Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 53

Morgunblaðið - 29.10.1991, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991 53 SIEMENS VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVEFIN VINNINGSHAFA 1. 5al5 4 1.687.931 2. 4SS< 178.905 Q O. 4ai5 648 1.905 4. 3al5 6.337 454 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 11.578.782 kr. upplýsingar: siMSVARi 91 -681511 lukkuiIna991002 flAHVj. Heilræði Rjúpnaveiðimenn: Á þessum árstíma skipast veður oft skjótt í lofti. Kynnið ykkur því veðurútlitið áður en lagt er upp í veiðiferðina. Klæðist ávallt ullarföt- um og hafið meðferðis léttan hlífðarfatnað í áberandi lit. Grannskoð- ið allan búnað ykkar og vandið hann af stakri umhyggju. Sýnið for- sjálni og gætni á öllum leiðum og tillitsemi við þau er heima bíða. Orðskrípi vann samkeppni Til Velvakanda. Ég get ekki orða bundist, svo sorgmæddur var ég er gert var heyrinkunnugt um úrslit í sam- keppni um nafn á nýtt kvikmynda- hús í Reykjavík. Milli 70 og 80 þúsund tillögur bárust og hefði því átt að vera úr nógu að moða, og einhveiju bitastæðu. En heitið, sem valið var, tók allri annarri vitleysu fram. Sagabíó skal það heita. Skyldi það þýða að aðeins verði sýndar kvikmyndir um keðjusagir, stórviðarsagir, bakkasagir og aðr- ar sagir? Verða þetta ef til vill ein- göngu iðnaðarfræðslumyndir? Eða það sem ennþá verra væri, eintóm- ar myndir um morð með sagir að vopni? Keðjusagamorðin I, síðan II o.s.frv.? Guð forði oss frá því. Vinur minn einn sagði mér að hann hefði verið viss um að vinna í þess- ari keppni því hann sendi inn bráð- snjalla tillögu: Kvikyndi. Það segði allt sem segja þarf um eitt kvik- myndahús: Það er fjörugt eða kvikt og veitir yndi þeim sem þangað sækja. Auk þess líkist það kvik- indi, sem gleypir fólk og lætur það gleyma sjálfu sér við að horfa á skemmtilegar, menningarlegar og fróðlegar kvikmyndir. En nei, ó vei, ó vei: Sagabíó skal það heita, og sennilega borið fram með g eins og í sagógijón: sa-ga-bíó, en hví ekki ga-ga-bíó? Nema dómnefndin sé haldin Svíasýki og sjái fyrir sér ljósaskilti eins og í borgum Norður- landa þar sem SAS-flugfélög reka Saga-hótel. Nei og aftur nei, segi ég, farið nú að hætta þessari lágk- úru og snúið ykkur að íslensku máli í nafngiftum. Orðskrípi eins og Sagabíó ætti í raun að vera saka-mál. Kveðja frá Leppalúða Vinningslolur laugardaglnn 26. okt. 1991 VELVAKAMDI SVARAR í SÍMA B91282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS --------- Sjálfsvíg Biskup íslands, herra Ólafur Skúla- son, hafði samband við Veivakanda vegna klausu í þessum dálkum síð- asta laugardag. Vildi hann að fram kæmi, að með orðinu draugabær hefði hann átt við bæ þar sem íbú- arnir eru allir fluttir í burtu. Enginn annar skilningur á því orði hefði verið í huga hans. Hafi þetta orð sært einhvern harmar biskup það. Hann minnti á að sjálfsvíg snerta ekki aðeins þá nánustu heldur heil bygggðariög og þar með þjóðina alla. Frábær þjónusta Alltof sjaldan er á það minnst sem vel er gert. Við mæðgurnar fórum með gamlan frænda í herrafataverslun Guðsteins Eyjólfssonar á Lauga- vegi, til að kaupa spariföt. Það má með sanni segja að starfsfólk- ið þar er með þjónustulund og hjartagæsku og taka hveijum við- skiptavini eins og hann er. Frænd- inn sem annars er stundum þver og áhyggjufullur var léttari í spori er út var komið eftir vel heppnuð viðskipti. Smávegis breytingar voru nauðsynlegar á fötunum og máttum við sækja þau tveimur og hálfri klukkustund seinna. Þannig að hann gat farið með þau með sér til baka en hann er utanbæjar- maður. Þökkum góðar viðtökur og bendum ölium ungum og sérlega eldri herrum á þess góðu verslun. Virðingarfyllst Mæðgurnar Uppþvottavélar í miklu úrvali! SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar, hljóðlátar og sparneytnar. Breidd: 45 og 60 sm SMÍTH & NORLAND NÓATÚNI4 - SlMI 28300 g Meira en þú geturímyndaó þér!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.