Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉ I. llJIWfei^áuMd6lf!7CfOKTÓBEK -WOT BRÚÐKAUP Mættust á miðri leið Athyglisvert brúðkaup var haid- ið hér á landi fyrir skömmu. Þá voru pússuð saman í Viðeyjar- kirkju Martin og Carina Christ- iansen. Martin er Kanadamaður en Carina er Svíi. Því er það nokk- uð óvenjulegt að athöfnin skuli hafa farið fram í Viðey og á ís- landi yfirleitt. Það má rekja til þess, að þau Martin og Carina vildu mætast á miðri leið ef svo mætti að orði komast. Má reikna með farsælu hjónabandi takist málamiðlunin ævinlega jafn vel og í þessu tilviki. Þess má geta, að það var séra Pálmi Matthíasson sem gaf fólkið saman í þessu al- þjóðlega brúðkaupi. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Herra og frú Christiansen í dyrum Viðeyjarkirkju ásamt börnum sínum tveimur og séra Pálma. BRÉFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. % z Múlalundur SÍMI: 62 84 50 Kjólar, draktir, brúóarkjólar, brúóarslör, brúðarskór, náttkjólasett, samkvœmisjakkar, samkvœmistóskur, skartgripakassar. Gottskálk og María í hlutverkum hinna ungu elskenda. KVIKMYNDIR Hvíti víkmgurmn fullbúiim Hrafn Gunnlaugsson og lið hans hefur nú lokið gerð kvikmyndarinnar „Hvíti víking- urinn” sem hefur verið í vinnslu í þijú ár og náð 420 milljónum króna í heildarkostnaði. Afrakst- urinn er 130 mínútna kvikmynd sem frumsýnd verður í Háskóla- bíói föstudaginn 1. nóvember klukkan 18. Viku síðar verður myndin sýnd víða í Noregi, en einnig má geta, að fjórir sjón- varpsþættir, alls 300 mínútur hafa einnig verið fullgerðir og verða þeir sýndir á næsta ári. Sagt er um Hvíta víkinginn, að hann sé stórbrotin saga um ástir, valdafíkn og ástríður. Þetta sé saga um Ask og Emblu sem uxu úr grasi á þeim tímum sem kóng- ar börðust um völdin og ásatrú víkingana tókst á við kristindóm- inn á vígvellinum. Sagan hefst á höfðingjasetri í Noregi árið 999 er Embla er gefin hinum íslenska Aski að ævafomum sið launhelga. Ólafur konungur Tryggvason ber þar þó fljótt að gerði í landvinn- ingum og hann tekur Emblu í gíslingu og segir Aski að hann sjái ekki aftur konu sína fyir en hann hafi kristnað ísland. Á því eru vankantar, íslendingar hæða og spotta alla trúboða kristin- dómsins og Askur er staðfastur í trúnni á ása. Og Ólafur konungur laðast æ meir að gísl sínum, Emblu. Söguhetjurnar eru peð á tafl- borði konungs og fyrir þeim liggja þungar þrautir og þeim virðist ætlað að svikja ást sína, hefðir og trú. Hrafn Gunnlaugsson segir þó að Askur og Embla séu nógu óreynd til að halda og trúa að allt sé mögulegt og sagan fjalli einmitt um það, trú, von og kær- ieik. Hrafn segir enn fremur, að hann hafi valið komunga og óreynda leikara í aðalhlutverkin, Gottskálk Dag Sigurðarson og hina norsku Mariu Bonnevie, vegna þess að þeir hafi „eitthvað við sig sem flestir hafi glatað um tvítugt, tryllta glóð í augum, dulúðugt yfírbragð. Þeir eru nægi- lega óreyndir til að halda að allt sé mögulegt...” STJORNU Beint flug og gisting í október og nóvember, 4ra og 5 daga helgarferðir; ein nótt án endurgjalds á hinu frábæra Hótel Imperial í hjarta borgarinnar. Verð frá 33-090 kr.* . Gerðu þér dagamun með Danskinum. Það borgar sig og þegar þú hefur fengið endurgreiddan söluskattinn á Kastrup bíður ný Flugleiðaþota eftir þér við landganginn og flytur þig heim með góðar minningar í farteskinu. BORGIR! Kaupmannahöfn fterðu eina nótt frta f r flugleidirJS^^ ævin llr þar sem Upplifðu helgar- ævintýri í Kaupmannahöfn sem dönsk jólastemning er smám saman að færast yfir mann- lífið. Dönsku sælkeraborðin bíða eftir þér og ljósin glitra í gluggum stórverslana (opið á laugard. frá 9-13 og fyrsta laugard. í mánuði frá 9-17). Hafðu samband við þína ferðaskrif- stofu, söluskrifstofur okkar og umboðs- menn um allt land eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar). ce: I *verö á manninn (ivfbýli m.v. staðgr. og gengi 13.9.1991: flugvaliarskaUur og forfallagjald (alls 2.350 kr.) ekki innifalifi. Miðafl við afl ferðin sé á tfmabilinu frá fiminludegi m þrirtjudugs, .1 cða 4 nælur. KVIKMYNDIR Ætlar að sýna íslenskar kvikmyndir í Kanada Fyrir skömmu voru staddir hér á landi nokkrir vel metnir Vestur íslendingar, meðal þeirra Bob Ásgeirsson frá Vancouver. Bob er kvikmyndagerðarmaður og meðal þess sem hann var að at- huga hér á landi var möguleikinn að flytja út íslenskar kvikmyndir til sýningar Vestur íslendingum í kvikmyndahúsi litlu sem hann hef- ur aðstöðu í. Hermt er að honum hafi orðið vel ágengt að þessu leyti og að áhugi á íslenskum kvik- myndum í Kanada sé mikill meðal Vestur íslendinga. Einnig vpru stödd hér á landi Maijorie Ámason, fyrrverandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.