Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 23
.MOIiGiAN'KUAÐLJ) ÞLiHMUDALÍUJi 2ft OKfHDBEB (D9ÖJ
Verðmæti útflutnings
1% minna en í fyrra
VERÐMÆTI vöruútflutnings fyrstu níu mánuði arsins var 1% minna
en á sama tímabili í fyrra. Verðmæti vöruinnflutnings var hins vegar
8% meira en á sama tíma í fyrra. Fluttar voru út vörur fyrir 69,4
milljarða kr. en inn fyrir 68,9 millj. og var vöruskiptajöfnuðurinn því
hagstæður um liálfan milljarð en á sama tíma í fyrra var hann hagstæð-
ur um 6,2 millj.
Fyrstu níu mánuði ársins voru
sjávarafurðir um 81% alls útflutnings
sem er 3% aukning miðað við sama
tímabil síðasta árs. Útflutningur á
áli var hins vegar 8% minni og út-
flutningur kísiljárns 36% minni.
Verðmæti innflutnings skipa, flug-
véla og fjárfestingarvöru Landsvirkj-
unar er helmingi minni í ár en í
fyrra. Verðmæti olíuinnflutnings er
hins vegar um 9% meira en á sama
tíma í fyrra. Að þessum vörum frá-
töldum reyndist annar innflutningur
hafa orðið 20% meiri á fyrstu níu
mánuðum ársins en á sama tímabili
í fyrra, skv. tilkynningu frá Hagstofu
íslands.
Vöruskiptajöfnuðurinn í septemb-
er var hagstæður um 800 milljónir
en í sama mánuði í fyrra var hann
hagstæður um 1.750 millj.
Þröstur Leó og Valdimar Örn í stuttmynd Sigurbjörns Aðalsteinsson-
ar, Ókunn dufl.
Dularfull dufl
SOTHEBY’S
STOFNAÐ 1744
þekktasta uppboðshús í heimi
býður nú fram þj ónustu
sína á íslandi
Sotheby’s hefur þá ánægju að tilkynna að fulltrúi þess hefur
nú tekið til starfa í Rey kj avík.
Sotheby’s býr yfir 200 ára reynslu af kaupum og sölu á listmunum
og öðrum verðmætum.
Eftirspum er eftir frímerkjum, mynt, silfri og íslenskri myndlist, einkum eftir eldri
meistarana, s.s. Þórarin B. Þorláksson, Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson og Svavar Guðna-
son.
Velgengni Sotheby’s hefur m.a. byggst á því að tryggja hæsta verð
fyrir þá muni, sem boðnir eru upp, og að mat á munum er
eigendum að kostnaðarlausu.
Farið verður með allar fyrirspumir sem trúnaðarmál.
Frekari upplýsingar um uppboð á listmunum og öðrum
verðmœtum hjá Sotheby’s veitir
Sigríður Ingvarsdóttir í síma (91)-20437
Kvikmyndir
Sæbjörn
Valdimarsson
Háskólabíó:
Ókunn dufl
Leikstjóri Sigurbjörn Aðal-
steinsson.
Handrit Sigurbjörn Aðalsteins-
son, Jón Ásgeir Hreinsson.
Framkvæmdastjórn Marteinn
St. Þórsson.
Tónlist ívar Sigurbergsson.
Leikmynd Þorgeir Ólason.
Hljóð Þorbjörn Erlingsson.
Kvikmyndataka Baldur Hrafn-
keil Jónsson.
Aðalleikendur Þröstur Leó
Gunnarsson, Valdimar Örn'
Flygenring.
Helgarmyndir Uff 1991.
Stuttmyndagerð fyrir kvik-
myndahús hefur tekið nokkurn
fjörkipp hérlendis uppá síðkastið
þó lengdin geri lítið úr ábatavon-
inni. Enda eru hér undantekning-
arlítið ungir menn á ferð sem eru
að taka sín fyrstu spor eða gera
sínar fyrstu tilraunir. Ókunn dufl
er lítil og nett og einkennist af
góðu skopskyni öðru fremur og
laglegum frásagnarmáta sem lof-
ar góðu. Við erum stödd á ein-
hvetju hálfdauðu krummaskuði
úti á landsbyggðinni, ungur lista-
maður (Þröstur Leó) býr þar á
arfleifð sinni, örreytiskoti við ysta
haf. Hefur fundið harla dularfullt
dufl á rekanum er óboðinn gest
ber að garði. Er það lögfræðingur-
inn Valdimar og erindið að svæla
Þröst af jörðinni. En dularfulla
duflið á harla óvæntan endasprett
og verður miskunnarlaus örlaga-
valdur.
Það er sjálfsagt mesti misskiln-
ingur að taka efnisþráðinn alvar-
lega, myndin er fyrst og fremst
til skemmtunar en þó sækir hlut-
verk duflsins örlítið á mann eftir
sýninguna. Það eru ekki mörg orð
sögð en textinn er kíminn, orð-
heppinn og þeir komast vel frá
honum leikararnir báðir. Þurfa
svo sem ekki að reyna einhver
ósköp á sig en vel heppnað val
þeirra er tvímælalaust megin-
styrkur myndarinnar. Þröstur er
einsog sprottinn uppúr afskekktu
umhverfi sínu og Valdimar er
háll sem lögfræðingsblókin og
gervið gott. Báðir sjá þessir ágæt-
isleikarar það broslega við text-
ann og kringumstæðurnar og
skila því vel. Leikmyndargerðin
er einnig myndinni til bóta, eink-
um er duflið vel heppnað,
skemmtilega dularfull maskína og
ógnvekjandi í hvissi sínu, braki
og brestum. Yfirhöfuð hefur
Okunn dufl tekist vel, hún er
ágætlega gerð á öllum sviðum,
en hér fara þaulvanir menn einsog
Baldur Hrafnkell Jónsson í bland
við nýliða. Og sem fyrr segir er
hér góður húmor á ferð. Sem er
góðs viti hvað framtíð listamann-
anna og þátt áhorfenda snertir.
Verslunareigendur — innkaupastjórar
Okkar stolt eru íslensk kort eftir íslenskt listafólk
■ Málverkakort eftir meistara Kjarval —12 teg.
■ Klippimyndir eftir Sigrúnu Eldjárn — 15 teg.
■ Vetrarljósmyndir eftir Rafn Hafnfjörð — 55
I Einnig 70 teg.af hefðbundnum kortum
VÖNDUM VALIÐ — VELJUM ÍSLENSKT
■!■} I ETapÁ hf PRENTSM.ÐJA
nV Ivl I Ul\n III KORTAUTGAFA
■■■ Simar 22930 - 22865, fax 622935.
1200 GERÐIR OG LITIR
í ÖLLUM VERÐFLOKKUM
• Sérpantanir á sama verði • Mjög stuttur afgreiðslufrestur
• Hugmyndaflugið fær útrás hjá okkur • Sérráðgjöf og frí tilboðsþjónusta
EITTHVAÐ FYRIR ALLA
TEPPAVERSLUN
FMDIUKS BERTCLSEN
FÁKAFENI 9 - SÍMI 686266