Morgunblaðið - 02.11.1991, Qupperneq 9
MÓRÖÚNBLAÐÍÐ LAUGAIiDAGUR 2. NÓVKMBER 1991
□□□□□□
MCOjárnrúm
Ný sending - mikið úrval
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVIKCJRVEGl 66 HAFMARFIRÐI SÍMI 54100
Teg. 726 160x200
Teg. 596 Br. 80-90-140-160
Verð frá 24.690,- 80x190 m/svampi.
OPIÐ í DAG TIL KL. 16
SUNNUDAG KL. 14-16
p jl [afeife
| Meimenþúgeturímyndaðþér!
Bush ívanda á heima-
slóðum
Stuðningur bandarískra kjósenda við
George Bush forseta fer nú hratt minnk-
andi ef marka má skoðanakannanir er
sýna aðeins 47% fylgi. Skömmu eftir
Persaflóastríðið naut hann fylgis þorra
Bandaríkjamanna en sigrar hans í utan-
ríkismálum geta vart tryggt honum end-
urkjör á næsta ári. Sá málaflokkur er
sjaldnast jafn ofarlega á baugi í Banda-
ríkjunum og versnandi efnahagur lands-
manna, fíkniefnavandinn og kynþáttaríg-
ur. Fjölmiðlar á Vesturlöndum hafa fjallað
um stöðu Bush en forsetakosningar
verða á næsta ári.
Utanríkismál-
inekkiallt
„Bush er að ósekju
kennt um kreppuna í
Bandaríkjunum sem er
jafn þrálát og slæm
flensa,” segir breska
blaðið The Daily Tel-
egraph í forystugrein.
„Vegna grundvallar-
meinsemda í efnahags-
málunum sem forsetinn
erfði frá valdatíma Reag-
ans er það afskaplega lít-
ið sem hann getur gert
til að auka hagvöxt,
hvort sem um er að ræða
aðgerðir í efnahags- eða
fjármálum. Forvextir
seðlabankans eru nú
lægri en verið hefur frá
1973 og geta sennilega
ekki orðið öllu lægri en
samt hefur þessi stað-
reynd ekki orðið til þess
að auka útlán, aðallega
vegna þess að lántakar
virðast hikandi við að
taka á sig meiri skuld-
bindingar. Jafnframt á
stjórn Bush ckki auðvelt
með að efla þrótt efna-
hagslífsins með skatta-
lækkunum og aukinni
opinberri eyðslu þar sem
fjárlagaliallinn er nógur
fyrir. Bush hefur meira
að segja orðið að svíkja
helsta kosningaloforð
sitt, um enga nýja skatta,
vegna óvæntra útgjalda
á borð við hrun sparisjóð-
anna sem ríkisvaldið
verður að hlaupa undir
bagga með.
En erfiðleikar Bush
eru ekki einvörðungu í
cfnahagsmálunum.
Bandarískt þjóðfélag er
enn þjakað af vandamál-
um á borð við ofbcldi í
kjama stórborganna,
fíkniefnaneyslu, ólæsi,
einnig vanda einstæðra
foreldra og fólks sem að
staðaldri verður að lifa
af fátækraþjálp. Það er
ljóst að enginn forseti
getur leýst menningar-
vandamál af þessu tagi i
einni svipan en forsetan-
um hefur mistekist að
sýna hugkvæmni og öðl-
ast framtíðarsýn í glím-
unni við _ félagslega
hnignun. Astæðan er
ekki skortur á hugmynd-
um í hans eigin flokki.
íhaldssamir repúblikan-
ar hafa til dæmis lagt
fram hugmyndaríka
áætlun um endurskoðun
alls velferðarkerfisins
með það að markmiði að
gera fátækum kleift að
gerast smiðir eigin gæfu.
En Bush hefur ekki sýnt
þá djörfung í innanlands-
málum sem hann hefur
uppskorið svo mikið lof
fyrir í alþjóðamálunum.
Hann hefur gefist upp,
látið frumkvæðið lönd og
leið heima fyrir til að fá
að haga sér að vild við
að stjóma öðrum hlutum
heimsins. Með þessu tek-
ur hann mikla áliættu og
gæti átt erfitt með að
veijast áhlaupi demó-
krataflokksins.”
Blaðið Herald Tribune
birtir forystugrein úr
The New York Times þar
sem einkum er fjallað um
afstöðu forsetans til um-
deilds frumvarps sem
ætlað er að koma í veg
fyrir að atvinnurekendur
mismuni starfsfólki
vegna litarháttar eða
kynferðis. Bush hafði
hótað að beita neitunar-
valdi til að stöðva frum-
varpið, taldi það gera
ósanngjamar kröfur til
atvinnurekenda og festa
í sessi kynþáttafordóma
en nýlega náðist sam-
komulag milli hans og
þingsins. „George Bush
segist ekki hafa látið
undan í deilunni um
mannréttindi en það er
einmitt það sem hann
hefur gert,” segir blaðið.
„Hann liefur samþykkt
að undirrita fi-umvarp
þar sem er að finna öll
mikilvægustu ákvæðin í
því sem hann af svo mik-
illi óvarkámi kallaði áður
„kvóta-frumvarpið”.
ósigur Bush er sigur
þjóðarinnar. Mannrétt-
indafmmvarpið, sem
gert er ráð fyrir að fari
nú í gegnum báðar deild-
ir þingsins, treystir á ný
lög sem sett vom gegn
mismunun á vinnustöð-
um og vom samþykkt
eftir áratuga þjark en
hæstiréttur, sem þá var
andvígur þeim, dró úr
gildi þeirra árið 1989
með ýmsum úrskurðum.
I tvö ár barðist Bush
gegn endurbótum á lög-
unum, og varð það til að
hvetja suma fiokksmenn
hans til að búa sig undir
kosningar þar sem kyn-
þáttadeilur klyfu þjóðina
með slagorðið „kvóta” að
vopni. Nú er von til þess
að þjóðinni verði hlíft við
þeim örlögum.
Er þingið ákvað að
endurrcisa gömlu lögin
andmælti Bush og sagði,
án þess að taka tillit til
18 ára reynslu af lögun-
um, að atvinnurekendur
myndu neyðast til að
ráða fólk í samræmi við
hlutfall, kvóta [kvenna
eða blökkumanna af
heildamiaiinfjölda],
fremur en að veija hend-
ur sínar í málaferlum
sem gætu endað á ýmsa
vegu. Málamiðlunin felur
í sér að atvinnurekendur
verða að geta fært sönn-
ur á að ýmis hæfnispróf
og staðlar sem þeir setja
komi starfinu sjálfu við
og séu nauðsynleg. Þetta
em sanngjamar kröfur
og ganga á engan hátt
skemur en þær sem Bush
sagði að yrðu til þess að
vinnuveitendur tækju
upp kvótastefnu.”
Háir vextir á verðbréfamarkaði
Opið í Kringlunni í dag á milli kl. 10 og 16.
Við bjóðum mikið úrval verðbréfa með háum vöxtum.
Anna Heiðdal verður í Kringlunni með upplýsingar og ráðgjöf.
Húsbréf..............8,2 - 8,5%*
Spariskírteini.......7,9 - 8,0%*
Féfangsbréf..........10,0%*
Kj arabréf...........8,2%*
Markbréf.............8,6%*
Tekjubréf............8,1 %*
Skyndibréf...........6,4%*
Skuldabréf traustra
bæjarsjóða...........9,2 - 9,8%*
Erlend verðbréf. Mikið úrval hlutabréfa.
* Ávöxtun m.v. október 1991.
<B>
.*■' <■
-v
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700