Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTOBER 1991
Skútan Nakki kom til Eyja í gærkvöldi:
Vélarvana, ljóslaus og
með slitrur af segli uppi
Vestmaimaevium.
Vestmaimaeyjum.
„ÉG hef verið á sjó alla ævi, byrjaði fyrst 4 ára, núna veit ég fyrst
hvernig alvöru brotsjóir líta út. Ég hélt mér dauðahaldi í bómuna
þegar brotin gengu yfir, allt var á svarta kafi og skútan full af
sjó. Ég var í þrjá daga í fellihylnum, stormseglið rifnaði í druslur
og það eina sem stóð eftir var vírinn sem stóð í köntunum á því,”
sagði Bergþór Hávarðsson á skútunni Nakka sem kom til Vest-
mannaeyja rétt eftir miðnætti sl. nótt eftir tveggja mánaða sigl-
ing^u frá Palm Beach til Islands. Skipverjar á Katrínu VE sáu neyð-
arblys er þeir voru á veiðum 12 sjómílur sunnan við Surtsey um
klukkan hálfátta í gærkvöldi og reyndist það vera frá Nakka.
Skútan hafði þá verið í hafi frá því 29. ágúst er hún lagði af stað
frá Palm Beach á Flórída, áleiðis til íslands. Bergþór Hávarðsson
var einn á Nakka
„Ég lagði af stað 29. ágúst í
lygnu frá West Palm Beach og
sigldi fyrir vélarafli. Fljótlega lenti
ég í óhagstæðum vindi á móti golf-
straumnum og var þrjár vikur að
dóla á Flórídaflóa. Þegar ég var
kominn 200 mílur út á haf, 4.
október, lenti ég í hreinum felli-
byl, eitthvað það svakalegasta sem
ég hef lent í. Þá missti ég seglin
og toppurinn á húsinu rifnaði en
ég batt hann niður með segli,”
sagði Bergþór. 15. þessa mánaðar
sá hann danskt flutningaskip og
skaut hann upp neyðarblysi. Hann
sagðist mest hafa vantað eldspýt-
ur, allt hefði verið orðið blautt um
borð og ekkert að borða nema
þurrmeti sem hann þurfti helst að
sjóða. „Flugeldamir lentu næstum
á dekki skipsins en þeir tóku ekki
eftir mér. Mér tókst að bjarga mér
síðar við litla vindrafstöð, sem ég
gat hlaðið af inn á geymi og tókst
mér að kveikja í bensíni með geym-
inum til að elda og hita upp.”
Hann sagðist hafa haft nóg af
vatni, en það hefði verið orðið dálít-
ið salt.
„Við vorum að toga 12 mílur
suður af Surtinum er ég sá neyðar-
blys á lofti fyrir innan okkur,”
sagði Gísli Sigmarsson, skipstjóri
á Katrínu VE, er Morgunblaðið
ræddi við hann um klukkan tíu í
gærkvöldi. Hann var þá staddur
11 mílur suður af Eyjum og fylgdi
Nakka, en skömmu síðar tók hann
skútuna, sem er 36 feta löng, í tog
þar sem veður fór versnandi.
„Ég lét Vestmannaeyjaradíó
strax vita og þeir kölluðu eftir
nærstöddum bátum. Brúarfoss var
hérna rétt hjá okkur og eins var
þyrla gæslunnar stödd við Eyjar
og hófu þeir strax leit ásamt okk-
ur. Brúarfoss fann svo Nakka
Ljósmynd/Kristján Jónsson
Nakki í skímunni frá TF-Sif, þyrlu Landhelgisgæslunnar, í gærkvöldi. Á leiðinni til landsins barð-
ist Bergþór Hávarðsson í þijá daga í fellibyl. Eftir að hann skaut upp neyðarblysi í gærkvöldi
komu Brúarfoss og Katrín VE fyótlega á vettvang.
skömmu seinna. Við ákváðum að
fylgja skútunni til hafnar í Eyjum.
Ég talaði við Bergþór, við urðum
að kallast á milli því það eru öll
tæki óvirk hjá honum. Hann er
búinn að fá alveg vitlaus veður á
leiðinni. Hreina fellibylji og hann
sagðist vera búinn að vera blautur
í 20 daga. Lúgan brotnaði af
' skellettinu og bátinn fyllti hjá hon-
um. Hann var í þrjá daga að þurrka
bátinn eftir það og hefur verið
vélarvana, ljóslaus og bara með
eitt segl uppi. Hann lét þó vel af
sér og sagðist hafa það ágætt en
hann hlýtur að vera orðinn þreytt-
ur eftir þetta volk, maðurinn,”
sagði Gísli.
Á síðasta seglinu
Hávarður Bergþórsson, faðir
Bergþórs, lék á als oddi þegar
Morgunblaðið ræddi við hann seint
í gærkvöldi. „Ég var aldrei í nein-
um vafa, það hef ég alltaf sagt
ykkur. Þetta hefur verið rosaleg
þrekraun, hann var á siitrunum
af síðasta seglinu. Þó hafði hann
sex varasegl með,” sagði Hávarð-
ur.
Hávarður sagði að Geir Björg-
vinsson, berdreyminn frændi
þeirra feðga í Reykjavík, hefði
hringt í hann sl. fimmtudag og
sagt að hann hefði dreymt Berg-
þór. Það hefði legið vel á Bergþóri
og hann sagt að hann myndi taka
land 29. október. Geir kvaðst hafa
séð í draumnum að Bergþór átti
ófarnar 200 sjómílur að landi.
Ferðalag Bergþórs hófst fyrir
tveimur árum er hann sigldi á
minni skútu frá íslandi til írlands.
Þaðan sigldi hann til Asoreyja, síð-
an til Kanaríeyja og St. Mart-
inique. Þar stoppaði hann í eitt ár
og vann sem logsuðumaður. Á St.
Martinique keypti hann Nakka og
sigldi henni til Flórída þaðan sem
hann hélt svo til íslands.
— Grímur
Fjölgnn frystískipanna heft
með lögum um aukna nýtíngu
Sjávarútvegsráðherra stefnir að lagasetningu fyrir áramót
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA hefur nú ákveðið að stemma stigu
við fjölgun frystitogara og annarra vinnsluskipa. Ákveðið hefur
verið að leggja fram sérstakt frumvarp til laga á Alþingi í þessu
skyni, en tilgangur þess er að „tryggja að í hóp þeirra skipa, sem
stunda fullvinnslu um borð, bætist ekki önnur skip en þau, sem
hvað stærð og búnað snertir eru fær um að fullnægja eðlilegum
kröfum til nýtingar, vörugæða og vinnuaðstöðu,” eins og Þorsteinn
Pálsson sagði í ræðu við setningu Fiskiþings í gær. Nú flaka og
frysta um 25 togarar aflann um borð auk þess sem saltfiskvinnsla
um borð í skipum færist í vöxt.
Þorsteinn sagði í ræðu sinni, að
þessi þróun væri mjög eðlileg út frá
því sjónarmiði að gott verð hefur
fengizt fyrir afurðirnar og afkoma
að jafnaði verið betri hjá þessum
skipum en öðrum. Hann gat þess,
Barn varð fyr-
ir bíl og höfuð-
kúpubrotnaði
FIMM ára drengur var talinn
höfuðkúpubrotinn eftir að hafa
orðið fyrir bíl á Álfaskeiði í Hafn-
arfirði á laugardag.
Drengurinn var að leika sér við
jafnaldra sinn við götuna. Skyndi-
lega hlupu þeir út á götuna og varð
þá annar fyrir aðvífandi bfl.
að ekki hefðu af hálfu hins opin-
bera verið lagðar hömlur á fjölgun
þessara skipa enda þótt áhrifin á
hefðbundna botnfiskvinnslu í landi
hefðu verið áhyggjuefni.
„Samkvæmt frumvarpinu mun
þurfa sérstakt leyfi til að stunda
fullvinnslu um borð í veiðiskipi.
Ætlunin með því að leyfisbinda
vinnsluna er ekki sú að taka upp
neins konar skömmtunarstarfsemi
af hálfu hins opinbera, heldur að
skapa grundvöll undir að gerðar séu
almennar og sanngjarnar kröfur til
þeirra, sem ætla að hefja slíka
vinnslu. Allir, sem slíkum almenn-
um kröfum geta fullnægt, munu
hins vegar fá tilskilin vinnsluleyfi.
Kröfurnar lúta að því að um borð
sé aðstaða til að vinna og geyma
allan þann fisk, sem um borð kem-
ur, svo og alla þá fiskhluta og fisk-
úrgang, sem unnt er að vinna á
arðbæran hátt miðað við vinnslu-
tækni og markaðsaðstæður á hveij-
um tíma. Samkvæmt því myndi
strax í upphafi gerð krafa til þess
að ný vinnsluskip hefðu vélbúnað
er tryggði hámarks flakanýtingu
og að afskurður allur verði nýttur,
sem og hin svonefndu fés. Að því
hlýtur að verða stefnt að krafa verði
gerð til þess að allur úrgangur verði
nýttur til meltu eða mjölvinnslu en
það er sérstakt athugunarefni
hversu hratt verður gengið í það
mál,” sagði Þorsteinn.
Að auki verður þess krafizt að
fyrir hendi sé fullnægjandi aðstaða
fyrir móttöku, geymslu, vinnslu og
frágang afla til að gæði framleiðsl-
unnar verði tryggð. Meðal annars
verða gerða kröfur til kælingar,
stærðar og fjölda blóðgunarkara í
móttöku.
Stefnt er að því að frumvarpið
verði kynnt í ríkisstjórn í þessari
viku og afgreitt sem lög frá Alþingi
fyrir áramót. Ráðherra segir þó að
óhjákvæmiiegt verði að veita aðlög-
unartíma fyrir þau frystiskip, sem
þegar eru fyrir í fiotanum, og hugs-
anlega varanlegar undanþágur frá
einhveijum þessara reglna. í raun
munu þessar breyttu kröfur þýða
stækkun frystiskipanna frá því, sem
nú er. Að öðrum kosti verður ekki
hægt að uppfylla þær.
Sjá ennfremur miðopnu.
Tillögumar fela m.a. í sér að
réttur karla og kvenna til makalíf-
eyris verði jafnaður en hingað til
hafa karlar ekki staðið jafnfætis
konum hvað þetta snertir. Hins
vegar miðast uppreikningur rétt-
inda við 67 ára aldur en miðaðist
áður við 70 ára aldur, margföldun-
arstuðull sem var 1 verður 0,9 eins
og hann var fyrir nokkrum árum
og makalífeyrir þeirra sem eru á
aldursbilinu 35—55 ára er skertur
nema börn eða unglingar yngri en
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Tómas með tófuna og rjúpurnar
19.
Fékk 19 íjúp-
ur og eina tófu
Bíldudal.
TÓMAS Árdal, refa- og rjúpna-
skytta, fór á ijúpnaveiðar uni
síðustu helgi. Það væri ekki í
frásögur færandi, nema að Tóm-
as skaut tófu í ferðinni ásamt 19
ijúpum.
Að sögn Tómasar skaut hann
tófuna á löngu færi með íjúpna-
skoti nr. 5. Tómas var í sinni fjórðu
ijúpnaferð og er kominn með 80
ijúpur. Tófan er líklega veturgömul
og er grá á lit. „Ég ætla að flá
þessa, því hún er nokkuð góð í feld-
inum,” sagði Tómas, en hann hefur
flegið margar tófur síðustu ár. Á
veturna rekur hann refaslóðir og
hefur fengið mest sex tófur.
Rjúpnaveiðin hefur gengið vel hjá
Tómasi, en tíðarfarið er búið að
vera slæmt undanfarnar vikur og
ekki ákjósanlegt til ijallaferða í leit
að íjúpu.
R. Schmidt
Þunguð kona
og barn henn-
ar slösuðust
ÞUNGUÐ kona og þriggja ára
sonur hennar slösuðust alvarlega
í hörðum árekstri á Vesturlands-
vegi við Blikastaði siðdegis á
sunnudag. Ökumaður bíls sem
var á Ieið frá Reykjavík missti
vald á bU sínum, vegna bleytu
að því er talið er, þannig að hann
fór yfir á gagnstæðan vegar-
helming og á Lada-bíl mægðin-
anna.
Áreksturinn var geysiharður.
Konan höfuðkúpubrotnaði og
brotnaði um hné og ökkla, auk þess
sem hún marðist og skarst. Sonur
hennar, sem sat í barnabílstól í aft-
ursæti, var talinn kjálka- og við-
beinsbrotinn. Ökumanninn úr hin-
um bílnum sakaði ekki að ráði, en
hann meiddist eitthvað á fæti, að
sögn lögreglu.
I gær var konan ekki talin í lífs-
hættu, að sögn lögreglu.
19 ára séu á framfæri bótaþega.
Aðalfundurinn ákvað einnig að
tengja hækkun grundvallarlauna
við hækkun lánskjaravísitölu og
tekur breytingin gildi um áramót.
Þar sem eignir sjóðanna eru að
mestu tryggðar með lánskjaravísi-
tölu þykir þetta eðlilegri viðmiðun
en tenging við launabreytingar.
Á aðalfundinum var Benedikt
Davíðsson kjörinn formaður SAL í
Stað Gunnars J. Friðrikssonar.
Aðalfundur SAL:
Breytingar á makalíf-
eyri ekki samþykktar
AÐALFUNDUR Sambands almennra lífeyrissjóða sem haldinn var
í gær samþykkti ekki tillögur framkvæmdastjórnar um breytingu á
útreikningi makalífeyris, sem talið er að feli í sér 4-5% minnkun á
skuldbindingum lífeyrissjóðanna. Fundurinn fól hins vegar fram-
kvæmdastjórn að kynna Iífeyrissjóðunum tillögurnar betur og þær
síðan teknar til afgreiðslu á sambandsstjórnarfundi sem væntanlega
verður haldinn á vori komanda.