Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 17

Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991 17 bendir allt til að konum í störfum sem krefjast sérfræðiþekkingar og eru jafnframt stjórnunar- eða ábyrgðarstöður hafí fjölgað. Hvort það er árangur jafnréttisáætlana eða eðlileg þróun skal ósagt látið. Uttekt sem Jafnréttisráð gerði fyr- ir tveimur árum sýndi fram á auk- inn hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum hjá opinberum stofnunum. Sú þróun var skýrð með aukinni menntun kvenna. Þó svo að endanlegar upplýs- ingar liggi ekki fyrir er ljóst að þau ráðuneyti sem settu sér það markmið að auka hlut kvenna í nefndum og ráðum og tilgreindu leiðir til að ná því markmiði hafa náð árangri umfram önnur. Þær leiðir voru einkum tvær, annars vegar svo kölluð tilnefningarleið og hins vegar að minna tilnefning- araðila á ákvæði 12. greinar laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Sem dæmi um slíkan árangur má nefna nefndir á vegum landbúnaðarráðuneytisins en þar hefur hlutur kvenna aukist töluvert eða úr 3,8% í 10,2% á árunum 1988-1990. Að lokum Forráðamenn alltof margra op- inberra stofnana hafa ekki séð sér fært að fylgja samþykktum jafn- réttisáætlunum eftir með mark- vissum hætti. Þetta kemur berlega í ljós á viðbrögðum við beiðni Jafn- réttisráðs um mat á stöðu mála. Þá skiptir ekki alltaf máli hvort jafnréttisáætlunin var vel og skipu- lega unnin eða hvort hún var al- menn viljayfirlýsing. Því er vert að velta fyrir sér á hvern hátt hægt er að tryggja að eftir slíkum áætlunum/skuldbindingum verði farið. Hvaða stöðu hafa þær og hver á að fyigja þeim eftir. í þessu sambandi má benda á að Finnar hafa sett í reglugerð ákvæði um gerð jafnréttisáætlana, hvernig að þeim eigi að standa og hver eigi að sjá um framkvæmd þeirra og mat á árangri. Samkvæmt lögum er ríkisstjórn íslands gert að setja sér fram- kvæmdaáætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára. Hún var lögð fram af félagsmálaráðherra í lok síðasta þings en vegna tímaskorts hlaut hún ekki umræðu. Þar er lögð áhersla á skyldur ráðherra og ráðuneyta til að vinna að því að jafna stöðu kvenna og karla, hver á sínu sérsviði. Þar eru settar fram tillögur að verkefnum fyrir ein- staka ráðuneyti og/eða undirstofn- anir þeirra. Þá er lagt til að jafn- réttisáætianir einstakra stofnana verði hluti af framkvæmdaáætlun- inni. Samkvæmt nýsamþykktum lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla á að leggja framkvæmdaáætlun ríkisstjómar í jafnréttismálum fram á Alþingi í formi þingsályktunartillögu. Nú er til athugunar í félagsmálaráðu- neytinu að leggja áðurnefnda áætl- un fram að nýju og þá í formi þing- sályktunar. Slík meðferð hlýtur óhjákvæmilega að gefa stefnuyfír- lýsingu framkvæmdavaldsins meira vægi og jafnframt leggja þyngri skyldur á herðar bæði lög- gjafar- og framkvæmdavalds. Á þennan hátt munu sérstakar að- gerðir eins og jafnréttisáætlanir öðlast meira vægi og verða auð- veldara að fylgja þeim eftir. Þá verður hægt að gera kröfur um framkvæmd og að farið verði eftir því sem samþykkt hefur verið. Því miður er það ekki alltaf rétt að viðhorf til jafnstöðumála kvenna og karla hafí breyst svo á undanförnum árum að það þurfi ekki lengur að vera með lagasetn- ingar eða leggja á stofnanir, fyrir- tæki eða einstaklinga skyldur með lagasetningu. Það þarf enn að ýta á eftir þróuninni og vinsamleg til- mæli duga því miður ekki alltaf. Höfundur er félagsfræðingur Jafnréttisráðs. Fyrsta ljóðabók Þórunn ar Valdimarsdóttur BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hef- ur gefið út bókina Fugla eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Þetta er fyrsta ljóðabók hennar en áður hafa birst eftir hana ljóð í tímaritum og safnritum. í ljóðabókinni Fuglum eru 34 ljóð og ljóðaflokkar. í kynningu Forlagsins segir m.a.: „Hér eru óljós skil milli manna, fugla og tijáa, landið er líkami manna og dýra, og efnakljúfurinn mikli — dauðinn heldur utan um gang- verkið. I kverinu er þetta sam- hengi líkast trúarskynjun; mörkin milli manns, dýra og lands eru máð út og tíminn leystur upp.” Fuglar er 62 bls. Essemm/Tóm- as Hjálmarsson hannaði kápu, en Þórunn Valdimarsdóttir mynd á kápu er eftir skáldkonuna. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. AI.I. PURPQSfeGRINÍ V'- cÞ' FYRST OG FREMST SKAFTAHLlÐ 24 REYKJAVlK SlMI 697700 SPORTSCAB FÆRIR I FLEST REW CAB bensín kr. 1.782.000 dísil kr. 1.875.000 Stgr.verð með ryðvörn og skráningu , magmF;-, , wmm ..... í samvinnu við Bílabúð Benna bjóðum við næstu daga upphækkaða Isuzu bíla með skemmtilegum sérbúnaði á kr. 130.000 kynningarafslætti ISUZU er hörkufínn jeppi, aflmikill með fjórhjóladrifi, mjúkri fjöðrun og einstaklega rúmgóðu og vönduðu farþegarými. Komdu strax og prófaðu gripinn og finndu muninn. Sérbúnaöur: — 5" upphækkun — Brettakantar úr gúmmíi — Gangbrettl úr áli — B.F. Goodrich 32" dekk — 15x10" álfelgur — Ljósabogi á topp með 2 Ijóskösturum — Grind með 2 Ijóskösturum að framan — Slökkvitæki og sjúkrakassi — Warn M6000 spil Höfðabakka 9 s: 67 00 00 / 67 43 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.