Morgunblaðið - 16.10.1991, Page 43
43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
„Þurhim að
þrerfa okk-
ur áfram”
- segirÞorbergurAðalsteinsson
„EG hafði það á tilfinningunni
i byrjun að við myndum kaffæra
Tékkana, en þá nýttu strákarn-
ir ekki færin sín þegar þeir
voru einir gegn markverði,”
sagði Þorbergur Aðalsteins-
son, landsliðsþjálfari. „Það
hentaði okkur vel hvað Tékk-
arnir léku vörnina f ramarlega í
byrjun, en eftir að þeir breyttu
um og fóru að leika flata vörn,
lokuðu þeir fyrir skytturnar
okkar, þannig að sóknarleikur
okkar varð hálfgert hnoð á köfl-
um. Og þegar þeir fóru með
tvo leikmenn út gegn skyttun-
um riðlaðist leikurinn,” sagði
Þorbergur.
Það vakti strax athygli í byijun
leiksins að vinstri vængurinn,
þar sem Héðinn Gilsson og Konráð
Olavson léku, var
máttlítill. Hver er
ástæðan?
„Það er greinilegt
að þeir voru ekki vel
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
undirbúnir fyrir leikinn. Það er
kannski eðlilegt, þar sem þeir komu
til landsins frá Þýskalandi daginn
fyrir leik og gátu því lítið æft með
okkur.”
- Var þá ekki eðlilegt að
breyta um leikaðferð. Láta Sig-
urð Bjarnason ávinstri væng-
inn og Óskar Ármannsson í hlut-
verk hans, sem leikstjórnanda?
„Ég var einmitt að hugsa um að
gera þessa breytingu. Þá skoraði
Einar Sigurðsson mark með lang-
skoti af vinstri vængnum og síðan
fóru Tékkarnir að taka menn úr
umferð, þannig að ég hætti við
það.”
- Er það ekki röng taktík að
kalla menn heim frá Þýskalandi,
til að láta hann sitja á bekknum
allan leikinn, eins og Óskar
gerði?
„Leikurinn þróaðist þannig, að
ég taldi rétt að láta Sigurð Bjama-
son klára dæmið sem leikstjóm-
anda, en það kemur leikur eftir
þennan leik. Óskar verður með í
seinni leiknum gegn Tékkum.”
- Flest mörkin utan af velli komu
eftir einstaklingsframtak - langt
frá leikkerfum?
„Það var kannski eðlilegt eins
og leikurinn þróaðist. Við emm að
byija keppnistímabilið, þannig að
við þurfum að þreifa okkur áfram.
Fimm af sex leikmönnum í byijun-
arliðinu hafa ekki verið í þessari
stöðu áður - það er að segja að
byija. Það tekur alltaf tíma að koma
leikmönnum inn í leikkerfi, eins og
ég var búinn að segja fyrir leikinn.
Undirbúningurinn fyrir leikinn var
ekki langur. Við náðum þó því sem
við ætluðum okkur - að leggja
Tékkana”
- Þegar á heUdina er litið, þá
var það fátt annað sem gladdi
augað en samvinna Sigurðar
Sveinssonar og Birgirs Sigurðs-
sonar. Þú hefur verið ánægður
með hana?
„Já, ég get ekki annað en verið
það. Það var skemmtilegt að sjá
sendingar Sigurðar inn á línuna til
Birgis. Ég hefði aftur á móti viljað
sjá Sigurð skjóta meira utan af
velli. Hann þarf tíma til að aðlaga
sig landsliðinu á ný.”
- Þú getur ekki verið ánægður
með markvösluna?
„Nei, ekki get ég sagt það. Ég
hef séð markverðina veija betur.”
- Gerir þú breytingu á liðinu
fyrir seinni leikinn?
„Ég er ekki viss um það. Ég
ætlaði að láta Gunnar Andrésson
spreyta sig, en hann á við meiðsli
í mjöðm að stríða.”
ISLAND
TEKKOSLOVAKIA 18
Fyrri hálfl.: 0:2 1:2 3:5 4:6 6:6 7:6 9:7 9:9 10:1011:10
Seinni hálfl.: 14:10 14:14 18:14 18:15 19:16 19:18 20:18
L E 1 K M E N N : Skot Mörk/ Víti Varið Fram- hjá Stöng Lfnu- send. Fiskað víti Knetti tapað Utan vallar (min.) Nýting (%)
Sigurður Sve 1 1 - - - - - - - 100
Birgir Sigurð: wíJ 1 9 7 2 - ' - - 1 1 2 70
Sigurður Bjarnason 10 7 - - 3 - - 2 - 58
Gústaf Bjarnason 1 - 1 - - - 1 - -
Sigurður Sveinsson{E) 5 2/1 1 1 1 5 - 1 - 33
Einar Sigurðsson 1 1 - - - - - 1 - 50
Patrekur Jóh annesson r - - - - - - 2 '-
Konráð Olav; I" VA 5/ 2 2 - 1 - - 1 2 33
Óskar Árman ftsson rv z - - - - - - - -
Héðinn Gilssi P / - - - - - 1 1 2 -
Björgvin Rúji arsson L 1 - 1 - - - - - - -
Júlíus Gunna rsson - - - - - - - - ■-
U A 1.
Guðmundur t M í VARIN S | Lang. Horn Lfna Hraö. Víti Gegn.
drafnkeléson / J 3 2 0 1 0 0 0
Sigmar Þröstur Óskarsson 3 0 2 0 0 1 0
7 f /LZ>
w ■
Áhorfendur: 634
1 MÖRK SKORUÐ 1
Langskot 8
Af línu 5
Vitakast 1
E. gegnumbrot 3
E. hraðaupphl. 2
Úr homi 1
Sóknir
Mörk
Fyrri hálfl.
21
11
Nýting
52%
Seinni hálfl. 20 9 45%
SAMTALS 41 20 49%
Guðmundur Hrafnkelsson og Sigmar Þröstur Óskarsson vörðu einnig sín hvor þijú skotin, sem knötturinn
fór aftur til mótherja. Mörk Tékkóslóvakíu skoruðu: Hezel 4, Holesa 3, Sedlecek 3/3, Liptek 2, Setlik 2, Till 2, Folta 1
og Sama 1. Tékkar voru utan vallar í 10 mín. Dómarar voru Krister Broman og Kent Blademo frá Svíþjóð.
Fall ofaní gömlu gryfjuna
rað að var byijunarbragur á leik
' leikmanna Islands. Sóknarað-
ðir voru ekki nægilega mark-
ar og var hraði liðsins oft eins
verið væri að leika 75 snúninga
mplötu; hægur. í byijun voru
menn í eltingaleik við Tékka,
náðu að jafna, 6:6, á 20. mín.
og komast yfír. Eftir það létu þeir
ekki forystuna af hendj.
En eins og oft áður varð gamla
gryQan til staðar, sem leikmenn
áttu erfitt með að komast uppúr.
íslendingar skoruðu þijú fyrstu
mörkin í seinni hálfleik, 14:10, en
þá féllu þeir ofaní gryfjuna - skor-
uðu ekki mark í 14.30 mín., eða
úr átta sóknarlotum og Tékkar
náðu að jáfna, 14:14. Við það vökn-
uðu leikmenn íslenska liðsins við
vondan draum - skoruðu fjögur
mörk í röð og eftir það var ekki
aftur snúið.
„Okkur vanrar'meiri samæfingu,”
sögðu þeir Birgir Sigurðsson og
Sigurður Sveinsson, en samvinna
þeirra gladdi áhorfendur, sem vöru
ekki margir. Sigurður átti fimm
snjallar línusendingar á Birgi, sem
gáfu mörk. Sigurður Bjarnason
sýndi mikið einstaklingsframtak og
skoraði sjö mörk eins og Birgir.
Morgunblaðið/Sverrir
Birgir Sigurðsson átti góðan leik
á línunni og skoraði sjö mörk gegn
Tékkum í gærkvöldi.
ÍÞfémR
FOLK
U ÍSLAND og Kýpur leika vin-
áttulandsleik í knattspyrnu í
Larnaca á Kýpur í dag. Leikurinn
hefst kl. 18 að staðartíma eða kl.
16 að íslenskum tíma.
■ ANDREAS Michaelides er
nýráðinn þjálfari Kýpurmanna og
stjórnar hann Iandsliðinu í fyrsta
sinn í dag. r—
■ VÖLLURINN í Larnaca tekur
um 10.000 manns í sæti en gert
er ráð fyrir 1.000 til 2.000 áhorf-
endum. Á úrslitaleik í deildinni hér
á síðasta keppnistímabili mættu um
20.000 áhorfendur og 8.000 til
10.000 manns eru að meðaltali á
deildarleikjum.
■ ÁSGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari, er slunginn í skákinni og
tekur gjarnan taflið með í keppnis-
ferðir. Nú er brids hins vegar spil
s_pilanna, taflið var skilið eftir, en
Ásgeir tók í spil ásamt fleirum í
gærkvöldi.
■ CIBONA Zagreb, sem lék við
Njarðvíkinga í 1. umferð Evrópu-
keppninnar í körfuknattleik, mun
leika heimaleiki sína í keppninni á
Spáni eins og reyndar tvö önnur
lið frá Júgóslavíu, Slobodna
Dalmacija Split og Partizan
Belgrad, hafa ákveðið að gera
vegna ástandsins heimafyrir. Ci-
bona og Slobodna Dalmacija eru
frá Króatíu, en Partizan er frá
Serbíu. Liðin munu leika í La Cor-
una, Puerto Real og Fuen la
Brada.
■ SÖREN Lerby, nýráðinn þjálf-
ari Bayern Miinchen, hefur beðið
Klaus Augenthaler að koma sér
til aðstoðar og byija að leika aftur
með liðinu. „Það yrði frábært ef
Klaus segði: já,” sagði Lerby í.
gær. „Undir þessum kringumstæð-
um er Klaus mjög mikilvægur fyrir
liðið með alla sína reynslu. Hann
hefur kynnst öllum hliðum knatt-
spyrnunnar í gegnum árin.” Aug-
enthaler lagði skóna á hilluna eftir
síðasta keppnistímabil, eftir að hafa
leikið í 15 ár með Bayem.