Morgunblaðið - 24.10.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTOBER 1991
21
Dúfnaveislan
eftir Svein Einarsson
Sum listaverk eldast vel. Þetta
verður manni ljóst, þegar maður
sér sýningu Borgarleikhússins á
Dúfnaveislu Halldórs Laxness, að
sá leikur er í hópi þeirra sem
tíminn vinnur með.
Mér er enn í fersku minni, þeg-
ar skáldið las okkur Leikfélags-
mönnum fyrsta þátt Dúfnaveisl-
unnar eitt haustkvöld árið 1965.
Við vorum að falast eftir Pijóna-
stofunni Sólinni, sem þá lá óleikin
í bókastafla. Halldór sagði okkur
þá frá þessu nýja verki, sem væri
í smíðum, og spurði okkur, hvort
við teldum ástæðu til þess hann
héldi áfram með það. Við töldum
það.
Hinu er ekki að leyna, að þegar
leikritið var svo fullbúið, gekk það
ekki fyllilega upp fyrir mér og ég
var að velta því fýrir mér, hvort
á því væri hugsunarlegar og stíleg-
ar brotalamir. Núna, 25 árum síð-
ar, er mér ánægja að bera vitni
um það, að ég hafði rangt fyrir
mér, þessi tilfinning stafaði af eig-
in takmörkunum. I dag þykir mér
leitun að heilsteyptari leik, bæði
að stíl og hugsun.
í sýningu Helga Skúlasonar í
Iðnó forðum voru tveir pólar leiks-
ins pressarinn í túlkun Þorsteins
Ö. Stephensens (og pressarakon-
an, Anna Guðmundsdóttir, sem
fylgdi manni sínum í öllum við-
brögðum) og Gvendó, sem Gísla
Halldórssyni tókst að gefa hættu-
legt óræði. Milli þessara tveggja
skapaðist spenna leiksins, og voru
pressarahjónin gömul og vís — og
frábitin veröldinni í sinni taóiskt
upphöfnu manngæsku; Gvendó
aftur var fulltrúi þess mannkyns,
sem setur upp nýtt og nýtt gervi
eftir því hvernig vindar blása og
straumar liggia, að eigin frum-
kvæði þó.
Mér hefur dottið í hug, að í dag
gæti önnur túlkunarleið verið for-
vitnileg. Ef ekki eru tiltækir roskn-
ir leikarar í pressarahjónin, af
hveiju þá ekki að láta miðaldra
leikara í fyllsta fjöri leika hlutverk-
in útfrá forsendum síns aldurs og
tímans sem við lifum? Skáldleg
ólíkindalæti pressarans bjóða al-
veg upp á aðra meðferð en hlýja
manngæsku uppgjafar — sú
mannúðarstefna sem skáldið boð-
ar á í vök að veijast árið 1991
fyrir grímulausri ágirnd auðhyggj-
unnar undir merkjum frelsisins;
ég fæ ekki betur séð en það rúm-
ist vel innan ramma leiksins, að
fulltrúar þess húmanisma rísi upp
og beijist á sinn máta fyrir mann-
legum verðmætum. Kímni verks-
ins yrði ekki eins hlý með slíkum
lesmáta — það skal viðurkennt —
en fengi ekki leikurinn meiri slag-
kraft?
Hinn póllinn yrði þá að sjálf-
sögðu dr. Rögnvaldur Reykill, sem
einskis svífst fyrir aurana. Hugs-
unarleg framvinda verksins endur-
speglaðist þá í orðum og gjörðum
Gvendós, hann yrði þessi nýjunga-
gjama og heimtufreka þjóð, sem
hefur tækifærið til að sjá að sér.
Tilfínningaleg framvinda verksins
endurspeglaðist þá ekki síður í
Öndu sem er tragísk persóna, rót-
■ VETRARFA GNAÐ UR Ríkis-
starfsmanna verður haldinn á Hót-
el Islandi föstudaginn 25. október
nk. Hótelið tekur á móti gestum
kl. 21.00-22.00 með fordrykk auk
þess sem boðið verður uppá konfekt
frá Cadburys’ og „bodylotion”-sýni
frá Stendahl. Til skemmtunar verð-
ur tískusýning frá Versluninni
Lotus, Álftamýri, sem sýnir það
nýjasta í haust- og vetrartískunni.
Dansararnir og danshöfundarnir
Ástrós og Helena sýna tvo dansa
og er annar þeirra sérstaklega sam-
inn fyrir þetta kvöld. Hljómsveitin
Upplyfting leikur svo fyrir dansi
til kl. 3.00 með söngkonunum
Berglindi Björk og Sigrúnu Evu.
Sveinn Einarsson
„Eg hugsa það sé fyllsta
ástæða til að leggja að
nýju til atlögu við
Strompleik og Prjóna-
stofuna Sólina með nýj-
um formerkjum og
kanna hvað við finnum.
Mér finnst að minnsta
kosti augljóst, að í
Dúfnaveislunni höfum
við eignast eitthvert
best skrifaða leikrit,
sem samið hefur verið
á Islandi — og að þar
er vettvangur fyrir bar-
áttuglaða mannúðar-
stefnu.”
laus og landlaus, fórnarlamb í
sviptivindum leiksins.
Áherslur og hvörf í leiknum
yrðu þannig nokkuð önnur en áður
var, en allan leikinn ber að skoða
í táknlegu ljósi og ekki af raunsæi-
legu. Kjallarahola pressarahjón-
anna óg Grand Hótel eru fyrst og
fremst táknlegar stærðir og allur
leikmátinn þyrfti að miðast við
þær víddir, sem fáránleikastefnan
færði leiklistinni, svo og aðferðir
sem t.d. leikstjórar eins og Bob
Wilson hafa tamið sér.
Ég hugsa það sé fyllsta ástæða
til að leggja að nýju til atlögu við
Strompleik og Pijónastofuna Só-
lina með nýjum formerkjum og
kanna hvað við fínnum. Mér fínnst
að minnsta kosti augljóst, að í
Dúfnaveislunni höfum við eignast
eitthvert best skrifaða leikrit, sem
samið hefur verið á íslandi — og
að þar er vettvangur fyrir baráttu-
glaða mannúðarstefnu.
Höfundur er dagskrárstjóri hjá
Sjónvarpinu.
ijuoftuom,
SÆNSK
GÆÐANÆRFÖT
FYRIRALLAFJÖLSKYLDUNA
^ Stinga ekki
^Úr fínustu merinóull
®Mjög slitsterk
• Má þvo viö 60°C
ÚTILÍFj
GLÆSIBÆ, ÁLFHEIMUM 74, S. 812922
Jl,
v. - 3. .
Wmm:\
’4ílllffe
' *
jéfæfs v
*■
#2«/-1
i -
yí
•*
Jhbí Wm P
Einnaf
þúsundum
Nafn; Bragi Benediktsson
Starf: Sóknarprestur
Aldur: 55
Heimili: Hellisbraut 4, Reykhólum
Bifreið: Daihatsu Applause 1991
Áhugamál: Landbúnaður og félagsmál
Mitt álit: „Ég á Kjarabréf Markbréfog Skyndibréf.
Það er þægilegt fyrir mig sem bý út á landi að geta
keypt og selt bréfm með einu símtali. Þannig næ ég
hámarksávöxtun án þess að þurfa að mæta á staðinn. ‘
(Q)
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI7,101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700 • RÁÐHÚST0RGI3,600 AKUREYRI S. (96) 11100
%
jj\
■
' ;