Morgunblaðið - 24.10.1991, Síða 5

Morgunblaðið - 24.10.1991, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991 5 Buxnalaus á rauðum bíl UNDANFARNA daga hefur maður nokkur að minnsta kosti tvisvar áreitt 13 og 14 ára telpur við Sundlaug Vest- urbæjar með því glenna kyn- færi sín framan í þær. Manninum er lýst svo að hann sé um þrítugt með yfir- skegg og ferðist buxnalaus á rauðum amerískum bíl. Hann hefur setið fyrir stúlkunum þegar þær koma úr sundlaug- inni. Síðan ekur hann nokkurn spöl við hlið þeirra á hægri ferð og strýkur sér. Lögregla leitar mannsins. Davíð Þorsteinn SUS og Vörður: Opinn fund- ur um EES SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna og Lándsmálafélagið Vörður gangast í dag, fimmtu- dag, fyrir opnum fundi um Evr- ópska efnahagssvæðið. Fundur- inn verður haldinn á Hótel Borg og hefst kl. 17.15. Frummælendur á fundinum verða Davíð Oddsson forsætisráð- herra og Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra. Fundurinn er öllum opinn. Frummælendur munu svara fyrirspurnum að erindum sínum loknum. Iðnþing sett í dag: „Islenskt atvinnulíf - framfarir eða fátækt?” 44. Iðnþing íslendinga verður sett í Súlnasal Hótel Sögu í dag klukkan 11. Þingið stendur að þessu sinni í tvo daga. Kjörorð þess er: „íslenskt atvinnulíf - framfarir eða fátækt?” Við setninguna flytja forseti Landssambands iðnaðarmanna, Haraldur Sumarliðason, og Jón Sig- urðsson iðnaðarráðherra ræður. Eftir hádegið verður umljöllun um kjörorð þingsins. Erindi flytja Þó- rólfur Matthíasson lektor, Jón Sig- urðsson forstjóri, Styrmir Gunnars- son ritstjóri og Kristján Guðmunds- son viðskiptafræðingur. Síðdegis taka framsögumenn og fulltrúar stjórnmálaflokka þátt í panelum- ræðum. Á föstudag verða almenn þing- störf og lokahóf um kvöldið. . Iðnþing er stefnumarkandi ráð- stefna um málefni fyrirtækja og einstaklinga sem reka starfsemi í löggiltum iðngreinurri og er það haldið annað hvert ár. 7 f'T f ' |f 9 '// JCB4CX 4x4x4 BYLTINGARKENNDA FRAMTÍÐARVÉLIN FRA JCB m ^ Innni Laugardaginn 25. október n.k. fró kl. 10.00 til 17.00 ó sýningarsvæói GLOBUS aö Lógmúla 5 Sýnum einnig: JCB 3CX - Sú vel þekkta í nýjum búningi JCB 2CX • Minni útgáfa af 4CX JCB 801 • Mini Beltavélin JCB 530 - 95 Fjölnotalyftara Auk þess sýnum viö úrval vökvaknúinna fylgihluta fyrir vinnuvélar, pail- og sendibíla frá FORD og dráttarvélar frá FIATAGRI og ZETOR - okkar heimur snýst um gœbi ■ 11 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.