Morgunblaðið - 16.10.1991, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.10.1991, Blaðsíða 41
MOÍtGUNBIAÐIÐ MIÐVIKUDAGtJR 16. 0KTÓBER 1991 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA B91282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS GEÍsIPf PMœvélamarsembæði 3vo og þurrka Ahyggjulaus þvottur frá upphafi til enda. Spara pláss, engin barki, engin gufa. Vélarnar spara orku með því að taka inn á sig bæði heitt og kalt vatn. Þægilegra getur það ekki verið LA103 RXT • Tvöföld vcl í einu tæki • Tekur 5 kg í þvott, 25, kg í þurrkun • Allt aö 1000 snúninga vinda • Flæðivari • Yfirhitunarvari • Ryöfrítt stál í ytri og innrí belg LA1046 • 400 til 1000 snúninga vinda • Tvöföld vél í einu tæki • Rofi sem metur tímaþörf • Nýjung: Tekur 6 kg í þvott, • Rafeindastýrð hleðslujöfnun þurrkar 3,5 kg • Flæði- og yfirhitunarvari Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISIMI6915 20 i SQfiUUtUjÁtíK, Kr> D - 79&s: Á þessum árstíma skipast veður oft skjótt í lofti. Kynnið ykkur því veðurútlit áður en lagt er upp í veiðiferðina. Klæð- ist ávallt ullarfötum og hafið meðferðis léttan hlífðarfatnað í áberandi lit. Yandið fótabúnaðinn. Grannskoðið allan búnað ykkar og vandið hann af stakri um- hyggju. Sýnið forsjálni og gætni á öllum leiðum og tillits- semi við þau er heima bíða. * * * Kynnið ykkur hin mismun- andi tákn merkjaskota. Rauðu skotin má aðeins nota í neyð. Rjúpna- veiðimenn LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... ... þær duga sem besta bók. Hvíldar- dagurinn „Halda skaltu hvíldardaginn heilagan” er eitt af 10 boðorðum frelsarans og oft er um það talað í Biblíunni að halda boðorðin, það sé skilyrði fyrir góðu og kristilegu lífí. Við þurfum ekki að fara í nein- ar grafgötur með það að ef hver og einn heldur boðorðin og treyst- ir á forsjá Guðs og frelsarans hlýt- ur öllum að végna vel. Að taka Guð alvarlegan og brjóta ekki hans boð, er gæfa hvers manns sem verður aðnjótandi slíkra fjársjóða. Þetta hefur aldrei brugðist í ald- anna rás. Því vek ég athygli á þessu að mér fínnst heimurinn í dag ekki gera svo mikið til þess að halda þetta í heiðri. Líklegast er þetta boðorð oftast brotið. En ég held að enginn auðgist á því að brjóta það. Ég man þegar ég var í sveit, þá var aldrei unnið á sunnudögum á þeim bæ sem ég var á, nema elda matinn og gefa blessuðum skepnunum heyið sitt. Ég man að konumar sem ég var hjá sögðu að sín reynsla væri sú að með því að halda hvfldardaginn heilagan kæmi því meiri guðsblesun í búið og fyrstu dagar vikunnar nýttust betur eftir góða hvíld. Þessu er ekki að fagna í dag. Gróða- og lífs- gæðakapphlaupið lætur engin'tæk- ifæri ónotuð, hvort sem þau eru heilög eða ekki, og það er ekki langt síðan ég heyrði auglýsingu í útvarpinu einn sunnudagsmorg- un: Slátursalan opin í dag. Hvað kemur næst? Árni Helgason. Kindur átu kálið Heilræöi Ég er áhugamanneskja um kart- öflurækt og almenna garðrækt. Ég var með garð í Kópavogslandi í sum- ar og allt gekk vel í þessu góða veðri. Rófurnar voru orðnar mjög fallegar sem og kálið. Ég tók upp kartöflumar en ákvað að geyma aðeins kálið og rófurnar. Þegar ég kom svo og ætlaði að klára að taka upp þá höfðu kindur traðkað niður og bitið allt kálið sem eftir var. Þarna eiga engar skepnur að vera og ég hef aldrei orðið fyrir þessu fyrr. Mér fínnst þetta skelfilegt og íjáreigendur hijóta að vera ábyrgir fyrir kindum sínum og þeir geta ekki látið þær ganga svona sjálfala. Ég hef heyrt að íbúar í Efra-Breið- holti hafí orðið fyrir miklum ágangi sauðfjár í görðum sínum en allt skepnuhald á að vera bannað innan borgarmarkanna. Annað sem mig langar að koma á framfæri er í sambandi við þessa ungu menn sem skulda hótelvist og flugmiða í útlöndum. Afhveiju eru svona menn aldrei látnir vinna af sér skuldina, sem og aðrir sem eyði- leggja og skemma verðmæti ann- arra? Ég held að það sé besta kennslustundin í mannasiðum að láta menn vinna fýrir þeim spjöllum sem þeir hafa valdið. Ég h$ld að menn læri ekkert inn í fangelsi og refsingar gera fólk bara biturt og illt en það vantar tilfínnanlega vinnubúðir eða vinnuskóla fyiir þetta fólk. D.G. Ljós fyrir blaðbera Nú þegar langar og dimmar vetumætur fara í hönd eru áskrifendur Morgunblaðsins vinsamlegast beðnir um að láta útiljósin loga til hægðarauka fýrir blaðberana. Það er oft erfitt fyrir þá að fóta sig í myrkrinu og margar skrámur hafa hlotist þegar þeir hafa hrasað í vetrardimmunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.