Morgunblaðið - 19.11.1991, Page 2

Morgunblaðið - 19.11.1991, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991 Mannbjörg er trilla sökk TVEIMUR sjómönnum frá Hofsósi var bjargað eftir að sex tonna plastbátur þeirra, Sigrún, fylltist af sjó mitt á milli Málmeyjar og Hrollaugshöfða í Skagafirði á sunnudag. Einar Jóhannsson, formaður björgunarsveitarinnar Grettis á Hofsósi, sagði að björgunarsveitar- menn hefðu verið komnir á slysstað á sómabátnum Geisla hálftíma eftir að hjálparbeiðni barst. Hann sagði að báturinn hefði marað í hálfu kafi þegar að var komið en ljós loguðu um borð. Allt í kringum bátinn flaut mikið af drasli, færum og kossum, en mennirnir voru að koma úr línu- róðri. Þeir voru komnir í björgunar- bát og voru báðir í vinnuflotgalla. „Við tókum þá strax um borð en við gátum ekki skilið bátinn eftir á reki svo við reyndum að taka hann í tog. Ekki vildi betur til en að við fengum línudræsu í skrúfuna á Geisla. Það tókst að skera frá en við töfðumst nokkuð við það. Við tókum hann aftur í tog og höfðum dregið hann í 10-15 mínútur þegar slynkur kom og hann lagðist á hliðina. Þá skárum við hann frá en hann var ekki sokkinn þegar við yfirgáfum hann,” sagði Einar. -----*-*-*----- Laminn í rot og skil- inn eftir Fuglabrauð í frosthörkum Morgunblaðið/Júlíus Með auknum frosthörkum í borginni hefur harðnað á dalnum hjá fugl- um þeim sem hafa vetursetu á Tjörninni. Af þeim sökum hafa borgar- starfsmenn gefið fuglunum reglulega og hér sést einn þeirra við þá iðju. Hamagangurinn er oft mikill þegar von er á brauðinu og munar ekki sumar dúfurnar um að dýfa sér beint í hendur þeirra sem deila því út. UNGLINGUR hefur kært til lög- reglunnar árás sem hann varð fyrir í Furugrund í Kópavogi um klukkan sex á sunnudagsmorg- un. Hann segir að fimm leður- klæddir unglingar sem hann mætti þar á gangi hafi ráðist að sér fyrirvaralaust og barið og sparkað í sig og síðan skilið sig meðvitundarlausan eftir. Vegfarandi gekk fram á piltinn rænulausan og alblóðugan, vakti hann og kom honum í hús og hringdi sfðan á lögreglu. Þijártenn- ur eru brotnar í piltinum og hann er tognaður á hálsi, auk þess sem hann er með 7 sentimetra skurð á höfði, glóðarauga, skrámur og mar víðsvegar um líkamann. Pilturinn var fluttur á slysadeild á sunnudagsmorgun og þar var gert að sárum hans og í framhaldi af því lagði hann fram kæru hjá lögreglunni í Kópavogi en segist lítið muna eftir atburðinum og get- ur ekki gefið glögga lýsingu á árás- armönnunum. Sambandsstjórnarfundur ASÍ: Viðræður við sljórnvöld um grunn nýrra kjarasamninga Sérkjaraviðræðum verður haldið áfram jafnhliða Sambandsstjórnarfundur Alþýðusambands íslands samþykkti í gær tillögu Ásmundar Stefánssonar, forseta sambandsins, um að óska eftir viðræðum við sljórnvöld um efnahagsgrundvöll nýrra kjarasamninga. Gert er ráð fyrir að vinnuveitendur komi einnig að þessum viðræðum, en jafnframt reiknað með að þeim sérkjaraviðræðum, sem í gangi hafa verið milli einstakra félaga og landssambanda ASÍ annars vegar og félaga vinnuveitenda hins vegar, verði fram haldið jafnhliða. Ásmundur sagði við umræður um við gerð nýrra kjarasamninga áður kjaramál þar sem hann hafði fram- sögu að það væri einkum fernt sem ræða þyrfti við stjórnvöld í tengslum Læknar á Landspítala á móti stimpilklukkum LÆKNARÁÐ Landspitalans hefur ákveðið að fara þess á leit við lækna spítalans, kð þeir stimpli sig ekki inn til vinnu að svo komnu máli. Stimpilklukkur hafa verið í notkun á nokkrum deildum spítalans til reynslu undanfarna mánuði og segir Davíð Á. Gunnarsson fram- kvæmdastjóri spítalans, að ákveðið hafi verið að selja upp klukkur á öllum deildum. Þorvaldur Veigar Guðmundsson, formaður læknaráðs Landspítalans, sagði að ákveðnir hópar innan spítal- ans hefðu ekki notað þær stimpil- klukkur sem settar hafa verið upp. Það ætti ekki eingöngu við um lækna Launavísitala lækkar um 1,2% HAGSTOFA íslands hefur reikn- að út launavísitölu nóvember- mánaðar miðað við meðallaun í október og reyndist hún vera 1,2% lægri eða 127,8 stig. Þessi lækkun stafar af því að áhrif eingreiðslu vegna viðskipta- kjarabata frá því í sumar hverfa út úr vísitölunni. Samsvarandi launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána tekur sömu breyt- ingu og er því 2.795 stig í desember. en fjárlög yrðu samþykkt. I fyrsta lagi væru það ýmis atriði í fjárlaga- frumvarpinu, svo sem ríkisábyrgð á launum, þjónustugjöld og skattar. í öðru lagi óhemjuháir raunvextir og leiðir til þess að ná þeim niður. Þeir þyrftu á næstunni að lækka um að minnsta kosti 2-3% og helst meira. í þriðja lagi þyrfti að ræða verðlags- horfur og hvað framundan væri í verðhækkunum .hjá ríki og öði-um aðilum, en það væri forsenda þess að samningar gætu tekist. í fjórða lagi þyrfti að ræða stöðuna í atvinnu- málum og hvað væri framundan. Eðli málsins samkvæmt væri ljóst að atvinnurekendur kæmu að þessum yiðræðum að meira eða minna leyti, en sérkjaraviðræðum yrði að halda áfram þar til niðurstaða fengist. Að svo komnu væri ekki grundvöllur til að taka upp viðræður á vettvangi heildarsamtakanna. Það yrði að hans mati aðeins til þess að sum félög myndu fella þá samninga. Björn Grétar Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, sagðist vera sammála þessari máls- meðferð, en það mætti ekki koma í veg fyrir sérviðræður einstakra fé- laga og að þær bæru árangur. Ef þess yrði ekki gætt væri viðbúið að slíkur almennur samningur yrði felld- ur nema hann væri þeim mun betri. Hann benti á að samkvæmt tölum kjararannsóknanefndar hefði ein stétt, verslunarfólk, setið eftir í launahækkunúm á sama tíma og það lægi fyrir að góð afkoma væri hjá versluninni. Það kæmi ekki til greina Verkamannasambands íslandsj að semja um taxta fyrir verslunar- sagðist vera sammála því að hafnar yrðu viðræður samhliða sérkjaravið- ræðum. Verkamannasambandið hefði átt í viðræðum við vinnuveit- endur um sérkröfur í sex daga og þeim miðaði með hraða snigilsins. Það væri nauðsynlegt fyrir verka- lýðshreyfinguna að láta í ljósi skoðun á því hvernig hún vildi hafa efna- hagsumhverfið. Magnús L. Sveinsson, formaður fólk sem væru reiknigrundvöllur bón- uskerfa. Bónus bætti laun í fisk- vinnslu en um það væri ekki að ræða í verslun. Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Landssambands iðnverkafólks, sagð- ist sammála því að ganga til við- ræðna við stjórnvöld. Hins vegar lýsti hann yfir efasemdum um að viðræð- urnar skiluðu árangri nema þær tækju á öllum þáttum málsins. heldur einnig aðra starfshópa. Læknaráð hefði síðan samþykkt að fara þess á leit við lækna spítalans að þeir notuðu ekki stimpilklukku að svo komnu máli. „Þetta er einung- is ábending til lækna,” sagði Þor- valdur. „Yið viljum taka upp viðræð- ur í samráði við Læknafélag íslands við stjórnendur spítalans um þessa framkvæmd.” Davíð Á. Gunnarsson sagði að allar nýjungar væru viðkvæmar en allir ríkisspítalar myndu taka upp stimpilklukkur. „Við erum ekki að flýta okkur,” sagði hann. „Það ligg- ur fyrir að taka upp stimpilklukku en við verðum að eiga viðræður við okkar starfsfólk svo að hægt verði að ná þokkalegri sátt.” Rétt ár er liðið síðan fýrstu klukk- urnar voru settar upp. Davíð sagði að markmiðið með uppsetningu þeirra væri ekki fyrst og fremst sparnaður heldur hagræðing í launa- vinnsln. ------ Fiskveiðasjóði slegið frystihús HÓ á 30 millj. á nauðungaruppboði Bústjóri gengur að samningi um 154 millj. kr. bætur og endurgreiðslur Tungufells FISKVEIÐASJÓÐUR bauð einn í frystihús Hraðfrystihúss Ólafsvíkur á nauðungaruppboði sem haldið var hjá bæjarfógeta Ólafsvíkur í gær, og var sjóðnum slegið húsið á 30 milljónir króna. Á skiptafundi þrota- búsins sem haldinn var að loknu uppboðinu var fjallað um tilboð útgerð- arfélagsins Tungufells hf., sem er í eigu Snæfellings hf., um uppgjör á skuldum og riftunarbótum og var bústjóra falið að ganga til samn- inga við útgerðarfélagið, að sögn Péturs Kristinssonar, fulltrúa bæjar- fógeta. Á skiptafundi lagði Jóhann Níels- son bústjóri fram tillögpi að umboði til að gera samning við Tungufell um bætur og endurgreiðslur að upp- hæð 154 millj. til þrotabúsins. Talið var að búið hefði verið hlunnfarið þegar Hraðfrystihúsið seldi báta til Tungufells. Jóhann sagði að af þeirri upphæð hefðu bætur numið 110 milljónum kr., staðgreiðsluvirt skuld 42 milljónum og tvær milljónir væru hlutafé í Tungufelli. Var bústjóra veitt heimild til að ganga að tilboð- máli, sem búið höfðaði, lokið með þessum samningum. Már Elísson, forstjóri Fiskveiða- sjóðs, sagði í samtali við Morgunblað- ið, að sjóðurinn hefði átt nokkuð hærri kröfu en 30 milljónir í búið en enginn hefði boðið á móti sjóðnum. Aðrir stærstu kröfuhafar þrotabúsins eru Landsbankinn og Byggðasjóður. „Við munum yfirfara eignina og gera skrá yfír fylgifé, síðan munum við auglýsa frystihúsið til sölu og selja það bestbjóðanda,” sagði Már. Heildarkröfur í búið námu 734 milljónum kr. Auk frystihússins, sem selt var í gær, eru aðrar stærstu eign- ir þrotabús HÓ saltfískverkunarhús og fískimjölsverksmiðja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.