Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 18

Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991 NY KIRKJA VIGÐ eftir Guðmund P. Valgeirsson Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, vígði nýja sóknar- og safnaðarkirkju að Arnesi á Strönd- um, við hátíðlega athöfn sunnu- daginn 8. september í blíðskapar- veðri. Auk biskups voru mættir sex prestar, þar af 5 aðkomuprestar. Þeir voru, auk sóknarprestsins séra Jóns ísleifssonar, Sigurður Guð- mundsson, fyrrv. vígslubiskup, séra Guðni Þór Ólafsson, prófastur Húnavatns- og Strandaprófasts- dæmis, Melstað, séra Kristinn Bjömsson prestur á Hvamm- stanga, séra Ágúst Sigurðsson, Prestsbakka og séra Björn H. Jóns- son, fyrrv. prestur á Húsavík. Séra Bjöm H. Jónsson hóf prestsferil sinn hér að Ámesi fyrir 40 áram og þjónaði Ámesprestakalli í 4 ár. Þessir virðulegu guðs- og kirkj- unnar þjónar settu stóran svip á þessa helgu athöfn með nærveru sinni og gáfu henni mjög hátíðleg- an blæ og góð hughrif. Þökk sé þeim fyrir það og komu sína til þessarar hátíðlegu stundar. Athöfnin hófst með því að bisk- up, prestar og sóknamefnd gengu í skrúðfylkingu inn kirkjuna og upp að altarinu með kirkjugripi Ámes- kirkju og komu þeim fyrir á altari nýju kirkjunnar. Höfðu þeir áður verið færðir úr gömlu kirkjunni. Því má skjóta hér inn að undir- stöður altarisins era brimsofnir blágrýtissteinar af Fellshlíðaríjör- um þar sem brimaldan svellur tíð- ast og með þunga við hleinar og fjörusteina. Því næst hófst vígsla hinna nýju kirkju með því að biskup vígði hana helgri vígslu_sem sóknar- og safnaðarkirkju Ámesprestakalls og lýsti yfir blessun Guðs og sinni á hinu helgaða húsi safnaðarins. Að þeirri helgun lokinni steig biskup í stólinn og flutti einkar fagra og hugnæma ræðu, sem lengi mun lifa í hugum þeirra er hlýddu. í ræðu sinni fór hann lofs- orðum um hið nýja guðshús Betel- safnaðarins, hönnun þess, smíði og frágang allan, sem væri til sóma fyrir alla aðstandendur þess og hinn fámenna söfnuð. Að ytra út- liti bæri það svipmót af hinu fagra og stórbrotna umhverfi sínu. Hann bar lof á söfnuðinn og sóknamefnd r Hvaba kröfur gerir þú til nýrrar þvottavélar ? Væntanlega þær, a& hún þvoi, skoli og vindi vel, en sé jafnframt sparneytin á orku, vatn og sápu. A& hún sé auöveld í notkun, nljó&lát og talleg. Síöast en ekki síst, aö hún endist vel án sífelldra bilana, og aö varahluta- og vi&ger&aþjónusta seljandans sé góö. Séu þetta kröfurnar, líttu þá nánar á ASKO hjá Fönix. ASKO stenst þær allar og meira til, j>ví þaö fást ekki vanda&arí né sparneytnari vélar. Og þjonusta Fönix er fyrsta flokks, traust og lipur. Ver&ib svíkur engan, því nú um sinn bjóbum vib ASKO þvottavéiamar, bæbí framhlabnar og topphlabnar, á sérstöku kynningarverði: V. ASKO 10003 framhl. 1000 sn.vinding KR. 71.500 (67.920 stgr.) ASK011003 framhl. 900/1300 snún. KR. 79.900 (75.900 stgr.) ASKO 12003 framhl. 900/1300 snún. KR. 86.900 (82.550 stgr.) ASKO 20003 framhl. 600-1500 snún. KR. 105.200 (99.940 stgr.) ASKO 16003 topphl. 900/1300 snún. KR. 78.900 (74.950 stgr.) Góöir greiösluskilmálar: 5% staögreiösluafsláttur (sjá aö ofan) oq 5% aö auki séu keypt 2 stór tæki samtímis (magnafsláttur). VISA, EURO og SAMKORT raögreiöslur til allt aö 12mán. ,án útborgunar. ÞVOTTAVÉLAR 6 CERÐIR TAUÞURRKARAR 8 GERÐIR UPPÞVOTTAVELAR 5 GERÐIR /ponix fyrir framtak og atorku, að hafa komið þessu guðshúsi upp á svo skömmum tíma með myndarskap svo_ sem raun væri á. Áður en þessari hátíðlegu kirkjuathöfn lauk var gengið að „náðarborðinu” þar sem fyrrver- andi vígslubiskup, séra Sigurður Guðmundsson, og prófastur, séra Guðni Þór Ólafsson, útdeildu náð- armeðölum kristinnar kirkju og kristilegs samfélags. Flest allir kirkjugestir gengu að því náðar- borði í hljóðri lotningu og bæn. Við athöfnina annaðist söngfólk safnaðarins kirkjusönginn undir stjórn og hljóðfæraleik Douglas A. Brotelíe, skosks manns að ætt og upprana, sem dvelur hérlendis og er góðvinur og stundum gestur heimamanna. Allt var það með þeim ágætum sem staðhættir og kraftar heimamanna hafa upp á að bjóða. Það vakti athygli hve góður hljóðburður er í hinni nýju kirkju. Hefur það mikið að segja. í lok kirkjuathafnarinnar tók formaður sóknarnefndarinnar, Gunnsteinn Gíslason, til máls. Rakti hann í stóram dráttum bygg- ingarsögu nýju kirkjunnar. Hann bar fram þakkir sínar og safnaðar- ins til allra þeirra sem heiðraðu okkur með nærveru sinni á þessari hátíðlegu stund, og lögðu það á sig að mæta til athafnarinnar, sumir um langan veg. Hann þakk- aði yfírsmið kirkjunnar vel unnið verk svo og öllum þeim sem lagt hefðu hönd sína að þessu verki í smáu og stóra og styrk það með gjöfum í vinnu, efni og peninga- framlögum, sem væra veruleg, og hlýhug sem margir hefðu sýnt þessu verki. Sérstaklega gat hann Gísla Sigurbjömssonar á Grand í Reykjavík, sem hefði sýnt þessu verkLáhuga og ríkan skilning með ríflegum fjárframlögum og hlýjum hvetjandi orðum til okkar fyrir framtakið. Hann hefði heldur ekki gert það endasleppt, því nú fyrir vígsluna hefði hann sent kirkjunni að gjöf 40 sálmabækur. Þær hefðu komið sér vel fyrir hina mörgu kirkjugesti. Hann færði biskupi og kirkjuyfirvöldum sérstakar þakkir fyrir ómetanlegan skilning og stuðning við byggingu hinnar nýju kirkju. Sá skilningur hefði skipt sköpum í því sem hér hefði verið að gerast og verið gert og nú væri verið að vígja til þjónustu við söfnuðinn. Hann þakkaði viðstödd- um prestum nærveru sína á þess- ari hátíðarstund, hlý orð þeirra og blessunaróskir. Öll athöfnin fór mjög virðulega fram og yfír henni allri var mikil hátíðarstemmning. Énda hún ein- stök í sinni röð og óviðjafnanleg í sögu þesarar afskekktu sveitar. Viðstaddir munu seint eða aldrei' gleyma því sem fyrir augu og eyru bar á þessari hátíðarstundu. Nýja kirkjan á Árnesi á Ströndum. Guðmundur P. Valgeirsson „ÖIl athöfnin fór mjög virðulega fram og yfir henni allri var mikil hátíðarstemmning. Enda hún einstök í sinni röð og óviðjafnanleg í sögu þesarar afskekktu sveitar. Viðstaddir munu seint eða aldrei gleyma því sem fyrir augu og eyru bar á þessari hátíðarstundu.” Að lokinni athöfn í kirkjunni var gengið að veisluborði í samkomu- húsi sveitarinnar, sem er aðeins spölkorn frá kirkjunni. Konur sveitarinnar höfðu undirbúið það veglega og með sóma. Era ótíund- uð verk þeirra við þann undirbún- ing og við að koma ýmsu í lag og í við kirkjuna fýrir vígsluna. Hefur í því sem oftar komið fram óeigin- gjamt sjálfboðaliðastarf þeirra í þágu kirkju sinnar. Undir borðum ávörpuðu biskup og prestar heimamenn og gesti með árnaðaróskum og blessunar- orðum. Formaður sóknamefndar flutti að lokum þakkarorð. Eins og áður sagði var margt af að- komufólki saman komið til að njóta með heimamönnum þessa einstæða hátíðlega atburðar. Meðal þeirra HATUNI 6A SIMI (91) 24420 J Aðalfundur Hvatar AÐALFUNDUR Hvatar, fé- lags sjálfstæðiskvenna í Reylgavík, verður haldinn í kvöld, þriðjudag 29. október, kl. 20.30 í Valhöll. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem Lára Margrét Ragnars- dóttir alþingismaður er gestur fundarins. Á fundinum í kvöld mun Krist- ín Guðmundsdóttir láta af störf- um sem formaður Hvatar og kosinn verður nýr formaður auk stjómar og trúnaðarráðs. Sjálfstæðiskonur í Reykjavík era hvattar til að mæta á aðal- fundinn og leggja sitt af mörkum við að treysta félagsstarfjð í Sj álfstæðisflokknum. Lára Margrét Ragnarsdóttir var Guðlaugur Gauti Jónsson, arki- tekt kirkjunnar. Hann er ættaður héðan úr Ámeshreppi. Hann hefur unnið mikið og gott verk í þessu sambandi fyrir ættbyggð sína og goldið henni „Torfalögin” fyrir vera sína í föðurtúni á æskuárum sínum. Hann rakti í fáum orðum þróunarferil hugmyndar sinnar að þessu húsi og samstarfí sínu við formann sóknamefndar, frænda sinn, og Iýsti ánægju sinni yfir því verkefni. Einnig vora þarna aðrir fag- menn, sem lagt höfðu hendur sínar að þessu verki á margvíslegan hátt og af óeigingimi boðnir og búnir til að gera allt sitt til að þetta verk mætti takast sem best og fara vel úr hendi og vera þeim vanda vaxið að þjóna þeim tilgangi sem því er ætlað. Auk þess vinir og velunnarar þessarar fram- kvæmdar, víða að komnir. Hafí þeir heila þökk heimamanna. Kveðjur og heillaóskir bárust frá ýmsum velunnuram sem ekki gátu komið því við að mæta til þessarar hátíðar. Það var ómetanlegt að fínna frá öllum þessum aðilum þann yl og velvilja sem kom fram í orðum þeirra, sem með orðum tjáðu sig og engu síður hinna sem með nærveru sinni sýndu okkur vináttu og samstöðu í þessu máli, á þess- ari stundu. Þó ekki kæmist nema brot af þeim bænum og blessunar- orðum til hásætis himnanna sem fram vora bornar, held ég og trúi að „syndin” sem biskup vék að í ræðu sinni, hljóti að verða slegin út af Iaginu og það virkar okkur heimamönnum til ómetanlegrar blessunar. Þegar þetta stóra og erfíða verk- efni er metið og þeim þakkað að verðugu sem þar hafa að unnið á margvíslegan hátt, þá vil ég sem þessa frásögn set á blað, láta það koma fram hversu stór hlutur sóknarnefndarformannsins, Gunn- steins Gíslasonar, er í framkvæmd þessa máls og hve mikið við, sem höfum staðið við hlið hans í því, eigum honum að þakka. Þar hefur ekki verið við nein gamanmál að glíma á köflum og mörgu ómak- lega að honum vikið, og oft úr vöndu að ráða. Því hefur hann mætt með prúðmennsku og still- ingu, sem honum er eðlislega í blóð borin og sýnt meira umburðar- lyndi þeim öflum, sem unnið hafa gegn byggingu þeirrar kirkju, sem nú er tekin í notkun en mér og öðram hefur stundum þótt við hæfi þegar réttar leikreglur hafa verið að engu hafðar. Hann hefur nú komið þessu verki í höfn. Vonandi fylgir því sú gæfa að um það skapist einhugur og samfélag kristins safnaðar svo það verk sem hér hefur verið að unnið söfnuði og safnaðarlífi til úrbóta, megi skila tilætluðum ár- angri. Sú er von og bæn þeirra, sem að þessu verki hafa staðið. Þar sem almennur vinnudagur fór í hönd urðu gestimir að flýta för sinni hver til síns heima. Voru því hinir tignu gestir og aðrir góð- vinir kvaddir með virktum, vináttu og þökk. Einhverri hátíðlegustu stund í tilveru þessarar sveitar var lokið. Andi friðar og kærleika hvíldi yfír þeim sem hér áttu sann- kallaða hátíðarstund. Ilöfundur er bóndi í Arnesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.