Morgunblaðið - 24.10.1991, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.10.1991, Blaðsíða 47
nn MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991 47 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA B91282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS , T.. Rjúpnaveiðimenn Treystið öryggi ykkar sem mest í hverri veiðiferð. Gætið þess ávallt að skotvopn ykkar séu í fullkomnu lagi og vel hirt. Hafið meðferðis áttavita og kort og búnað til ljós- og hljóðmerkjagjafa. Hefjið veiðiferðina árla dags og ljúkið henni áður en náttmyrkur skellur yfir. Verið ávallt stundvísir á áfangastað. Sakna gömlu þulanna Til Velvakanda. Ég verð að segja að ég sakna gömlu þulanna í ríkissjónvarpinu, sérstaklega Sigurlaugar M. Jónas- dóttur, Sigríðar Pétursdóttur og Maríu Bjarkar Yngvadóttur. Þær sögðu skemmtilega frá og voru glaðlegar en nýja fólkið segir varla neitt án þess að málfarsvillur slæð- ist með og er afskaplega alvörugef- ið. Ég hef heyrt ávæning af því í fjölmiðlum að Sigríður hafi ekki fengið endurráðningu, hvers vegna í ósköpunum veit ég ekki. Það er furðulegt að ein besta þulan lengi sé látin hætta. Ég hef heyrt marga tala um þetta, og það eru allir jafn hissa. Guðmundur Islenskt hótel í Lúxemborg' Velvakandi Mig langar til að gera löndum mínum þann greiða að láta þá vita af dásamlegu hóteli í Lúxemborg, sem Inga og Kalli Guðjónsson eiga og reka, þetta er fallegt hótel með mjög rúmgóðum herbergjum m/sérbaði. Það eru öll þægindi á hótelinu, fallegur veitingasalur, þar sem hægt er að velja um marga góða rétti, svo er þar þægilegur bar. Það er líka gott að geta talað og fengið upplýsingar á íslensku ef maður talar ekki frönsku eða heimamálið. Hótelið heitir Le Roi Dagobert og er í bæ sem er 20—25 km frá borginni og heitir Grev- enmacher. Það tekur 3 mín. að ganga niður að Móselánni og 10 mín. að ganga yfír til Þýskalands. Ég er nýkomin henn frá Lúxem- borg og er Úrval-Útsýn þakklát fyrir að útvega mér gistingu á þessu indæla hóteli á þessum fallega stað, þar leið manni eins og best verður á kosið hjá hjónunum og starfsfólki þeirra. — Margrét -----» ♦ ♦ - Herra heil- brigðis- ráðherra Er það ekki mikill ábyrgðarhluti að gefa lyfsölu fijálsa? Ef læknir fær til dæmis umboð fyrir lyfið Artan, sem ég kalla eitur, og færi að gefa sjúklingum sínum lyfið. Já og mælti með því hjá öðrum lækn- um, myndir þú vilja taka afleiðing- unum? Á þeim tíma sem ég vann í apóteki komu í ljós hryllilegar af- leiðingar svefnlyfsins Thalidomín hjá ófrískum konum. í Þýskalandi var lyfið selt í lausasölu og gekk undir nafninu barnapían því foreldr- ar gáfu börnum sínum lyfið þegar þau fóru út að skémmta sér. Við hér heima vorum svo heppin að það mælti enginn með lyfinu og það fór því aldrei í umferð hér þó það væri til. Vær ekki nær, vegna sparnað- ar, að hafa apótekin óbreytt? Það mætti þó veita lyfjafræðingum meira fijálsræði til þess að ráð- leggja fólki lyf og eins mættu fleiri lyf, sem eru nær skaðlaus, vera seld án.lyfseðils. Anna Bjarkan u l/Í’Lbu gl-e&ja. mé&ar hennar—vtífa&u þesuim kjc/íd/hgcyft'robtur." Ást er ... .. .að vera límd saman. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved c 1991 Los Angeles Times Syndicate Ég get séð hvað klukkan er í flestum löndum milli Norð- ur- og Suðurpólsins Með morgnnkaffinu Buffið og spæleggið koma eftir 10 mín... v. n Víkveiji skrifar Líklega hafa aldrei fleiri íslend- ingar farið í helgarferðir til útlanda en á þessu hausti. Víkveiji var á Akureyri fyrir helgina og frétti þá að þaðan hefðu farið fimm fullar flugvélar með hópa til Bret- landseyja. Víkveija var tjáð að það væri t.d. litlu dýrara að fara í helga- ferð til Dublin en helgarferð til Reykjavíkur. Fólk þyrfti aðeins að borga 22-23 þúsund krónur og er þá hótelkostanaður í Dublin innifal- in. Mjög ódýrt væri að verzla í Dublin og því margborguðu slíkar ferðir sig fyrir fólk. Enginn vafi leikur á því að mikil verzlun flyst úr landinu þegar fólk flykkist í helgarferðir til útlanda. Þá hlýtur þetta að koma illa við hótel, leikhús og aðila sem standa fyrir skemmtanahaldi í Reykjavík. Víkveiji hefur ekki orðið var við það að kaupmenn hafi reynt að svara þessari samkeppni. Hvað ætli valdi? xxx Ríkisútvarpið hefur staðið fyrir ósvífnum og ósmekklegum auglýsingaherferðum á undanförn- um misserum, sem fyrst og fremst miða að því að auglýsa „ágæti” RÚV á kostnað þeirra miðla sem eru í samkeppni við fyrirtækið. Nýlega hefur birst í Sjónvarpinu óvenju ósmekkleg auglýsing frá RÚV þar sem því er bent til auglýs- enda að henda ekki auglýsingum í ruslið og er um leið sýndar myndir af því þegar dagblöðum er hent í ruslakörfuna. Það vita allir að dagblöðin enda að lokum í ruslakörfunni en það vita líka allir að áður en slíkt ger- ist hafa þau verið rækilega lesin. En auglýsing í útvarpi fer í mörgum tilfellum beint í „ruslið”, því eins og skoðanakannanir segja til um, nær hver einstök stöð sjaldnast meira en 10% hlustun. íslendingar eru sem betur fer nógu skynsamir til að sjá í gegnum svona ómerkileg- ar auglýsingaherferðir. Forráða- menn RÚV ættu að gefa þessu gaum. XXX Borgarstjórinn í Reykjavík og eiginkona hans buðu íslands- meisturum Víkings og bikarmeist- urum Vals í knattspyrnu til hófs í Höfða sl. föstudag. Skemmtu menn sér hið bezta í þessu ágæta hófi. I ræðu sem Jón Zoéga formaður Vals flutti í hófinu sagði hann þessa óvenjulegu sögu: íslendingur var ráðinn í friðargæzlusveitir Samein- uðu þjóðanna. Hann var. sendur út í eyðimörkina þar sem hann fann flösku í sandinum. íslendingurinn opnaði flöskuna og út úr henni kom andi. Andinn sagði við íslendinginn að hann gæti borið fram eina ósk. Islendingurinn tók fram landakort af Mið-Austurlöndum, sýndi andan- um og spurði hvort hann gæti kom- ið þar á friði. Því miður sagði and- inn, þarna hefur verið ófriður í margar aldir og enginn andi getur komið þar á friði. Þvínæst bauð hann íslendingnum að koma með aðra ósk. íslendingurinn hélt nú það, og bað andann að gera KR- inga að íslandsmeisturum í knatt- spyrnu. Kom þá vonleysissvipur á andann og hann sagði: Réttu mér aftur helv. landakortið! HOGNI HKKKKVISI f>'A SKJÍ.DI FÁEIN EFTIR'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.