Morgunblaðið - 29.10.1991, Síða 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
246. tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kosningarnar í
Póllandi:
Hverf-
umekki
fráum-
bótum
- segirWalesa
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa, forseti Pól-
lands, sagði í gær að stefnt
yrði áfram að efnahagsleg-
um umbótum i landinu þrátt
fyrir að komið hefði fram
mikil óánægja á meðal al-
mennings vegna versnandi
lífskjara undanfarin ár í
kosningunum á sunnudag.
Walesa sagði að óstöðugleiki
blasti við í pólskum stjórnmál-
um þar sem þingsætin skiptust
á of marga flokka. Hann kvaðst
þó staðráðinn í að reyna að
miðla málum og beita sér fyrir
því að stjórnmálaöflin, sem
tengjast Samstöðu, mynduðu
„bandalag um áframhaldandi
umbætur”. Forsetinn kvaðst
ætla að tilnefna nýjan forsætis-
ráðherra í stað Jans Krzysztofs
Bieleckis um leið og endanleg
úrslit kosninganna liggja fyrir
síðar í vikunni.
Tölvuspár bentu til þess að
Lýðræðissamband Tadeusz
Mazowieckis, fyrrverandi for-
sætisráðherra, yrði stærsti
flokkurinn, með 14,5% at-
kvæða.
Sjá „Urslitin eru reiðar-
slag ...” á bls. 27.
Morgunblaðið/Þorkell Morgunblaðið/Þorkell
Stefán Esjarsson á heimili sínu í gær ásamt foreldrum sínum, Esjari Snorri Einarsson skömmu eftir að hann fékk að fara heim af
Stefánssyni og Elmu Þórarinsdóttur og systur, Jóhönnu Esjarsdóttur. heilsugæslustöðinni í gær. Með honum á myndinni eru systur
hans, Eydís og Guðrún.
Fimm piltar björguðust er skólaskipinu Mími hvolfdi við Homafjörð:
Börðust í brímgarðinum
í um hálfa klukkustund
Annar skipverjanna fórst en hins er saknað
EINN maður fórst og annars er leitað eftir að skólaskipinu
Mími RE 3 hvolfdi við Hornarfjarðarós um kl. 13.30 í gær-
dag. Þeir voru báðir skipveijar á Mími. Fimm fimmtán ára
drengjum tókst að bjarga sér til lands eftir að hafa verið lokað-
ir inni í bátnum í um tíu mínútur. Voru þeir á sjóvinnunám-
skeiði á bátnum ásamt skipverjunum tveimur. Drengirnir
fengu allir að fara heim eftir læknisskoðun en einn þeirra
var þó skorinn í andliti og marinn og annar illa marinn á
fæti. Þeir voru mjög þrekaðir og kaldir og miður sín eftir
þessa þrekraun. Lík annars mannsins fannst rekið á Austur-
fjörutanga skömmu eftir að björgunarsveitarmenn komu á
vettvang.
Morgunblaðið/Þorkell
Haukur Margeir Hauksson í faðmi fjölskyldu sinnar í gærkvöldi, Zophaníasar Torfasonar og Guðrúnar
Ingólfsdóttur og systkinanna Vals og Ingibjargar.
Bátnum hvolfdi þegar alda reið
yfir hann og lokuðust þá drengirn-
ir allir og annar skipveijinn inni í
bátnum. „Eg stóð á dekki og kast-
aðist inn í stýrishúsið og klemmdi
annan fótinn í gættinni. Við vorum
inni í bátnum talsverðan tíma, og
áttum von á að hann myndi sökkva.
Það var mikill sjór og kuldi í bátn-
um og við vorum alltaf að reka
okkur í og fá rafmagnsstuð,” sagði
Snorri Einarsson, einn drengjanna,
í samtali við Morgunblaðið.
„Við fundum síðan að báturinn
rétti sig aðeins við og þá sáum við
ljósglætu úr einum glugganum.
Eg beið í smástund, opnaði svo
glugga og fór út og hinir á eftir,”
sagði Stefán Rósar Esjarsson.
Þeim tókst að losa björgunarbát
en misstu hann aftur og urðu að
synda til lands. Sagðist Stefán telja
að það hafi tekið þá um hálftíma
að beijast í gegnum brimgarðinn.
Haukur Margeir Hauksson, einn
drengjanna, sem eru allir frá Höfn,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að skipstjóri Mímis hefði horfið
sjónum þeirra þegar bátnum
hvolfdi en hinn skipveijinn hefði
verið inni í bátnum ásamt drengj-
unum. Snorri Einarsson sagði að
skipveijinn hefði róað 'þá og séð
til þéss að þeir héldu stillingu sinni
á meðan þeir höfðust við inni í
bátnum, sem þá var orðinn hálffull-
ur af sjó. „Við reyndum að skipu-
leggja þetta eins og við gátum.
Sjórinn náði okkur í mitti. Það var
mikill vindur og bræla þegar þetta
gerðist og við vorum næstum
drukknaðir í ölduganginum þegar
við vorum að reyna að komast í
land,” sagði Haukur.
Hinir piltarnir tveir, sem björ-
guðust, heita Óskar Sigurðsson og
Guðni Valþórsson.
Björgunarsveitinni barst
hjálparbeiðni um kl. 13.45. Tveir
bátar frá Höfn, Steinunn SF 10
og Erlingur SF 65 voru skammt
frá slysstað. Menn á bátum voru
þegar sendir út á Austurijörutang-
ann og björgunarsveitarmenn
ásamt lækni fóru einnig á staðinn
á bílum. Auk þess var hafin leit
með flugvélum og var þyrla Land-
helgisgæslunnar einnig komin til
leitar kl. 16.50. Bátinn rak svo að
landi á móts við Þinganessker
skömmu eftir að drengirnir höfðu
komist að landi. Talið er að liðið
hafi 45 mín. áður en drengimir
fimm komust undir hendur læknis
og björgunarsveitarmanna. Voru
þeir fluttir í sjúkraskýli sem er
skammt frá og voru þrír þeirra
fluttir með bát til lands en tveir
með sjúkrabifreið, var annar þeirra
þá orðinn mjög máttfarinn.
Sjá einnig frétt á baksíðu og
viðtöl við piltana á bls. 55.
Júgóslavía:
ÉBhót-
ar refs-
ingum
Brusscl. Reuter.
Utanríkisráðherrar Evr-
ópubandalagsins (EB) hótuðu
í gær að beita viðskipta-
þvingunum gegn þeim lýð-
veldum Júgóslavíu sem ekki
hefðu samþykkt friðaráætl-
un EB fyrir 5. nóvember nk.
Samkvæmt áætluninni er
gert ráð fyrir að lýðveldin
myndi með sér laustengdara
samband en verið hefur. Fyrir
fund ráðherranna hvöttu Belg-
ar til efnahagslegra refsiað-
gerða gegn Serbum.
Sjá einnig kort á bls. 27.