framhaldið tefldi Jóhann hins vegar veikt og Chandler vann af honum þijú peð í endatafli án þess að honum tæk- ist að svara fyrir sig. Fyrir það þriðja og síðasta tókst Jóhanni þó að afla sér gagnfæra og það dugði: Svart: Murray Chandler Hvítt: Jóhann Hjartarson 30. Hacl! - Bxd3 Nú fær hvítur ákveðið mótspil, til greina kom einnig 30. — Hfc5!? Ef Chandler hefði átt nægan tíma hefði hann vafalaust lagt í að leika 30. — Hxa2! með hótuninni 31. — Hf3+ og mótspil hvíts gegn því er ekki nógu kröftugt. 31. He8+ - Kf7 32. Hcel! - He5 33. Hlxe5 - fxe5 34. Hxe5 - Bf5? Hér var 34. — Be2! mun sterk- ara, því eftir þessi mistök stendur hvíti engin ógn af svarta d peðinu og hangir á jafntefli með hjálp mislitu biskupanna. 35. Ha5 - Hc7 36. Kf2 - Ke6 37. Bf4 - Hb7 38. Kel - Bbl 39. Kd2 - Hf7 40. He5+ - Kd7 41. Hd5+ - Kc6 42. Hxd4 - Hd7 og samið jafntefli. Gúlko og Ljubojevic gerðu bar- áttulítið jafntefli og sömuleiðis Salov og Nikolic. Tvær skákir fóru í bið. Seirawan hefur ennþá vinningslíkur gegn Beljavskí, en fyrr í skákinni var hann skipta- mun og peði yfir, án þess að Rúss- inn hefði nokkrar bætur fyrir. ívantsjúk náði Karpov Á sunnudaginn var stundvísum áhorfendum aftur umbunað með grófum afleik snemma tafls. Ivantsjúk beitti skozkum leik gegn Gúlko, sem eina ferðina átti slæ- man dag. Úkraínumaðurinn ungi afgreiddi hann fljótt og örugglega og komst þar með upp í efsta sætið, en Gúlko lenti við þetta á botninum. Timman náði snemma yfirhöndinni gegn Salov og vann sannfærandi sigur. Það var svo sannarlega kominn tími til að Hollendingurinn sterki næði að vinna sinn fyrsta sigur.. Ehlvest tefldi illa framan af skákinni við Portisch og leit út fyrir annað afhroðið í röð. En svo virtist sem úthald Ungveijans brysti, hann missti vænlega stöðu í tap í tíma- hraki eftir sex tíma taflmennsku. Baráttulaus jafntefli gerðu þeir Seirawan og Karpov og Andersson og Khalifman. I viðureign Eng- lendinganna var Speelman var með gjörtapað endatafl gegn Chandler, átti skiptamun og peði minna, en tókst að klóra sig í jafn- tefli í tímahraki andstséðingsins. Tvær skákir fóru í bið. Nikolic virðist standa ívið betur gegn Beljavskí eftir þunga baráttuskák þar sem Rússinn virtist lengst af vera að teflá til vinnings. Jóhann virtist fá vel teflandi stöðu gegn Ljubojevic, en í mið- taflinu missti hann alveg þráðinn og eftir tímahrak stóð Júgóslavinn uppi með peði meira og vinnings- stöðu. En þá varð hann of bráður á sér: Svart: Jóhann Hjartarson Hvítt: Ljubomir Ljubojevic 50. f4? Það er með ólíkindum að jafn- öflugur skákmaður og Júgóslavinn skuli veikja kóngsstöðu sína þann- ig að óþörfu og áhorfendur voru sem dolfallnir. 50. - Rf6 51. Dc8+ - Kh7 52. Re5 - Ddl 53. Df5+ - Kg8 54. Kh4 - Dhl+ Hér gat Jóhann þvingað fram jafntefli strax með laglegri fléttu: 54. — Rxh5! 55. Dxh5 — g5+! 56. fxg5 - Dhl+ 57. Kg4 - De4+ óg þráskákar. 55. Dh3 - Dbl 56. Dc8+ - Kh7 57. Dc6 - Rxh5? 58. Kxh5? - Df5+ 59. Kh4 - g5+ er nú jafntefli, en Jóhann hefur vanmetið svar hvíts. Jafn- tefli er ennþá líkleg niðurstaða eftir 57. - Df5 58. Df3 - Dbl!?, t.d. 59. Dd3+ - Dxd3 60. Rxd3 — Re4 og eftir uppskipti á b peð- unum heldur svartur jöfnu. 58. Rg4! - Df5 59. Dxb6 - Rxf4!? 60. gxf4 - Dxf4 Nú var tímamörkunum náð, en Júgóslavinn var svo æstur eftir tímahrakið að hann bætti við ein- um leik og það kostar hann sigur- inn. Rétt var 61. Db7!, sem leppar g peð svarts og vinningur blasir við. 61. Dc6?? - g5+! Þetta var opin biðleikur Jóhanns og nú blasir jafnteflið við. Riddar- inn á g4 eða peðið á b5 hljóta að falla. ir -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.