Morgunblaðið - 29.10.1991, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991
NY KIRKJA VIGÐ
eftir Guðmund P.
Valgeirsson
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, vígði nýja sóknar- og
safnaðarkirkju að Arnesi á Strönd-
um, við hátíðlega athöfn sunnu-
daginn 8. september í blíðskapar-
veðri.
Auk biskups voru mættir sex
prestar, þar af 5 aðkomuprestar.
Þeir voru, auk sóknarprestsins séra
Jóns ísleifssonar, Sigurður Guð-
mundsson, fyrrv. vígslubiskup,
séra Guðni Þór Ólafsson, prófastur
Húnavatns- og Strandaprófasts-
dæmis, Melstað, séra Kristinn
Bjömsson prestur á Hvamm-
stanga, séra Ágúst Sigurðsson,
Prestsbakka og séra Björn H. Jóns-
son, fyrrv. prestur á Húsavík. Séra
Bjöm H. Jónsson hóf prestsferil
sinn hér að Ámesi fyrir 40 áram
og þjónaði Ámesprestakalli í 4 ár.
Þessir virðulegu guðs- og kirkj-
unnar þjónar settu stóran svip á
þessa helgu athöfn með nærveru
sinni og gáfu henni mjög hátíðleg-
an blæ og góð hughrif. Þökk sé
þeim fyrir það og komu sína til
þessarar hátíðlegu stundar.
Athöfnin hófst með því að bisk-
up, prestar og sóknamefnd gengu
í skrúðfylkingu inn kirkjuna og upp
að altarinu með kirkjugripi Ámes-
kirkju og komu þeim fyrir á altari
nýju kirkjunnar. Höfðu þeir áður
verið færðir úr gömlu kirkjunni.
Því má skjóta hér inn að undir-
stöður altarisins era brimsofnir
blágrýtissteinar af Fellshlíðaríjör-
um þar sem brimaldan svellur tíð-
ast og með þunga við hleinar og
fjörusteina.
Því næst hófst vígsla hinna nýju
kirkju með því að biskup vígði
hana helgri vígslu_sem sóknar- og
safnaðarkirkju Ámesprestakalls
og lýsti yfir blessun Guðs og sinni
á hinu helgaða húsi safnaðarins.
Að þeirri helgun lokinni steig
biskup í stólinn og flutti einkar
fagra og hugnæma ræðu, sem
lengi mun lifa í hugum þeirra er
hlýddu. í ræðu sinni fór hann lofs-
orðum um hið nýja guðshús Betel-
safnaðarins, hönnun þess, smíði
og frágang allan, sem væri til sóma
fyrir alla aðstandendur þess og
hinn fámenna söfnuð. Að ytra út-
liti bæri það svipmót af hinu fagra
og stórbrotna umhverfi sínu. Hann
bar lof á söfnuðinn og sóknamefnd
r
Hvaba kröfur
gerir þú til
nýrrar
þvottavélar ?
Væntanlega þær, a& hún þvoi, skoli og vindi vel, en sé jafnframt sparneytin
á orku, vatn og sápu. A& hún sé auöveld í notkun, nljó&lát og talleg.
Síöast en ekki síst, aö hún endist vel án sífelldra bilana, og aö varahluta- og
vi&ger&aþjónusta seljandans sé góö.
Séu þetta kröfurnar, líttu þá nánar á ASKO hjá Fönix. ASKO stenst þær allar
og meira til, j>ví þaö fást ekki vanda&arí né sparneytnari vélar. Og
þjonusta Fönix er fyrsta flokks, traust og lipur.
Ver&ib svíkur engan, því nú um sinn bjóbum vib ASKO
þvottavéiamar, bæbí framhlabnar og topphlabnar, á sérstöku
kynningarverði:
V.
ASKO 10003 framhl. 1000 sn.vinding KR. 71.500 (67.920 stgr.)
ASK011003 framhl. 900/1300 snún. KR. 79.900 (75.900 stgr.)
ASKO 12003 framhl. 900/1300 snún. KR. 86.900 (82.550 stgr.)
ASKO 20003 framhl. 600-1500 snún. KR. 105.200 (99.940 stgr.)
ASKO 16003 topphl. 900/1300 snún. KR. 78.900 (74.950 stgr.)
Góöir greiösluskilmálar: 5% staögreiösluafsláttur (sjá aö ofan) oq 5% aö auki séu keypt
2 stór tæki samtímis (magnafsláttur). VISA, EURO og SAMKORT raögreiöslur til allt aö
12mán. ,án útborgunar.
ÞVOTTAVÉLAR 6 CERÐIR TAUÞURRKARAR 8 GERÐIR
UPPÞVOTTAVELAR 5 GERÐIR
/ponix
fyrir framtak og atorku, að hafa
komið þessu guðshúsi upp á svo
skömmum tíma með myndarskap
svo_ sem raun væri á.
Áður en þessari hátíðlegu
kirkjuathöfn lauk var gengið að
„náðarborðinu” þar sem fyrrver-
andi vígslubiskup, séra Sigurður
Guðmundsson, og prófastur, séra
Guðni Þór Ólafsson, útdeildu náð-
armeðölum kristinnar kirkju og
kristilegs samfélags. Flest allir
kirkjugestir gengu að því náðar-
borði í hljóðri lotningu og bæn.
Við athöfnina annaðist söngfólk
safnaðarins kirkjusönginn undir
stjórn og hljóðfæraleik Douglas
A. Brotelíe, skosks manns að ætt
og upprana, sem dvelur hérlendis
og er góðvinur og stundum gestur
heimamanna. Allt var það með
þeim ágætum sem staðhættir og
kraftar heimamanna hafa upp á
að bjóða.
Það vakti athygli hve góður
hljóðburður er í hinni nýju kirkju.
Hefur það mikið að segja.
í lok kirkjuathafnarinnar tók
formaður sóknarnefndarinnar,
Gunnsteinn Gíslason, til máls.
Rakti hann í stóram dráttum bygg-
ingarsögu nýju kirkjunnar. Hann
bar fram þakkir sínar og safnaðar-
ins til allra þeirra sem heiðraðu
okkur með nærveru sinni á þessari
hátíðlegu stund, og lögðu það á
sig að mæta til athafnarinnar,
sumir um langan veg. Hann þakk-
aði yfírsmið kirkjunnar vel unnið
verk svo og öllum þeim sem lagt
hefðu hönd sína að þessu verki í
smáu og stóra og styrk það með
gjöfum í vinnu, efni og peninga-
framlögum, sem væra veruleg, og
hlýhug sem margir hefðu sýnt
þessu verki. Sérstaklega gat hann
Gísla Sigurbjömssonar á Grand í
Reykjavík, sem hefði sýnt þessu
verkLáhuga og ríkan skilning með
ríflegum fjárframlögum og hlýjum
hvetjandi orðum til okkar fyrir
framtakið. Hann hefði heldur ekki
gert það endasleppt, því nú fyrir
vígsluna hefði hann sent kirkjunni
að gjöf 40 sálmabækur. Þær hefðu
komið sér vel fyrir hina mörgu
kirkjugesti. Hann færði biskupi og
kirkjuyfirvöldum sérstakar þakkir
fyrir ómetanlegan skilning og
stuðning við byggingu hinnar nýju
kirkju. Sá skilningur hefði skipt
sköpum í því sem hér hefði verið
að gerast og verið gert og nú
væri verið að vígja til þjónustu við
söfnuðinn. Hann þakkaði viðstödd-
um prestum nærveru sína á þess-
ari hátíðarstund, hlý orð þeirra og
blessunaróskir.
Öll athöfnin fór mjög virðulega
fram og yfír henni allri var mikil
hátíðarstemmning. Énda hún ein-
stök í sinni röð og óviðjafnanleg í
sögu þesarar afskekktu sveitar.
Viðstaddir munu seint eða aldrei'
gleyma því sem fyrir augu og eyru
bar á þessari hátíðarstundu.
Nýja kirkjan á Árnesi á Ströndum.
Guðmundur P. Valgeirsson
„ÖIl athöfnin fór mjög
virðulega fram og yfir
henni allri var mikil
hátíðarstemmning.
Enda hún einstök í sinni
röð og óviðjafnanleg í
sögu þesarar afskekktu
sveitar. Viðstaddir
munu seint eða aldrei
gleyma því sem fyrir
augu og eyru bar á
þessari hátíðarstundu.”
Að lokinni athöfn í kirkjunni var
gengið að veisluborði í samkomu-
húsi sveitarinnar, sem er aðeins
spölkorn frá kirkjunni. Konur
sveitarinnar höfðu undirbúið það
veglega og með sóma. Era ótíund-
uð verk þeirra við þann undirbún-
ing og við að koma ýmsu í lag og
í við kirkjuna fýrir vígsluna. Hefur
í því sem oftar komið fram óeigin-
gjamt sjálfboðaliðastarf þeirra í
þágu kirkju sinnar.
Undir borðum ávörpuðu biskup
og prestar heimamenn og gesti
með árnaðaróskum og blessunar-
orðum. Formaður sóknamefndar
flutti að lokum þakkarorð. Eins
og áður sagði var margt af að-
komufólki saman komið til að njóta
með heimamönnum þessa einstæða
hátíðlega atburðar. Meðal þeirra
HATUNI 6A SIMI (91) 24420
J
Aðalfundur Hvatar
AÐALFUNDUR Hvatar, fé-
lags sjálfstæðiskvenna í
Reylgavík, verður haldinn í
kvöld, þriðjudag 29. október,
kl. 20.30 í Valhöll.
Á dagskrá fundarins eru
venjuleg aðalfundarstörf auk
þess sem Lára Margrét Ragnars-
dóttir alþingismaður er gestur
fundarins.
Á fundinum í kvöld mun Krist-
ín Guðmundsdóttir láta af störf-
um sem formaður Hvatar og
kosinn verður nýr formaður auk
stjómar og trúnaðarráðs.
Sjálfstæðiskonur í Reykjavík
era hvattar til að mæta á aðal-
fundinn og leggja sitt af mörkum
við að treysta félagsstarfjð í
Sj álfstæðisflokknum.
Lára Margrét Ragnarsdóttir
var Guðlaugur Gauti Jónsson, arki-
tekt kirkjunnar. Hann er ættaður
héðan úr Ámeshreppi. Hann hefur
unnið mikið og gott verk í þessu
sambandi fyrir ættbyggð sína og
goldið henni „Torfalögin” fyrir
vera sína í föðurtúni á æskuárum
sínum. Hann rakti í fáum orðum
þróunarferil hugmyndar sinnar að
þessu húsi og samstarfí sínu við
formann sóknamefndar, frænda
sinn, og Iýsti ánægju sinni yfir því
verkefni.
Einnig vora þarna aðrir fag-
menn, sem lagt höfðu hendur sínar
að þessu verki á margvíslegan
hátt og af óeigingimi boðnir og
búnir til að gera allt sitt til að
þetta verk mætti takast sem best
og fara vel úr hendi og vera þeim
vanda vaxið að þjóna þeim tilgangi
sem því er ætlað. Auk þess vinir
og velunnarar þessarar fram-
kvæmdar, víða að komnir. Hafí
þeir heila þökk heimamanna.
Kveðjur og heillaóskir bárust frá
ýmsum velunnuram sem ekki gátu
komið því við að mæta til þessarar
hátíðar.
Það var ómetanlegt að fínna frá
öllum þessum aðilum þann yl og
velvilja sem kom fram í orðum
þeirra, sem með orðum tjáðu sig
og engu síður hinna sem með
nærveru sinni sýndu okkur vináttu
og samstöðu í þessu máli, á þess-
ari stundu. Þó ekki kæmist nema
brot af þeim bænum og blessunar-
orðum til hásætis himnanna sem
fram vora bornar, held ég og trúi
að „syndin” sem biskup vék að í
ræðu sinni, hljóti að verða slegin
út af Iaginu og það virkar okkur
heimamönnum til ómetanlegrar
blessunar.
Þegar þetta stóra og erfíða verk-
efni er metið og þeim þakkað að
verðugu sem þar hafa að unnið á
margvíslegan hátt, þá vil ég sem
þessa frásögn set á blað, láta það
koma fram hversu stór hlutur
sóknarnefndarformannsins, Gunn-
steins Gíslasonar, er í framkvæmd
þessa máls og hve mikið við, sem
höfum staðið við hlið hans í því,
eigum honum að þakka. Þar hefur
ekki verið við nein gamanmál að
glíma á köflum og mörgu ómak-
lega að honum vikið, og oft úr
vöndu að ráða. Því hefur hann
mætt með prúðmennsku og still-
ingu, sem honum er eðlislega í
blóð borin og sýnt meira umburðar-
lyndi þeim öflum, sem unnið hafa
gegn byggingu þeirrar kirkju, sem
nú er tekin í notkun en mér og
öðram hefur stundum þótt við
hæfi þegar réttar leikreglur hafa
verið að engu hafðar.
Hann hefur nú komið þessu
verki í höfn. Vonandi fylgir því sú
gæfa að um það skapist einhugur
og samfélag kristins safnaðar svo
það verk sem hér hefur verið að
unnið söfnuði og safnaðarlífi til
úrbóta, megi skila tilætluðum ár-
angri. Sú er von og bæn þeirra,
sem að þessu verki hafa staðið.
Þar sem almennur vinnudagur
fór í hönd urðu gestimir að flýta
för sinni hver til síns heima. Voru
því hinir tignu gestir og aðrir góð-
vinir kvaddir með virktum, vináttu
og þökk. Einhverri hátíðlegustu
stund í tilveru þessarar sveitar var
lokið. Andi friðar og kærleika
hvíldi yfír þeim sem hér áttu sann-
kallaða hátíðarstund.
Ilöfundur er bóndi í Arnesi.