Morgunblaðið - 21.11.1991, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
Niðurstaða sjúkraskýrslna á Vogi:
Fjórðungi íslenskra karla
hætt við vímuefnavanda
Vínveitingahúsum fjölgaði úr 37 í 148 á áratug
LÍKIJR eru á því að 27,8% allra karla og 11,5% allra kvenna á ís-
landi greinist einhvern tímann á ævinni með áfengissýki eða annan
vímuefnavanda. Þetta kemur fram í niðurstöðum tölulegra upplýs-
inga úr sjúkraskýrslum frá Vogi síðastliðin átta ár, sem kynntar voru
í gær.
Upplýsingarnar voru unnar upp
úr tæplega 10 þúsund sjúkraskýrsl-
um þeirra einstaklinga, sem komið
hafa á Vog frá því í ársbyrjun 1984,
er sjúkrahúsið tók fyrst til starfa.
I upplýsingunum kemur m.a.
fram að hlutfall kvenna á Vogi
hefur hækkað úr 21% árið 1984
upp í 25% árið 1990. Meðalaldur
kvenna sem fara í meðferð á Vogi
hefur lækkað lítillega og var í fyrra
35,1 ár miðað við 36,4 ár árið 1984.
Meðalaldur karla á Vogi er 34,3
ár og hefur fjöldi þeirra lækkað úr
486 einstaklingum árið 1984 í 391
einstakling í fyrra.
Hlutfall þeirra kvenna, sem komu
á Vog í fyrsta skipti, hækkaði úr
24,4% árið 1984 í 29,5% árið 1990.
Flestir þeirra, sem dvöldust á Vogi
í fyrsta skipti, voru á aldrinum 20
og 29 ára.
Einnig kemur fram að misnotkun
kannabis-efna virðist hafa minnk-
að. Árið 1984 komu 230 karlar og
77 konur á Vog, sem höfðu misnot-
að þessi efni, miðað við 163 karla
og 54 konur árið 1990. Árið 1984
komu alls 117 einstaklingar í með-
ferð vegna amfetamín-misnotkunar
miðað við 122 einstaklinga árið
1990. Þá hafði þeim sem komu í
fyrsta sinn fækkað úr 37 körlum
og 18 konum í 30 karla og 9 konur.
Að sögn Guðbjörns Björnssonar,
læknis á Vogi, hefur almenn neysla
á áfengi aukist verulega en dreifst
á miklu fleiri neytendur, og eru
konur t.d. farnar að neyta meira
áfengis en áður fyrr. Hann segir
að um þriðjungur þeirra tæplega
tvö þúsund einstaklinga, sem koma
í meðferð, séu að koma í fyrsta sinn.
Guðbjöm segir að enn hafi ekki
komið í ljós hver áhrif bjórinn hafi
almennt og sé full snemmt að segja
til um það. Bjórinn leiði hins vegar
til stöðugri drykkju en áður tíðkað-
ist.
Það kom einnig fram í máli for-
svarsmanna Vogs að gífurleg fjölg-
un hefur átt sér stað á veitingahús-
um með vínveitingaleyfi á síðustu
VEÐUR
IDAGkl. 12.00
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 (gær)
VEÐURHORFUR íDAG, 21. NÓVEMBER
YFIRLIT: Við norðurströnd landsins er 955 mb lægð, sem hreyfist
austnorðaustur. Lægðarsvæði suður af Hvarfi er vaxandi og þok-
ast norðaustur.
SPÁ: Strekkingur og rigning við suðurströndina, annars hæg breyti-
leg ótt og að mestu þurrt. Hiti frá *4 til +4 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Suðlæg átt, víðast
kaldi eða stinningskaldi. Skúrir eða slydduél um sunnan- og vestan-
vert landið en annars þurrt að mestu. Hiti O til 5 stig.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
0
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
a Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Y Skúrir
*
V El
E= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Snjókoma j 7 prurriuV6aur
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hftí veður
Akureyri 2 rigning
Reykjavík 5 rigning
Björgvin 2 snjóél á síð. klst.
Helsinki 44 súldásíð. klst.
Kaupmannahöfn 42 skýjað
Narssarssuaq 3 þoka
Nuuk 44 léttskýjað
Ósló +4 léttskýjað
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Þórshöfn 5 rlgn. á sfð. klst.
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam 4 skýjað
Barcelona 12 léttskýjaö
Berlfn 5 mistur
Chicago vantar
Feneyjar 11 rignlng
Frankfurt 6 rigning
Glasgow 2 mlstur
Hamborg 3 skýjað
London 7 léttskýjað
Los Angeles 14 heiðskfrt
Lúxemborg 3 alskýjað
Madríd 10 skýjað
Malaga 14 léttskýjað
Meliorca 12 rign. á sið. klst.
Montreal 12 þokumóða
NewYork 12 heiðskírt
Orlando vantar
París 4 i 1
Madeira 18 alskýjað
Róm 18 skýjað
Vin 6 rigning
Washington 14 léttskýjað
Winnipeg 49 léttskýjað / '
A'-.
Morgunblaðið/KGA
Frá vinstri: Grettir Pálsson, Þórarinn Tyrfingsson og Guðbjörn
Björnsson er þeir kynntu niðurstöður upplýsinga úr sjúkraskýrslum
á Vogi.
árum, eða úr 37 í kringum 1980 í
148 á árunum 1989-1990. Ástæða
þess að tölur hafi ekki hækkað eft-
ir að bjórinn var leyfður sé líklega
það öfluga forvamarstarf, sem unn-
ið er um allt land.
Sundstaðir í Reykjavík:
__
Aætlað rekstrartap 90
milljónir á næsta ári
SAMKVÆMT fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundaráðs vegna ársins
1992 verða sundstaðir í Reylyavík reknir með 90 milljóna króna tapi
það ár. Hefur stjórn Iþrótta- og tómstundaráðs samþykkt tillögu Júl-
íusar Hafstein, þar sem lagt er til að rekstur sundstaðanna verði
endurskoðaður.
í tillögunni segir að: „í framlagðri
fjárahgsáætlun vegna ársins 1992
er samanlagður rekstur fjögurra
sundlauga borgarinnar, þ.e. Sund-
hallar, Vesturbæjarlaugar, Laugar-
dalslaugar og Breiðholtslaugar áætl-
aður með tapi sem nemur rúmlega
90 milljónum króna. Á síðastliðnum
árum hefur í síauknum mæli hallað
á borgarsjóð vegna rekstrartaps
sundlauganna. Það er orðið tímabært
að snúa þeirri þróun við.
Með aukinni hagræðingu í rekstri
og hækkun á gjaldskrá frá áætlaðri
gjaldskrá næsta árs væri hægt að
koma rekstri sundstaða borgarinnar
í jafnvægi. Það er markmið sem
borgaryfirvöld eiga að setja sér
vegna reksturs þessara stofnana.
Með hliðsjón af framansögðu er lagt
til að rekstur sundstaðanna verði
endurskoðaður.”
Nýtt helgarblað Friðriks Friðrikssonar:
Viðræður um sam-
vinnu við Stöð 2 í bið
FRIÐRIK Friðriksson, eigandi Pressunnar, hefur átt viðræður við
fulltrúa Stöðvar 2 um samstarf við útgáfu á nýju helgarblaði. Frið-
rik segir að þau mál séu í biðstöðu þar sem Stöð 2 sé að kanna
útgáfu helgarblaðs í félagi við aðra aðila innan Nýmælis, undirbún-
ingsfélags að stofnun nýs dagbiaðs. Hann kveðst munu gefa út helg-
arblað hvort sem Stöð 2 á þátt í þeirri útgáfu eður ei og áformað sé
að blaðið komi út um áramótin.
Friðrik sagði að hann hefði kynnt
fulltrúum Stöðvar 2 þessa hug-
mynd, einkum vegna hugmynda
þeirra um Sjónvarpsvísi, en ljóst
hefði verið eftir samtöl sem hann
átti við þá að þeir myndu fyrst láta
reyna á útgáfu með Nýmæli.
Hann sagði öll áform um útgáf-
una væru óbreytt. Hann sagði að
útgáfan yrði byggð á sama stofni
og Pressan en hún myndi líklega
þýða fjölgun starfsmanna. „Það er
ljóst að við þurfum að styrkja rit-
stjómina,” sagði Friðrik.
Rúmlega 8.000 hafa
séð Hvíta víkinginn
RÚMLEGA 8.000 manns hafa séð
Hvíta víkinginn, eftir Hrafn
Gunnlaugsson, sem frumsýnd
var 2. nóvember síðastliðinn í
Háskólabíó.
„Þetta er sæmileg aðsókn eftir
tæpar þrjár vikur,” sagði Björn
Bjömsson kynningarfulltrúi mynd-
arinnar hér á landi. „Aðsóknin er
svipuð og að öðrum íslenskum
myndum. Fer hægt af stað en er
jöfn og þétt og ég spái því að hún
verði á svipuðu róli áfram.” Aðsókn
að íslenskum kvikmyndum hefur
verið á bilinu 10 til 15 þús. áhorf-
endur að undanförnu, að sögn
Bjöms. Gerð myndarinnar kostaði
um 400 milljónir króna og var hún
kostuð af Norrænu sjónvarpsstöðv-
unum. Um þessar mundir er verið
að hefja sýningar á henni á Norður-
löndum. Ef mæta á kostnaði þurfa
570 þús. áhorfendur að sjá myndina
í kvikmyndahúsi en auk þess eru
uppi hugmyndir um gera nokkra
sjónvarpsþætti, sem sýndir verða
síðar.
-----•-------
Brids:
Tveir heims-
meistaranna
spila á Ítalíu
Guðmundur Páll Arnarson og
Þorlákur Jónsson halda í dag
áleiðis til Campione á Italíu þar
sem þeir munu taka þátt í stór-
móti í brids.
Sextán völdum bridspörum var
boðin þátttaka á mótinu og eru sex
þeirra ítölsk en 10 víðsvegar að úr
heiminum. íslendingum var boðin
þátttaka eftir sigurinn á heimsmeist-
aramótinu í Yokohama.