Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 32
- 32 MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMIMA/RAÐ/SMA 'ÖUNNUbAGÚR 27. OKTÓBER 1991 Fréttaveita Suðurnesja Samband sveitarómaga á Suðurnesjum á neyðarfundi. Leiklist Gudrún Þóra Gunnarsdóttir Leikfélag Keflavíkur sýnir í Félagsbíói revíuna Fréttaveitu Suðurnesja.^ Höfundur: Ómar Jóhannsson. Leiksijóri: Andrés Sig-urvinsson. Leikmynd: Smári Sævarsson. Búningar: Hjördís Árnadóttir. Hljómsveitar- og söngstjórn: Veigar Margeirsson. Ljósahönnun: Egill Árnason. Leikfélag Keflavíkur heldur upp á þjjátíu ára afmæli sitt þessa dag- ana með sýningu á revíu um bæjar- lífið á Suðurnesjum. Efnisþráðurinn byggist á staðbundnu efni og má segja að „Fréttaveita^uðurnesja” sé nokkurs konar áramótaskaup þeirra Suðurnesjabúa. Það er skop- ast með ráðamenn og atburði sem sett hafa mark á bæjarlífið suður með sjó. Kosningar og sambúð ■ Á DEGI FRÍMERKISINS 9. október sl. var úthlutað styrkjum úr Frímerkja- og póstsögusjóði. Tilgangur Frímerkja- og póstsögu- sjóðsins er að efla og styrkja störf og rannsóknir á sviði frímerkja- fræða og póstsögu og hvers konar kynningar- og fræðslustarfsemi til örvunar á frímerkjasöfnun, svo sem með bóka- og blaðaútgáfu. Enn- fremur er það hlutverk sjóðsins að styrkja sýningar og minjasöfn sem tengjast frímerkjum og póstsögu. Samtals úthlutaði sjóðurinn á þessu ári styrkjum fyrir 1.250 þús. kr. til ýmissa verkefna. Þessir aðilar fengu styrki: Félag frímerkja- safnara, Reykjavík, til almennrar starfsemi félagsins, sérstaklega til unglingastarfs. Klúbbur Skandin- avíusafnara vegna unglingastarfs og útgáfu á stimplahandbók, Heim- ir Þorleifsson, Reykjavík, vegna rannsóknar á póstsögu íslands í Danmörku, Sigurður H. Þor- steinsson, Laugarhóll, til ritunar greina um frímerkjafræði og póst- sögu, Þjóðskjalasafn Islands til að hefja skipulega könnun á frí- merkja- og póstsögulegu efni í vörslu safnsins. Formaður stjórnar sjóðsins er Halldór S. Kristjáns- son, skrifstofustjóri í samgöngu- ráðuneytinu. bæjarfélaganna á Suðurnesjum bera þar hæst en aðrir atburðir koma þar einnig við sögu svo sem uppsagnir skúringakvenna á Vellin- um og akstur ráðherrabílstjóra. Kjarni verksins er sú ákvörðun SSS, Sambands sveitarómaga á Suðurnesjum, að setja á stofn fréttaveitu sem skal rétta hag Suð- urnesjabúa í fjölmiðlum landsins. Þar sem um frekar staðbundið efni er að ræða getur ókunnugur ekki vænst þess að skilja allt skop- ið og sum atriðin verða því hálf merkingarlaus en hlátur annarra í salnum gefur þó til kynna að höf- undur hafi hitt í mark. Textinn var býsna hnittinn á stundum og laga- textarnir sömuleiðis. Mér fannst þó gæta talsverðs ójafnvægis í atriðum þannig að sum voru dregin talsvert á langinn og reynt að teygja um of úr litlu efni og nefni ég þar golf- atriðið sem dæmi. Þetta er mjög fjölmenn sýning en leikfélagsmenn eru orðnir býsna vanir að fást við söngleiki enda söngur lengi verið eitt af aðals- merkjum Suðurnesjabúa. Það virð- ist sem að nokkur kjarni leikara hafi myndast í Leikfélagi Keflavík- ur og tekur hann þátt í sýningum félagsins ár eftir ár. Það er náttúru- lega forsenda líflegs starfs og leik- ararnir sjálfir fá þá tækifæri til þess að rækta betur hæfileika sína. Margir þeirra eru ungir að árum þannig að leikfélagið _ætti að eiga björt ár framundan. Ég ætla ekki að tíunda frammistöðu hvers og eins en sumir voru meiri leikaraefni en aðrir eins og gerist og gengur. Guðný Kristjánsdóttir söng með miklum ágætum og átti auðvelt með að gæða hlutverk sín lífi. Haf- steinn Gíslason er líflegur og sterk- ur strákur með nauðsynlega leika- raútgeislun. Erna Sigurðardóttir bjó yfir henni sömuleiðis og henni tókst öðrum fremur að nýta sér skopleg tilsvör. Vigdís Jóhannsdótt- ir er sjálfsörugg á sviði, þrátt fyrir ungan aldur, en hún á svolítið ólært með beitingu raddarinnar. Fram- sögnin var reyndar helsti galli margra og orðin komust stundum ekki alla leið út í sal. Aðrir áttu erfitt með að gæða röddina fjöl- breytilegu lífi. Ándrési Sigurvinssyni hefur tek- ist býsna vel að halda utan um all- an hópinn og hann hefur lag á því að koma leikurum haganlega fyrir á sviðinu og láta þá fylla vel út í leikrýmið því leikmynd var afar ein- föld. Leiklausnir eru margar skemmtilegar og hefðbundið leik- form brotið upp með myndum sem varpað er upp á baksviðið og sjón- varpstæki sem er til hliðar við svið- ið. Tónlistin samanstendur af al- þekktum lögum héðan og þaðan og útfærslan á japanska laginu, söng mömmu Halla hílers, var stór- skemmtileg. Þetta var nokkuð löng sýning og hefði að ósekju mátt þjappa henni betur saman og skera af sumum atriðunum. Það vantaði talsvert upp á að keyrslan væri nægileg í þess- ari sýningu og ég hef það á tilfinn- ingunni að á góðu kvöldi gæti hún verið korteri styttri með þéttari og kraftmeiri leik. Blásarakvintett Reykjavíkur Tónlist Jón Ásgeirsson Blásarkvintett Reykjavíkur var stofnaður fyrir tíu árum og hefur með starfsemi sinni unnið sér sess sem einn af bestu samleikshópum hér á landi. Jafnframt því að leika í Sinfóníuhljómsveit íslands, hafa þeir komið reglulega fram og það sem mest er um vert haldið hóp- inn. Það sem sérstaklega hefur einkennt starf þeirra félaga er markviss og vandaður flutningur og hafa þeir, auk þess að leggja sitt af mörkum með flutningi ís- Ienskrar tónlistar, ávallt vandað val viðfangsefna. Þeir sem skipa kvintettinn eru; Bernhard Wilkin- son, Daði Kolbeinsson, Einar Jó- hannesson, Joseph Ognibene og Hafsteinn Guðmundsson en með þeim að þessu sinni Robyn Koh á sembal og píanó. Á tónleikum kvintettsins í Listasafni íslands sl. þriðjudag voru á efnisskránni verk eftir Jean FranQaix, Jacques Ibert, Francis Poulenc og frumfluttur „sextett” eftir Karólínu Eiríksdóttur. Fyrst á efnisskránni var Kvintett nr. 2 eftir Francaix, skemmtilegt og leikandi verk, samið 1987 og er það nær alveg ósnortið af „nýaka- demiskum” hugmyndum um tón- skipan og hljóðfall. Þarna er leik- ið með alvöruna og gamansemina sem andstæður af mikilli leikni, er naut sín mjög vel í frábærum flutningi félaganna. Mutanza — Umröðun heitir verk Karólínu og kveður þar nokk- uð við annan tón en í mörgum fyrri verka hennar, sem oft hafa verið nánast einrödduð að gerð. Mutanza, sextett fyrir blásarak- vintett og sembal, er þéttofið verk og eins og nafnið bendir til, eins konar tilbrigðaverk og þrír kaflar þess í raun samfelldir að efni. í öðrum þætti leikur Karólína með „bordúnbassa” og í seinni hluta hans mátti finna fyrir hljómskipan sem minnti á fornan íslenskan tvísöng. Þetta og háttbundin hrynskipan í þriðja þætti, benda til þess að Karólína sé tekin að leita út fyrir hefðbundnar aðferðir nýrri tónhugmynda. Verkið í heild er ágætlega samið, nokkuð laust í formi en víða fallegt í hljóma, t.d. þar sem leikið er með glitr- andi og flöktandi tón sembalsins, sem mótvægi við ákveðin tón blásturhljóðfæranna. Verkið var fallega leikið og var flutningur þess í heild sannfærandi og víða mjög vel útfærður. Vandaður frumflutningur íslenskra tónverka hefur löngum verið aðalsmerki kvintettsins og á því sviði hafa þeir skilað drjúgu dagsverki. Frönsku tónskáldin Ibert og Poulenc voru merkiiega ósnortin af hugmyndum þeim er upp komu í framhaldi af „modernisma” alda- mótanna. Þeirra andsvar var leik- gleðin og svolítið grín með alvör- una og þar í er í raun fólgin sér- staða þeirra. Þijú smáverk eftir Ibert voru frábærlega vel leikin en aðalviðfangsefni tónleikanna var sextett eftir Poulenc. Með Blásarakvintett Reykjavíkur lék Robyn Koh á píanó. Koh er kraft- mikill píanóleikari og hefur sterka tilfinningu fyrir hryn en beitti sér á stundum um of hvað varðar styrk, svo að að á köflum var flutningurinn við efri styrkleika- mörkin. Kvintettinn eftir Poulenc er mögnuð tónsmíð, á köflum stór- brotin að gerð og var í heild vel leikin. Tíu ára samstarf félaganna í Blásarkvintett Reykjavíkur hefur skilað sér til unnenda góðrar tón- listar og þeir þakka fyrir margar góðar stundir. Undirritaður á þá afmælisósk að færa þeim félög- um, að um langan tíma enn muni hlustendur telja sig eiga brýnt erindi á tónleika þeirra. /singar % FÉLAGSLÍF HELGAFELL 599110287 VI 2 □ GIMLI 599128107 = 1 I.O.O.F. 10 = 17310288'/2 = Dn. □ MÍMIR 59911028 - 1 FRL. I.O.O.F.3 = 17310287 = Rk. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. ------------------------ §Hjálpræðis- herinn y Kirfcjustrætí 2 Samkoma kl. 16.30. Majorarnir Reidun og Káre Morken stjórna. Samkoman verður í stofum gestaheimilisins, Kirkjustræti 2, 1. hæð. Sunnudagaskóli á sama tíma. Mánudag kl. 16.00: Heimilasam- bandsfundur í safnaðarheimili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14. Kristniboðsfélag karla, Reykjavík Fundur verður í Kristniboðssaln- um, Háaleitisbraut 58-60, mánu- dagskvöldið 28. október kl. 20.30. Ragnar Gunnarsson, kristniboði sér um fundarefnið. Allir karlmenn velkomnir. Stjórnin. Frá Sálarrannsókna- félagi íslands Breski miðillinn Zena Davies starfar á vegum félagsins dag- ana 7.-21. nóvember. Hún held- ur skyggnilýsingafund fimmtu- daginn 14. nóvember kl. 20.30 á Sogavegi 69. Uppl. um einkafundi og nám- skeið fást á skrifstofu félagsins í Garðastræti 8, 2. hæð. Opið frá kl. 13.00-17.00. Sími 18130, símsvari utan skrifstofutíma. Stjórnin. ÚTIVIST HALLVEIGARSTlG I • AEYKJAVÍK • SIMI 14606 Dagsferðir sunnud. 27. okt. Reykjavíkurgangan 12. og síðasti afangi: Bláfjallaleið. Gangan hefst við Bláfjöll og lýkur henni i Hljómskálagaröinum. Boðið verður upp á þrjár mis- munandi vegalengdir, 30 km, 20 km og 10 km langar göngur. Kl. 8.30 frá BSl’, gengið frá Rauöu- hnúkum, kl. 10.30 frá BSÍ gang- an hefst efst í Heiðmörk og kl. 13.00 frá BSI gengið frá Árbæj- arsafni. Sjá nánar í laugardags- blaði. Sjáumst! Útivist. Fimirfætur Dansæfing verður í Templara- höllinni v/Eiríksgötu í kvöld 27. okt. kl. 21.00. Allir velkomnir. Upplýsingar í síma 54366. Skipholti 50b, 2. hæð. Almenn samkoma i dag kl. 11.00. Sunnudagaskóli á sama tíma. Allir innilega velkomnir. Námskeið um dýpra bænalíf og að nálgast Guð. Langar þig til að vita hvernig þú getur nálgast Guð á dýpri hátt en fyrr og skynjað nálægð hans og frið? Sé svo, þá býðst þér að taka þátt í kvöldnámskeiði um þetta efni sem haldiö verður í Seltjarnarneskirkju dagana 28.-30. október. Kennari er Joan Nesser, M.A., en hún veitir for- stöðu Christos Prayer Center í Bandarikjunum og er mál hennar túlkað jafnóðum. Kennsla hefst öll kvöldin kl. 20.00. Þátttöku- gjald er kr. 1.500, kaffiveitingar innifaldar. Skráning hjá okkur í síma 27460 og í Seltjarnarnes- kirkju í sima 611550. Vertu hjartanlega velkomin(n). fítmhjólp Almenn samkoma í Þríbúðum í dag kl. 16. Fjölbreytt dagskrá með miklum söng. Barnagæsla. Samhjálparvinir gefa vitnis- burði mánaðarins. Kaffi að lok- inni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S. 11798 19533 Fagnið vetri í sunnudagsferðum 27.október kl. 13.00 1. Vetri heilsaðá Vi'filsfellí (655 m.y.s.). Hressandi fjallganga á eitt af bestu útsýnisfjöllum í ná- grenni höfuðborgarinnar. Farar- stjóri: Jón Viðar Sigurðsson. 2. Eldborgir - Leiti - Jóseps- dalur. Auðveld ganga að falleg- um gígum austan Bláfjalla og til baka um Ólafsskarð og dalinn hans Jóseps smiðs. Fararstjóri: Bolli Kjartansson. Verð kr. l. 000,- í ferðirnar, frítt f. börn m. foreldrum sínum. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin, kl. 13.00. Ferðafélags- ferðirnar eru sivinsælar ferðir, fyrir fólk á öllum aldri. Gerist féagar i Ferðafélaginu; skráning í ferðum og á skrifstofunni Öld- ug. 3, símar: 19533 og 11798. Verið meðl Ferðafélag íslands. KFUM og K Bænastund á morgun, mánu- dag, kl. 18.00 á Holtavegi. Bkfuk T KFUM Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30 i kristniboðssalnum Háa- leitisbraut 58. Upphafsorð: MálfríðurFinnbogadóttir. Ræðu- maður: Ástráður Sigurstein- dórsson. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Völvufelli 11 Sunnudagaskóli kl. 11.00. Allir krakkar hjartanlega velkomnir. Aglow - Reykjavík kristileg samtök kvenna Fundur verður í kaffisal Ásklrkju mánudaginn 29. okt. kl. 20.00. Ræðukona þessa fundar verður Jódís Konráðsdóttir, ritari Aglow. Guðný Einarsdóttir mun einnig syngja þrjá sérsöngva. Kaffiveitingar kosta 300 kr. Allar konur eru velkomnar og eru hvattar til að taka með sér gesti. SAMBAND ISLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Sunnudagur: Samkoma í dag kl. 16.30. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Laugardagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. VEGURINN Kristið samfétag Srniðjuvegi 5, Kóp. Kl. 11.00: Fræðslusamvera. Barnakirkja. Kl. 20.30: Kvöldsamkoma. Lofgjörð. Prédikun orðsins. Fyrirbænir. Fyrirgefning fæst ekki án úthell- ingar blóðs. Verið velkomin. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Sunnudagaskóli kl. 11.00. Allir krakkar hjartanlega velkomnir. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræöumaöur: Hafliði Kristins- son. Skírn. Barnagæsla. Léttur kvöldverður eftir samkomu. Allir hjartanlega velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.