Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 26
26 i íMORGUiNBIiAÐIÐ ÞRIÐJUíDAGUR 29, OKTÓBER: 1991 Hryðjuverk gegn friðarumræðum í Madrid Reuter Tveir landnemar úr röðum gyðinga á hernumdu svæðunum létu lífið í gær og fimm særðust er ráð- ist var á langferðabíl á Vesturbakkanum í gær. Bílsprengja varð Bandaríkjamanni að bana í Ank- ara, höfuðborg Tyrklands, auk þess sem egypskur stjórnarerindreki slasaðist í öðru tilræði í borginni. Samtök islamskra heittrúarmanna lýstu ábyrgð á hendur sér og sögðu tilræðin hafa verið gerð í mót- mælaskyni við ráðstefnuna um frið í Miðausturlönd- um sem hefjast á í Madrid á piorgun. Þrátt fyrir hryðjuverkin og þótt ráðamenn ísraela og Palestínu- manna strengdu þess heit um helgina að slaka ekki á kröfum sínum bendir allt til þess að ráðstefnan hefjist á tilsettum tíma. Á myndinni sjást börn fá eiginhandaráritun hjá sérþjálfuðum hermönnum sem gæta eiga öryggis fulltrúa í Madrid. Skoðanakönnun um EES: Hópur óákveðinna Norðmanna stærstur Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréllaritara Morgunblaðsins. 40% Norðmanna eru hlynnt samningnum um Evrópskt efna- hagssvæði, 18% eru andvíg og 42% eru óákveðin. Kom þetta fram í skoðanakönnun fyrirtæk- isins Opinion sem gerð var 22.-23. október og birtist í Aften- posten. Einnig var spurt hvort menn vildu frekari tengsl við Evrópuband- alagið. 33% aðspurðra svöruðu að Noregur ætti að taka stefnuna á aðild að Evrópubandalaginu. 15% sögðu að EES-samningur nægði, 18% sögðust vilja fleiri samninga við EB og 34% voru óákveðin. Nokkur munur kom fram á af- stöðu kynjanna. 48% karla voru hlynnt EES-samningnum en ein- ungis 31% kvenna. Einnig skiptir máli hvar menn búa. í Norður-Nor- egi voru einungis 20% hlynnt samn- ingnum en 31% andvíg. í Ósló og Akershus voru 57% fylgjandi EES en 10% andvíg. Líkur fara vaxandi á því að Kristilegi þjóðarflokkurinn tryggi nauðsynlegan meirihluta á Stór- þinginu fyrir EES-samningnum. Flokksmenn gera upp hug sinn Efnahagsóreiðan í Rússlandi: Jeltsín boðar umbætur en varar við þrengingaskeiði Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, tilkynnti í gær að hann hygðist koma á róttækum umbótum í efnahagsmálum, sem fælust meðal annars í einkavæðingu og frjálsri verðlagningu fyrir áramót. Hann skoraði á alla Rússa að styðja þessar aðgerðir en varaði jafnframt við því að þær myndu hafa þrengingar í för með sér. „Ég ávarpa ykkur á þýðingar- mesta tímabilinu í sögu Rússlands — því nú er verið að ákveða hvern- ig Rússland og Sovétríkin í heild verða á komandi árum og áratug- um,” sagði Jeltsín á fundi rúss- neska fulltrúaþingsins, æðstu lög- gjafarsamkundu lýðveldisins. Jeltsín sagði að verðbólgan væri komin á hættulegt stig og 55% fjölskyldna væru undir fátæktar- mörkum. „Nú er orðið tímabært að bregðast við af ákveðni og hörku, án hiks,” sagði hann. „Tími aðgerða í áföngum er liðinn. Við verðum að blása til allsheijarsókn- ar í efnahagsmálum.” Forsetinn viðurkenndi að með því að gefa verðlagið fijálst mættu Rússar búast við slíkra aðgerða væri allt tal um fijálsan markaðs- búskap „marklaust hjal”. Stefnt yrði að því að koma á stöðugleika í peningamálum með ströngu að- haldi í lánastarfsemi, skattaumbót- um og aðgerðum til að styrkja rúbluna í sessi. Útgjöld rússneska ríkisins yrðu endurskoðuð, dregið yrði úr styrkjum til óarðbærra fyr- irtækja og hætt að fjármagna so- vésk ráðuneyti sem engin þörf væri á lengur. Til greina kæmi að stofna seðlabanka með hinum lýð- veldunum ef þau hættu við áform um að taka upp eigin gjaldmiðla. Ef ekki myndu Itússar stofna bankann sjálfir og koma á eigin myntkerfi. Jeltsín sagði að til greina kæmi WmSm ERLENT að rússneska ríkisstjórnin félli und- ir beina stjórn hans til að hann gæti knúið þessar umbætur fram. Ef gripið yrði til þeirra þegar í stað kynnu þær að skila árangri innan árs. Með því að hafna þeim myndu Rússar hins vegar dæma sig til „örbirgðar”. „Ég verð að segja það hreint út að efnahagskreppan er svo al- varleg að það er óhjákvæmilegt að umbætur hafi þrengingar í för með sér. Fyrsta skrefið verður erfiðast,” sagði hann. „Lífskjörin eiga eftir að versna eitthvað, en óvissan verður loksins liðin tíð og ástæða gefst brátt til bjartsýni.” Forsetinn skoraði á Vesturlönd að styðja umbæturnar og sagði að vestræn fyrirtæki, sem vildu fjár- festa í Rússlandi, fengju sérstakar ábyrgðir og tryggingar. Hann Ólgan í Zaire: Neyðarfundur stjórn- ar og stj órnarandstöðu Belgar ætla að biðja Afríkuríki að senda friðargæslusveitir til landsins Brussel og Kinshasa. Reuter. MOBUTU Sese Seko, forseti Zaire, og stjórnarandstæðingar í landinu héldu neyðarfund í gær. Um svipað leyti hófust vestræn- ar ríkisstjórnir handa við lokabrottflutning útlendinga og sögðu að nú væru síðustu forvöð fyrir fólk að fá aðstoð til að komast úr landi. Á neyðarfundinum, sem stóð í þijár klukkustundir og var haldinn í Nsele, aðsetri Mobutus fyrir utan Kinshasa, vöknuðu veikar vonir um að koma mætti í veg fyrir borgara- styijöld í landinu. Oöldin þar hefur nú ríkt í rúman mánuð og yfir 200 manns látið lífið. Vestrænar ríkisstjórnir hafa hvatt þegna sína, milli fimm og tíu þúsund manns, til að koma sér á brott frá Zaire. Hafa þær tilkynnt að síðustu flugferðir þaðan á þeirra vegum verði á morgun. Belgísk og frönsk stjórnvöld hafa lagt hart að Mobutu að greiða dagana 8.-9. nóvember en skoðana- könnun meðal þingmanna hans sýn- ir að margir þeirra hafa þegur ákveðið að styðja samninginn. hvatti jafnframt Alþjóðabankann, Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og Evr- ópska þróunarbankann til að veita aðstoð við framkvæmd umbót- anna. „Þetta er erfiðasta ákvörðun lífs míns,” sagði Jeltsín í ræðu sinni, sem stóð í rúma klukkustund. „Ég hef aldrei leitað að auðveldustu leiðunum en mér er ljóst að næstu mánuðir verða afar erfiðir fyrir mig. Ef ég fæ stuðning ykkar og traust er ég reiðubúinn að fara þessa leið allt til enda.” Danmörk: Ekki ótti við EES í sjávar- útveginum Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. KENT Kirk, sjávarútvegs- ráðherra Danmerkur, segir samkomulag Evrópubanda- lagsins (EB) og Fríverslunar- bandalags Evrópu (EFTA) um sameiginlegt evrópskt efnahagssvæði (EES) ekki ógna dönskum sjávarútvegi. Hann telur að útflutningur sjávarafurða frá Danmörku verði áfram í kringum 12 milljarða danskra króna á ári þrátt fyrir samninginn. Kirk vísar í viðtali við Ritzau- fréttastofuna á bug gagnrýni ýmissa hagsmunaaðila í dönsk- um sjávarútvegi á samninginn og segir hann þvert á móti opna ýmsa möguleika. Nú geti Danirt.d. hafið tollfijálsan inn- flutning hráefna frá Noregi og íslandi sem komi sér mjög vel þar sem dönsk fiskvinnsla eigi í erfiðleikum vegna minnkandi fiskveiðikvóta. Leif Skytte, formaður sam- taka danska sjávarútvegsins, segist einnig vera sáttur við EES. „Við erum ánægðir með tollfrelsið á hráefni og óttumst ekki samkeppni við íslenska og norska framleiðendur á EB- markaðinum. En menn verða að keppa á sama grundvelli og það er úrslitaatriði í því sam- bandi að íslendingar og Norð- menn hætti hinum mikla beina ríkisstuðningi við sjávarútveg- inn sem nú er við lýði,” segir Skytte. Það að Norðmönnum tókst ekki að fá felldan niður toll af unnum eldislaxi er líka talið koma Dönum vel. Norðmenn hafa vegna þessa látið reykja laxinn í Danmörku og er talið að svo verði nú áfram. Danir flytja árlega út lax fyrir 600 milljónir danskra króna og á hann að mestu leyti uppruna sinn í Noregi. bíða með opinbera tilkynningu þar að lútandi, ef neyðarfundurinn með stjórnarandstæðingum bæri árang- ur. ■ MOSKVA - Sovétmenn og Pólveijar hafa komið sér saman um að allar sovéskar bardagasveitir fari frá Póllandi fyrir nóvember á næsta ári og stuðningssveitir þeirra í síðasta lagi ári seinna. Aðstoðarut- anríkisráðherrar landanna undirrit- uðu samkomulag þessa efnis á föstu- dag eftir langar samningaviðræður. fyrir lýðræðislegri þróun í landinu með því að afsala sér yfirstjórn hersins og öðrum valdaembættum, en hann hefur vísað öllum slíkum tilmælum á bug. í gær sagði Mark Eyskens, utanríkisráðherra Belgíu, að hann mundi fara fram á, að Evrópubandalagið aðstoðaði við að fá Einingarsamtök Afríku (OAU) til að senda fjölþjóðlegar friðar- gæslusveitir til Zaire. Hinn nýi forsætisráðherra Mob- utus, Mungul Diaka, sagði á sunnu- dag, að hann mundi tilnefna ráð- herra í ríkisstjórn sína á mánudag, en heimildir hermdu að hann mundi Tilburg-mótið: Kasparov vann Timman Tilburg. Reuter. KASPAROV vann Timman í áttundu umferð Interpolis-skák- mótsins í Tilburg sem tefld var á sunnudag. Biðskák hans við Karpov úr sjöundu umferð lauk með jafntefli. Kasparov er nú efstur með 6 ‘A vinning af 8 mögulegum. Anand er í öðru sæti með 5 'A vinning. Kasparov hefur nú unnið báð- ar skákir sínar gegn Timman í mótinu. Upp kom slavnesk vörn þar sem Timman náði fljótlega að jafna taflið. Kasparov lenti í tímahraki en gaf ekkert eftir þegar Timman reyndi að notfæra sér það og lék ónákvæmum leikj- um og tapaði biskup. Önnur úrslit í áttundu umferð urðu að Anand og Short gerðu jafntefli, Karpov vann Barejev og Kortsnoj og Kamsky gerðu jafntefli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.