Morgunblaðið - 16.10.1991, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.10.1991, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991 fclk i fréttum Harry Hamlin og Nicolette Sheridan. BRÚÐKAUP Ymislegt er brallað kvöldið fyrir Harry Hamlin úr Lagakrókum og Nicolette Sheridan úr „Knots Landing” gengu í það heilaga fyrir skömmu og var mik- ið um dýrðir eins og jafnan er Hollywoodstjömur fara í hnapp- helduna. Gestir skiptu hundruðum og var nóg að bíta og brenna. Kvöldið fyrir athöfnina sem fór fram á afskekktum lúxusbúgarði í Carmel-dalnum í Kalifomíu blésu vinir Hamlins til steggja- partís. Þeir leigðu fokddýra svítu á besta hóteli bæjarins og vinirnir vom rétt að byrja að gera veiting- unum skil, er bankað var á dyrn- ar. í salinn gengu tvær fatafeilur og skipti engum togum að þær hófu að stíga „dans”. Og er fátt var eftir af spjörum drógu þær Harry út á gólf til sín og hófu að fletta hann klæðum. Hann lét til leiðast og dansaði dijúga stund. Þær luku við að fara úr, en hann lét staðar numið er hann stóð á gólfinu á nærbrókunum og sokk- unum einum fata. Félagar Harry klöppuðu og stöppuðu ógurlega. Eftir því var tekið að önnur fata- fellan var nánast tvífari Nicolette og var talið ömggt að það væri engin tilviljun. Er hér var komið sögu dró Harry sig hlægjandi í hlé, bað vini sína og gesti að halda skemmtaninni til streitu, sjálfur þyrfti hann að vakna snemma daginn eftir. Tíu árum fyrr heði hann trúlega skemmt sér fram á rauðamorgun, en hann væri tek- inn að eldast. Brúðurinn Nicoletta frétti af öllu saman, en lét sér í léttu rúmi liggja. Trúlega vegna þess að vin- konur hennar héldu henni sams konar uppákomu, nema að dans- arinn var karlkyns vöðvatröll. Og dagskráin var á svipuðum nótum, Nicolette var dregin út á gólf þar sem hún fækkaði sjálf fötum í takt við dúndrandi tónlist. Hún gætti að mestu velsæmis eins og bóndi hennar og fór snemma heim. I veislunni ljómuðu bæði eins og tungl í fyllingu. BANKASTARFSEMI Skólabankaútibú hefur starfsemi sína Skólabankaútibú íslandsbanka í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ var opnað sl. fimmtudag. Útibúið er rekið í samráði við nemendur í nýjum verslunarfræðiáfanga skól- ans. Að sögn Halldórs Viðar, nemanda í skólanum, hefur allur undirbún- ingur verið í höndum nemenda nýja áfangans, en íslandsbanki hefur haft yfirumsjón með starfinu. „Með þessu samstarfi hafa nemendur ekki bara kynnst bankastarfsemi heldur höfum við líka kynnst kenn- urunum miklu betur. Þetta hefur gengið mjög vel og nemendurnir eru mjög ánægðir með þetta sam- starf’, sagði Halldór. Starfsmenn íslandsbanka halda einnig fyrirlestra í skólanum um ýmis bankaviðskipti, bæði innlend og erlend. Aðeins nemendum 18 ára og eldri var leyft að Velja þennan áfanga svo að allir gætu tekið þátt í starf- seminni. „Það verður gaman að sjá hvort fólk á eftir að notfæra sér þetta. Eins og er á útibúið aðeins að vera opið í einn mánuð, en ef þetta heppnast vel þá verður kannski framhald á þessu”, sagði Halldór Viðar að lokum. COSPER - Og hvaða afsökun hefurðu í þetta sinn? Haust - dömufatnaður Gæðavara - tískuvara Geissler dragtir stakir jakkar Seidensticker dömublússur Divina samstœdufatnaöur blússur pils kjóljakkar - kvöldjakkar kjólar • • Jager-Grote-peysur stæröir 36-50 Uáuntu. fataverslun Skerjabraut 1, v/Nesveg, Seltjarnarnesi. Opið daglega 9-18 - laugardaga 10-14 Morgunblaðið/Alfons ÓLAFSVÍK Vakinn upp með söng á afmælisdaginn Sr. Friðrik J. Hjartar í Ólafsvík átti fertugsafmæli á dögunum. Nokkrir félagar úr kirkjukórnum tóku sig til og vöktu sr. Friðrik í bítið um morgunin með frískum söng. Einn nágrannanna hringdi óðar í Alfons ljósmyndara Morgun- blaðsins og lét vita af hvað um væri að vera. Náði Alfons þessari mynd áður en allt varð um seinan. Helgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.