Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991 {FÁLKINN Fundur um sameiningu sveitarfélaga: Simnlendingar jákvæð- ir fyrir sameiningu Skilgreina þarf vel aukin verkefni og nýja tekjustofna Selfossi. Meðal leiktækja sem komin eru í Selið má nefna borðtennisborð, billiardborð, fótboltaspil, bob o. fl. STERK krafa um þjónustu er aðal- ástæðan fyrir því að fólk flyst af landsbyggðinni. Þetta kom fram í máli Olafar Thorarensen félags- málastjóra á fundi sem haldinn var á Selfossi um sameiningu sveitarfélaga. Fundinn sóttu um 100 sveitarstjórnarmenn af Suður- landi. Flestir þeir sem til máls tóku voru fylgjandi sameiningu sveitarfélaga að einhveiju leyti. A fundinum kom fram að ein fimm manna fjölskylda flyst af lands- byggðinni á höfuðborgarsvæðið að meðaltali á degi hveijum. Á fundinum var kynnt áfanga- skýrsla nefndar sem vann að tillögu- gerð um æskilega skiptingu landsins í sveitarfélög. Sigfús Jónsson for- maður nefndarinnar sagði að þess yrði að gæta að mynduð yrðu heild- stæð þjónustusvæði. Fólk yrði að vera tilbúið að laga mörk sveitar- félaganna að breyttri byggð og að stjómsýslumörk ríkis og sveitar- félaga yrðu að fara saman. Hann benti á að sem dæmi um aukin verk- efni sveitarfélaganna við stækkun þeirra þá gætu þau tekið við öllum rekstri grunnskóla og hafna. Til þess að slíkt gæti gengið upp yrðu þau að fá tekjustofna á móti og um þau mál ætti eftir að vinna tillögur. Hann sagði knýjandi nauðsyn að stækka atvinnusvæðin á hverjum stað. Fólk sækti vinnu langt út fyrir mörk sveit- arfélaganna og stækkun sveitar- t—á félaga kæmi í veg fyrir að mörk þeirra hindruðu atvinnusókn fólks. „Ef menn taka þátt í því að efla sveitarfélögin gegn því að tekjur þeirra og verkefni aukist er hafin sóknarbarátta til varnar landsbyggð- inni,” sagði Sigfús. Hann sagði við- horf gagnvart sameiningu sveitar- félaga mun jákvæðari en áður. Sveitarstjórnarmenn væru farnir að hugsa um þessi mál af alvöru. Hann sagði nauðsynlegt að taka ákvörðun á þessu kjörtímabili um það sem fyrirhugað væri að gera svo unnt væri að vinna markvisst að samein- ingu. Hvað framkvæmdina snerti væri litið til þess að henni lyki 1998. Ellert Eiríksson einn nefndar- manna sagðist hafa styrkst í þeirri trú að efiing sveitarstjórnarstigsins væri besta leiðin til þess að styrkja byggð í landinu. Hann nefndi sem dæmi að í Orlando í Bandaríkjunum væri 185 þúsund manna byggð en aðeins 7 kjömir sveitarstjórnarmenn. Hann lagði áherslu á að sameining styddi jaðarbyggðir. Sveitarstjórnarmenn sem til máls tóku sögðu mikilvægt að vita hver hin auknu verkefni yrðu og þá um leið hvaða tekjur kæmu á móti. Flest- ir voru hlynntir því að sameina stórt og láta sýslumörkin ráða. Gefa þyrfti sameiningunni tíma til að komast í framkvæmd. Endanleg ákvörðun yrði að vera hjá sveitarstjómunum á hveijum stað og íbúunum. Nokkrir sem til máls tóku lögðu áherslu á að sameining væri ekki lausnin á vanda landsbyggðarinnar heldur þyrfti að auka tekjur sveitar- félaganna. „Okkur vantar tekjur. Ég skil ekki þá varnarbaráttu sem felst í því að farga sjálfum sér,” sagði Magnús Finnbogason á Lágafelli. Olöf Thorarensen félagsmálastjóri á Selfossi benti á nauðsyn þess að mynda stór þjónustusvæði. Slík nauðsyn kæmi meðal annars fram í því að fólk úr aliri Ámessýslu kæmi á skrifstofu félagsmálastofnunar Selfoss og vildi ræða félagsleg mál. Það velti því meðal annars fyrir sér hvers vegna ekki væri sama þjónusta hjá öilum sveitarfélögum. Ólöf sagð- ist verða vör við sterka kröfu um þjónustu og sú krafa væri aðalástæð- an fyrir því að fólk flyttist burt. Undir þessi orð hennar tóku nefndar- menn sem unnu áfangaskýrsluna og sögðu þetta koma fram í máli allra þeirra sem stýrðu félagsþjónustu í stærri bæjum á landsbyggðinni. Fulltrúaráð Sambands íslenskra ■ ÍSLENSKI kiljuklúbburinn hefur sent frá sér þijár nýjar bæk- ur. I kynningu útgefanda segir svo um bækumar: „Haustskip eftir Björn Th. Björnsson er heimilda- saga og gerist á síðari hluta 18. ald- ar. Þar er greint frá örlögum hátt á annað hundrað manna sem fluttir voru með haustskipum í danskan festingaþrældóm eða spunahús. Slóðir þessa fólks liggja um allt ís- land, um Kaupmannahöfn og loks norður á Finnmörk, þangað sem allir íslenskir fangar í Danmörku vora fluttir nauðugir vorið 1763. Bókin kom fyrst út árið 1975. Leikritið Ljón á síðbuxum sem Leikfélag Reykjavíkur sýnir nú er byggt á einni persónu bókarinnar. Bókin er 356 bls. og prýdd fjölda teikninga eftir Hilmar Þ. Helgason. Hneyksli eftir japanska höfundinn Shusaku Endo er sálfræðileg spennusaga um tvífar- aminnið. Hún var á örskömmum tíma metsölubók í Japan og hefur síðan verið þýdd á fjölmörg tungumál. Ulfur Hjörvar þýddi bókina sem er 239 bls. Suður um höfin er spennu- saga eftir spænska höfundinn Manu- el Vázques Motalbán. Einkaspæjar- inn Pepe Carvalho er fenginn til að rannsaka morðið á auðugum og list- hneigðum miðaldra manni í Barcel- ona. Bókin fékk Planetaverðlaunin á Spáni árið 1979 og alþjóðlegu spenn- usagnaverðlaunin í Frakklandi árið 1981. Jón Hallur Stefánsson þýddi bókina sem er 188 bls.” Selið — ný félagsmið- stöð í Garði Garði, Fyrir nokkrum dögum var form- lega opnaður nýr viðverustaður fyrir unga fólkið í Garðinum. Rafn Guðbergsson formaður æskulýðsnefndar opnaði staðinn formlega að viðstöddum gestum. Selið verður fyrst um sinn opið á þriðjudögum og miðvikudögum milli kl. 20 og 22.30, en auk þess er stefnt að því að hafa opið á laug- ardögum fyrir yngsta fólkið. Selinu bárust ýmsar gjafir frá félagssam- tökum í Garðinum. Kvenfélagið gaf t.d 10 þúsund krónur, báðar stúk- urnar gáfu peninga auk þess sem þær gáfu vilyrði fyrir aukinni að- stoð við unglingana ef þeir óskuðu þess. Þá gáfu bæði kiwanis- og li- onsklúbburinn vilyrði fyrir aðstoð við kaup á tækjum í félagsmiðstöð- ina. Kári Steinsson, formaður nem- endaráðs, hafði orð fyrir nemendum og lýsti ánægju þeirra með hús- næðið. Félagsmiðstöðin er í hús- næði sem kennt hefir verið í undanf- arin ár og er ætlað sem búningsklef- ar fyrir væntanlega sundlaug. Arnór --------------- ■ HÁDEGISFUNDUR verður haldin í Háskólanum á vegum Rannsóknastofu í Kvennafræðum miðvikudaginn 30. október. Inga Huld Hákonardóttir rabbar um Hallgerði Langbrók og lútersku eig- inkonuímyndina, út frá rannsókn sinni á ástum og kynlífi íslendinga í 1000 ár. Fundurinn verður í Odda, stofu 202, kl. 12-13. Allt áhugafólk um kvennarannsóknir er velkomið. SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 814670 sveitarfélaga mun álykta til félags- málaráðherra um áfangaskýrsluna og mögulega sameiningu sveitarfé- laga, á aukafundi fulltrúaráðs þess 23. nóvember. Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Sigfús Jónsson flytur ræðu um tillögur að skiptingu landsins í sveit- arfélög. Fyrstu Háskólatónleikar vetrarins optibelt KÍLREIMAR FYRSTU Háskólatónleikar vetr- arins verða í Norræna húsinu miðvikudaginn 30. október kl. 12.30. Þá leika Sigurður Hall- dórsson og Kristinn Örn Kristins- son verk fyrir selló og píanó eft- ir Benjamin Britten og Aulis Sallinen. Um er að ræða frum- flutning á Islandi á verkinu „From a Swan Song” eftir Sallin- en, en eftir Britten verður flutt sónata í C-dúr. Aulis Sallinen fæddist í Finnlandi árið 1935 og vann til tónskáldaverð- launa Norðurlandaráðs árið 1978 fyrir óperuna „Ratsumis”. From a Swan Song er samið fyrir tilstuðlan alþjóðlegu Paolo-sellókeppninnar, sem haldin er í Finnlandi. Sigurður Halldórsson lauk burt- fararprófí frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1985. Aðalkennari hans var Gunnar Kvaran. Sigurður menntaðist frekar í sellóleik erlend- is, aðallega undir leiðsögn Raphael Sommers. Kristinn Örn stundaði nám við Tónlistarskólann á Akureyri, lengst af undir leiðsöng Philip Jenkins og lauk þaðan lokaprófi 1977. Kristinn Sigurður Halldórsson miðvikudaga á sama tíma og sama stað. Aðgangur er 300 kr. en 250 kr. fyrir handhafa stúdentaskírtein- is. (Ur Fréttatilkynningu) ÆFJ REIMSKÍFUR OG FESTIHÓLKAR Drifbúnaður hvers konar er sérgrein okkar. Allt evrópsk gæðavara. Veitum tæknilega ráðgjöf við val á drifbúnaði. Það borgar sig að nota það besta. Þekking Reynsla Þjónusta Kristinn Öm Kristinsson stundaði framhaldsnám erlendis um nokkurra ára skeið en kennur nú við tónlistarskóla íslenska Suzuki- sambandsins í Reykjavík. Háskólatónleikar verða næstu 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.