Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 15

Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGU^ ORTÓBUR 1991 I Táknmál, móðurmál heymarlausra „Það er baráttumál allra heyrnarlausra o g ætti einnig að vera bar- áttumál allra foreldra að fá viðurkenningu á táknmáli sem móður- máli heyrnarlausra.” •• eftir Onnu Jónu Lárusdóttur Mig langar til að segja ykkur frá ungum hjónum, sem voru svo lánsöm að eignast bam, sannkall- aða gjöf frá Guði. Barnið fæðist heilbrigt, hjónakornunum til mikill- ar gleði. Nokkrum mánuðum seinna kemur það aftur á móti í ljós að barnið þeirra er ekki alveg eins og önnur böm. Bamið þeirra er nefnilega heymarlaust. Þssi uppgötvun er mikið áfall fyrir ungu hjónin. Þau vilja aðeins það besta fyrir barnið, en gera sér jafnframt grein fyrir því að mikil vinna er framundan. Þó barnið heyri ekki rödd foreldranna, fínnur það ástúð- ina sem skín úr augum og lát- bragði þeirra. Foreldrunum lærist að skilja að bamið verður ekki fatlað á heimil- inu ef þau læra táknmál. Það elst upp í miklu öryggi og fljótlega getur bamið haft samskipti við foreldra sína á táknmáli. Foreldr- arnir em stoltir af barninu sínu og ausa ekki yfir það vorkunnsemi þó það sé heyrnarlaust. Bamið verður smátt og smátt sjálfstæður einstaklingur með traust á sjálfum sér, vegna hamingjunnar og ör- yggisins sem það fann í uppeldinu. Óþarfa áhyggjur, vorkunnsemi og óhamingja hjá foreldrunum hefðu getað valdið því að barnið yrði að óömggum, ósjálfstæðum einstakl- ingi með skerta sjálfsmynd. Þó að bam sé heymarlaust má ekki færa því allt upp í hendurn- ar, heldur á einmitt að hjálpa barn- inu til að skilja að heymarlausir geta allt nema heyrt. Foreldrar sem nota táknmál við heymarlaus börn tjá sig með öllum líkamanum, látbragði og höndum, líkt og heyr- andi böm tjá sig með hljóði. Þegar barnið er orðið að full- orðnum einstaklingi getur sá ein- staklingur verið mjög stoltur, því foreldrarnir hafa gefið honum mik- inn stuðning. Þó að hann heyri ekki getur hann tjáð sig og haft samskipti við alla, því hann kann tvö mál. Þegar bamið er orðið 6 ára gam- alt er það tilbúið til að fara í Heyrn- leysingjaskólann. Það hefur alist upp við ást og öryggi hjá foreldrun- um og verður nú líka að fá öryggi hjá skólanum. Nú er það einnig hlutverk kennaranna að gefa bam- inu ást og hamingju. Ef barnið er ánægt í skólanum verða foreldr- amir líka ánægðir. Nauðsynlegt er að viðhorf foreldranna til skól- ans og skólans til foreldranna séu jákvæð, því það myndar góðan stuðning og gott andrúmsloft fyrir bamið. Skólinn og foreldrar verða að vinna vel saman. Ef kennara fínnst bamið van- megnugt og gerir allt fyrir það í skólanum er mikil hætta á að barn- ið verði óömggt og að það hafí lélega sjálfsmynd. Það verður að gera eðlilegar kröfur til heymar- lausra bama eins og heyrandi barna. Skólinn verður að kenna börnunum að þau geti gert allt sem þau langar til að gera svo að þau öðlist traust á sjálfum sér og sjálf- stæði og þori að leita eftir frekari menntun í framtíðinni. Ef skóli og heimili styðja bæði við bakið á baminu em minni líkur á að barn- ið eigi við vandamál að stríða. Gott andrúmsloft í skóla og heima fyrir stuðlar að mótun heilbrigðs einstaklings. En svo em auðvitað til heymar- laus hjón sem eignast heyrandi barn. Það er líka mikil vinna og þessi hjón verða líka að hugsa um hvað sé þeirra barni fyrir bestu. Þau verða að gefa barninu ást og öryggi. Yfirleitt alast þessi börn upp altalandi á tvö tungumál. Eitt Balti hf., Ármúla 1f sími 91-812555 Acrotech 386 25 MHz. 89Mb harður diskur, 4Mb vinnsluminni, Super VGA litaskjár, 1,44Mb og 1,2Mb disklingadrif og MS-DOS 5.0 Verð kr: 149,998.- Já okkur tókst það. Acrotech tölvurnar eru fullbúnar alvöru tölvur á verði sem er sennilega það lægsta á markaðnum. Dæmi um verð. sffiBiESSSSi Acrotech 386SX 20 MHz. 44Mb harður diskur, 2Mb vinnsluminni, Super VGA litaskjár, 1,44Mb og 1,2Mb disklingadrif og MS-DOS 5.0 Verð: kr 119,500.- 89Mb harður diskur, 4Mb vinnsluminni, Super VGA litaskjár, 1,44Mb og 1,2Mb disklingadrif og MS-DOS 5.0 Verð kr: 179,900.- 125Mb harður diskur, 4Mb vinnsluminni, Super VGA litaskjár, 1,44Mb og 1,2Mb disklingadrif og MS-DOS 5.0 Verð kr: 241,640.- tungumálið nota þau við mömmu og pabba og hitt við kunningjana og ömmu og afa. Bamið ber líka virðingu fyrir báðum tungumálun- um. Ómmur og afar, ásamt öðrum ættingjum verða að gæta þess að viðhalda virðingu barnsins fyrir táknmáli, annars gæti það farið svo að barnið skammaðist sín að tala við sína eigin foreldra. Að- stæðurnar eru eins og hjá hjónum af tveimur þjóðernum, þar sem annað foreldrið er íslenskt og hitt erlent. Bamið elst upp tvítyngt og ber jafna virðingu fyrir tungumál- um foreldranna. Aftur á móti mega heymarlausir foreldrar ekki gleyma að bamið vill kannski hlusta á útvarpið, fara í tónlistar- skóla og eiga jöfn tækifæri á við vini sína. Hvort sem heyrandi foreldrar eignast heyrnarlaus böm eða heyrnarlausir foreldrar eignist heyrandi börn verður að veita barninu ást og öryggi í uppeldinu. Styðja verður við bakið á þeim og gera þeim kleift að öðlast góða Anna Jóna Lárusdóttir menntun og jöfn tækifæri í lífinu. Það er baráttumál allra heymar- lausra og ætti einnig að vera bar- áttumál allra foreldra að fá viður- kenningu á táknmáli sem móður- máli heyrnarlausra. Á þessu ári hefur mikill árangur náðst í bar- áttu heyrnarlausra, við höfum fengið Samskiptamiðstöð, text- asímamiðstöð og barnaheimili fyrir heyrnarlaus börn. Næst á dagskrá er að fá viðurkenningu á táknmáli sem móðurmáli heyrnariausra. Höfundur er formaður Félags heyrnarlausra. Acrotech 486 33 MHz. Acrotech 386 33 MHz.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.