Morgunblaðið - 19.11.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.11.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUOAGUR 19. NÓVEMBER 1991 37 Jóhann Björnsson myndskeri — Minning Föðurbróðir minn, Jóhann Björnsson, Grundarstíg 12, Reykja- vík, andaðist í Borgarspítalanum í Reykjavík, þriðjudaginn 12. nóv- ember sl. Björn Jóhann Björnsson, eins og hann hét fullu naíni, var fæddur á Húsavík, 11. janúar 1904. Hann var sonur Björns Steindórs Björnssonar, trésmiðs á Húsavík, fæddur 20. sept- ember 1866 á Ysta-Mói í Fljótum og konu hans Guðnýjar Jónsdóttur, fædd 18. desember 1877 á ísólfs- stöðum á Tjörnesi. Jóhann var elstur 4 systkina. Hin eru Haraldur málari á Húsavík, fæddur 22. ágúst 1910, Fanney, fædd 21. nóvember 1906, dáin 1923 og Sigríður sem dó ung. Jóhann ólst upp á Húsavík hjá foreldrum. sínum. Hann gekk í barnaskóla í þijá vetur og síðan í unglingaskóla Benedikts Björnssonar. Jóhann bytjaði snemma að starfa með föður sínum, aðallega við húsamálun og einnig annað sem til féll einsog þá tíðkað- ist. Hjá Stefáni Guðjohnsen kaup- manni á Húsavík vann Jóhann í 10 ár en veiktist þá af berklum og lenti suður á Vífilsstöðum. Vegna veikinda sinna var Jóhann frá starfi í um 4 ár. Eftir að Jóhann hafði náð sér eft- ir veikindi sín fór hann í Handíða- skólann og var þar við nám í þijá vetur. Þetta voru fyrstu veturnir sem Handíðaskólinn starfaði. Jóhann sótti námskeið um listiðnað og lista- sögu í Krogrup Höjskole í Danmörku 1949. Að loknu námi í Handíðaskó- lanum kenndi Jóhann þar einn vetur en fór síðari norður til Húsavíkur þar sem hann gerðist teiknikennari við barnaskólann og gagnfræðaskól- ann. Þar starfaði hann í 10 ár, en árið 1953 flutti Jóhann með Ijöl- skyldu sína suður til Reykjavíkur þar sem hann bjó síðan. í Reykjavík vann hann við myndskurð m.a. hjá Ríkarði Jónssyni í mörg ár og Ág- ústi Sigurmundssyni. Síðar rak hann sitt eigið verkstæði, hin síðari ár á Skólavörðustíg 8, í húsi því sem úra og skartgripaverslun Kornelíusar Jónssonar er starfrækt. Þeir eru orðnir margir smíðagrip- irnir sem eftir Jóhann liggja m.a. predikunarstólar í Reykjahlíðar- og Dalvíkurkirkju, skímarfontar, m.a. í Húsavíkurkirkju, ræðustólar og margskonar smærri gripir unnir í tré og bein. Þegar Jóhann fór í Handíðaskól- ann langaði hann fyrst og fremst að læra teikningu. Jóhann lærði m.a. meðferð lita hjá Ásgrími Jóns- syni. Eftir Jóhann liggja mörg mál- verk, bæði olíu- og vatnslitaverk, svo og mikill fjöldi teikninga, þar á meðal margar teikninga af gömlum bæjum á Húsavík. Jóhann var einnig lærður húsamálari. Jóhanni var fleira til lista lagt en að mála, teikna og skera út. Hann samdi sönglög sem m.a. sum hver hafa verið sungin af Karlakórnum Þrym á Húsavík og Karlakór Reykja- víkur. Hann var mikill unnandi ís- lenskrar náttúru og starfaði m.a. í Ferðafélagi Húsavíkur. Það var mikið gæfuspor í lífi Jó- hanns þegar hann, þann 1. desemb- er 1928 gekk að eiga Magneu Jóels- dóttur frá Húsavík, fædd 6. janúar 1904, en foreldrar hennar voru þau Jóel Magnússon, sjómaður á Húsa- vík og kona hans Friðrika Þorgríms- dóttir. Þau Jóhann og Magnea eign- uðust 2 börn, Hrein Melstað, gull- smið í Reykjavík, fæddur 5.. janúar 1931, kona hans er Elma Þórðar- dóttir, og Hafdís Melstað, búsett í Kelavík, fædd 12. maí 1923, maður hennar er Hákon Kristinsson, kaup- maður. Jóhann og Magnea ólu upp dótt- urson sinn, Jóhann Gíslason, tann- lækni, Álftanesi. Kona hans er Linda Einarsdóttir. Magnea missti heilsuna fyrir nokkrum árum og dvelur nú á Hvíta- bandinu. Á hverjum degi eftir að Magnea fór á spítalann heimsótti Jóhann hana þangað. Jóhanni var það mikil raun að þurfa að sjá á eftir Magneu á spítalann en hann vissi að þar fengi hún bestu umönn- um sem völ væri á. Það var honum huggun. Á hverju sumri, eftir að þau hjón- in fluttu suður, í um 16 ár, komu þau norður til Húsavíkur, ásamt Jóhanni Gíslasyni og dvöldu þar sumarlangt. Á heimili mínu var ætíð eftirvænting á vorin til komu þeirra en jafnframt tregi á haustin þegar þau fóru suður aftur. Þessa sumar- mánuði vann Jóhann þar við mynd- skurð og einnig við húsamálun ásamt bróður sínum. Upp úr 1968 fækkaði ferðum þeirra hjóna norður en Jóhann kom síðast til Húsavíkur haustið 1990. Jóhann fylgdist vel'með því sem var að gerast á Húsavík og hafði gaman af að fá fréttir þaðan ekki síst af sínum gömlu kunningjum og samferðamönnum. Þegar sá er þetta ritar fór til náms til Reykjavíkur árið 1969 var gott að eiga skjól undir verndarvæng þeirra hjóna. Heimili þeirra stóð mér ætíð opið og þar leið mér eins og ég væri heima. Gott var að geta leitað hvatningar og stuðnings hjá þeim hjónum þegar þess var þörf. Jóhann var grannvaxinn, meðal- maðul á hæð, kvikur í hreyfingum. Vinnusemi hans var við brugðið. Á hveijum degi, alla daga vikunnar, fram á síðasta dag, fór hann/til vinnu sinnar á verkstæðið. Jóhann var létt- ur í lund, en gat brugðið skapi þeg- ar svo stóð á. Hann bar skoðanir sínar og tilfinningar ekki á torg. Hann lét verkin tala. Sárt er að sjá á bak, með svo sviplegum hætti, kærum frænda og vini. Björn St. Haraldsson Til greinahöfunda: Minningar- og afmælisgreinar Það eru eindregin tilmæli rit- stjóra Morgunblaðsins til þeirra, sem rita minningar- og afmælis- greinar í blaðið, að reynt verði að forðast endurtekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar eru skrifaðar um sama einstakling. Þá verða aðeins leyfð- ar stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð inni í textanum. Almennt verður ekki birtur lengri texti en sem svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef meira mál berst verður það látið bíða næsta eða næstu daga. „STÓRMÓT í skák eru mjög VASKUR 0G VAKANDI RAUTT EÐAL GINSENG krefjandi. Þess vegna nota ég Rautt eðal-ginseng. Þannig kemst ég í andlegt jafn- vægi, skerpi athyglina og eyk úthaldið." Helgi Ólafsson, stórmeistarí í skák. - þegar reynir á athygli og þol Hvert hylki inniheldur 300 mg af hreinu rauöu eðal-ginsengi. HHHH 14.-23. nóvember \ -JR 4FSV> Geiið góð kaup á málningardögum Húsasmiðjunnar. HÚSASMIÐJAN Skútuvogi 16, Reykjavík Helluhrauni 16, Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.