Morgunblaðið - 21.11.1991, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
Meiri gauragangur
BókmenntSr
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir
Meiri gauragangur er framhald
af Gauragangi þar sem við kynn-
umst hinu orðheppna ungskáldi
Ormi Óðinssyni sem sveiflast á milli
gyðjunnar Lindu og hinnar fijálslega
vöxnu Höllu.
í Meiri gauragangi segir frá því
þegar Ormi tekst að fá Ranúr (Rún-
ar) besta vin sinn til þess að dvelja
með sér sumarlangt í kóngsins
Kaupmannahöfn og yfirvinna þar
með þá óumræðilegu bæklun að vera
orðinn 17 ára og hafa aldrei komið
til útlanda.
Ég verð að viðurkenna að ég hafði
ekki mikinn_ áhuga á að kynnast
þeim Ormi Óðinssyni sem kynntur
er til sögunnar á fyrstu síðum bókar-
innar og fann til lítillar samúðar
með þeim félögum þar sem þeir ráf-
uðu slyppir og snauðir um götur
stórborgarinnar eftir að hafa látið
tvær sænskar stelpur ræna sig öllu
nema forkunnar frímerkjabók sem
móðir Ranúrs hafði gefið honum að
skilnaði á Fróni. Ormur fór satt best
að segja töluvert í taugarnar á mér
með öllum sínum orðaflaumi og
merkikertaframkomu og þrátt fyrir
að höfundur geti auðsjánlega skrifað
skemmtilega texta gat ég ekki ann-
að en tekið undir með Lindu í fyrri
bókinni þar sem hún minnir Orm á
að hann þurfi ekki alltaf að segja
eitthvað (bls. 99) eins og hann virð-
ist sannfærður um sjálfur.
Öll þessi orð koma í veg fyrir að
maður nálgist persónuna og geti
hugsanlega líkað vel við hana en það
er enn erfiðara ef maður hefur ekki
lesið fyrri bókina þar sem kemur
fram að Ormur er með hjartað á
réttum stað þrátt fyrir allt.
Engu að síður ber því ekki að
leyna að söguþráður bókarinnar
teymir lesandann til að lesa lengra
og sjá hvernig þeim félögum reiðir
af. Þegar á líður verður Ormur líka
ögn meira spennandi. Það glittir í
mannlegar tilfinningar þegar hann
kynnist Klöru og þar kemur að Orm-
ur verður orðlaus. Sviðið er dópbæl-
ið Friðarörkin í Kristjaníu og á móti
honum stendur rakarinn ógurlegi
ásamt hyski sínu og hótar að skera
úr honum tunguna. „Ég var að velta
því fyrir mér að segja hinum hvílíkt
áfall sá tungumissir yrði fyrir ís-
lenskar bókmenntir, en komst að
þeirri niðurstöðu að fíflið hefði
kannski ekki fullan skilning á honum
bókmenntalega þætti málsins. Mér
sýndist betra ráð að brosa eins og
ég væri lukkunnar pamfíll að hitta
loksins fyrir ráðhollan, mjmdarleg-
an, ungan mann,” (bls. 122). Ormur
virðist þrátt fyrir allt hafa lært eitt-
hvað um sumarið og hann snýr heim
til þess að læra að elska þrinsessuna
sína af Hló.
Ranúr er ólíkur Ormi. Hann er
Ólafur Haukur Símonarson
hlédrægur, oft barnslega einfaldur
og lætur Orm sem hlustar ekki á
möglið í honum um forystuhlutverk-
ið. Hann er í raun trúverðugri pers-
óna en Ormur en er ekki gerð nægi-
lega góð skil af höfundarins hálfu
til að öðlast samúð lesendans.
Strákarnir komast í kynni við
fjöldann allan af fólki um sumarið.
Má þar nefna vélhjólagengi, hunda-
braskara og hústökulið.
Persónumar eru einhliða, meiri
týpur en margbrotnar persónur, og
fáar þeirra ná að snerta lesandann
þó einstaka standi upp úr. Má þar
nefna hjónakomin Litla-Jens og
Lottu sem eru haldin þeirri þrá-
hyggju að safna gosbrunnum, Lísu
í Undralandi og barnið hennar, hinn
þelkökka Cassíus.
Hér að framan hefur verið vikið
að persónusköpun sögunnar sem er
nokkuð brotakennd en skylt er að
geta þess að höfundurinn á góða
spretti þar sem hann lýsir pælingum
Orms og söguþráðurinn er ekki gal-
inn þó hlutirnir gerist stundum held-
ur hratt. Eflaust höfðar hann til ein-
hverra unglinga og þá sérstaklega
þeirra sem hafa lesið fyrri bókina
um Orm Óðinsson, þekkja til íjöl-
skyldu hans og kunna betri skil á
fyrri samskiptum hans við Lindu von
Snobber og Ijölskyldu hennar en
þeir sem ekki hafa kynni af öðru
en Meiri gauragangi.
Sagan íjallar um unglinga en
gæti alveg eins verið fyrir fullorðna,
að minnsta kosti fer lítið fyrir sér-
stökum unglingavandamálum í
henni.
77/ sölu eða leigu vel staðsett ca 280 fm einbýli + atvinnu-
húsnæði (2ja herb. íbúð) í Hólahverfi. Bílskúr.
Húsið verður til sýnis föstudag, laugardag og sunnudag.
Upplýsingar f símum 73906 og 73499.
Fossvogur - raðhús
Mjög gott endaraðhús ásamt bílskúr. Húsið stendur
neðan við götu. Sérbílastæði heim við hús. Frábært
útsýni. Falleg lóð í suður. Afhending í desember 1991.
Verð 15,9 millj. 354.
S: 685009-685988
ÁRMÚLA21
DAN V.S. WIIUM, LÖGFRÆÐINGUR,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI,
DAVlÐ SIGURÐSSON, SÖLUMAÐUR.
Dulheimar draumsins
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Kristján Frímann: Draumar.
Fortíð þín, nútíð og framtíð.
Hörpuútgáfan 1991, 231 bls.
Bók þessi er um drauma eins og
nafn hennar segir. Einkennileg er
hún á marga lund. Fræðirit getur
hún ekki kallast, þó að í henni sé
vissulega mikill fróðleikur. Ekki er
hún heldur í stíl við hinar mýmörgu
alþýðubækur um drauma og
draumaráðningar. í henni er heil-
mikla sálfræði að finna en sú sál-
fræði er lítt skipulögð og engan
vegin tengd saman í kenningar. Þá
er bókin jöfnum höndum ritverk og
myndverk. Margar myndanna eru
gerðar af höfundi bókar, sem er
myndlistarmaður. Vísa myndirnar
til draumefnis. Þá er talsvert af ljóð-
mælum í bókinni eftir ýmis ljóð-
skáld og einnig eftir bókarhöfund.
Texti samanstendur af örstuttum
köflum. Þar er fjallað um ótalmörg
atriði, en meginþunginn virðist mér
hvíla á draumatáknum ýmiss kon-
ar. Þá eru einnig birtir draumar og
stundum fylgja þeim ráðningar eða
greint er frá hvernig þeir hafa kom-
ið fram.
Það leynir sér naumast að bók
þessi er gerð af myndlistarmanni
sem er myndmál tamara en ritmál.
Ef til vill á það vel við þegar fjallað
er um drauma því að myndmálið
er einmitt að verulegum hluta tján-
ingarmiðill þeirra.
Enda þótt svo geti virst á stund-
um sem höfundur seilist býsna langt
í draumskýringum sínum, svo að
erfitt getur orðið að fylgja honum
á þessum torgengu slóðum, dylst
samt ekki að hann lítur svo á að
draumurinn endurspegli sálarlíf
dreymandans. En „sálarlíf ’ er raun-
ar nokkuð erfítt hugtak og deila
má um skilgreiningu þess. Víst er
að skilningur höfundar teygir sig
lengra en vísindin leyfa sér að fara.
En hver veit nema þau séu líka of
þröng? En þetta „endurspeglunar”
viðhorf er þeim sem þetta ritar vel
að skapi. Énda er það áreiðanlega
skynsamlegra en margt annáð sem
um drauma er sagt og skrifað.
Engum vafa er bundið að höfund-
ur hefur lagt mikla stund á „draum-
afræði” og að hann er orðinn mæta
vel kunnugur í þessu undarlega
Kristján Frímann
völundarhúsi. Án þessa hefði bók
hans alls ekki náð þeirri dýpt sem
hún óneitanlega hefur.
Þetta er sem sagt óvenjuleg bók
og er það ekki sagt í niðrandi merk-
ingpi. Hún hlýtur að vekja forvitni
og íhugnn og bregða ljósi inn í
dimma kima. Líklegt þykir mér því
að hún geti orðið ýmsum að haldi
sem fýsir að skoða þennan óræða
innheim sinn.
Til sölu eða leigu
Skrifstofu- og lagerhúsnæði
160 fm skrifstofuhúsnæði ásamt 80 fm lagerhúsn. á góðum stað í
austurborginni. Góð bílastæði og góð vöruaðstaða. Hentar vel heildsöl-
um. Söluverð 13 millj.
Verslunarhúsnæði
103 fm fallegt verslunarhúsnæði í hornhúsi við Laugaveg. Óvenju mikl-
ir og góðir útstillingargluggar. Laust í janúar nk. Verð 12 millj.
Verslunarhúsnæði
Til sölu eða leigu ca. 200 fm verslunarhúsnæði í áberandi hornhúsi
við Ármúla. Gott að koma fyrir auglýsingum á húsinu. Góðir útstillingar-
gluggar. Söluverð kr. 19 millj. Leiguverð kr. 175 þús. á mánuði.
Skrifstofuhúsnæði
Til sölu eða leigu ca. 400 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í fallegu skrif-
stofu- og verslunarhúsi við Ármúla. Húsnæðið er fullinnréttað og er
til afhendingar nú þegar. Hægt að leigja út í smærri einingum. Sölu-
verð er kr. 25 millj. Leiguverð er kr. 650 á fermetra.
Fyrir verktaka
Kjörið tækifæri fyrir verktaka, sem vilja eignast húsnæði undir starf-
semi sína og njóta hagnaðar af að Ijúka- byggingu húss. Til sölu eru
byrjunartramkvæmdir að ca. 200 fm húsi sem er ein hæð og hátt ris
sem yrði ca. 120 fm. Búið að steypa upp veggi neðri hæðar og búið
að steypa plötu. Töluvert af byggingarefni fylgir. Mikil lofthæð í þeim
hluta neðri hæðar sem milliloftið verður ekki yfir.
26600 Q^sieimUómtdii
Skúlagölu 30, 3. h. - S.
Þorsteinn Steingrímsson, Ig. fs.
ft
Fyrsta sendingin af ódýru og vönduðu listaverkabókunum
frá Benedikt Taschen Verlag er komin
Verðið er mjög hagstætt - frá kr. 499,-
Bókabúð Steinars - Bergstaðastræti 7
Opið frá fcl. 13 - 18 og á laugardögum fram til jóla
jr-iptfi | i iH. m • .1 jú j fiMA } 'f| }* MTr'rF;n,i
Hafnarfjarðarkirkja.
Hafnarfjarðarkirkja;
Fræðslufund-
ir um safn-
aðarstarf
SÉRA Bárður Jónsson, verkefna-
stjóri um safnaðaruppbyggingu
í Þjóðkirkjunni, heimsaekir söfn-
uð Hafnarfjarðarkirkju laugar-
dagsmorguninn 23. nóvember og
liefur röð fræðslufunda um hlut-
verk kirkjunnar í nánust framtíð,
mótun og uppbyggingu fjöl-
breytts safnaðarlífs.
Fundir þessir fara fram í safnað-
araðstöðu Hafnarfjarðarsóknar í
Dvergi, gengið inn frá Brekkugötu,
laugardagana 23. nóvember og 30.
nóvember og svo 7. desember. Þeir
hefjast kl. 11 og standa fram að
hádegi en þá verður þátttakendum
boðið upp á spjall og léttan hádegis-
verð. (úr Fréttatilkynningu)