Morgunblaðið - 24.10.1991, Síða 47
nn
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991
47
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
B91282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS ,
T..
Rjúpnaveiðimenn
Treystið öryggi ykkar sem mest í hverri veiðiferð. Gætið þess
ávallt að skotvopn ykkar séu í fullkomnu lagi og vel hirt. Hafið
meðferðis áttavita og kort og búnað til ljós- og hljóðmerkjagjafa.
Hefjið veiðiferðina árla dags og ljúkið henni áður en náttmyrkur
skellur yfir. Verið ávallt stundvísir á áfangastað.
Sakna gömlu þulanna
Til Velvakanda.
Ég verð að segja að ég sakna
gömlu þulanna í ríkissjónvarpinu,
sérstaklega Sigurlaugar M. Jónas-
dóttur, Sigríðar Pétursdóttur og
Maríu Bjarkar Yngvadóttur. Þær
sögðu skemmtilega frá og voru
glaðlegar en nýja fólkið segir varla
neitt án þess að málfarsvillur slæð-
ist með og er afskaplega alvörugef-
ið. Ég hef heyrt ávæning af því í
fjölmiðlum að Sigríður hafi ekki
fengið endurráðningu, hvers vegna
í ósköpunum veit ég ekki. Það er
furðulegt að ein besta þulan lengi
sé látin hætta. Ég hef heyrt marga
tala um þetta, og það eru allir jafn
hissa.
Guðmundur
Islenskt hótel
í Lúxemborg'
Velvakandi
Mig langar til að gera löndum
mínum þann greiða að láta þá vita
af dásamlegu hóteli í Lúxemborg,
sem Inga og Kalli Guðjónsson eiga
og reka, þetta er fallegt hótel með
mjög rúmgóðum herbergjum
m/sérbaði. Það eru öll þægindi á
hótelinu, fallegur veitingasalur, þar
sem hægt er að velja um marga
góða rétti, svo er þar þægilegur
bar. Það er líka gott að geta talað
og fengið upplýsingar á íslensku
ef maður talar ekki frönsku eða
heimamálið. Hótelið heitir Le Roi
Dagobert og er í bæ sem er 20—25
km frá borginni og heitir Grev-
enmacher. Það tekur 3 mín. að
ganga niður að Móselánni og 10
mín. að ganga yfír til Þýskalands.
Ég er nýkomin henn frá Lúxem-
borg og er Úrval-Útsýn þakklát
fyrir að útvega mér gistingu á þessu
indæla hóteli á þessum fallega stað,
þar leið manni eins og best verður
á kosið hjá hjónunum og starfsfólki
þeirra. —
Margrét
-----» ♦ ♦ -
Herra heil-
brigðis-
ráðherra
Er það ekki mikill ábyrgðarhluti
að gefa lyfsölu fijálsa? Ef læknir
fær til dæmis umboð fyrir lyfið
Artan, sem ég kalla eitur, og færi
að gefa sjúklingum sínum lyfið. Já
og mælti með því hjá öðrum lækn-
um, myndir þú vilja taka afleiðing-
unum? Á þeim tíma sem ég vann í
apóteki komu í ljós hryllilegar af-
leiðingar svefnlyfsins Thalidomín
hjá ófrískum konum. í Þýskalandi
var lyfið selt í lausasölu og gekk
undir nafninu barnapían því foreldr-
ar gáfu börnum sínum lyfið þegar
þau fóru út að skémmta sér. Við
hér heima vorum svo heppin að það
mælti enginn með lyfinu og það fór
því aldrei í umferð hér þó það væri
til. Vær ekki nær, vegna sparnað-
ar, að hafa apótekin óbreytt? Það
mætti þó veita lyfjafræðingum
meira fijálsræði til þess að ráð-
leggja fólki lyf og eins mættu fleiri
lyf, sem eru nær skaðlaus, vera
seld án.lyfseðils.
Anna Bjarkan
u l/Í’Lbu gl-e&ja. mé&ar hennar—vtífa&u
þesuim kjc/íd/hgcyft'robtur."
Ást er ...
.. .að vera límd saman.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
c 1991 Los Angeles Times Syndicate
Ég get séð hvað klukkan er
í flestum löndum milli Norð-
ur- og Suðurpólsins
Með
morgnnkaffinu
Buffið og spæleggið koma
eftir 10 mín...
v.
n
Víkveiji skrifar
Líklega hafa aldrei fleiri íslend-
ingar farið í helgarferðir til
útlanda en á þessu hausti. Víkveiji
var á Akureyri fyrir helgina og
frétti þá að þaðan hefðu farið fimm
fullar flugvélar með hópa til Bret-
landseyja. Víkveija var tjáð að það
væri t.d. litlu dýrara að fara í helga-
ferð til Dublin en helgarferð til
Reykjavíkur. Fólk þyrfti aðeins að
borga 22-23 þúsund krónur og er
þá hótelkostanaður í Dublin innifal-
in. Mjög ódýrt væri að verzla í
Dublin og því margborguðu slíkar
ferðir sig fyrir fólk.
Enginn vafi leikur á því að mikil
verzlun flyst úr landinu þegar fólk
flykkist í helgarferðir til útlanda.
Þá hlýtur þetta að koma illa við
hótel, leikhús og aðila sem standa
fyrir skemmtanahaldi í Reykjavík.
Víkveiji hefur ekki orðið var við
það að kaupmenn hafi reynt að
svara þessari samkeppni. Hvað ætli
valdi?
xxx
Ríkisútvarpið hefur staðið fyrir
ósvífnum og ósmekklegum
auglýsingaherferðum á undanförn-
um misserum, sem fyrst og fremst
miða að því að auglýsa „ágæti”
RÚV á kostnað þeirra miðla sem
eru í samkeppni við fyrirtækið.
Nýlega hefur birst í Sjónvarpinu
óvenju ósmekkleg auglýsing frá
RÚV þar sem því er bent til auglýs-
enda að henda ekki auglýsingum í
ruslið og er um leið sýndar myndir
af því þegar dagblöðum er hent í
ruslakörfuna.
Það vita allir að dagblöðin enda
að lokum í ruslakörfunni en það
vita líka allir að áður en slíkt ger-
ist hafa þau verið rækilega lesin.
En auglýsing í útvarpi fer í mörgum
tilfellum beint í „ruslið”, því eins
og skoðanakannanir segja til um,
nær hver einstök stöð sjaldnast
meira en 10% hlustun. íslendingar
eru sem betur fer nógu skynsamir
til að sjá í gegnum svona ómerkileg-
ar auglýsingaherferðir. Forráða-
menn RÚV ættu að gefa þessu
gaum.
XXX
Borgarstjórinn í Reykjavík og
eiginkona hans buðu íslands-
meisturum Víkings og bikarmeist-
urum Vals í knattspyrnu til hófs í
Höfða sl. föstudag. Skemmtu menn
sér hið bezta í þessu ágæta hófi.
I ræðu sem Jón Zoéga formaður
Vals flutti í hófinu sagði hann þessa
óvenjulegu sögu: íslendingur var
ráðinn í friðargæzlusveitir Samein-
uðu þjóðanna. Hann var. sendur út
í eyðimörkina þar sem hann fann
flösku í sandinum. íslendingurinn
opnaði flöskuna og út úr henni kom
andi. Andinn sagði við íslendinginn
að hann gæti borið fram eina ósk.
Islendingurinn tók fram landakort
af Mið-Austurlöndum, sýndi andan-
um og spurði hvort hann gæti kom-
ið þar á friði. Því miður sagði and-
inn, þarna hefur verið ófriður í
margar aldir og enginn andi getur
komið þar á friði. Þvínæst bauð
hann íslendingnum að koma með
aðra ósk. íslendingurinn hélt nú
það, og bað andann að gera KR-
inga að íslandsmeisturum í knatt-
spyrnu. Kom þá vonleysissvipur á
andann og hann sagði: Réttu mér
aftur helv. landakortið!
HOGNI HKKKKVISI
f>'A SKJÍ.DI FÁEIN EFTIR'