Morgunblaðið - 29.10.1991, Síða 44

Morgunblaðið - 29.10.1991, Síða 44
44 M,ORGUNBLAí)IÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTOBER 1991 Sigríður G. Sæmunds- dóttír - Minning Fædd 26. september 1920 Dáin 19. október 1991 í dag verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði amma okkar, Sigríður Guðný Sæmundsdóttir. Andlát hennar bar mjög brátt að, það er varla að við trúum því að hún amma okkar sé dáin. Mannkostir og dugnaður ömmu kom fram í öllum hennar verkum, hún var annáluð fyrir myndarskap við heimilisstörfin og hannyrðir léku í höndum hennar alla tíð. í augum ömmu var ekkert verk svo lítílfyörlegt að það verðskuldaði ekki vandvirkni. Þegar hún færði bömum okkar peysur og vettlinga var það alltaf listilega útpijónað, og sýndi vel hversu smekkleg hún var. Öllum dætmm okkar færði hún fallega heklaða kjóla og fylgdu gjarnan með eins kjólar á dúkkumar þeirra. Bömum okkar sýndi hún mikla hlýju og hafði áhuga á öllum þeirra málum. Varla leið sú vika að hún kæmi ekki til okkar allra út á Seltjamames. Núna í seinni tíð kom hún í strætisvagni frá Hafn- arfirði og lét hvorki veður né vinda stöðva sig, undruðumst við oft dugnað hennar og seiglu. Tryggð og ættrækni ömmu var slík að aðdáun vakti, aldrei brást það að amma kæmi í heimsókn á afmælis- dögum okkar og skipti þá engu máli þótt engin væri veislan. Nokkur undanfarin ár höfum við systumar farið saman með öll bömin í sumarbústað á Laugar- vatni, og komu afi og amma oft í heimsókn, og höfðu þau greini- lega gaman af því að vera úti í náttúmnni og njóta samverunnar við bömin. Síðustu árin starfaði amma mikið í systrafélagi Víðistaða- kirkju og veitti það henni ómælda ánægju. Nýlega fór hún í dagsferð með konunum í félaginu og skemmti sér konunglega, það vit- um við vegna þess að hún hló svo mikið þegar hún lýsti hinum ýms- um uppákomum sem þær lentu í, að við gleymum því ekki í bráð. Við vitum að vináttan og samstarf- ið í systrafélaginu var ömmu mik- ils virði. Oft var fjölmennt á heimili afa og ömmu þegar fjölskyldan hittist á tyllidögum og afmælum, og var alltaf jafn gaman að koma á þeirra fallega heimili. Við viljum að lokum þakka ömmu Siddu fyrir alla umhyggj- una og hlýjuna sem hún sýndi okkur og bömunum okkar í gegn- um árin. Við munum minnast hennar með virðingu og þakklæti því hún var okkur öllum svo góð. Elsku afi Doddi. Missir þinn er mikill og biðjum við þess að Guð gefí þér styrk á erfíðri stund. Jóna Kolbrún, Hafdis Hrönn og Bryndís Bára. Eg vil með fáeinum orðum minnast mikillar sómakonu, Sig- ríðar Sæmundsdóttur, sem lést snögglega laugardaginn 19. októ- ber. Eg varð þeirrar ánægju að- njótandi að hafa hana sem ná- grannakonu um 13 ára skeið. Sig- ríður bjó ásamt eiginmanni sínum Þórði Guðmundssyni á Hjallabraut 13 í Hafnarfírði, þau hjón áttu íbúð andspænis minni á stigagang- inum og var alla tíð mikill sam- gangur milli heimila okkar. Sigríð- ur á móti eins og við fjölskylda mín kölluðum hana var margfróð og víðlesin og skemmtileg í við- ræðu, og nutum við þess oft þegar hún kallaði okkur yfir í kaffí og úrvals bakkelsi af bestu gerð. Við Sigríður störfuðum saman í kven- félagi Víðistaðasóknar og hvöttum hvor aðra í því starfi, og þótt stundum væri ég þreytt og löt að vinnudegi loknum, og ætlaði vart að nenna á fund var engin undan- komuleið þegar frú Sigríður var mætt við dyrnar í sínu fínasta pússi og spurði hvort við værum ekki að verða seinar. Á föndur- kvöldunum duldist engum er til sáu einstök vandvirkni og list Sig- ríðar við hannyrðir, eins ber heim- ili hennar fagurt vitni listsköpunar hennar á því sviði. Ég vil þakka Sigríði fyrir alla hlýju í minn garð og minna, og þakka henni einstaklega ánægju- leg kynni, og bið henni guðs bless- unar. Oktavía Klara Olsen Arna- * dóttir - Minning Fædd 12. október 1921 Dáin 12. október 1991 í dag verður vinkona mín Klara Olsen Ámadóttir, Faxabraut 6, Keflavík, borin til hinstu hvílu frá Keflavíkurkirkju. Klara var fædd í Reykjavík 12. * október 1921, en foreldrar hennar voru Ólöf Einarsdóttir og Ámi Árnason bæði búsett í Reykjavík. Klara ólst upp hjá móður sinni og tveimur systkinum hér í Reykja- vík, en bróðir hennar hét Ragnar Ólsen og lést 1979 en eftir lifír systir hennar Margrét Olsen Áma- dóttir, sem einnig býr í Keflavík. Klara lagði gjörva hönd á margt á yngri árum og var hvarvetna talinn góður starfskraftur vegna vandvirkni sinnar, dugnaðar og glaðværðar. Meðal annars vann hún við framleiðslu- og eldhús- störf um árabil hjá Bjama Kristjánssyni, veitingamanni í . Verkamannaskýlinu hér í Reykja- vík. Árið 1976 flyst Klara svo til Keflavíkur vegna atvinnu sinnar Blómaskreytingar Skreytingarþjónusta Muniðað blóm gleðja v Miklatorgi sími 622040 Breiðholti sími 670690 Opið alla daga kl. 10-21 og var búsett þar upp frá því til dauðadags en síðustu árin gegndi hún verkstjórastörfum í sameigin- legri kaffíteríu íslenskra og er- lendra starfsmanna á Keflavíkur- flugvelli. Einnig var Klara vel lát- in og duglegur starfsmaður, sem rakti störf sín af meðfæddri skyldurækni og samviskusemi svo lengi sem heilsa og kraftar ent- ust. Klara varð fyrir því alvarlega hjartaáfalli eftir að hún komst á sjötugsaldur og náði sér aldrei fyllilega eftir það, þó að hún stæði meðan stætt var. Klara eignaðist tvö börn sem bæði eru uppkomin og gift, þau Ólöf Ólafsdóttur, f. 11. september 1939, og Sigurð Vilhelm Olafsson, f. 2. nóvember 1937. Bæði börn Klöm era dugnaðar- og mann- dómsfólk og vora móður sinni til ánægju og stuðnings í lífínu. Svo vel vildi til, að Ólöf dóttir hennar er nýflutt hingað til lands ásamt bandarískum eiginmanni sínum eftir búsetu erlendis og varð það henni mikill styrkur í veikindun- um. Bamabörn Klöru og bama- barnaböm eru nú orðin mörg, og hélt Klara sambandi við þann hóp r Minning Semjum minningargreinar, afmælisgreinar, tækifærisgreinar. Önnumst milligöngu við útfararstofnanir. Sími 91-677585. Fax 91-677586. V J allt til hinstu stundar. Við Klara voram vinkonur í hálfan fimmta áratug og gleymi ég því aldrei hve annt henni var um mig og fjölskyldu mína alla tíð. Það var gæfa mín að kynnast svo góðri konu sem Klara var og fá að verða henni samferða í nærri hálfa öld. Ég flyt bömum hennar og öðram ættingjum innilegar samúðarkveðjur frá mér og böm- um mínum. Megi hún hvíla í friði. Kristín Kristinsdóttir Okkur bræðuma langar til að minnast í örfáum orðum hennar Klöra, en hún andaðist 21. þessa mánaðar. Andlát hennar bar skjótt að en einungis nokkram dögum áður höfðum við bræðumir skroppið saman suður til Keflavíkur til þess að samgleðjast henni á sjötíu ára afmæli hennar. Þá var hún, sem alltaf, hress og kát og síst gran- aði okkur að þetta yrði síðasta samverastund okkar með henni. Klara var af þeirri manngerð sem aldrei virtist reiðast. Lífs- gleði, bjartsýni og velvilji vora hennar aðalsmerki. Samveru- stundir okkar bræðranna með henni Klöra voru margar, sérstak- lega á okkar yngri áram, og allar ánægjulegar. Hún hafði einkar gott lag á bömum og vissi upp á hár hvernig ætti að gleðja bams- hjarta. Þær era því margar gleði- stundimar sem við höfum að minn- ast, stundir sem aldrei munu gleymast. I hugum okkar og hjörtum mun minning hennar lifa áfram, ekki vegna ætternis hennar eða mikilla verka, heldur vegna hjartahlýju hennar og elsku. Um leið og við sendum börnum hennar, tengdabörnum og barna- bömum okkar innilegustu samúðarkveðjur, viljum við þakka Guði þá gæfu að hafa fengið að kynnast henni Klöru. Megi Guð blessa minningu hennar. Pétur og Gunnar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (Vald. Briem) LEGSTEMAR VETRARTILBOÐ -5 Grcðiiíl s/0 # HELLUHRAUNI 14 -220 HAFNARFIRÐI • SIMI 652707 OPIÐ9-18. LAUGARDAGA FRÁ'KL. 10-15. Hjartans þakkir til allra þeirra, er auðsýndu samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför SIGURVEIGAR VIGFÚSDÓTTUR, Freyjugötu 38. Steinunn Pétursdóttir, Birgir Jónsson og barnabörn. Lokað eftir hádegi í dag, þriðjudaginn 29. október 1991 vegna jarðarfarar HJÁLMARS VILHJÁLMSSONAR fyrrverandi ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðu- neytinu. Félagsmálaráðuneytið. I Erfídrykkjur í hlýlegu og notalegu umhverfí Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfidrykkjur fyrir £ allt að 300 manns. I boði eru snittur með margvíslegu áleggi, brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með g rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur, * rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fl. Með virðingu, FLUGLEIÐIR HÓTEL LOFTLEIDIR REYKIAVlKURFLUGVCLU. 101 REYK/AVlK SIM1: 9 1-22322 Okkur langar til að kveðja elsku ömmu okkar, Klöru Olsen Árna- dóttur, með nokkrum orðum. Alltaf var hún til staðar fyrir okkur systkinin og var okkur góð. Við og fjölskyldur okkar eigum margs að minnast, því ferðirnar til ömmu hafa verið margar og var þá mikið spjallað eða spilað og alltaf var eitthvað góðgæti til handa langömmubömunum. Nú þegar amma er horfin yfir móðuna miklu viljum við, makar okkar og börn, þakka henni sam- fylgdina, minning hennar mun búa í hjörtum okkar allra um ókomin ár. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem.) Stefán, Sigga, Friðrik, Árni og Clara. Nafn greinarhöf- undar féll niður Nafn höfundar, eins þriggja, sem skrifuðu minningargrein í blaðið sl. föstudag, um Sigurveigu Gutt- ormsdóttur, féll niður. Undir greininni átti að standa: Sigríður Th. Erlendsdóttir, Vigdís Finnboga- dóttir, Bergljót Ingólfsdóttir. Era hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á mistökunum. Gullfallegur salur til leigu í Fossvoginum hentugur fyrir erfidrykkjur. • SEM-hópurinn. Sími 67 74 70 BLOM SEGJA ALIT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.