Morgunblaðið - 16.10.1991, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 16.10.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991 21 Ronald Coase, nýr nóbelsverðlaunahafi í hagfræði: Skilgreindi stofnana- mynstur hagkerfisins Stokkhólmi. Reutor. RONALD Coase, prófessor við Chicago-háskóla, hlaut Nó- belsverðlaunin í hagfræði fyrir árið 1991. Sagði í rökstuðn- ingi sænsku vísindaakademíunnar, að hann hlyti verðlaunin fyrir að hafa fyrstur skilgreint „stofnanamynstur hagkerfis- ins” og fyrir að hafa uppgötvað og útskýrt „mikilvægi við- skiptakostnaðar og eignarréttinda í efnahagsstarfseminni”. Coase er fæddur á Englandi árið 1910 en hefur starfað við háskólann í Chicago frá því snemma á sjöunda áratugnum og vinnur þar enn við rannsókn- ir. Lars Werin, prófessor við Stokkhólmsháskóla og félagi í vísindaakademíunni, sagði í gær, að Coase hefði gert lögmálin um viðskiptakostnað og eignarrétt- indi að kenningu, sem aukið hefði mönnum skilning á efna- hagsstarfseminni. Hóf hann þetta starf þegar á fjórða áratug aldarinnar en það naut ekki al- mennrar viðurkenningar fyrr en á áttunda og níunda áratugnum. Coase sýndi fram á, að venju- legar efnahagskenningar væru ófullnægjandi vegna þess, að þær tækju ekki tillit til kostnað- arins við viðskipti og til stjórnun- arkostnaðar. „Þessi kostnaður er hins vegar' umtalsverður og ekki lítill hluti af því fjármagni, sem notað er í efnahagslífinu,” sagði í rökstuðningi vísindaaka- demíunnar. Coase gerði greinarmun á ýmsum tegundum viðskipta- kostnaðar og „ruddi þar með brautina fyrir kerfisbundinni greiningu á stofnunum í hag- kerfinu og mikilvægi þeirra”. Hann kenndi einnig, áð nauðsyn- legt væri að skilgreina réttinn til að nota vörur og framleiðslu- tæki en ekki aðeins vörurnar og framleiðslutækin sjálf. Sagði í áliti akademíunnar, að þessi rétt- ur eða „eignarréttindi” væru einn af hornsteinum rétts skiln- ings á stofnanamynstri hagkerf- isins. Ronald Coase var í sumarfrii í Frakklandi þegar tilkynnt var um Nóbelsverðlaunin en verð- launaféð er um 60 milljónir ísl. kr. Eru hagfræðiverðlaunin raunar ekki rannin frá Alfred Nobel sjálfum því að þau voru fyrst veitt árið 1969 og þá fyrir tilstilli sænska seðlabankans. Þetta er annað árið í röð, sem fræðimaður við Chicago-háskóla fær hagfræðiverðlaunin en í Konald Coase fyrra hlaut þau Merton Miller. Áðrir Chicago-menn, sem hafa hlotið þau, eru George Stigler, 1982; Theodore Schultz, 1979; Milton Friedman, 1976; Herbert Simon, 1978, og Paul Samuel- son, 1970. Háskólinn í Chicago á aldarafmæli á þessu ári og á þessum tíma hafa honum og starfsmönnum hans fallið 62 Nóbelsverðlaun í skaut. Kemst enginn annar skóli með tærnar þar sem hann hefur hælana í því efni. Danmörk: Vatnsflóð tefur gerð ganga undir Stóra-Belti Kaupmannahöfn. Reuter. VATN og aur streymdu á mánu- dag inn í lestagöng, sem verið er að bora undir Stóra-Belti í Danmörku. Gríðarstórir borar fóru í kaf og starfsmenn urðu að flýja úr göngunum. Þeir björ- guðust allir. Ekki var ljóst hvort vatnið kom niður um loft ganganna eða hvort borað var í á sem rennur neðan- jarðar. Göngin eiga ásamt brú að tengja Sjáland og Jótland og áætl- aður kostnaður þeirra er um 19 milljarðar danskra króna (173 milljarða ÍSK). Fjölmörg vandamál hafa komið upp frá því hafist var handa við boranir fyrir fjórum áram. Ráðgert var í fyrstu að ljúka göngunum fyrir lok ársins 1994 en boranirnar era þegar ári á eft- ir áætlun. Búist er við að slysið á mánudag teiji framkvæmdir enn frekar. Mið-Austurlönd: Friðarráð- stefna hefjist í Lausanne 29. október Daniaskus, Amman. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hélt í gær frá Jórdaníu til Damaskus til fundar við Assad Sýrlandsfor- seta. Er talið að hann ætli m.a. að hvetja Sýrlendinga til að hefja tvíhliða viðræður við Israela um ýmis málefni, s.s. afvopnun og skiptingu á vatnslindum. Pa- lestínskir heimildarmenn sögðu í gær að Bandaríkjamenn hefðu lagt til að ráðstefna um frið í Miðausturlöndum færi fram í Lausanne í Sviss frá 29. október. Enn eru mörg önnur málefni óleyst ef halda á friðarráðstefnu um málefni Mið-Austurlanda í lok mánaðarins eins og Baker stefnir að. Ber þar hæst deilu um hvernig eigi að velja fulltrúa Palestínu- manna á ráðstefnuna. Háttsettir fulltrúar Palestínu- manna á hernumdu svæðunum áttu í gær viðræður við stjórnvöld í Jórd- aníu. Komu þeir til höfuðborgarinn- ar Amman um svipað leyti og Bak- er hélt þaðan eftir viðræður sínar við Hussein konung. Frelsissamtök Palestínu (PLO) hafa á undanförnum dögum reynt að semja um betri skilmála varð- andi þátttöku Palestínumanna á ráðstefnunni. Telja margir innan raða PLO að ekki sé hægt að ganga að þeim kröfum sem ísraelar hafa sett upp en stjórnvöld í ísrael krefj- ast þess m.a. að þau verði að fá að samþykkja alla fulltrúa Pa- lestínumanna á ráðstefnunni. í dag ætlar miðstjórn PLO að koma saman í Túnis og ákveða hvort af þátttöku Palestínumanna á ráðstefnunni verður. Helst hefur verið talið koma til greina að Jórd- anir og Palestínumenn sendi sam- eiginlega sendinefnd á ráðstefnuna. Þú svalar lestrarþörf dagsins ^ ásídum Moggans! PS/2 Fyrirmynd annarra tölva ■... rsÉ : Enn tekur IBM forystuna! IBM hefur sett á markaðinn nýja tölvu, sem leysir af hólmi PS/2 30 og 30-286 tölvurnar, sem notið hafa mikilla vinsælda. Nýju tölvurnar eru IBM PS/2 35SX og PS/2 35LS. IBM PS/2 35 einkatölvan er enn ein rós í hnappagat IBM. Hún hentar jafnvel til einka- nota, sem sjálfstæð vél ífyrirtækjum eða tengd inn átölvunet. IBM - valkostur fyrír vandláta Ódýr og góð lausn Nýr samningur við IBM gerir okkur mögulegt að bjóða IBM PS/2 35 tölvurnar á verði sem allir ráða við. IBM PS/2 35-043 borðvél/gólfvél 386 SX 20MHZ 2 MB vinnsluminni, stækkanlegt 40 MB hraðvirkur diskur 17 MS 1.44 MB 3.5“ disklingadrif 8515 VGA litaskjár Dos5.0 Verð frá kr. 144.900, ■ m/vsk. Brautarholti 8, Pósthólf 5193,125 Reykjavík Sími 615833, fax 621531.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.