Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 32

Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 32
Ríkisútvarpið á Akureyri: Deildarstjóri ósk- ar eftir flutningi DEILDARSTJORI Ríkisútvarpsins á Akureyri, Bjarni Sigtryggsson hefur óskað eftir því að verða fluttur til í starfi innan útvarpsins. Hann mun taka við nýjum verkefnum hjá útvarpinu innan skamms og staða hans á Akureyri verður auglýst laus til umsóknar fljótlega. Heimir Steinsson útvarpsstjóri sagði að deildarstjórinn hefði óskað eftir tilflutningi í starfi og við því hefði orðið. Hann muni taka við nýjum verkefnum hjá útvarpinu í Reykjavík og yrði staða hans nyðra auglýst fljótlega. Bjarni kom til starfa sem deildar- stjóri Ríkisútvarpsins á Akureyri 1. júní síðastiiðinn. Á síðustu vikum hefur orðið vart samstarfsörðug- leika milli deiidarstjórans og starfs- manna útvarpsins á Akureyri, en hluti þeirra íhugaði uppsagnir í kjölfar þeirra. Málið hefur með þessum hætti verið til lykta leitt og munu starfsmenn sætta sig við þá lausn sem fundin hefur verið. Einn tekin á 148 km hraða EINN ökumaður var sviptur ökuleyfi fyrir of hraðan akstur á Ólafs- fjarðarvegi um helgina. Þá varð harður árekstur við gangbraut á Hörgárbraut um miðnætt á laugardagskvöld. Ökumaðurinn sem sviptur var leyfinu mældist á 148 km hraða á Óiafsfjarðarvegi á Iaugardags- kvöld, en þar er leyfilegur hámarks- hraði 90 km. Lögreglan á Dalvík tók einnig fjóra ökumenn fyrir of hraðan akstur um helgina og mæld- ust tveir þeirra á 121 km hraða á Ólafsfj arðarvegi. Harður árekstur varð um mið- nætti á laugardagskvöld við gang- braut á Hörgárbraut skammt utan við Glerárbrú. Bifreið hafði verið stöðvuð til að hleypa gangandi veg- farendum yfir götuna þegar bíl varð ekið aftan á hana. Kastaðist bifreiðin upp á umferðareyju og er talin ónýt. Hinn bíllinn stór- skemmdist. Engin meiðsl urðu við áreksturinn. Mývatnssveit: Fundur um fram- Morgunblaðið/Rúnar Þór 200 sýningar á Næturgalanum Leikarar frá Þjóðleikhúsinu hafa verið á ferð í Eyja- firði með sýninguna Næturgalann, en 200. sýningin á verkinu var í gær í Víkurröst á Dalvík. Á sýning- unni voru börn úr grunnskólunum á Dalvík og í Hrísey, Árskógsskóla og Húsabakkaskóla og voru þau að vonum ánægð með heimsókn leikaranna. í lok sýningarinnar færðu börnin ieikurunum blóm í tilefni af sýningunum 200 og loks sungu börn og Skáksveit Búnaðarbanka ísiands sótti Skákfélag Akureyrar heim um helgina. í kappskák sigruðu bankamenn 5'/2 - 4 '/2, en í hraðskákkeppni á sunnu- dag sigruðu heimamenn með miklum yfirburðum, 140 - 60. Árið 1987 færði Búnaðarbankinn Skákfé- laginu ýmis helstu fræðirit um skák í tilefni af húsa- kaupum félagsins. Um helgina færði bankinn Skák- félaginu helstu rit sem hafa bæst við síðan. Á mynd- inni, sem tekin var af þessu tilefni eru frá vinstri: Albert Sigurðsson, Leifur Jósteinsson, Þór Valtýs- son, formaður S.A., Benedikt Baldursson, formaður skáknefndar Búnaðarbankans, og Margeir Péturs- son. tíð Kísiliðjunnar Björk, Mývatnssveit. Síðastliðinn föstudag var haldinn fundur með starfsfólki Kísiliðjunnar í Mývatnssveit. Hófst hann kl. 13 í húsakynnum fyrirtækisins. Fundarstjóri var Róbert Agnarsson, bauð hann alla velkomna á fundinn. Um- ræðuefni fundarins var framtíð Kísiliðjunnar. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og Eiður Guðnason umhverfísráð- herra mættu á fundinn, ennfremur Björn Friðfinnsson, Jón Gunnar Ottósson og Magnús Jóhannesson, ásamt stjórnarmönnum Kísiliðjunn- ar og fleiri gestum. Fyrst héldu ráðherrarnir stuttar framsöguræður, síðan tóku starfs- menn Kísiliðjunnar til máls og skýrðu mjög vel sín sjónarmið og sumir beindu spurningum til ráð- herranna sem þeir svöruðu jafnóð- um. Þá voru iðnaðar- og umhverfís- ráðherrum afhentir undirskriftal- istar frá starfsfóiki Kísiliðjunnar og ennfremur listar með nöfunum 23 félagsmanna í Veiðifélagi Mý- vatns, þar sem lýst er eindregnum stuðningi við áframhaldandi starf- semi Kísiliðjunnar. Fundurinn fór mjög vel fram 0g var fróðlegur, fundarslit voru um kl. 14 þar sem aðkomumenn þurftu að mæta á fund á Húsavík kl. 15. Fjölmenni var og veðurblíða síðasta dag sumars. Kristján ------*-*-*--- Slægjufundur Mývetninga Björk, Mývatnssveit. NU hefur blítt og gott sumar kvatt og vetur heilsað. Mývetn- ingar héldu sinn hefðbundna slægjufund í Skjólbrekku fyrsta vetrardag, hófst hann kl. 14 með helgistund sr. Arnar Frið- rikssonar. Síðan var sest að kaffiborði og góðu meðlæti. Sigurður Rúnar Ragnarsson sveitarstjóri flutti slægjuræðu, Steinþór Þráinsson stjórnaði almennum söng og fleira var sér til gamans gert. Um kvöld- ið var dansleikur. Kristján Morgunblaðið/Rúnar Þór Búnaðarbankinn gefur Skákfélaginu fræðirit Dalvík: Bj örgnnars veit í viðbragðsstöðu vegna leitar að tveimur stúlkum Fundust sofandi í bændagistingu LOGREGLAN á Dalvík svipaðist um eftir tveimur ungum konum á sunnudagskvöld, en þær lögðu af stað frá Akranesi síðdegis og ætl- uðu að ná síðustu ferð ferjunnar Sævars yfir til Hríseyjar kl. 21.30 um kvöldið. Þar sem þær höfðu ekki látið vita af ferðum sínum eins 0g ráð var fyrir gert var farið að óttast um þær. Björgunarsveitar- menn á Dalvík voru tilbúnir að hefja leit er af þeim fréttist í bænda- gistingu á Árskógsströnd. Björn Víkingsson varðstjóri lög- reglunnar á Dalvík sagði að ætt- ingjar hefðu beðið lögregluna að svipast um eftir stúlkunum þar sem þær hefðu ekki látið vita af sér eins og um hafði verið rætt. Þær lögðu af stað síðdegis frá Akranesi og ætluðu til Hríseyjar. Hringdu þær frá Laugalandi á Þelamörk um kl. 9 um borð í feijuna til að spyijast fyrir um hvort möguleiki væri á að bíða eftir þeim stundarkorn. Þær skiluðu sér ekki á bryggjuna á Árskógssandi og sagði Björn að óttast hefði verið þær hefðu ekið útaf. Björgunarsveit hefði verið kölluð út til leitar ef til kæmi og hefði fjöldi manns verið í viðbragðs- stöðu er fréttist af stúlkunum sof- andi í bændagistingu á Árskógs- strönd. „Þær gleymdu að láta vita af sér, ég held að það sé sjaldan ofbrýnt fyrir fólki að láta vita af sínum ferðum,” sagði Björn. Geðverndarfélag Akureyrar Ráðgjöf Geðvemdarfélag Akureyrar verður með ráðgjöf á Gránufélagsgötu 5 mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-12 fyrir hádegi og þriðjudaga kl. 17-20. Sími 27990. Opið hús verður alla miðvikudaga frá kl. 20-22. Allir velkomnir. Geymið auglýsinguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.