Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 2
2 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1991 EFNI 1 ^%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\V %\'%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\% %\%\\\%\%\%\%\v\v\%\%\V %\%\\w\%\%\%\%\%\%\%\\ %\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\V %\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\VJ %\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\v %\%\v u u"A' W. S" " ' - •• ÉÍ'íÖí' ’• •• i \\\\\\\\ , » ' 'áö'IÉK'IUÖ Fyrirhugaðar breytingar í Austurstræti með járnpollum sem af- marka akstursleiðina um götuna, bekkjum og gróðurpottum. Fremst við Lækjargötu verður sett upp hlið með veltiskilti og upplýsingum um hvort gatan er opin eða lokuð. ✓ Breytt götumynd í Austurstræti BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu að breytingum í Austur- stræti í tilraunaskyni um 6 mán- aða skeið. Gert er ráð fyrir að gatan verði opnuð fyrir bíla- umferð úr Bankastræti og á framkvæmdum að vera lokið fyrir 1. desember næstkomandi. Áætlaður kostnaður vegna fram- kvæmdanna er um 5 milljónir króna, að sögn Stefáns Hermanns- sonar aðstoðarborgarverkfræð- ings. í götunni verður komið fyrir jámpollum sem afmarka ökuleið bíla auk þess sem götulýsingin verður aukin og bætt. Hlið verður sett upp fremst við Lækjargötu með upplýstu skilti sem segir til um hvort gatan er opin fyrir bí- laumferð, eða ekki. „Hliðið gerir það mögulegt að loka götunni á góðviðrisdögum og jafnvel í jóla- umferðinni þegar fjölmenni er í Austurstræti,” sagði Stefán. Fjórirjáta aðild að íkveikju FJÓRIR menn hafa játað aðild að íkveikjunni í Heiðmörk á mið- vikudag. Þeir hafa verið í haldi lögreglunnar síðan á fimmtudag en líkur voru á að þeim yrði sleppt í gær, laugardag, þar sem málið er að mestu upplýst. Þrír mannana voru handteknir á fimmtudag, og einn á föstudag, grunaðir um að hafa kveikt í húsi Nordmanslaget í Heiðmörk á miðvikudag. Mennirnir þrír voru handteknir þar sem lýsing á bíl þeirra kom heim og saman við lýsingu á bif- reið, sem sást við húsið, skömmu áður en vart varð við eldinn. Skúlagata: Erfitt að hringja til útlanda Eðlilegt að innflytjend- ur borgi fyrir tollskýrslur - segir Indriði H. Þorláksson í fjármála- ráðuneytinu um mótmæli stórkaupmanna „INNFLYTJENDUM er skylt, lögum samkvæmt, að standa skil á upplýsingum um þær vörur, sem þeir flytja inn. Eg tel eðli- legt, að þeir beri eðlilegan kostn- að af þeirri þjónustu, sem þeir fá við innflutninginn. Sums stað- ar erlendis eru tollskýrslur seld- ar í verslunum, en hérna hefur þeim verið dreift, innflyljendum að kostnaðarlausu. Við stefnum að því að innflytjendur greiði sjálfir kostnað við prentun og dreifingu þeirra,” sagði Indriði H. Þorláksson, skrifstofustjóri Bændur selji ekki kálfa með afslætti STJÓRN Landssambands kúa- bænda hefur sent framleiðendum nautgripakjöts bréf þar sem þeir eru hvattir til að selja ekki kálfa til kjötframleiðslu á afsláttar- verði, en eins og greint hefur ver- ið frá í Morgunblaðinu hafa ein- staka sláturleyfishafar lækkað einhliða verð á nautgripakjöti til framleiðenda um allt að 10%. Landssamband kúabænda telur að þar sé um að ræða skýlaust brot á lögum um framleiðslu, verðlagn- ingu og sölu á búvörum. Verðlagning á nautgripakjöti til framleiðenda er samkvæmt búvöru- lögunum ákveðin af sexmannanefnd, og er verðlagsgrundvöllur kúabús nú bundinn til næsta hausts, en fimm- mannanefnd ákveður heildsöluverð í heilum og hálfum skrokkum. Telur Landssamband kúabænda að á með- an ekki hafí verið gerð breyting á skipan þessara mála beri sláturleyfis- höfum að hlýta settum lögum. í bréfi stjórnar LK til framleiðenda eru þeir hvattir „til að bregðast hart við ein- hliða aðgerðum sláturleyfíshafa um lækkun verðs til framleiðenda og öðrum siðlausum aðgerðum og þrýsta á um leiðréttingu mála hver á sínu svæði” eins og orðrétt segir í bréfínu. tekju- og eignadeildar fjármála- ráðuneytisins. Félag íslenskra stórkaupmanna hefur sent fjármálaráðherra bréf, þar sem mótmælt er harðlega hug- myndum um töku gjalds fyrir toll- skýrslur. í bréfínu segir: „Bent skal á að tollskýrslueyðublaðsins er krafist af tollyfirvöldum. Eyðublað- ið er ekki fram komið vegna óska innflytjenda og því er ekki um þjón- ustu við innflytjendur að ræða. Það hefur verið stefna félagsins í tolla- málum að einfalda tollafgreiðslur og fækka smágjöldum, sem eru bæði tafsöm og dýr.” Indriði sagði að við undirbúning fjárlaga hefði verið kannaður sá möguleiki, að menn greiddu fyrir tollskýrslur. „Lögum samkvæmt eiga innflytjendur að standa skil á upplýsingum um innflutninginn,” sagði hann. „Síðan er það tollyfír- valda að setja reglur um í hvaða formi þær upplýsingar eru gefnar. Það er því ekki sjálfgefið að innflytj- endur fái skýrslumar ókeypis. Að auki fá þeir ýmsa aðra þjónustu, til dæmis við frágang skýrslnanna. Þá má nefna, að um þijár af hveij- um fjórum tollskýrslum ónýtast. Þær eru þá kannski notaðar til að gera uppkast að endanlegu skýrsl- unni. Ef menn greiða fyrir skýrsl- umar er líklegt að þeir fari sparleg- ar með þær.” Indriði sagði að hann sæi engin ný rök í málflutningi stórkaup- manna. „Mér finnst eðlilegt að þeir sem aðrir beri eðlilegan kostnað af opinberri þjónustu í þeirra þágu. Við miðum við að gjöldin nægi fyr- ir prentunar- og dreifíngarkostnaði. Þessum gjöldum verður komið á svo fljótt sem auðið er, en það gætu liðið nokkrar vikur þar til gjaldtaka hefst.” SUMIR símnotendur í nýju fjölbýl- ishúsunum á mótum Skúlagötu og Klapparstígs kunna að eiga í erfið- leikum með að hringja beint úr síma sínum til útlanda. Morgun- blaðinu er kunnugt um símnot- anda, sem verður að panta öll símtöl til útlanda í gegnum talsam- band, en þá leggst 35 króna auka- gjald, sem notandinn ber, ofan á hvert símtal. Að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur, blaðafulltrúa Pósts og síma, var gamall koparstrengur með tuttugu línum eina símalögnin, sem var til staðar þegar byijað var að byggja á homi Klapparstígs og Skúlagötu. Svokallaður fjölsími var tengdur við koparstrenginn, sem margfaldar getu hans, en samskipti fjölsímans og gamla strengsins gengu ekki snurðulaust fyrir sig. Hrefna sagði, að umræddur símnotandi væri ekki með númer í stafræna símkerfinu, og þannig stæði á sambandsleysinu við útlönd. Hún sagði að ákveðið hefði verið að leggja nýjan síma- streng ofanjarðar fyrir jól. Karpov hefur vinnings- möguleika gegn Kasparov KARPOV er með hagstæðari bið- skák úr sjöundu umferð Til- burg-skákmótsins gegn heims- meistaranum Kasparov. Staðan í mótinu er sú að Kasparov er efst- ur með 5 vinninga og biðskák. Næstur kemur Anand með 5 vinninga. Karpov er með biskup og tvo riddara gegn hróki og peði heims- meistarans. Þrátt fyrir þennan liðs- mun á heimsmeistarinn jafnteflis- möguleika því ef honum tekst að fóma hróknum fyrir biskupinn er ekki hægt að þvinga fram mát með tveimur riddurum. Úrslit í sjöundu umferðinni sem tefld var á föstudag urðu annars þau að Short vann Kamsky, Anand vann Barejev og Timman vann Kortsnoj. Short hefur nú 4'A vinn- ing, Timman 3‘/2, Kamsky 3, Karpov 2lh og biðskák, Kortsnoj 2 og Barejev 1 'h vinning. Framkvæmdastjóri Verktakasambandsins: Verktakar munu leita til breskra arkitekta í EES ÍSLENSK verktakafyrirtæki munu í vaxandi mæli snúa sér til ír- skra og breskra arkitektastofa verði EES-samningarnir samþykkt- ir, að mati Pálma Kristinssonar, framkvæmdastjóra Verktakasam- bands íslands. Pálmi segir að ástæðan sé ein- faidlega sú að þjónusta þeirra er ódýrari en íslenskra arkitektastofa. yVerkfræðingalaun eni mjög lág á Irlandi, helmingi lægri en í Dan- mörku og augljóslega töluvert lægri en hér. Islenskir arkitektar og verk- fræðingar hafa búið við mjög mikla vernd og það er hlutur sem mun breytast. Reyndar er ákvæði í bygg- ingareglugerð að íslenskur arkitekt í Arkitektafélagi íslands skuli skrifa upp á teikningar bygginganefndar, en þetta mun breytast. Sama gildir um verkfræðinga og tæknifræð- inga. Þarna er um að ræða vinnu sem hægt er að kaupa án þess að flytja vinnuaflið til íslands í mörg- um tilfellum,” sagði Pálmi. Hann sagði að meistarar yrðu einnig varir við breytingar. „Hér er við lýði kerfi sem heitir iðnlög- gjöf, sem er að okkar mati gjörsam- lega úrelt. Með henni eru starfsrétt- indi tryggð og réttindi til vinnunn- ar. Þetta kerfi mun molna niður. Þama munum við merkja mun meiri áhrif en hvað varðar ófaglært vinnuafl,” sagði Pálmi. Hann sagði að allur hvati í sam- keppni leiddi til verðlækkunar á þjónustu og hugsanlega lækkandi byggingarkostnaðar. Sigurreifir ►Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra og Hannes Hafstein, aðalsamningamaður íslands lýsa æsilegu tímahraki lokataflsins í EES-samningaviðræðunum í Lux- emburg/10 Hver kemur sér næst upp kjarnasprengju? ►Margtbendir til þess að Saddam Hussein íraksforseti haldi áfram tilraunum til að koma sér upp kjarnorkusprengju þrátt fyrir refs- iaðgerðir og tilraunir Sameinuðu þjóðanna til að gera áform hans aðengu./14 Milljónir á vogarskál- um viðvaninga ►Á hveiju ári eru nýjarfasteign- ir, og hluti eldri fasteigna, metnar fyrir rúmlega 70 milljarða. Ýmis- legt bendir til þess, að þeir rúm- lega 400 brunabótamenn sem sinna stórum hluta þessara mata, séu ekki hlutverki sínu vaxnir./16 Vil frekar moka skít en bíða dauðans ►Ragnar Guðmundsson bóndi á Nýhóii í Fjallahreppi sóttur heim /19 B HEIMILI/ FASTEIGNIR ► 1-28 Kringlan laðar að ►Könnun á aðdráttarafli Miðbæj- ar Reykjavíkur og Kringlunn- ar./14 C ► 1-28 f Hann mótaði menn ►Sagt frá útskurðarmeistaranum og myndhöggvaranum Ríkharði Jónssyni. /1 Leyndardómar Bibl- íunnar ►Deilurnar um innihald og útgáfu Dauðahafshandritanna, sem fund- ustárið 1947./4 Kaffi úr glasi ► Systurnar Guðný og Gróa á Ketilvöllum í eldhússpjalli /8 Finnsk lágmenning ►Finnsk lágmenning er lítið kynnt á Islandi þó hún standi nær okkur en lágmenning annarra Norður- landa./lO FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 36 Dagbók 8 Manniífsstr. 6c Hugvelqa 9 Minningar Leiðari 20 12c,13c,21c Helgispjall 20 Fjölmiðlar 16c Reykjavíkurbréf 20 Kvikmyndir 18c Myndasögur 22 Dægurtónlist 19c Brids 22 Bíó/dans 22c Stjömuspá 22 A fomum vegi 24c Skák 22 Velvakandi 24c Fólk í fréttum 34 Samsafnið 26c INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4 éM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.