Morgunblaðið - 16.10.1991, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991
5
Um 6% verðlækkun
á íbúðum við Asholt
EIGNAMIÐLUNIN hf. hefur auglýst í fasteignablaði Morguublaðs-
ins sérstakt verð á síðustu íbúðunum í húsi Armannsfells við Ásholt.
Að sögn Þórólfs Halldórssonar
fasteignasala er um að ræða 600
þús. kr. verðlækkun á 3ja og 4ra
herbergja íbúðum og 500 þús. kr.
verðlækkun á 2ja herbergja íbúð-
um. Nær tilboðið til samtals sjö
3ja og 4ra herbergja íbúða og
þt'iggja 2ja herbergja íbúða.
Þórólfur sagði viðbrögðin við
tilboðinu hafa verið mjög góð þrátt
Lífsbjörg í Norðurhöfum:
fyrir sölutregðu sem væri á ný-
byggingamarkaðnum, en íbúðirn-
ar væru þó ekki allar seldar.
„Verðið á 3ja herbergja íbúðunum
var frá 10.150 þúsund krónum og
á 4ra herbergja íbúðunum var
verðið frá 10.750 þúsund krónum,
en verðið er aðeins misjafnt eftir
hæðum. Það er slegið 600 þúsund
af þessum verðum. Þetta eru 103
og 114 fermetra íbúðir og allar
fullbúnar ásamt stæði í bíla-
geymslu.”
íbúðirnar við Ásholt sem Ármannsfell hefur byggt.
Borgarráð:
Börn fá end-
urskinsborða
OLL sex ára börn í .Reykja-
vík munu í haust fá
endurskinsborða frá Reykja-
víkurborg.
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum í gær tillögu frá Skóla-
málaráði um að veita kr.
480.000 til kaupa á
endurskinsborðum handa öllum
sex ára börnum í grunnskólum
borgarinnar. Einnig var sam-
þykkt að slík fjárveiting yrði
frá og með þessu hausti veitt
árlega.
Magnús með
framhalds-
mynd í bígerð
Kaupmannahöfn. Frá N. J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
Kvikmyndahópur frá Islandi er
á Grænlandi þessa dagana og
er þar á ferð Magnús Guð-
mundsson, er gerði myndina
„Lífsbjörg í Norðurhöfuis”,
Hann hyggst nú gera framliald
myndarinnar. Markmiðið er
sem fyrr að mæla gegn áróðri
öflugra umhverfissamtaka sem
berjast gegn því að hvala- og
selastofnar séu nýttir.
í framhaldsmyndinni verður
hugað að þeim félagslegu áhrifum
sem barátta umhverfissamtak-
anna hefur haft á líf veiðimanna
og sjómanna, einnig þeim áföllum
sem einstaklingar hafa orðið fyrir.
Magnús stefnir að því að mynd-
inni verði lokið í vetur og vei'ði
þá hægt að sýna hana um allan
heim. Þannig verði hægt að nota
hana í tengslum við mikla, alþjóð-
lega umhverfisráðstefnu sem hald-
in verður í Brasilíu á næsta ári.
---------------------
Maður með namibískt vega-
bréf, en íslenskt nafn:
Fyrirspurnir
um feril manns-
ins í útlöndum
Rannsóknarlögregla ríkisins
handtók síðdegis í gær mann þann
sem sagt var frá í Morgunblaðinu
í gær að bæri namibískt vegabréf
og íslenskt nafn og hefði fengið á
sig tvær kærur vegna svika hér á
landi undanfarna daga.
Að sögn Karls Jóhannssonar lög-
reglufulltrúa hjá útlendingaeftirlit-
inu höfðu í gær ekki borist svör er-
lendis frá við þeim fyrirspurnum sem
gerðar voru um manninn, annars
vegar um hvort hann væri eftirlýstur
í öðrum löndum og hins vegar um
hvort vegabréf hans væri ófalsað.
Að sögn Guðmundar Guðmunds-
sonar lögreglufulltrúa hjá RLR verð-
ur ljóst í dag hvort óskað verður
eftir úrskurði um gæsluvarðhald yfir
manninum.
að meðaltali 1-6 dagar á ári. Tíðni
mígrenis er milli 9 og 16% og kon-
ur eru að jafnaði 2/3 hluta
gjúklinganna en karlar 1/3. Önnur
form af höfuðverk eru hins vegar
algengari hjá körlum en konum.
' Stundum er hægt að finna þætti
; sem framkalla mígrenikast eins og
tii dæmis fæðuóþol, ofþreýtu og
: streitu en í mörgum tilfellum er
' óljóst hvað kemur migrenikasti af
stað.
Meðferð mígrenis felst í fyrir-
i byggjandi aðgerðum og meðferð
mígrenikasta. Fyrirbygging kasta
felst bæði í að forðast þá þætti sem
valda mígreni og einnig í lyfjameð-
ferð en meðferð kasta felst fyrst
og fremst í lyfjameðferð.
PICKUP TRUCK
<0F THE YEARs
FOUR WHEEUR MAGAZINE
FJALLAGARPURINN
L 200 - FRA MITSUBISHSUÉ
Bíllinn sem vakti almenna athygli
á sýningu ferðaklúbbsins 4x4
MEÐ EFTIRFARANDI SÉRBÚNAÐI FRÁ BÍFABÚÐ BENNA:
/ Yfirbygging upphækkuð um 3"
/ Brettakantar úr gúmmíi
/ Gangbretti úr áli
/ 32 x 11 50R15LT radíaldekk
/ 15 x 8 álfelgur með plasthúð
/ Slökkvitæki - Sjúkrakassi
/ 6000 punda Warn spil
/ Svartur ljósabogi
/ 2 stk. Dick Cepek 130 w. ljóskastarar á toppi
/ 2 stk. D. C. 100 w. þokuljóskastarar á grind
/ Svört Warn grind að framan
/ Sérskoðun
Sérstakt kynningarverð:
kr. 1.685.000 stgr. m. vsk.
með ofantöldum búnaði
MITSUBISHI
MOTORS
HEKLA
LAUGAVEG1174
SÍMI 695500