Morgunblaðið - 29.10.1991, Qupperneq 51
.....iiiiiiiiiiiimiiiiiimiiMiiiiiiMiiniiijiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmiimimnimnTi
' MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991
51
SÍMI 78900 - ÁLFABAKKA 8 - BREIÐHOLTI
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
KR. 300 Á ALLAR MYNDIR NEMA:
RÉTTLÆTINU FULLNÆGT
FRUMSÝNIR TOPPSPENNUMYNDINA
RÉTTLÆTINU FULLNÆGT
„OUT FOR JUSCTICE" MALAÐI SAMKEPPNINA
OG FÓR BEINT Á TOPPINN í SUMAR VESTAN
HAES. HÚN SÓPAÐIINN 660 MILLJÓNUM EYRSTU
HELGINA. STEVEN SEAGAL FER HÉR HAMFÖR-
UM. „OUT FOR JUSTICE" FRAMLEIDD AE ARN-
OLD KOPELSON (PLATOON).
„OUT FOR JUSTICE” - SFENHUMYND í SÉRFLOKKI
Aðalhlutverk: Steven Seagal, William Forsyth,
Dominic Cheanse, Jerry Orbach.
Framleiðandi: Arnold Kopelson.
Leikstjóri: John Flynn.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð börnum i. 16 ára.
ÞRUMUGNÝR
Sýnd kl.4.50,6.55,9 og
11.10. Bönnuðinnan 16ára.
Kr. 300.
RAKETTU-
MAÐURINN
Sýnd kl. 5og7.
Kr. 300.
Bönnuð i. 10ára.
OSCAR
Sýnd kl. 6,7,9
og 11.
Kr. 300.
ISÁLARFJÖTRUM
Sýnd kl. 9og 11.
Bönnuði. 16ára.
Kr. 300.
LÁRÉTT— 1 urmul, 5 skran, 6
spjót, 7 tónn, 8 belti, 11 bókstaf-
ur, 12 kraftur, 14 skvamp, 16 risa.
LÖÐRÉTT: — 1 nýtilegt, 2 uxinn,
3 leðja, 4 fóðrun, 7 gyðja, 9 inn-
yfli, 10 ílát, 13 tíni, 15 ósamstæðir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU.
LÁRÉTT: — 1 kossar, 5 tá, 6
ámálga, 9 möl, 10 in, 11 hr., 12
eld, 13 ögri, 15 óma, 17 gæsina.
LÓÐRÉTT: — 1 klámhögg, 2 stál,
3 sál, 4 róandi, 7 mörg, 8 gil, 12
eimi, 14 rós, 16 an.
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
J
\
Þríðjudagstilboð
á allar myndir
Miðaverð kr. 300
Tilboðsverö á poppi og kóki!
V.
r
SÝNIR HINA MÖGNUÐU SPENNUMYND:
BROT
„BESTI SPENNUTRYLLIR
ÁRSINS”
SHITTEIED
mS:
SPectral recordiNG . -y.s-
□□[öö^Riö]@a r ,
Frumsýning er samtímis í Los Angeles og í Reyk)avík
á þessari erótísku og dularfullu spennumynd leikstjórans Wolf-
gangs Petersens (Das Boot og Never ending story).
Þad er ekki unnt að greina frá söguþræði þessarar ein-
stöku spennumyndar - svo óvæntur og spennandi er
hann.
Aðalhlv.: Tom Berenger (The Big Chill), Bob Hoskins (WhcrFramed
Roger Rabbit), Greta Scacchi (Presumed Innocent) Joanne Whal-
ley-Kilmer (Kill Me Again - Scandal) og Corbin Bernsen (L.A. Law).
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Ath. númeruð sæti kl. 9, laugardag og sunnudag.
DAUÐAKOSSINN
r\ rújju
RPEÍTRP iwiivr
nUUIVL uiiiiu
UNIVÉFtSAL
Æsispennandi mynd um stúlku sem leitar að morðingja tvíbura-
systur sinnar.
Aðalhlutverk: Matt Dillon, Sean Young og Max von Sydow.
Sýnd í B-sal kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð yngri en 16 ára.
HEILLAGRIPURINN
Frábær spennu-gamanmynd ★ ★ ★ AI Mbl.
Sýnd í C-sal kl. 5, 7, 9 og 11.
Réttlæti
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Réttlætinu fullnægl („Out
for Justice”). Sýnd í Bíó-
höllinni. Leikstjóri: John
Flynn. Framleiðandi: Arn-
old Kopelson. Aðalhlut-
verk: Steven Seagal, Will-
iam Forsythe, Dominic
Cheanse, Jerry Orbach.
Bandaríkin. 1991.
Steven Seagal er nýjasta
stjarnan á himni harðhaus-
anna. Hann hefur skotið kol-
legum sinum eins og Chuck
Norris og Jean Claude van
Damme rækilega ref fyrir
rass. Vinsældir Seagals eru
talsverðar, hver mynd trygg-
ir framleiðendunum tugi
milljóna dollara og þótt hann
sé mistækur batna hann með
hverri nýrri mynd. Hann
gefur áhorfendum sínum það
sem þeir vilja; hrátt ofbeldi
og hasar. Og hann er yfir-
leitt ekki að reyna að vera
annað en hann er. Hasar-
myndir eru hans fag.
Eins ogt.d. nýjasta mynd-
in ber glöggt vitni um. Hún
heitir mjög dæmigerðu Seag-
alnafni, Réttlætinu fullnægt,
og segir frá eltingarleik hans
við snarbilaðan sakamann
sem drepur löggufélaga hans
og saklausa vegfarendur ef
því er að skipta í einskonar
krakkbilun. Seagal ólst upp
í hverfunum þaðan sem bijá-
læðingurinn kemur, þekkir
helstu mafíósa og smák-
rimma en eirir engu tii að ná
í kauða. Mafían sjálf fær
heldur góða dóma í mynd-
inni. Það er skýrt tekið fram
að hún vinni ekki neitt svipað
Seagals
hinum skotglaða vitleysingi
og hún reynir einnig að hafa
hendur í hári hans.
Þessum einfalda sögu-
þræði er fylgt úr hlaði með
hreinum aftökum glæpa-
hundsins á götu úti um há-
bjartan dag en það er fyrir-
boði frekara ofbeldis, elting-
arleikja og skotbardaga í
skuggahverfum Brooklyn
þar sem Seagal fer létt með
misindismennina.
Seagalmyndirnar eru allar
byggðar upp á mjög svipað-
an hátt. Byrjunin er iðulega
notuð til að setja saman
hefndarþemað sem kveikir
adrenalínrennslið í Seagal,
millikaflinn er eltingaleikur
og frekari kynning á Seagal
yfirleitt sem elskulegum fjöl-
skyldumanni, trygglyndum
vini vina sinna og loks er það
lokabardaginn þar sem skot-
þunginn er ekki sparaður.
Voðamennin eru útmáluð
sem sérstakir grimmdar-
seggir og sorapokar svo
hlakki nú í áhorfendum þeg-
ar þeir loks falla. Eina rétt-
lætið er dauðinn.
Réttlætinu fullnægt hefur
alla þessa þætti formúlunnar
í sér. En hún er með betri
Seagalmyndum sem sýndar
hafa verið og á leikstjórinn
John Flynn („Bestseller”)
stóran þátt í því. Hasarinn
er hraður og harður og hand-
ritið bitastæðara en oft áður.
Seagal er viðunandi og au-
kaleikararnir era góðir, sér-
staklega William Forsythe
sem gefur morðingjanum
einkar sálsýkislegt yfir-
bragð. Jerry Orbach bregður
einnig fyrir í litlu hlutverki
lögregluforingja.
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 300 Á ALLAR MYNDIR NEMA
„NIÐURMEÐ PÁFANN’’
AÐVORUN
Skv. tilmælum frá kvik-
myndaeftirliti eru aðeins
sýningar kl. 9 og 11.
Stranglega bönnuð innar
16 ára.
GÓÐITANNHIRÐIRINN
Sýnd kl. 5 og 7.
DRAUGAGANGUR
Sýnd kl. 5og7.
Atriöi í myndinni eru ekki viö
hæfi ungra barna.
Faðir vor þú sem ert í vandræðum. Nú höfum við
versta páfa frá upphafi og verðum að losa okkur við
hann - strax.
Aðalhlutverk. Robbie Coltrane (Nuns on the Run)
ATH.: Kaþólskir leikmenn á íslandi sem bannfærðir
bafa verið af páfanum fá ókeypis inn.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
CYRANO DE BERGERAC ★ * ★ sv mw. ★ ★ ★ ★ sh þív.
Sýnd kl. 9
Ath. síðustu sýn. á þessari frábæru Óskarsverðlaunamynd.
Jón Hjálmarsson ásamt starfsstúlku verslunarinnar Sig-
Sýnd kl. 5 og 7.
HROIHOTTUR
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuö börnum innan 10 ára.
OSKARSVERÐLAUNAMYNDIN:
1)AN5/IR V$>
★ ★ ★ ★
SV MBL.
★ ★ ★ ★
HENRY
HETJUDÁÐ DANÍELS
AK. Tíminn
Sýnd kl. 9
Bönnuð innan 14 ára.
urbjörgu Hofritz.
Eigendaskipti á Bóka-
búð Lárusar Blöndals
FYRIR skömmu urðu eigendaskipti á Bókabúð Lárusar
Blöndals en Lárus hafði rekið búðina í tæp 50 ár og hún
því ein elsta búð bæjarins.
Bókabúðin, sem er til húsa
á Skólavörðustíg 2, verður
rekin með svipuðu sniði og
hingað til, þ.e. lítil en kraft-
mikil verslun með persónulega
þjónustu ef þess er óskað.
Hinn nýi eigandi er Jón Hjálm-
arsson.
Bókabúð Lárusar Blöndals
leggur megináherslu á að vera
með allar helstu bækurnar á !
markaðnum. Þá fást öll helstu
blöð sem gefín eru út hérlend-
is auk margra þekktra heims-
tímarita fagrita sem
afleysingarrita. Þá eru á boð-
stólum öll helstu ritföng, al-
gengustu skólavörur o.fl.
(Fréttatilkynning)