Morgunblaðið - 24.10.1991, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 24.10.1991, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1981 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú kemur einhveiju mikilvægu í verk í vinnunni í dag, en engu að síður gætir tilhneig- ingar hjá þér til að ýta hlutun- um á undan þér. Ákveðni, ein- beitingar og sjálfsaga er þörf. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú ert í skapi til að skemmta þér, en ættir að hyggja að því hvort ekki er tímabært að heimsækja vin sem á inni hjá þér að þú farir að finna hann. Tvíburar (21. mai - 20. júni) 9» Þú ættir að taka til heima hjá þér áður en allt fer úr böndum. Komdu reiðu á hlutina og reyndu að halda í horfrnu. Þú þarft að taka á þig aukna ábyrgð í starfí. Krabbi (21. júm' - 22. júlí) Ef þú talar í hálfkveðnum vís- um er ekki víst að allir skilji hvað þú ert að fara. Þú ættir að tjá hugsanir þínar þannig að ekkert fari á milli mála. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú kaupir ýmislegt þarflegt til heimilisins í dag, en heldur ef til vill ekki nógu vel utan um peningana. Innsæi þitt getur komið þér að gagn í viðskipt- um. Notfærðu þér það. Meyja (23. ágúst - 22. september) M Þú verður að tala af einlægpii ef þú vilt láta taka þig alvar- lega. Sköpunargáfa þín blómstrar í dag. Láttu góðar hugmyndir ekki lenda í glat- kistunni. Vog (23. sept. - 22. október) Þú vinnu að því að koma fjár- málunum í lag, en þér hættir til að eyða tíma þínum í dag- drauma. Gerðu iista yfir þá hluti sem koma þarf í fram- kvæmd. Sporddreki (23. okt. — 21. nóvember) Þú kemur vel fyrir út í frá, þó að þú komir ekki miklu í verk. Þú ættir ekki að vera of mikið með yfirborðslegu fólki. Bogmadur (22. nóv. - 21. desember) m Þú ættir ekki að blanda saman starfi og leik í dag. Þú átt góða að á bak við tjöldin. Leggðu þig nú fram og láttu aðra um slúðrið. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Vinur þinn kann vel að meta hollustu þína við sig. Þú átt ekki sem auðveldast með að sinna smáatriðunum í dag. Reyndu ekki að sleppa ódýrt frá verkefnum þínum. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Það er kominn tími til fyrir þig að leggja krítarkortið til hliðar og hyggja að leiðum til að auka tekjumar. Taktu þér tíma til að yfirvega málin. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú hefur hugsað mikið um annað fólk undanfarið. Nú ættir þú að hugsa um það sem þú ert að gera. Þættir ekki Iáta aðra soga til sín allan mátt úr þér. Stj'órnusþána á ad lesa sem doegradvól. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DÝRAGLENS BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson I fyrri leiknum við Breta í undankeppninni í Yokohama náðu Guðlaugur R. Jóhannsson og Öm Arnþórsson fallegu geimi, sem Robson og Forrester misstu: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ 4 ¥7 ♦ K109532 ♦ KD1076 Vestur ♦ K8532 ¥ K10 ♦ D6 + G854 Austur ♦ Á1096 ¥ ÁD94 ♦ ÁG7 + 32 Suður ♦ DG7 ¥ G86532 ♦ 84 + Á9 I opna salnum sögðu Forrest- er og Robson þannig á spil AV gegn Jóni Baldurssyni og Aðal- steini Jörgensen: Vestur Norður Austur Suður Robson Jón Forrester Aðalst. Pass 1 grand Pass 2 hjörtu 2 grönd 3 spaðar Pass Pass Pass Robson gat svo sem lyft í 4 spaða eftir að Forrester tók svona vel við sér, en hann bjóst við slæmri legu og vissi ekki hvort tíguldrottningin væri nokkurs virði. Eftir sömu byijun á hinu borðinu gátu Guðlaugur og Öm nýtt sér sagnvenju sem leysti vanda vesturs: Vestur Norður Austur Suður Öm Armstr. Guðl. Kirby Pass 1 grand Pass 2 hjörtu 2 grönd 3 lauf Pass 3 hjörtu Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Með 3 laufum sagðist Guð- . laugur eiga góðan spaðastuðn- ing og ónýtt tvíspil í laufi. Þær upplýsingar komu sér einkar vel fyrir Öm, sem vissi nú að spilin féllu mjög vel saman. Hann yfir- færði aftur í spaða og hækkaði svo í fjóra, sem unnust auðveld- lega. Dag nokkurn kemur skólabíllinn, og enginn segir mér frá því, og ég stend hér ein eftir. Eins og hundur. Umsjón Margeir Pétursson Á Interpolis-stórmótinu í Til- burg í Hollandi, sem hófst fyrir síðustu helgi, kom þessi staða upp í fjórðu umferð í viðureign þeirra Nigels Shorts (2.660), sem hafði hvítt og átti leik, og Jans Tim- mans (2.630). Sem sjá má stend- ur hvíti hrókurinn á d7 í uppn- ámi. Til að koma lesendum á spor- ið með það hver sé vinningsleikur- inn er rétt að taka fram að þrír síðustu leikir hvíts voru 31. Kgl - h2, 32. Kg3 og 33. Kf4. Framsókn kóngsins hélt áfram: 34. Kg5! og Timman gafst upp, því 34. - Bxd7 er að sjálfsögðu svarað með 35. Kh6! og svartur er óveijandi mát í g7. Heimsmeistarinn í skák, Gary Kasparov, hefur byijað afar vel í Tilburg-mótinu. Nigel Short hefur einnig teflt vel eftir tap í fyrstu umferð fyrir Anand.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.