Morgunblaðið - 19.11.1991, Síða 20

Morgunblaðið - 19.11.1991, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991 Evrópska efnahagssvæðið: Afstaða Evrópudómstóls- ins tefur staðfestinguna Stefnir samningnum ekki í hættu, segir Andriessen Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. AÐILDARRÍKI Evrópubandalagsins (EB) ákváðu á föstudag að fresta því að staðfesta samkomulagið um Evrópska efnahagssvæð- ið (EES) um óákveðinn tíma. Ekki var hins vegar greint frá þess- ari ákvörðun EB fyrr en síðdegis á laugardag. Samkvæmt heimild- um í Brussel er ástæðan fyrir frestuninni neikvæð afstaða Evrópu- dómstólsins í Lúxemborg gagnvart þeim köflum samkomulagsins sem fjalla um sameiginlegan dómstól EES. Evrópudómstóllinn hefur lagt fram spurningar um fimm atriði sem varða dómstól EES en um þær verður fjallað á lokuðum fundi í dómnum 26. nóvember nk. Drög að samningi EB og Frí- verslunarbandalags Evrópu (EFTA) voru send Evrópudóm- stólnum til umsagnar í ágúst síð- astliðnum. Álit dómstólsins er bindandi fyrir EB og þarf því að breyta þeim samningsákvæðum sem dómstóllinn telur sig ekki geta Fyrrum yfirlyfjafræðing-ur Landa- kots og St. Jósepsspítala ákærður: Talinn hafa komizt yfir 8-9 milljónir ólöglega á árunum 1986-1990 RÍKISSAKSÓKNARI hefur höfðað mál fyrir sakadómi Seltjarn- arness gegn fyrrum yfirlyfjafræðingi Landakotsspítala og St. Jós- epsspítala í Hafnarfirði fyrir ólöglega lyfsölu og lyfjadreifingu, fjár- svik, fjárdrátt og skjalafals á árunum 1986-1990. Avinningur manns- ins er talinn nema 8-9 milljónum króna, þar af um 7 milljónum vegna ólöglegrar lyfjadreifingar og lyfjasölu. sætt sig við. Sú ákvörðun að fresta því að staðfesta samkomulagið þykir benda til þess að álit dóm- stólsins sé mjög neikvætt. Frans Andriessen, sem fer með utanrík- issamskipti innan framkvæmda- stjórnar EB, kvaðst á blaðamanna- fundi í gær ekki telja að þessi ákvörðun dómstólsins stefndi EES- samningnum í hættu. Ljóst er að ekki getur orðið af undirritun EES-samningsins í des- ember eins og gert hefur verið ráð fyrir en heimildarmenn Morg- unblaðsins segja að álit dómstóls EB ætti að liggja fyrir innan tveggja mánaða. Samkvæmt því verður samningurinn ekki undirrit- aður fyrr en í fyrsta lagi í janúar. Hugsanlegt hefði verið að stað- festa samkomulagið í gær eins og ti! stóð en bent er á að það hefði verið til lítils ef álit dómstólsins stangast mjög á við innihald þess. Ákvörðun aðildarríkja EB á föstu- dag þykir staðfesta að svo sé. Talsmenn dómstólsins og fram- kvæmdastjórnarinnar veijast allra frétta um þetta mál en ljóst þykir að dómarar í Lúxemborg óttast að með samningnum um EES sé verið að skerða sjálfstæði Evrópu- dómstólsins á óviðunandi hátt. Nordiaensamblen hljómsveitin sem heldur tónleikana í Norræna húsinu. Tónleikar í Norræna húsinu: Verk eftir norræn- ar konur á dagskrá DÆTUR Norðurljósanna er yfirskrift dagskrár í Norræna hús- inu, miðvikudaginn, 20. nóvember, en þá flytur Nordiaensamblen hljómsveitin tónverk eftir konur á Norðurlöndunum. Nordiaens- amblen er samsett af strokkvartett, blásarakvintett og píanói og var stofnuð árið 1985. íslensk kona, Klara Óskarsdóttir, hornleik- ari, hefur leikið með hljómsveitinni síðan 1987. Á efnisskrá eru einungis verk eftir konur frá Norðurlöndunum, og eru þær Karólína Eiríksdóttir, Elfrida Andrée og Karin Rehnqu- ist frá Svíþjóð, Pauline Hall og Ruth Bakke frá Noregi og Kaija Saariaho frá Finnlandi. í fréttatil- kynningu frá Norræna húsinu segir að tónverk Karólínu, „Rhapsody in C”, hafi verið sér- staklega pantað hjá henni og sé þetta frumflutningur verksins. Það eru Nomus og Norræni menningarsjóðurinn sem studdu hljómsveitina til tónleikahaldsins, en Lansmusik i Vásemorrland skipuleggur tónleikana. Manninum, sem er rúmlega fer- tugur, er gefið að sök að hafa í trássi við lög selt fólki Iyf úr lyfja- búri sjúkrahússins gegn framvísun lyfseðla og greiðslu. Lyfseðlunum hafí hann síðan framvísað í tveimur apótekum í borginni og leyst út lyf til að skila í lyfjabúr spítalans. Þar sem þessi viðskipti mannsins við apótekin hafí verið allumfangsmik- il hafí hann notið þar afsláttarkj- ara. Afsláttur var greiddur út í peningum sem talið er að hafí runn- 'O INNLENT ið í vasa lyfjafræðingsins. í öðrum tilvikum er talið að apó- tekin hafi greitt manninum í pen- ingum fyrir þá lyfseðla sjúklinga sem hann framvísaði þar og er tal- ið að þ'eir peningar hafí einnig runnið í vasa hans. Samtals er þarna um nær 7 milljónir króna að ræða. Þá er lyijafræðingurinn talinn hafa stungið í eigin vasa rúmlega 300 þúsund króna afsláttargreiðsl- um vegna mikilla viðskipta sjúkra- hússins við tvö lyfjafyrirtæki og einnig fyrir að hafa slegið eign sinni á 400 þúsund króna lyljasendingu frá þýsku lyljafyrirtæki sem barst spítalanum, endurgjaldslaust sem afsláttur vegna mikilla viðskipta. Maðurinn er talinn hafa látið spítal- ann greiða fyrir þessa sendingu og selt lyfin fyrir rúmlega 200 þúsund krónur. Ekki ríkisstyrkur heldur matvælaaðstoð - segir varabæjarfulltrúi á Seyðisfirði SIGFINNUR Mikaelsson, forstjóri Strandarsíldar sem situr sem vara- maður í bæjarstjórn Seyðisfjarðar, bar upp tillögu sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnarinnar þess efnis að ríkisstjórnin greiði fyrir salt- síldarsamningum við Rússa með fjárhagsaðstoð. Hann segir að ekki sé verið að fara fram á ríkisstyrk heldur sé hugmyndin sú að ríkis- stjórnin láti eitthvað af hendi rakna í matvælaaðstoð við Rússa og aðstoði um leið síldarsaltendur. Síldarsöltunin var rekin með 9,3% tapi í fyrra. Sigfinnur sagði að Rússar hefðu lýst yfir vilja til að kaupa mikið af saltsíld en verðið sem þeir byðu væri hins vegar langt undir því sem fram- leiðendur gætu selt á. „Eru þetta ekki hagsmunir allra að við náum A Skíðasvæði Isfirðmga opnað ísafiröi. SKÍÐASVÆÐIÐ á Seljalandsdal var opnað á laugardag og verður opið til áramóta um helgar og virka daga ef hópar óska þess sérstaklega. Skíðaskálinn verður ekki opn- aður fyrr en eftir áramót en hægt verður að fá gistingu eftir samkomulagi. Starfsmenn skíðasvæðisins í Seljalandsdal undir stjórn Hafsteins Ingólfssonar hafa unnið að því undanfarið að þjappa snjó og laga til, þannig að nægur skíðasnjór er nú við allar lyft- urnar á dalnum, en fyrst í stað verða tvær lyft- ur í gangi. Hafsteinn sagðist eiga von á hópum skíðamanna víðsvegar af að landinu á næstu vikum til að æfa, en hvergi á landinu er komið álíka skíðafæri og í Seljalandsdal. Þá eru troðn- ar fjölbreyttar göngubrautir um svæðið, nefndi hann Kvennabrúnir, Miðsfellsháls, Búrfell og Botnsheiðina í því sambandi. Fjöldi manna naut lífsins í blíðviðrinu og sólskininu í dalnum um helgina, en í skammdeg- inu fækkar stöðugt þeim húsum sem sól sést úr, en úr efstu hlíðum skíðasvæðisins hverfur hún aldrei. Oftast miða ísfírðingar sólarkomuna við dag- inn sem hún sést á nýju ári í Sólgötu, en það er 24. janúar. Hún hverfur hins vegar úr Sólgöt- unni næsta þriðjudag, 16. nóvember. - Úlfar Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Það voru jafnt ungir sem aldnir er notuðu tæki- færið og brugðu sér á skíði við fyrsta tækifæri. samningum við Rússa? Sjálfsagt hækkar verðið þegar ástandið batnar í Rússlandi. Rússar hafa farið fram á matvælaaðstoð og það mætti tengja hana sölu á síld þangað. Mis- munurinn yrði greiddur á því verði sem Rússar eru tilbúnir að greiða og því sem síldarsaltendur þurfa að fá þannig að sala á síld til þeirra dytti ekki út annað árið í röð,” sagði hann. „Þessi ríkisstjórn hefur rætt um að koma styrkari stoðum undir at- vinnuveginn úti á landi. Við erum stöðugt í samkeppni við Norðmenn og Kanadamenn sem eru með bul- landi niðurgreiðslur á öllum sínum afurðum, þar á meðal saltsíld. Norð- menn komu inn á Póllandsmarkað og bjóða 30% lægra verð og það getur enginn skilið hvernig Norð- menn geta staðið við þessi verð. Þetta er svokallað heimsmarkaðs- verð. Hvað er heimsmarkaðsverð? Eigum við að missa allt út úr höndun- um á okkur hér á íslandi vegna þess að við getum ekki keppt við ná- grannaþjóðir okkar sem eru með bullandi ríkisstyrki,” sagði Sigfinnur. íris Erlingsdóttir Lára Rafnsdóttir íris og Lára á Háskóla- tónleikum FJÓRÐU Háskólatónleíkar vetr- arins verða í Norræna húsinu mið- vikudaginn 20. nóvember kl. 12.30. Iris Erlingsdóttir sópran og Lára Rafnsdóttir píanólcikari flytja lög eftir Stefano Donaydy, Mozart og Ravel. íris hóf nám í Tónlistarskólanum í Kópavogi og lauk einsöngvaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1989. Kennari hennar var Elísabet Erlingsdóttir. Sl. sumar hlaut hún styrk úr óperudeild Söngvarasjóðs Félags íslenskra leikara og tók þátt í námskeiði hjá Orin Brown í Osló. Síðustu ár hefur íris verið í Þjóðleik- húskórnum og tekið þátt í ýmsum leiksýningum. Hún nýtur nú leið- sagnar Sieglinde Kahman. Lára Rafnsdóttir hóf píanónám á Isafirði. Að loknu einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík stundaði hún nám við Guildhall Scho- ol of Music and Drama í London og lauk þaðan einleikara- og píanóprófi. Lára starfar nú við Tónlistarskólana í Reykjavík og Garðabæ. Tæp 43% styðja stjórnina 42,9% þeirra sem tóku afstöðu til ríkisstjórnarinnar í skoðana- könnun Skáíss fyrir Stöð 2 15.-17. nóvember segjast styðja hana. Hins vegar segjast 57,1% ekki styðja ríkisstjórnina. 88,7% tóku afstöðu. Þá var fólk spurt hvaða flokk 11,1% Kvennalistan og 0,7% aðra það myndi kjósa ef kosið væri til flokka. 71,4% tóku afstöðu. alþingis núna. Af þeim sem tóku Hringt var í úrtak 750 síma- afstöðu sögðust 8,6% kjósa Al- númera og 18 eða eldri spurðir. þýðuflokkinn, 23.0% Framsóknar- Af þeim svörðuð 604 eða 80,5% flokkinn, 37,6% Sjálfstæðisflokk- úrtaksins. inn, 19,0% Alþýðubandalagið,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.