Morgunblaðið - 29.10.1991, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 29.10.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ VtDSKDFTI/JQVINONUlÍF ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991 35 Tryggingar Skipulagsbreytingar hjá VÍS NÝTT skipulag hefur tekið gildi hjá Vátryggingarfélagi íslands. I^já félaginu hafa verið fjögur svið þ.e. stjórnunarsvið, fjármálasvið, vátryggingarsvið og markaðsssvið. Stjórnunarsviðið verður að mestu óbreytt að því undanskyldu að við það bætist innra eftirlit og áætlanagerð. Þá verða litlar breytingar gerðar á fjármálasviði. Hins vegar verða breytingar varðandi markaðssvið og vátryggingarsvið. Þau verða lögð niður í núverandi mynd en í staðinn hafa verið sett upp vátryggingasvið atvinnutrygginga og vátryggingasvið persónu- trygginga. Að sögn Inga R. Helgasonar, stjómarformanns VÍS hafa að undanförnu farið fram miklar um- ræður innan félagsins hvernig hægt væri að breyta skipuiaginu sem tekið var upp við stofnun félagsins í júlí 1989. Tillaga um nýtt skipulag var tekin til afgreiðslu á stjórnar- fundi 14. október og hún samþykkt einróma. „Við viljum fá betri þjón- ustu með þessu og meiri ábyrgð til þeirra sem stjórna þessum deildum. Við vitum að það þarf allt aðra þjónustu gagnvart fyrirtækjum en gagnvart einstaklingum. Hjá fyrir- tækjum eru hinir tryggingafræði- legu hagsmunir mjög sérstakir og breytilegir. Það liggur við að þurfi að skraddarasauma hveija ejnustu vátryggingarvernd,” sagði Ingi. Hilmar Pálsson verður fram- kvæmdastjóri vátryggingarsviðs atvinnutrygginga en Órn Gústafs- son, framkvæmdastjóri vátrygging- asviðs persónutrygginga. MorgunBlaðið/RAX TRYGGINGAR — Nýtt skipulag hefur tekið gildi hjá Vá- tryggingarfélagi Islands. Fyrirtæki Tap og ágóði áHöfn Höfn. ÞAD FER tvennum söguni af afkomu fyrirtækja á Höfn þar sem af er ári. I nýútkomnu fréttabréfi Kaupféiags Austur Skaftfellinga, KASK-fréttum, er greint frá taprekstri fyrstu 8 mánuðina. Samkvæmt fréttinni er rekstrarhalli félagsins 61 millj. króna en árið 1990 var hagnaður félagsins 65 millj. Mesta breytingin er í fiskvinnsl- unni en þar er nú verulegt tap. Hráefnisverð á bolfiski hefur hækk- að um 32% á sama tíma og afurðar- verð hefur hækkað um 16%. Þá munu frystar sfldarafurðir hafa verið umtalsvert ofmetnar við birgðamat í áramótauppgjöri. Fjármagnskostnaður er nú orð- inn 104 millj. samanborið við tæpar 40 millj. i fyrra. Undanfarið hafa menn leitað leiða til að draga úr kostnaði aðlaga reksturinn lakari ytri skilyrðum. Vikublaðið Eystrahorn færir les- endum sínum betri fregnir af af- komu útgerðar- og fískvinnslufyrir- tækisins Skinneyjar hf. fyrstu átta mánuði ársins. Hagnaður, að sögn Ásgríms Halldórssonar fram- kvæmdastjóra, var 34 millj. króna. Veltuaukning á þessu tímabili var 500 millj. króna. Hún stafar m.a. af 60% viðbót í humarfrystingu vegna aukins kvóta og aukningar í hráefniskaupum. í heildina er út- koman á útgerðinni betri nú en í fyrra en hlutur vinnslunnar lakari. JGG.H- HARÐDISKAR - YTRI 30 Mb J4.000,- 45 Mb - 28 ms. 39.900,- 50 Mb - 17 ms. 46.000,- 80 Mb- 17 rns. 46.000,- 105 Mb- 17 ms. 61.000,- 210 Mb- 15 ms. 99.000,- HARÐDISKAR - INNRI 30 Mb 29.000,- 45 Mb - 28 ms. 33.000,- 50 Mb - 17 ms. 39.000,- 80 Mb - 17 ms. 37.000,- 105 Mb- 17 ms. 57.000,- 210 Mb- 15 ms. 97.000,- HARÐDISKAR - VASA 45 Mb - 28 ms. 35.000,- 80 Mb - 20 ms. 43.000,- SKIPTID. OG SEGULB. SyQuest 42 Mb 59.000,- 42 Mb skiplidiskur 8.500,- SyQuest 88 Mb 84.000,- 88 Mb skiptidiskur 12.900,- CD ROM 600 Mb 290.000,- 600 Mb skiptidiskur 24.000,- 1.2 Gb DAT 190.000,- Hlölvusetrið Pöntunarsími 62 67 81 .900 Innifaliö 80286 örgjörvi, 1 MB minni 1,44 MB disklingadrif, 60 MB seguldiskur, 8513 litaskjár, Dos 5.0 og vélritunar-KORN Sími: 615833 • FAX 91-621531 SAMEIND s&im***** F'árha9S,?sKOBH 50°/c Au a\\t að notKun Brautarholti 8 • 108 Reykjavik stgr. ;g m/vsk. s^S?AKKi /»*w?1 P9.900 _ st9r. m/vsk Nú á lægra verði en eftirlíkingar Aðeins kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.