Morgunblaðið - 19.11.1991, Síða 14

Morgunblaðið - 19.11.1991, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991 ísland og Sameinuðu þjóðirnar í 45 ár: Ahrifamenn og af- staða til alþjóðamála Höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York. eftir Valdimar Unnar Valdimarsson sagn- fræðing Fyrir réttum 45 árum, þann 19. nóvember 1946, gerðist Island aðili að Sameinuðu þjóðunum, aðeins rúmu ári eftir stofnun samtakanna. Þjóðin hafði þá nýlega öðlast fullt sjálfstæði og forystumönnum henn- ar var í mun að afla hinu unga lýð- veldi alþjóðlegrar viðurkenningar. Þátttaka í Sameinuðu þjóðunum var ákjósanleg leið til þess, en almennt var litið á aðild að samtökunum sem formlega tryggingu fyrir öryggi og sjálfstæði smáþjóða. Þótt starf ís- lands í Sameinuðu þjóðunum hafi ekki alltaf farið hátt hefur það engu að síður verið snar þáttur í utanrík- ismálum þjóðarinnar. A þeim vett- vangi hafa Islendingar stofnað til fjölþættra stjórnmálasamskipta og viðskiptatengsla við nágrannaþjóðir sem og fjarlægar þjóðir. En fyrst og fremst hefur aðildin að Samein- uðu þjóðunum gert íslendingum kleift að tjá umheiminum viðhorf sín til alþjóðamála og að afla hags- munamálum sínum fylgis meðal annarra ríkja, eins og afskipti þeirra af hafréttarmálum bera ljósan vott um. Það er við hæfí að minnast þess- ara tímamóta með því að veita les- endum innsýn í áður óbirt verk þess íslendings, sem best hefur at- hugað þátttöku íslands í Sameinuðu þjóðunum. Valdimar Unnar Valdi- marsson (1958-1988) hafði einung- is stundað þessar rannsóknir í tæp þrjú ár er hann féll frá langt fyrir aldur fram, en með atorku sinni og áhuga hafði honum þó tekist að ljúka meginhluta þeirra, ásamt drögum að doktorsritgerð um efnið. Valdimar kannaði einkum afstöðu íslands til þeirra mála sem Allsheij- arþing Sameinuðu þjóðanna fjallaði um á tímabilinu 1946-1980, hvar í sveit íslendingar skipuðu sér, á hvaða sviðum þeir létu helst til sín taka og hverjir höfðu mest áhrif á framgöngu íslands á þessum vett- vangi. Hér á eftir verða birtir tveir kaflar úr riti Valdimars, en útgáfu þess er að vænta í íslenskri þýðingu og ritstjórn Guðmundar R. Árna- sonar og Gunnars Á. Gunnarssonar snemma á næsta ári. Sendinefnd íslands á Allsherjarþinginu - afgerandi áhrif Thors Thors Sendinefndin á Allsherjarþinginu er fulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún er helsti tengiliður Sameinuðu þjóðanna og íslenskra yfirvalda. Meðlimir hennar tala fyr- ir íslands hönd á Allsheijarþinginu og í fastanefndum þess. Þótt form- lega sé henni ætlað að tjá afstöðu stjórnvalda tili einstakra mála hefur hún samt aðstöðu til að móta for- gang mála, velja úr upplýsingum, útbúa áhrifaríkar skýrslur, leggja mat á viðhorf annarra sendinefnda, og að beita eigin stíl við fram- kvæmd ákvarðana að því er varðar þátttöku íslands í starfi SÞ. Hátt settir starfsmenn í utanrík- isþjónustunni og utanríkisráðuneyt- inu (embættismannahópurinn) voru kjarninn í sendinefndinni. Fastafull- trúinn var langmikilvægasti aðilinn, sér í lagi á fyrri hluta tímabilsins þegar Thor Thors gegndi þeirri stöðu. Langur starfsferill hans, og þau „forréttindi” að vera fyrsti ein- staklingurinn til að stjórna svo lít- illi sendinefnd þjóðar, gerði honum mögulegt að hafa sterk áhrif á al- menn viðhorf íslands til þátttökunn- ar í Sameinuðu þjóðunum. Áhrif hans voru enn1 meiri fyrir þá sök að hann gegndi stöðu sendiherra íslands í Bandaríkjunum, hafði sterk tengsl við forystu áhrifamesta stjórnmálaflokksins á íslandi (hann var bróðir Ólafs Thors, sem var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra í fjórum ríkis- stjómum eftir stríð), hafði verið athafnamaður í atvinnulífi og al- þingismaður, auk þess sem persón- utöfrar hans voru umtalaðir. Þegar haft er í huga að sömu málefnin hafa verið til umfjöllunar á Allsheijarþinginu ár eftir ár þarf ekki að koma á óvart að sendinefnd- in hefur getað ákveðið afstöðu ís- lands á eigin spýtur til margra til- lagna, án þess að þurfa að ráðfæra sig við ráðuneytið í hveiju einstöku tilviki. Almenn stefna íslensku ríkis- stjórnarinnar hefur jafnan verið kunngerð fulltrúum í nefndinni og þetta hefur gert þeim kleift að taka eigin ákvarðanir um hvernig greiða skuli atkvæði um ályktunartillögur varðandi tiltekna þætti ýmissa vandamála. Gögn í ráðuneytinu virðast leiða í ljós, að þetta sjálfstæði íslensku sendinefndarinnar hafi verið mun meira áberandi á fyrstu árum þátt- töku íslands í Sameinuðu þjóðunum en síðar varð. Það virðist til dæmis ljóst, að sendinefndin hafði mun meiri áhrif á sjötta áratugnum um hvernig greiða skyldi atkvæði, en varð á sjöunda og áttunda áratugn- um. Thor Thors var fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum árin 1946 til 1965. Það má lesa úr gögnum í ráðuneytinu að á þessu tímabili hafi íslenska sendinefndin hjá SÞ meiri áhrif á ákvarðanatöku um afstöðu íslands en síðar varð. Ljóst virðist, að „vald” sendinefnd- arinnar á þessum fyrstu árum hafi ekki síst komið til vegna lykilhlut- verks Thors Thors, sem var um margra ára bil eini íslendingurinn með diplómatíska stöðu í föstu starfi við Sameinuðu þjóðirnar. Þetta lykilhlutverk Thors kom fram með ýmsum hætti. í fyrsta lagi er greinilegt að í mörgum tilvikum tók hann ákvörðun um afstöðu íslands upp á'eigin spýtur. Slíkt gerðis mun síður á tímum eftirmanna hans. Þó svo hann hafí ráðfært sig við utan- ríkisráðuneytið í margvíslegum málum ákvað hann oft að greiða atkvæði Islands á þann hátt sem honum sjálfum þótti rétt og viðeig- andi. Oft má finna í skýrslum hans orð eins og þessi: „Það var skoðun mín ...”; „Mér fannst álytunartillag- an ófullnægjandi ...”; (ísland greiddi atkvæði gegn tillögunni) því ég var þeirrar skoðunar ...”; „Mér fannst persónulega ...”; og svo framvegis. Eitt af því sem undirstrikar hversu stóru hlutverki Thor gegndi í ákvarðanatöku um afstöðu Islands var þátttaka hans í undirbúningi árlegra funda norrænu utanríkis- ráðherranna. Áður en margir þess- ara funda hófust bað utanríkisráðu- neytið Thor að leggja fram sérstak- ar skýrslur um þau málefni sem vitað var að kæmu til umræðu á næsta Allsheijarþingi. í þessum skýrslum, sem ætlaðar voru emb- ættismönnum í ráðuneytinu jafnt og utanríkisráðherra sjálfum til undirbúnings fyrir ráðherrafund- inn, lýsti Thor ekki aðeins í smáatr- iðum hinum ýmsu SÞ-málum, held- ur lagði hann einnig fram eigin til- lögur um hvaða afstöðu ráðherra skyldi taka í viðræðum við norræna starfsbræður sína. Gögn ráðuneyt- isins sýna að tekið var mikið tillit til tillagna Thors meðan á undirbún- ingi fundanna stóð. Hann hafði því með þessum hætti umtalsverð áhrif á afstöðu íslands á norrænu fund- unum. Það rennir enn frekar stoðum undir þá niðurstöðu að Thor Thors hafí haft umtalsverð áhrif á undir- búning þessara funda að utanríkis- Valdimar Valdimarsson ráðherra bað hann stundum að sækja þessa fundi sem sérstakur ráðgjafi. Þegar þannig stóð á gaf Thor ekki einvörðungn skriflegar skýrslur og lagði tillögur fyrir ráðu- neytið, heldur tók beinan þátt í fundunum og kom þar beint fram i fyrir íslands hönd, enda hafði eng- inn samlanda hans meiri þekkingu á þeim SÞ-málefnum sem til um- ^ fjöllunar voru hjá norrænu utanrík- " isráðherrunum. Mikilvægi þessa „upplýsingahlutverks” sem Thor ^ hafði með höndum kom einnig skýrt * fram þegar íslenskir utanríkisráð-' herrar heimsóttu Sameinuðu þjóð- irnar. Við slík tækifæri veitti fasta- fulltrúinn þeim ítarleg ráð og upp- lýsingar um öll helstu má) þingsins, áður en lokaákvarðanir voru teknar og atkvæðagreiðasla fór fram. Ein af þeim aðferðum sem við getum beitt til að bera sjálfstæði Thors samam við sjálfstæði eftir- manna hans er að skoða breytingar sem orðið hafa í sambandi við samn- ingu á uppköstum að ræðum til flutnings fyrir íslands hönd í al- mennum umræðum á Allsheijar- þinginu. ísland tók þátt í slíkum umræðum fyrsta sinni árið 1953, ! þegar Thor flutti langa ræðu sem lýsti viðhorfum íslands til margvís- legra mála.sem voru til umfjöllun- } ar. Ákvörðun um að flytja ræðuna tók Thor á sitt eindæmi. Hann hafði ekki samráð við utanríkisráðuneytið } um innihaldið, né heldur við aðra meðlimi sendinefndarinnar, þar sem þeir voru ekki komnir til New York þegar ræðan var flutt. Þegar hann lagði fram skýrslu um málið til ráðuneytisins útskýrði hann ákvörðun sína þannig: Þó svo ísland hafí ekki tekið þátt í almennum umræðum á Alls- heijarþinginu fram að þessu fannst mér tími til kominn að láta rödd okkar heyrast, með það fyrir augum ... að leggja áherslu á þann vilja okkar að hafa sjálfstæða afstöðu í hveiju máli jafnt og málefnum SÞ í heild. Þegar það er haft í huga að | ræða hans árið 1953 fjallaði um mál af margvíslegum toga og lýsti afstöðu íslands til þeirra allra, er j athyglisvert að skoða nánar að- draganda hennar. Fastafulltrúiinn tók ekki aðeins ákvörðun um að j flytja ræðuna, heldur ákvað hann einnig algerlega á eigin spýtur inni- hald hennar og þau viðhorf sem lýst var fyrir Islands hönd. Vita- skuld var Thor að meira eða minna leyti að lýsa viðhorfum og afstöðu sem íslenska sendinefndin hafði þegar kunngert í fyrri atkvæða- greiðslum eða ræðum um einstök mál. En þar sem hér er aðeins um eitt af mörgum áþekkum dæmum að ræða virðist ljóst, að Thor var mun sjálfstæðari að þessu leyti en eftirmenn hans. Þó svo hann hafi stundum haft samráð við ráðuneyt- ið þegar hann undirbjó slíkar ræður tók hann allar helstu ákvarðanir varðandi innihald þeirra og þau við- horf sem lýsa skyldi fyrir Islands hönd í almennu umræðunum. Sjálfsákvörðunarréttur smáþjóða - afstaða íslendinga til Kýpurdeilunnar I málefnum sem tengjast afnámi nýlenduhalds og sjálfsákvörðunar- RAYMOND WEIL - VIKA Vikuna 17.-24. nóvember kynnum við í gluggum verslunarinnar nýjar gerðir afhinum heimsfrægu úrum frá RAYMOND WEIL Gæði og glæsileiki sameinast í fallegum skartgrip. G E T R A U N / hvaða landi eru Raymond Weil úrin framleidd? I I □ Japan □ Sviss \ Verðlaun í getrauninni er RW úr að eigin vali að verðmæti kr. 40.000. Svör sendist til verslunarinnar. Dregið verður úr réttum lausnum 5. desember. □ Ítalíu Sendandi.... Heimilisfang.. □ Frakklandi <s|® I ..Sími.. Garðar Ólafsson úrsmiður • Lækjartorgi • Sími 10081

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.