Morgunblaðið - 16.10.1991, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991
Þær mæðgur, Sigurbjörg og Inga, þurftu eins
og aðrir bifreiðaeigendur á Akureyri að skafa snjó-
inn af bílunum í gærmorgun. Það var heldur kulda-
Kuldalegt ímorgunsárið
Morgunblaoio/Kunar Pór
legt um að litast í morgunsárið og napurt, rétt
eins og menn geta svo sem búist við á þessum
tíma árs.
Rj úpnaverndarf élagið:
Skorað á veiðimenn að
sleppa ijúpnaveiðinni
Rjúpnaverndarfélagið, sem ný-
lega var stofnað, beinir þeim til-
mælum til skotveiðimanna að
sleppa rjúpnaveiðum í haust þar
sem ástand stofnsins gefi ekki til-
efni til veiða.
Á fundi stjómar Rjúpnaverndar-
félagsins nýlega var samþykkt
Morgunblaðið/Silli
Ingvar Þorvaldsson.
Ingvar sýndi
á Húsavík
áskorun til veiðimanna þar sem fé-
lagitf beinir þeim tilmælum til skot-
veiðimanna, að sleppa ijúpnaveiðum
í haust og taka þannig tillit til
ástands stofnsins. „Ef þeir hins veg-
ar fara til ijúpna mælumst við til
þess að þeir veiði hvergi nema með
leyfí landeigenda og noti til þess
lögleg tæki, og er þá átt við skot-
vopn og farartæki og skilji ekki eft-
ir sig skothylki né annað rusl á víða-
vangi,” segir í ‘áskoruninni.
Atli Vigfússon formaður Rjúpna-
verndarfélagsins sagði að lítið hefði
sést af ijúpu í Þingeyjarsýslum að
undanförnu, en umhleypingar síð-
ustu daga gætu átt sinn þátt í þvi.
Með áskoruninni væri ætlunin að fá
menn til að takmarka sóknina þar
sem ástand stofnsins leyfði ekki svo
mikla sókn sem raun bæri vitni.
Þá eru uppi hugmyndir um að á
vegum félagsins verði flogið yfir
veiðilönd í flugvél og kannað hvort
skotveiðimenn fylgi settum reglum,
bæði hvað varðar að veiða einungis
með leyfi landeigenda og eins að
nota lögleg tæki, en vélsleðar og
fjórhjól teljast ekki til löglegra tækja
við rjúpnaveiði.
Flugfélag Norðurlands:
Húsavík.
Félagið sagði hann ekki hafa
það góðar áætlunarleiðir að það
gæti leyft sér að halda uppi áætl-
unarflugi með tapi, en fyrirsjáan-
legt væri að nýjar reglur um tvo
flugmenn í hverri vél myndu hafa
í för með sér tap fyrir félagið. Því
væri nú verið að skoða möguleika
á fækkun ferða og sameiningu
þeirra. „Það eru mörg sjónarmið
í þessu máli sem við þurfum að
taka tillit til og við viljum auðvitað
gera þetta eins sársaukalítið og
mögulegt er,” sagði Sigurður.
Hugmyndir FN-manna um sam-
drátt í áætlunarflugi verða kynnt-
ar í næstu viku, m.a. í samgöngu-
ráðuneyti, hjá sveitarstjórnum og
Pósti og síma, sem félagið hefur
annast póstflutninga fyrir. Þá
verður boðið til fundar með um-
boðsmönnum FN á laugardag í
næstu viku. „Við munum leggja
okkar hugmyndir fyrir og sjá hver
viðbrögð verða, en að þeim fengn-
FJÓRIR farþegar í fólksbíl
sluppu með skrekkinn er bifreið
sem þeir voru í rann til í hálku,
valt og lenti á hjólunum úti í
Ólafsfjarðarvatni í fyrrakvöld.
Fólkinu tókst að komast út um
brotna afturrúðu og vaða í land.
Að sögn lögreglu i Ólafsfirði var
bifreiðinni ekið suður þjóðveg
númer 82, Ólaísfjarðarveg. Hún
rann til í hálku, fór að minnsta
kosti eina veltu og hafnaði á hjól-
unum úti í Ólafsfjarðarvatni.
Fjórir voru í bílnum og sluppu
þau með smáskrámur, en gert var
að sárum þeirra á heilsugæslu-
stöðinni í Hornbrekku. Bæði aftur-
og framrúða bílsins brotnuðu og
komst fólkið þar út, en að sögn
lögreglu var mildi að bifreiðin
hafnaði á hjólunum í vatninu, ella
hefði illa geta farið.
Fljúgandi hálka var í Ólafsfirði
og nágrenni er óhappið varð.
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Eigendur Sædísar, frá vinstri, Gunnar Þór Magnússon, útgerðarmaður, Brynja Sigurðardóttir, Sigurður
G. Gunnarsson, útgerðarstjóri, Ásgerður Gylfadóttir og Númi Jóhannsson, skipstjóri, við nýja skipið.
Ólafsfjörður:
Nýtt skip til heimahafnar
Ölafsfirði
SÆDÍS hf. í Ólafsfirði hefur
keypt Stafnes KE 130 til Ólafs-
fjarðar. Skipið er 176 tonna skut-
skip, fjölveiðiskip með frystibúh-
aði til heilfrystingar.
Stafnes er smíðað í Noregi 1988
og eru kaupin gerð með makaskipt-
um á Sigurfara ÓF30, sem er 197
tonna vertíðarbátur með fjölveiði-
búnaði og var smíðaður 1965.
Kaupandinn, Sædís hf. gerir einnig
út Snaffara ÓF-25, sem er 236
tonna bátur, á rækjuveiðar og fryst-
ir aflann um borð.
Aðaleigendur Sædísar hf. eru
Gunnar Þór Magnússon, útgerðar-
maður, og Númi Jóhannsson, skip-
stjóri, og fjölskyldur þeirra. Númi
verður skipstjóri á hinu nýja skipi,
sem fer til veiða fljótlega.
SB
Hugmyndir um samdrátt í áætlun-
arferðum o g niðurfellingu flugs
Nýjar reglur um tvo flugmenn í hverri farþegavél taka gildi um áramót
InGVÁR Þorvaidssou rnynci-
listamaður hélt málverka-
sýningu á Húsavík fyrir
skömmu og sýndi þar 44
listaverk, pastel- og vatns-
litamyndir. Voru mörg við-
fangsefnanna fengin héðan
og úr nágrenni, en Ingvar
er fæddur Húsvíkingur og
dvaldi hér sín uppvaxtar- og
æskuár.
Þetta er 21. einkasýning Ing-
vars en hann hefur haldið sýn-
ingar víða um land en nokkur
ár eru síðan hann sýndi á sínum
feðraslóðum.
Sýningin var mjög vel sótt,
þrátt fyrir mjög óhagstætt veð-
ur og seldi listamaðurinn 12
myndir.
- Fréttaritari
FORRÁÐAMENN Flugfélags
Norðurlands munu í næstu viku
kynna hugmyndir sínar um
samdrátt í áætlunarferðum eða
niðurfellingu flugs til einhverra
áætlunarstaða sinna fyrir sam-
gönguráðuneyti, sveitarstjórum
viðkomandi staða og Pósti og
síma. Þá verður efnt til fundar
með umboðsmönnum félagsins
laugardaginn 26. október þar
sem þessar hugmyndir verða
kynntar. Þessi samdráttur er til
kominn í kjölfar þess að eftir
næstu áramót verður skylt að
hafa tvo flugmenn í öllum flug-
vélum sem fljúga með farþega
í áætlunar- eða leiguflugi.
Sigurður Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lands sagði að misjafnt væri eftir
farþegafjölda og hvað væri að
flytja á hverri leið hvort flugmenn
væru einir í stjórnklefa eða hvort
þeir væru tveir. Algengt væri á
sumum leiðum að einn flugmaður
væri við stjórnvölin, en það ætti
m.a. við um Vopnafjörð, Þórshöfn,
Raufarhöfn, Kópasker og auk
Siglufjörð.
„Það er ekki hugmyndin að
hætta þessu öllu saman, en um
einhvem samdrátt verður að ræða
og þá verða flugleiðir einnig að
nokkru leyti sameinaðar, þ.e. við
munu þá fljúga á tvo staði í einu,”
sagði Sigurður.
um munum við væntanlega taka
endanlega ákvörðun um hvernig
við þessu verður brugðist.”
Hjá Flugfélagi Norðurlands
starfa 12 flugmenn og hefur félag-
ið 5 flugvélar í áætlunar- og leigu-
flugi.
♦ < ♦--
Ólafsfjörður:
Bíll valt og
hafnaði úti
í Ólafsfjarð-
arvatni